Tíminn - 18.02.1973, Síða 24

Tíminn - 18.02.1973, Síða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 18. febr. 1973 ' . '.ií'-.’ZÍi'í' . " \ lyndi, en þó gat ég vel veriB án hans, hugsaði Fanney með sér. Það var ekki honum að kenna, fullyrði hún, hann var góður, trúr og tryggur, hún hafði gifzt hon- um án þess að hugsa sig um. Það var af þvl að ég vissi ekki nóg þá annars heföi ég hugsað mig tvisv- ar um,” hugsaði hún með sér. Hún fann nú, að hún hafði verið hamingjusamari éftir aö hann var geröur sendiboöi drottningar- innar, þvl aö þá var hann oft að heiman. — Clavering hefði ekki átt að skilja hana eina eftir heima,sögðu menn I klúbbnum. — Skárra væri það, að eigin- kona gæti ekki veriö manni sínum trú, mena hann er að vinna.. gat hún gert sér i hugarlund, að þeir mundu svara. En ég var honum trú, nema i hjarta minu, hefði Fanney getað sagt. Þannig byrjuðu vandræðin. Hún varð eirðarlaus. Friinu lauk. Börnin fóru aftur i skólann. Hún mundi hvernig Caddie nauðaði að fá að vera i skóla bara á dag- inn. Ætli ég hefði ekki fengið Darrell til þess að leyfa henni þaö, ef það hefði ekki verið vegna Robs? spuröi Fanney sjálfa sig. Lafði Candida kom aftur og hafði auga á hverjum fingri, eins og hún var vön. —■ Þarftu að vera svona eiröarlaus, Fanney? Hvað gengur aö þér? Fyrst seztu, en stendur strax upp aftur. Þú getur ekki veriö kyrr, ekki i eina ein- ustu minútu. Ég held, að þú sért slæm á taugum. Darrell verður að fara með þig i ferðalag. — Ef þú gerir Darrell áhyggju- fullan, þá tala ég ekki við þig' framar. Þessi styggðaryrði, sem voru ólik Fanneyju, sannfærðu lafði Candidu enn betur um, að Fanney væri veik. — Það er eitthvað að, sagði lafði Candida ákveðin. Fanney gerði sér ekki ljóst fremur en unglingur á gelgju- skeiði, hvað amaöi að henni. Þessi einkennilega ljúfsára þrá. Lafði Candida hafði á réttu að standa. Fanney gat ekki verið kyrr. Hún, sem alltaf haföi verið róleg var eins og fest upp á þráð. Hún, sem alltaf hafði verið óeig- ingjörn „nauðug viljug,” eins og hún mundi hafa orðað það sjálf, hugsaði um ekkert nema sjálfa sig. ,,Ég. Ég. Ég.” Hún var eins og púpa, sem var að brjótast út úr hýöinu. Hún vann i húsinu og garðinum, en hataði hvort tveggja. Hún var jafnóþolin- móð og Hugh og kjánaleg eins og Philippa. Hún þoldi ekki að vera hjá Rob, en gat ekki afborið að vera án hans, þaut til Lundúna til þess að hitta hann, en hringdi ekki til hans, heldur þrammaði um göturnar og kom aftur heim örmagna. Daginn, sem ég hringdi til hans, þá gat ég ekki annað, hugsaöi Fanney. Við fórum i Chirico. Hún hallaði vang- anum upp aö púðanum á stólnum og rifjaði upp fyrir sér það, sem gerzt hafði. Hún hafði sagt, að þau væru saklaus, en var hún það? Var ég ekki þroskuð? hugsaði Fanney með sér. Henni fannst núna, að hún hefði verið eins og ung stúlka, stóreyg og mjó, en með girnd. Já, girnd, hugsaöi Fanney meösér. Það var bezt að vera ekki með neina tæpi- tungu, þvi að þó að orðið sé ljótt, þá er það réttnefni og er tengt ástinni, en girndin getur ekki skapað ástina, ef það er ást á annað borð. Guði sé lof, að ég var ekki ung stúlka, heldur kona, sem gat duliö hugsanir slnar. Hún gat varla haft augun af Rob allan timann, meðan þau voru að snæða hádegisverðinn. Siðan ætlaði hann á fundinn, en ég sagöist ætla aö ganga i lysti- garöinum, hugsaði Fanney. Göngur voru hið eina, sem róuðu mig, ganga, þangað til ég var orðin örmagna af þreytu, en það rigndi. Hvers vegna? spurði Fanney guð aftur. Hvers vegna léztu rigna? Það er alltaf sagt, að guð sendi okkur rigninguna en ekki sá vondi, og það var ekkert ljótt I þvi, sem gerðist þennan dag, það var réttara bliðara og fegurra en nokkuð, sem ég hef kynnzt eða dreymt um á ævi minni, hugsaði Fanney. Rob