Tíminn - 18.02.1973, Qupperneq 27

Tíminn - 18.02.1973, Qupperneq 27
Sunnudagur 18. febr. 1973 TÍMINN 27 Markverðir skutl- uðu sér ósjálfrótt — þegar Dixie Dean kástaði á þá kveðju á götum úti Ef Englendingar væru spurðir að þvl, hver hefði ver- ið bezti miðherjinn I langri sögu enskrar knattspyrnu — mundi það vefjast fyrir mörg- um, en ef spurt væri um hver hefði verið bezti skallinn þá væri enginn I vafa. Þeir myndu allir segja „Bill Dixie Dean”. Bill Dean þessi spilaði fyrir Everton á þriðja áratug þessarar aldar og enn á hann markametið i fyrstu deildinni þar i landi, eða 60 mörk yfir keppnistimabilið 1927-28. Hann var dýrkaður i Liverpool á þessum tima. Fólkið vinkaði til hans þegar hann fór um götur borgarinnar Þetta liktist næstum þvi þegar enska kon- ungsfjölskyldan ferðaðist um. Dean átti hug og hjörtu allra áhorfenda þegar hann spilaði á Goodison Park, heinwelli Everton, en þó gerðu þeir hon- um mikinn óleik. Aðdáendur hans byrjuðu að kalla hann Dixie Dean, en það viðurnefni þoldi hann ekki. Viðurnefni þetta er þó ekki það eina, sem hann fékk, tfi. var hann oft kallaöur martröö markmann- anna, en það nafn ber hann með rentu. Markveröir i Eng- landi óttuðust hann mjög. Er sagt að hinn stórkostlegi markvörður Liverpool, Elisha Scott hafi óttazt hann svo mik- ið, að hann vaknaði nótt eftir nótt i svitákófi, eftir að hafa dreymt um skallann Dixie Dean. Menn segja að þetta hafi gengið svo langt að ekki gátu þeir mætzt á götu, þvi að þegar Dixie kinkaði kolli i kveðjuskyni, skutlaði Elisha sér sjálfkrafa i götuna. það satt að varnarleikurinn hefur breytzt mikið frá þvi sem hann var 1920-1930, en þ_á voru þrir menn i öftustu vörninni og hafði miðframvörðurinn það eina hlut- verk, að gæta miöframherjans. Dean yfirsteig alla erfiðleika, sem þessu kerfi var samfara og hver er kominn til með að segja, að hann, svo frábær knattspyrnu- maður, myndi ekki geta unnið á þvi varnarkerfi sem nú er leikið i dag. A árunum 1930-1933, þegar Everton var eitt helzta lið Eng- lands, skoraði Dean yfir 100 mörk sjálfur, þar að auki átti hann mestan þátt i 30 mörkum öðrum, sem samspilarar hans gerðu. öll- um miðframvörðum Englands var gefin sú skipun, að vera aldrei i meira en tveggja metra fjarlægð frá Dixie Dean. Hann var þannig hundeltur allan leik- inn og samt gerði hann allan þennan aragrúa af mörkum. Dean spilaði 16 landsleiki fyrir England og t.d. skoraði hann tvisvar „hat trick” — hann lék oft gegn sterkum andstæðingum i landsleikjunum, sem fengu þessa setningu frá þjálfara sinum áður en leikurinn hófst: „STOPPIÐ HANN, HVAÐ SEM ÞAÐ KOST- AR”. Þetta virtist engan árangur bera, þvi að hann hélt áfram að skora mörk. Arið 1936 keypti Everton Tommy Lawton frá Brunley fyrir 6.500 þús pund og var Dean settur i að kenna nýliðanum, sem átti að koma i staðinn fyrir hann i liðið. Lawton þessi var annar frábær knattspyrnumaður og i marz 1938 þegar hann var 20 ára fór Dean til fyrirmanna Everton og sagði þeim að hann gæti ekki kennt Lawton meira i knattspyrnu og nú væri hann tilbúinn að yfirgefa gömlu stöðuna fyrir sér yngri manni. Dean var siðan seldur til Notts County. Enn þann dag i dag er Dean tið- ur gestur á Goodison Park, göml- um aðdáendum til mikillar ánægju. ALLIR t LIVERPOOL ÞEKKJA DIXIE DEAN, HANN ER ORÐINN GOÐSÖGN HJA KNATTSPYRNUUNNENDUM. — sos. Sigmundur Ó. Steinarsson tók saman Hér á myndinni sést Dean fyrir innan afgreiðsluborðið á bjórstofunni Sinni i London. Allir i Liverpool þekkja Dixie Dean, hann er orðinn goð- sögn hjá knattspyrnuunnendum. Kóngur skallaboltanna, Dixie Dean, hann var martröð markmannanna. Dean eins og hann leit út, þegar hann var og hét. — þetta sögðu þjólfarar við þá leikmenn, sem áttu að gæta Dixie Dean. Þetta virtist engan árangur bera, því að hann hélt áfram að skora mörk, stundum einn til tvo menn á bakinu Við ætlum hér í stuttu máli að segja frá þessum manni sem setti markamet, sem verður aldrei slegið

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.