Tíminn - 18.02.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Laugardagur 17. febr. 1973.
Siðbúin sending
Böggull barst til Guisborough
i Yorkshire i Englandi, og var
skrifað utan á til ábóta i klaustri
nokkru. Póstyfirvöldin sendu
böggulinn til sendandans'
aftur, og létu þær upplýsingar
fylgja að ábótinn væri farinn.
Það hafði reyndar verið Hinrik
konungur VIII, sem vék honum
úr embætti árið 1540. En það eru
fleiri ruglaðir i riminu heldur en
Englendingar. Dantestofn-
uninni i Niirnberg i Þýzkalandi
barst bréf, þar sem spurzt var
fyrir um heimilisfang Dantes.
Sagði sá, sem um þetta spurði,
að hann væri aö hugsa um að fá
Dante til þess að þýða fyrir sig
bréf af itölsku á þýzku. Þetta
italska skáld lézt árið 1321, svo
sennilega hefur ekki verið hægt
að fá aðstoð hans við bréfa-
þýðinguna.
<5
Leyndarmálin
opinberu
Vandamál fólks, sem skilur,
giftir sig aftur, skilur á nýjan
leik, og giftist enn á ný,
upprunalegum maka sinum eru
sögð mörg. Þó eru mörg
þessara vandamála leyst með
þvi, að segja fyrsta og endur-
heimta makanum ekki nema
undan og ofan af þvi, sem gerzt
hefur frá þvi skilnaðurinn fór
fram og þar til íólkið tekur sam-
an á ný. Þetta getur gert sitt
gagn, en ein eru þau hjón, sem
eiga erfitt með að notfæra sér
þessa þagmælsku, það eru þau
Natalie Wood og Bob Wagner.
Nat getur hreint ekki leynt Bob
neinu þeirra ástarævintýra sem
hún lenti i á meðan hún ekki var
gift Bob, þvi frá þeim er öllum
sagt meö risafyrirsögnum i
vikublöðum og öðrum blöðum
um allan heim, þvi fátt hefur
Nat tekið sér fyrir hendur, sem
ekki hefur verið skrifað um. En
nú eru þau Bob og Nat tekin
saman á nýjan leik, eins og frá
hefur veriö skýrt hér áður. Það
eru tiu &r liðin frá þvi Nat og
Bob skildu, og þá eftir aðeins
fjögurra ára hjónaband. Senni-
lega verður Nat að byrja
frásögnina strax eftir skiln-
aðinn, ef hún ætlar einhvern
tima að segja Bob, sögu sina.
Hjónaband þeirra var margum-
rætt,þegar þau giftust, en það
endaði með ósköpum m.a.
vegna þess að þau voru bæði svo
ung og bæði voru að
hasla sér völl á leiksviðinu. Nat
gekk betur, og dómarnir, sem
Bob fékk fyrir leik sinn i kvik-
myndunum voru siður en svo
góðir. Allt varð þetta til þess aö
eyðileggja hjónaband þeirra.
Og hjónabandið fór út um þúfur,
en 17. júli i sumar giftu þau sig
aftur, og nú blasir framtiðin við
þeim. Nat er hamingjusamari
en nokkru sinni fyrr, og sömu
sögu er að segjá um Bob, Þau
reyna eflaust að tala sem allra
minnst um það, sem liðið er
enda skiptir framtiðin þau öllu
máli.
☆
Áhrif auglýsinganna
Auglýsingar hafa ekki alltaf
þau áhrif, sem auglýsendurnir
hafa hugsað sér. Nokkur dæmi
um það fara hér á eftir. Te-
heildverzlun i Englandi ætlaði
að reyna að auka tesöluna, og i
auglýsingunni mátti sjá konu
vera að búa til te i að þvi er
virtist ósköp venjulegum
tekatli. En hvað gerðist.
Tekatlar af þessari gerð seldust
eins og glóandi gull, en litil
sem engin breyting varð á tesöl-
unni. Eggjaframleiðendur
ætluðu að reyna að auka eggja-
neyzlu og til þess tóku þeir að
auglýsa egg i tvöföldum eggja-
bikar. Til fyrirtækisins
streymdu fyrirspurnir um það
hvar hægt væri að fá þessa ein-
staklega merkilegu eggja-
bikara, og það var ekki auð-
hlaupið að þvi að fá þá keypta
eftir nokkrar vikur. Dagblað
eitt sýndi dreng á hjóli, sem var
að bera út blaðið til kaupenda.
Hjól af sömu gerð runnu út eins
og heitar lummur. Það má
passa sig á þvi, að auglýsingin
hafi þau áhrif, sem henni eru
ætluð, þvi seinnilega vildu menn
ekki lenda i þvi sama og tekaup-
maðurinn og eggjasalinn, að
umbúðirnar yrðu eftirsóttari en
innihaldið ekki.
☆
Ilmvatn i garðinn
HIN SEX ára gamla Rene
Arvais var úti I garði við heimili
sitt i Paris, var að hnýta sveig
úr fiflum. Blómin önguðu ekki
eins vel og ilmvatnið, sem var
til sölu f búðinni, sem pabbi
hennar rak á fyrstu hæð
hússins. Brá hún sér þvi inn og
náöi i lykla föðursins, opnaði
búðina og náði sér i nægar
birgðir af ilmvatni. Steinkaði
hún allan garðinn með ilm-
vatninu, en enginn tók eftir þvi,
hvað sú litla var að gera fyrr en
um seinan, en þá hafði hún hellt
niður ilmvatni fyrir 11.000 pund,
sem er vist um 2 milljónir og 530
þúsund krónur. Dýr ilmur i
þeim garði
DENNI
DÆMALAUSI
Það tæki ekki leikkonu svona
langan tíma til þess að klæða sig
fyrir sýningu.