hafði ekið henni heim um kvöldið. Þau voru of þreytt til að hugsa — Þú ert of þreytt, og ég er það lika, — sagöi Rob. — Ég kem að finna Darrell á morgun. — En Darrell var ekki enn kominn heim, til allrar hamingju, hugsaði Fanney, annars heföi ég ekki getað fariö heim til Stebbings. Jafnvel þennan eina mánuð vissi ég ekki mitt rjúkandi ráð. Nei, það var ekki heill mánuður heldur þrjár vikur, hugsaði Fanney meö sér. Rob hafði rökrætt viö hana. Ég verð að tala við Darrell. Það er aöeins heiðarlegt aö fara, Fanney, Farðu að heiman núna. Það er ekki rétt, að þú sért þar. — Þau voru brennandi af ástriöu. Þau gátu ekki afboriö að vera fjarri hvort öðru. Samt var Rob þolinmóður. Þessar vikur fann ég, hversu innilega hann eiskaði mig, hafi ég nokkru sinni þurft að efast um það. Hversu mikið hann gat látið á móti sér min vegna. Ég veit ekki, eftir hverju ég var að biða, einungis að reyna að halda öllu saman, særa Darrell ekki of djúpt né börnin. Ef til vill leyndist hjá mér sú hugsun, að ég gæti haft Rob ogbörnin og Stebbings. Ef til vill hefði ég getað haft þetta allt, og viö haldið áfram svona. Nei, þaö voru aðeins draumórar, hugsaöi Fanney, þvi að Darrell kom heim. Og hann tók eftir þvi, að eitthvaö var aö mér. Þaö hafði runnið upp fyrir honum smátt og smátt. Hún hafði heyrt hannsegja viö Gwyneth: — Er frú Clavering ekki frisk? — Hún er ekki i góðu jafnvægi, — sagöi Gwyneth varfærnislega, Kæra góða Gwyneth. Alltaf var hún jafn dygg. — Ekki I góðu jafnvægi? Ot af hverju? Darrel varð bersýnilega áhyggjufullur. — Sumariö hefur verið erfitt og konur geta haft sin erfiðu timabil. — Erfiðu timabil? Darrell vissi auðsjáanlega ekki, hvaðan á sig stóð veörið. — Heldurðu, að það sé nokkuö sem ég get gert? Gwyneth var vön að gefa ráð- leggingar viðvikjandi börnunum, þvi að hún hafði haft mikil af- skipti af þeim. — Ég mundi láta hana eiga sig. Hún lagast. Láta hana eiga sig. Það var eins og Gwyneth væri aö tala um börnin en þetta var rétthjá hennL — Ætli ég væri hérna núna, ef Darrell hefði verið svo hygginn að fara að ráðum hennar? — spurði Fanney sjálfa sig, en Darrell lét hana ekki eiga sig. Þvi fór fjarri. Hann veitti henni meiri athygli en hann hafði nokkru sinni gert, siðan þau giftu sig, hugsaöi Fanney. Það var eftir kvöldverðinn, þriðja kvöldið, sem hann var heima. Þegar Darrel var heima i Stebbings, var allt i sömu röð. Þegar þau Fanney voru búin aö hafa fataskipti, hittust þau i dag- stofunni og fengu sér glas af vini á undan matnum. Börnunum gramdist það alltaf, og þau reyndu ekki að dylja það, en Darrell þótti gaman að sitja með viskíglas eða gin og segja Fanneyju frá siðasta ferðalaginu sinu eða þvl, sem hafði gerzt um daginn — Og mér þótti það lika skemmtilegt, — sagði Fanney. — Þaö var tilbreyting frá öllum þessum börnum að tala við full- orðinn mann — Siðan settust þau að snæðingi. Gwyneth var á borö fyrir Fanneyju en þau létu hana ekki ganga um beina, heldur björguöu sér sjálf. Þaö var lagt fallega á borö „með pompi og pragt”, var Hugh vanur að segja, og þriréttað. Börnunum var ekki leyft að standa upp til þess að sinna leikjum sinum, hvernig sem á stóö. — Þau hafa sennilega gott af þvi, — sagði Fanney, en það var þreytandi eigi að siður. Philippa maldaði I móinn, meöan einhver piltur, sem kominn var að sækja hana, beið úti i bilnum sinum og flautaöi, — Þú getur boðið honum kaffi, — sagði Darrell. — Hann vill ekki kaffi. Hann vill mig. — Við erum búin að sitja hérna i heilan klukkutima. — sagði Hugh einu sinni, þegar hann gat ekki lengur staðizt mátið. — Heilan klukkutima, eöa réttara sagt klukkutima og þrjú kortér, siðan þið fóruð að drekka og það eru hljómleikar, sem ég verð fyrir hvern mun að fara á. En Darrell var búinn að gleyma, hvernig