Tíminn - 18.02.1973, Page 3

Tíminn - 18.02.1973, Page 3
Sunnudagur 18. febr. 1973 TÍMINN 3 eru, þar er líf áhrifameira verður það sem hann segir: — Ég veit að ég nota stór orð, — kannski of stór, en ég er and- vigur þvi að öryrkjar og aldraðir séu gerðir ómyndugir, átthaga- bundnir og að flytja megi þá hreppaflutningi. Allt þetta á sér stað nú. Menn meta t.d. að liku unga og gamla bótaþega og vangefna og geðveika. Lifeyrir þeirra er tekinn og þeir aðeins látnir fá vasapeninga. En hér er um fólk með fullu viti að ræða! Að það er fatlað eða orðið gamalt ætti ekki að vera næg ástæða til að svipta það sjálfsforræði! Ég er sannfærður um að ibúarnir hér geta sjálfir séð um fjármál sin, og ég held ekki að það sé neinn ávinningur fyrir hið opinbera að taka að sér hlutverk „stórabróður”. Hvað átthagafjötra snertir, telur Poul Jensen hróplegt órétt- læti að aldraðir geti ekki ákveðið á hvaða elliheimili þeir dvelji. Sveitarfélög gera ekkert til að skipta á vistfólki slikra heimila. Meira frelsi rikir hins vegar á sjálfseignarstofnun eins og Lisu- lundi, sem ber ekki eingöngu skylda að veita viðtöku ibúum úr héraðinu. Þrir fjórðu af íbúum Lisulunds eru frá Álaborg og nágrenni. Hinir eru annars staðar að af landinu. — Ef við getum tekið við bæði börnum og foreldrum gerum við það. Við viljum lika gjarnan bjóða velkomið fólk, sem er fætt i héraðinu og vill snúa aftur. Poul Jensen bendir á að ,,h r e ppa f 1 u t n i n g u r ” sé miskunnarlaust hugtak. En hann er samt raunveruleiki fyrir marga, sem mega sin einskis gegn yfirvöldunum. Samkvæmt framfærslulögunum eiga sveita- félögin að sjá ibúunum fyrir elli- og hjúkrunarheimilisplássum. En ef ekki er nægilegt rúm verða aldnir og fatlaðir að flytja þangað, sem sveitarstjórninn finnur húsaskjól handa þeim. — Ég kalla það t.d. „hreppa- flutning” þegar Kaupmanna- hafnarborg flutti um skeð fatlaða til Julesminde. Meðan við erum ung og ferðafær fáum við þó að ákveða sjálf hvar i landinu við helzt viljum eiga heima. Breyttur hugsunar- háttur nauðsynlegur — Ég held að við eigum nóg dvalarheimilisrými, ef við aðeins notum þau rétt. Rannsóknir i Odense og siðar á Norður Jótlandi hafa sýnt að allt að 30% af þvi fólki, sem dvelst á hjúkrunar- heimilum gætu verið annars staðar, ætti kost t.d. á vernduðum bústöðum, þar sem öldruðum eða fötluðum er búin sama umönnun, þjónusta og öryggi og þeim sem eru á hjúkrunarheimilum. Við höfum að auki sannað með til- raunum okkar hér að það er langtum ódýrara fyriri samfé- lagið að hafa fatlað fólk i vernd- uðum bústöðum fremur en á hjúkrunarheimilum. Dvalar- kostnaður hvers einstaklings á hjúkrunarheimilinu hér er meira en 1.100.000.00 kr. (isl.) á ári og á að gizka helmingi meiri fyrir hjón. Sé sami einstaklingur fær um að búa i vernduðum bústað, lækkar dvalarkostnaðurinn niður i 530.000.00 fyriri einstakling og 640.000.00 fyriri hjón. Og viðkom- andi geta auk þess verið i sinu umhverfi. Það er kannski mikil- vægast. Ég óttast að þróunin i samfé- laginu verði sú að annaðhvort höfum við ekki efni á að halda lifi i öldruðum og fötluðum, eða búa verði hjúkrunarheimili og vernd- aða bústaði mun verr úr garði en nú er gert. Þetta er dapurleg framtiðarsýn en raunsæ, og hún verður að veruleika ef ekki verður að gert. Bjartsýnn Ibúar Lisulunds eru úr öllum þjóðfélagsstéttum. Fyrrverandi yfirlæknir heimilisins er þarna i hjólastól. Með vinstri hendi saumar hann litskrúðugar myndir i hessianstriga. Hann er i framför, en hann er þó ekki enn búinn að fá mátt i hægri hendi eftir lömun, sem hann varð fyrir. Mathilde Sörensen, sem er fötluð, er innilega glöð yfir þvi að ambassador Dana i Boliviu, ætlar að hafa 70 dökkbláar tauþrykk- servéttur, sem hún hefur gert, i jólaveizlunni sinni. Litlu prinsarnir Friðrik og Jóakim fengu skemmtileg dyra- skilti máluð á hessian frá Marianne Petersen og Börge Höj- feldt Nielsen. Margrét drottning og Hinrik prins tóku þessum gjöf- um fegins hendi þegar þau heim- sóttu Lisulund i sumar. Hér er pósturinn i Brönderslev, húsmóðir frá Silkeborg, bóndi, hreppsnefndarmaður og 34 ára maður, sem nýlega lenti i alvar- legu umferðarslysi. Einn sér illa, annar er heyrnarlaus, sá þriðji er lamaður i fótum og handleggjum, en sér bæöi og heyrir. Þetta er fólk — og það er lif i augum þeirra. — Andstætt þvi þegar ég stund- aði svæfingahjúkrun og það var um að gera að svæfa sjúklingana sem allra fyrst, hef ég lært af vinnunni hér að það á ekki að svæfa lifið og deyfa. Menn eiga að lifa — til fullnustu, segir Poul Jensen. Henry Christensen og fimm ára dótturdóttir hans vinna mósáik. Birta Jörgernsen, hefur fengið félaga sína úr skátastarfi, til, að hjálpa ibuum Lisulundar. Hér skrifar hún bréf fyrir Ellu Amöndu Andersen. Kirtsten Thunbo, dóttir aðalsjúkraþjálfarans, i heimsókn hjá Karenu Larsen. Kirstcn er skólasytir barnabarna Karenar. Kynslóðabil er ekki til i Lisulundi. Börn, aldraðir og fatlaðir hafa komizt að raun um, að þau hafa margt um að tala sin i milli — til gagn- kvæmrar ánægju. Veljið yður í hag OMEGA Úrsmíði er okkar fag Nivada rOAMEr JUpina. Mlagnús E. Baldvlnsson Idugavegl 12 - Slmi 22104 BILALEIGA IIVEUFISGÖTU 103 VJVSendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagn VW9manna-Landrover 7manna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.