Tíminn - 18.02.1973, Side 8

Tíminn - 18.02.1973, Side 8
8 TÍMINN Sunnudagur 18. febr. 1973 „Gcngisfellinga-skólinn”, — Alftamýrarskóiinn i Reykjavík. Næst á myndinni er iþróttahús skólans. i Kópavogi ogvegbrú viö Elliðaá, hitaveitu fyrir Reykjavikurborg og Kornhlöðuna við Sundahöfn. Næstu tvö árin 1970-1972 má segja, að ég hafi ekki haft annað en smáverkefni. A þessum tima byggði ég m.a. brú fyrir Þórisós h.f. i ölfusinu og brýr á Vestur- landsveginum. Næsta stórverk, sem ég tek, var hitaveitustokkur- inn frá Reykjum i Mosfellssveit til Reykjavikur. Ég hóf þetta verk siðastliðið vor og er nú búinn með 2/3 af þvi. Þessi nýja æð er tengd inn á gömlu æðina við Korpúlfs- staði, og á að vera lokið að leiða hana inn i bæinn næsta haust. En öllum frágangi við þetta verk á að vera lokið á miðju sumri 1974. Þau verk, sem ég er með i gangi núna, eru hitaveitustokkur- inn og undirgöng i Kópavogi við Digranesvegarbrúna, stoðmúra o.fl. — Og hvaða framkvæmdir ætl- arðu að leggja út i næst? — Næst hef ég hugsað mér að far að byggja á hinum nýskipu- lagða miðbæ Kópavogs, og reikna ég með, að þær framkvæmdir geti hafizt með vorinu. — Það var þarna varðandi þessi undirgöng i Kópavogi. Geturðu skýrt nokkuð frekar tilgang þeir>-a? — Göngin koma að austanverðu við endann á Digranesvegarbrú og eru hugsuð þannig, að það verður strætisvagnabiðstöð við niðurkeyrsluna i gjána að austan- verðu, og það verður að hafa þarna undirgöng, til þess að fólk geti komizt þarna yfir. Annars væru allir i stórri lifshættu, þar sem þessi vegur heyrir undir hraðbraut. Þessi göng eru sem sagt eingöngu fyrir gangandi fólk. — Svo að við höldum okkur enn við framkvæmdir þinar á liðnum árum. Kornhlöðu-turninn við Sundahöfn þykir hin myndar- legasta smið, og eins mun bygg- ing hans hafa verið með nokkuð sérstæðum hætti, eftir þvi sem tiðkast hefur hér á landi. Viltu ekki lýsa þvi i nokkrum orðum. — Annan ágúst árið 1970 var byrjað að smiða mótin fyrir turn- inn inni við Sundahöfn og koma upp vinnuaðstöðu. Við buðum i þetta verk i félagi við norska verktakafyrirtækið Selmer, sem hefur aðsetur i Osló. Sá verk- fræðingur, sem sá um þetta verk fyrir mig, var Vifill Oddsson, sem reiknað hefur út flest verk fyrir mig og verið min hægri hönd við flestar minar framkvæmdir. Við sendum út teikningarnar af turn- inum til Selmer og létum þá reikna þær út. Siðan buðum við i verkið út frá þessum útreikning- um, ef svo má segja. Við bygging- una voru notuð svokölluð skríð- mót og sömdum við við Selmer um að fá leigða hjá þeim vökva- tjakka, sem nauðsynlegir voru við þessa framkvæmd, og yfirleitt allan tæknilegan búnað. Byrjað var að steypa turninn 25. september og 15. október var búið að steypa hann upp i endan- lega hæð, 45 m, en þá var eftir ýmis frágangur inni i honum. En sem sagt, — það tók okkur aðeins 20 daga að byggja hann. Ef ég man rétt, þá fóru i hann alls 2.200 rúmmetrar af steypu. Að minu Hér er LjósmæOraskóli tslands til húsa. Tvær efri hæöir þessarar álmu byggöi Brún. h.f. sumariö 1966, og var það fyrsta verkefni fyrirtækisins. Hér sést hluti hins nýja hitaveitustokks, sem Brún er að byggja frá Reykjum i Mosfellssveit til Reykjavikur áliti tókst framkvæmdin mjög vel. Turninn tekur 5.400 tonn af korni, fullur. Eins og þú sást sjálfur er öllu kerfinu i turnin- um fjarstýrt og sér einn maður um það. Þessi turn er á allan hátt til fyrirmyndar, en hitt er svo annað mál, að hann er alltof litill miðað við kornnotkun lands- manna. Gegnum hann fóru um 20.000 tonn á siðasta ári, en reikna má með, að kornnotkunin sé allt- af 100.000. — Fyrst við erum komnir niður að Sundahöfn hinni frægu og margumdeildu langar mig til að heyra álit þitt á henni sem slikri. — 1 fáum orðum sagt er það álit mitt, að Sundahöfn eigi mjög mikla framtið fyrir sér, vegna legu sinnar og annars. En við megum ekki gleyma þvi, eins og sumir virðast gera, að þarna er aðeins kominn upp fyrsti áfang- inn. Þaðhefur verið skrifað mikið um það, að þetta væri dýr fram kvæmd. En við eigum ekki að vera að tala um dýrar fram- kvæmdir i verðbólgubióðfélagi Baldvin Baldvinsson sem okkar: dýr framkvæma i dag er orðin ódýr á morgun. Við eig um nefnilega aðeins einn guð — verðbólguguðinn. Það trúir eng- inn lengur á guð kirkjunnar. Verðbólguguðinn ræður. Mannaþörfin barómet á mannaþörfina i þjóðfélaginu — Flestum hér á Reykjavikur- svæðinu er mjög annt um blessað heita vatnið. Reykjavikurborg er nú að öllu tengd hitaveitunni, Kópavogur biður hennar von- glaður. Það er þvi rétt, að við ræðum ögn nánar þær hitaveitu- framkvæmdir, sem þú hefur með höndum. — Nú, framkvæmdin, sem við höfum með höndum, er að byggja steyptan stokk 9,3 km að lengd, og inni i honum er stálpipa, 70 senti- metra i þvermál, sem kemur til með að flytja heitt vatn frá Reykjum til Reykjavikur. Samningurinn við Kópavog o.fl. byggist einmitt á þvi viðbótar- vatnsmagni, sem um þessa leiðslu mun fara. Við tökum þennan stokk frá dælustöðinni hjá Reykjum að vegamótunum við Arbæjarhverfi. Við sjáum um stokkinn að öllu leyti, tökum við jarðveginum eins og hann er með ákveðnum fastmerkjum frá Hita- veitunni eða hönnunaraðila henn- ar, sem er Fjarhitun, en hún er raunar bæði hönnunar- og eftir- litsaðili. Og, eins og ég hef áður sagt, á verki okkar að vera lokið endanlega á miðju sumri 1974. Samningurinn við hitaveituna var undirritaður 25. april siðastliðið vor. — Hvernig gekk framkvæmdin hjá ykkur i sumar? — Hún var ýmsum erfiðleikum bundin og það fyrst og fremst vegna hinnar miklu spennu i at- vinnulifinu. Get ég sagt með sanni, að siðasta ár er þaðversta, er ég hef lifað sem verktaki. Spennan var svo svakaleg vegna

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.