Tíminn - 18.02.1973, Page 17

Tíminn - 18.02.1973, Page 17
Sunnudagur 18. febr. 1978 TÍMINN 17 Kvennagullið Clark Gable í einni af sýnum geysivinsælu kvikmyndum, — „karlmannlegur með blik i augum og yfirskegg”. eöa árið 1923. Hún var dómara- dóttir og veitti einkakennslu þeim, sem ætluðu að verða leikarar. Hún hafði mikla trú á Clark. Hún taldi sig hafa meiri möguleika i Hollywood og flutti þvi þangað með kennslu sína. Clark fór með henni og bað henn- ar brátt, eftir að til Hollywood kom. Hún var nokkuð efins vegna aldursmunarins, en gaf þó sam- þykki sitt. Þau giftu sig i desem- ber árið 1924. Josephine útvegaði manni sinum smáhlutverk, en það leit ekki út fyrir, að Holly- wood þarfnaðist hans á þessum tima. Hann starfaði nokkuð með Pola Negri og Rod La Rocpue, en snéri sér brátt aftur að leiksvið- inu. Frá Broadway til Hollywood Sem almennum ieikara vegnaði honum all vel, og eftir átta mán- aða leikför um Bandarikin, byrj- aði hann að leika á Broadway i New York. Næstu þrjú árin lék hann þar i sex leikritum, en fór þá aftur i leikferðalag. Á þessum tima hafði hann engan hug á þvi að fara til Hollywood og kvik- myndaiðnaðarins. En þegar hann kom aftur til Broadway úr leik- förinni, hafði Lionel Barrymore samband við hann og tjáði hon- um, að hann ætti heima á léreft- inu. Bauðst Barrymore til að gera reynslu-upptöku með honum. Irv- ing Thalberg hjá MGM (Metro- Goldwyn-Mayer) sá upptökuna og gerði nokkuð, sem hann játaði siðar, að hefði verið sin mestu mistök um ævina. Hann visaði Clark Gable á bug. En Pathe hafði áhuga og lét hann fá hlut- verk i myndinni „The Painted Desert”, sem gerð var árið 1930. Aður en myndin var sýnd opin- berlega, voru reynslu-upptökurn- ar með Clark Gable sýndar Darryl Zanuck hjá 20th Century Fox. Thalberg komst á snoðir um þetta og ályktaöi sem svo, að ef Fox hefði áhuga á Gable, hlyti honum sjálfum að hafa skjátlazt. Hann sló þvi til og flýtti sér að gera tilboð við Gable upp á 600 dollara á viku, áður en Fox hafði lagt fram sitt tilboð. Gable undir- ritaði samninginn og starfaöi upp frá þvi hjá MGM, burtséö frá þvi, að nokkrum sinnum var hann lán- aður öðrum kvikmyndafélgöum. Hjónaband Gable og Josephine Dillon varð ekki hamingjusamt. Aldursmunurinn varð til æ meiri vandræða og ljóst varð, að skiln- aði yrði ekki afstýrt. Hjónaband númer tvö Svo virðist sem Clark Gable hafi kosið eldri konur á þessu timabili. Sagt var, að hann þyrfti konu til að vera sér móðir, eins og stjúpmóðir hans og Josephine Dillon höfðu verið. Næst varð fyr- ir valinu Ria nokkur Langham, sem var 11 árum eldri en hann. Hún átti tvö börn tiu ára að aldri. Vinir Clarks sögðu, að hann væri algjör þorskur að leggja út i hjónaband, sem væri algerlega dauðadæmt. Clark var þá þegar orðinn stjarna. Hann hafði látið sér vaxa yfirskegg, sem siðar varð svo frægt, hafði tileinkað sér dálitið kæruleysislegan talsmáta og yfir- leitt svip hins hættulega og sterka manns. Hann hafði öðlast sitt kunna sjálfsöryggi og fifldjarfa augnaráð. Og hann hafði meiri hæfileika til að heilla konur en nokkur annar kvikmyndaleikari, siðan Valentino var og hét. Karl- mönnum geðjaðist einnig ágæt- lega að honum og vildu gjarna likjast honum. Arið 1934 fékk hann Óskars- verðlaunin fyrir leik sinn i mynd- inni „Það skeði um nótt” með Claudette Colbert. I þeirrri mynd sýndi hann sinn meðfædda hæfi- leika til að leika gamanhlutverk, og einnig hið ómótstæðilega að- dráttarafl, sem hann var fyrir konur. Eins og spáð hafði