það var að vera ungur og bráð- látur, hugsaði Fanney. „Getur jass verið svo áriðandi”, hafði Darrell spurt góðlátlega, en Hugh varaði næstum með hatri: „Þetta er kiassiskur jass”. Stúlkurnar þvoðu upp, en ef þær voru ekki heima, þvoði Fanney sjálf silfurboröbúnaðinn og glösin, en lét hitt biða til morguns. Hún færöi þeim kaffi inn i dagstofuna. Darrell las dag- blöðin eða horfði á sjónvarpið. Fanney horfði ýmist á þaö eða skrifaði bréf. Stundum gerði hún við föt. Klukkan tiu háttuðu þau, venjulega til þess að lesa, hugsaði Fanney og kysstu hvort annaö á kinnina eða ennið, um leið og þau slökktu ljósið hvort á sinum lampa. — Stöku sinnum Lárétt 1) Með andremmu.- 5) Samið.- 7) Lézt,- 9) Heil,- 11) Nafars,- 13) Heiður,- 14) Dautt gras.- 16) 999,- 17) Kindina,- 19) Striðinn.- Lóörétt 1) Deyja.- 2) Sama.- 3) Linun.- 4) Reginhaf.- 6) Forseti.- 8) Strákur,- 10) Púkinn.- 12) Fönn,- 15) Þægð.- 18) Tveir.- X Ráðning á gátu Nr. 1337. Lárétt 1) Drambi,- 5) Kær,- 7) Ek,- 9) Rask.- 11) Lúa,- 13) Snú.- 14) Umla,-16) IM,-17) Fleöu.-19) Mastur,- Lóðrétt 1) Dvelur,- 2) Ak.- 3) Mær.- 4) Bras.- 6) Skúmur.- 8) Kúm.- 10) Sniðu.- 12) Alfa.- 15) Als,- 18) Et,- Sunnudagur 18. febrúar 8.00 Morgunandakt- Séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup flytur ritningarrorð og bæn. 11.00 Messa i Bústaðakirkju. Prestur: Séra Ölafur Skúla- son Organleikari: Jón G. Þórarinsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 Fiskiðnaðurinn og rann- sóknastofnanir hans, III. er- indi. Páll Pétursson niður- suðu- og efnatæknifræðing- ur talar um niðursuðu og niðurlagningu fiskafurða. 14.00 Dagskrárstjóri I eina klukkustund- Halldór Snorrason ræöur dag- skránni. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá júgósiavneska útvarpinu. 16.55 Veöurfregnir. Fréttir 17.00 Glimulýsing. Hörður Gunnarsson lýsir helztu viöureignum glimumanna á 61. skjaldarglimu Armanns, sem fór fram I Vogaskóla 4. þ.m. ' 17.35 Sunnudagslögin. 18.30 Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill. 19.35 Pistill frá Frakklandi I umsjá Böðvars Guðmunds- sonar. 20.00 Slnfónluhljómsveit ts- lands leikur i útvarpssal. 20.30 Fornmannasaga eftir Jóhannes Kjarval.Sigurður Eyþórsson les. 21.10 Sónata nr. 2 I g-moll op. 22 eftir Robert Schumann. 21.30 Lestur fornrita: Njáls saga-Dr. Einar 01. Sveins- son prófessor les (16) 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Eyja- pistill. Bænarorð. 22.35 Danslög. 23.25 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. Mánudagur 19. febrúar 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 20.50 Fljótandi gengi. Gunn- laugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur flytur erindi. 21.20 A vettvangi dóms- málanna. Björn Helgason hæstarréttarritari talar. 21.40 tsienzkt mál. Endur- tekinn þáttur Jóns Aðal- steins Jónssonar cand. mag. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusáima hefst. Lesari: Séra Ölafur Skúlason. 22.25 tJtvarpssagan/ „Ofvitinn” eftir Þórberg Þóröarson. Þorsteinn Hannesson les (7) 22.55 Hljómplötusafniö. 23.50 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. lliiiili Sunnudagur 18. febrúar 1973 17.00 Endurtekið efni. Sól- setursijóð. Lokaþáttur skozka framhaldsmynda- flokksins. Þáttur þessi var áðurá dagskrá mánudaginn 12. febrúar, en þá voru viða slæm móttökuskilyrði vegna veðurs og rafmagns- bilana. Þýðandi Silja Aðal- steinsdóttir. 17.45 Blástursaðferðin. Fræðslumynd um lifgun úr dauðadái. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. Áður á dagskrá 10. nóvember 1972. 18.00 Stundin okkar Glámur og Skrámur spjalla saman, sýndur verður leikþáttur og mynd úr flokknum um „fjóra félaga” og loks veröur haldiö áfram með

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.