verið fór hjónaband hans og Ria Langham brátt i hundana, og árið 1935 skildu þau. Árið 1937 kynntist hann leikkonunni Carole Lom- bard. Hann var þá að ná tindi leikferils sins. Þetta var ást við fyrstu sin hjá þeim báðum, en skilnaðurinn frá Ria Langham komst ekki i lag fyrr en i marz 1939, er Gable var I upptökum á stórmyndinni „A hverfanda hveli”. Hamingja og harmur Meðan unnið var að upptökum á „Á hverfanda hveli” skruppu þau Clark og Carole til Kingman i Arizona og létu gefa sig þar sam- an i meþódistakirkju. Vinir Clarks urðu nú glaöir, þar sem þeir þóttust þess fullvissir, að Clark hefði loks fundið þá réttu. Carole vildi leggja fram sinn skerf og fór að selja verðbréf, sem rikið gaf út til styrktar striðsrekstrinum. I þvi skyni ferðaðisthún með flugvél um ger- völl Bandarikin. Hinn 16. janúar 1942 frétti hún, að Clark hefði lát- ið skrá sig i flugherinn, og sendi hún honum þá simskeyti og ósk- aði honum til hamingju með að hafa sameinazt hersveitunum. Það var siðasta sambandið, sem þau höfðu sin i milli. Carole var á leið heim með her- flugvél og voru alls 17 manns um borð. Clark haföi farið út á flug- völl til að taka á móti henni, er hann frétti, að flugvélin hefði hrapað og allir um borð farizt. Hann fór heim til sin algerlega niðurbrotinn maður. Þar beið hans simskeyti frá Franklin D. Roosevelt, sem var á þessa leið: „Eiginkona yðar lézt á vigvellin- um i þjónustu lands sins eins og hver annar hermaður.” Carole var jörðuð i Glendale i Kaliforniu, og við hlið hennar tók Clark einnig frá pláss fyrir sjálf- an sig til þess að hafa það til reiðu, er hans timi kæmi. Hann var alveg sannfærður um, að hann myndi sameinast Carole á ný. Enginn gat haft hann ofan af þeirri óbifanlegu skoðun. Nazistar vildu fá hann, dauðan eða lifandi Clark Gable var útnefndur lautinant i flughernum og sendur til Englands. Þaðan fór hann sið- an i margar árásarferðir yfir Þýzkaland, og i einni þeirra olli flokkur hans geysilegri eyðilegg- ingu i Ruhr-dalnum. Þetta olli all- mikilli ólgu I Þýzkalandi að sögn og gefin var út tilkynning, undir- rituð af Göring persónulega, þar sem heitið var verðlaunum þeim, sem næði Clark Gable, dauðum eða lifandi. Eftir heimkomuna úr striðinu hófst nýr kafli i Gable-timabilinu. Clark var vinsælasti og eftirsótt- asti leikari þeirra tima, en sjálfur var hann mjög einmana og niður- dreginn. Hann fór oft til að vitja um gröf konu sinnar, Carole. Hann hafði ekki löngun til að kvænast aftur. En árið 1949, sjö árum eftir lát Carole, hitti hann lafði Sylvia Ashley, sem áður var eitt sinn gift Couglas Fairbanks yngri. Kona þessi hafði fjögur hjónabönd að baki. Þegar vitnað- ist, að Clark ætlaði að kvænast henni, réðu vinir hans honum ein- dregið frá þvi. En Clark var svo einmana að hann lét ekkert aftra sér frá þvi aö komast i höfn hjónabandsins. Þau giftu sig árið 1949 og stóð það hjónaband til 1952. Lafði Sylvia Ashley kvartaði sáran yfir þvi, að Clark væri stöð- ugt að hugsa um hina látnu Carole og talaði um hana á hverj- um degi. Clark játaði, að svo hefði verið. — Þeir, sem lifandi eru, ættu ekki að vera afbrýöisamir út i þá, sem liðnir eru, og neita manni um að gæla við þær minningar, sem eru manni kærar. Glæst framabraut, fimmta hjónabandið Framabraut Clarks Gable var vörðuð stöðugum kvikmynda- sigrum. Hann hafði enga lélega mynd að baki sér. A sinn máta var hann hlédrægur. — Ég er góður leikari, sagði hann, — en ég vinn mikið og er enginn Adonis. Karlmönnum er ekkert illa við það, þótt konur þeirra eða kærustur séu hrifnar að mér. Ég er ósköp venjulegur maður, og þeir vita þaö. Lifið er þess vert að lifa þvi, þótt mót- vindar geti verið ýmsir. Lifið verður aldrei greitt of háu verði. Aðdráttarafl Clarks missti sin aldri. Menn héldu, að hann myndi halda sinu striki til æviloka. Hann fékk bréf með hjónabandstilboð- um á hverjum degi. Hann hélt sig frá hjónaböndum að þessu sinni, en sagði: „Er ég hitti konu, sem ég held, að geti veitt mér ham- ingju og að ég geti veitt henni það sama, ætla ég að biðja hana að kvænast mér.” Og hann kynntist einmitt slikri konu. Það var Kay Williams. Hún var þrigift og átti son og dóttur. Þau báru mikið traust til hvors annars, þrátt fyrir fortiðina, svo mikið, að þau ákváðu að gifta sig. sig. — Ég er gamaldags, sagði Clark eftir brúðkaupið 1955. — Þetta er það, sem ég trúi raun- verulega á. Munið að lifa lifinu, meðan þið eruð ung, en gleymið ekki þvi, sem hlýtur að koma. Ég er venjulegur maður. Ég held ekki, að ég hafi nokkuö af þvi sér- staka kynferðislega útliti, sem allir tala um. Sannur „gentleman" Clark Gable var þekktur fyrir að koma fram sem heiðursmaður gagnvart öllum. Greta Garbo lét eitt sinn svo um mælt I einlægni við vini sina, að Gable væri eini, sanni sjentilmaðurinn, sem hún hefði nokkru sinni unnið með. Ava Gardner, sem lék með Gable I myndinni „Mogambo”, sagö>: „Ég myndi vilja leggja allt i sölurnar fyrir Clark. Það hefur aldrei veriö til annar eins elsk- hugi og hann á hvita tjaldinu. Og það veldur oft vonbrigðum að hitta menn, sem leikið hafa *lsk- uga af mikilli kúst. En .Clark veldur ekki vonbrigðum.” „Risið á fætur, aumi lýður; Hér kemur Konungurinn”, sagði Spencer Tracy eitt sinn, er Gable kom gangandi i hægðum sinum. Þessi titill var fastur við hann allt til dauða, og raunar heldur hann honum enn. Kay Williams átti, eins og áður segir, 2 börn, er hún giftist Clark. Hann tók við þeim og annaðist þau, eins og þau væru hans eigin börn. Hann langaði samt að verða eiginlegur faðir. Kay missti fóst- ur nokkrum sinnum, en loks kom aö þvi, aö hún átti barn, drenginn John, sem varö eina barn Clarks. Hjartaslag Clark hefði ekki veriö nauðsyn á að vinna. Hann átti næga pen- inga til æviloka. En hann elskaði starf sitt, kvikmyndaleikinn. Fimmtiu og niu ára gamall sagði hann: „Ég er oröinn leiöur á þvi að leika ungan „sjarmör”. Nú vil ég hlutverk, sem hæfa aldri min- um. Siðasta mynd Clarks Gable var „The Misfits”, þar sem hann lék með hinni frægu kynbombu Marilyn Monroe. Um þetta leyti vóg Clark langt yfir 100 kg, en til þess að passa i hlutverkiö varð hann að leggja af um 20 kg. Það kostaði mikla'andlega og likam- lega áreynslu. Er verið var að leggja siðustu höndina á þessa siöustu mynd, lézt Clark Gable, „Konungur- inn”, skyndilega af hjartaslagi. Alagið hafði verið of mikið. Þá var hann aðeins 59 ára. Hann hafði leikið I alls um 200 kvik- myndum, en siðustu árin i aðeins tveimur á ári. Þetta verður látið nægja um þennan frægasta kvikmyndaleik- ara Bandarikjanna. Hann var alla sina ævi haldinn mikilli at- hafnaþrá og hataði að sitja að- gerðalaus. Eftirlætistómstunda- gaman hans var aö fara i veiði- túra. —Stp (þýttogendursagt) Kay Williams, ekkja Clarks Gable og móöir hans eina barns. í þessari grein upplýsir hún, að hún hafi nokkrum sinnum fengið alldularfuilar „heimsóknir”. Carole Lombard, sem fórst I flugslysi árið 1942, var hin mikla ást I lifi Clarks Gable.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.