Tíminn - 18.02.1973, Síða 30

Tíminn - 18.02.1973, Síða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 18. febr. 1973 Ávarp Ólafs Jóhannessonar, forsætisróðherra á þingi Norðurlandaróðs 17. febrúar Méreru þakkir efstar í huga Munu leiða visinda- menn framtíðarinnar Nútimavisindi leita svara viö mörgum grundvallarspurningum An efa finnast þau smám saman, og höfundar mikilla kenninga, svo sem Kópernikus, Newton, Einstein, Mendeleyev og Planck munu eignast eftirmenn, sem standa þeim ekki að baki. Allir þessir snillingar munu halda áfram að leiða komandi kynslóöir visindamanna og inn- blása þá hugmyndum. Af þessari ástæðu er bað vel bess virði að kynnast starfi þeirra og rifja upp leit þeirra, árangur þeirra og axarsköft, svo við megum takast djarflegar á við náttúrulögmálin og gera þau háð vilja og skynsemi mannsins. Með lika hugsun aö leiðarljósi hafa pólskir visinda- menn gefið út heildarverk Kóper- nikusar ásamt itarlegum skýr- ingum. Kópernikusarhátiðahöldin eru i tenglsum við Pólska visindaáriö 1973. Þetta ár hefur verið kallað svo til þess að glæsiieg saga okkar verði hvatning til frekari þróunar i visindum og tækni, og svo að ungt fóik, eftirkomendur okkar, megi fá hugmyndir að sinum eigin rannsóknum og verði þannig fært um að takast á við komandi öld. Þýtt og samantekiö SJ I. Þegar ég kem í þennan ræðustól í þetta sinn, eru mér þakkir efst í huga. Þakkir frá íslendingum til svo margra á Norðurlönd- um, og fyrir svo margt, sem orðið hefur okkur til stuðnings í þeim miklu erfiðleikum, sem steðjað hafa að þjóð okkar að undanförnu vegna hinna ægilegu náttúruhamfara í einni blómlegustu byggð landsins, Vestmannaeyj- um, sem á síðustu árum hefur verið ein styrkasta stoð atvinnulífs okkar. Ég þakka samúðina og hlýjar kveöjur, sem til okkar hafa streymt hvarvetna af Norður- löndum og yljaö hafa okkur um hjartarætur og orðið okkur and- legur styrkur. Ég þakka hinar mörgu gjafir frá einstaklingum, félagasamtök- um og einstökum sveitarfélögum viösvegar um Norðurlönd. Ég vil þakka forsetanefnd Norðurlanda- ráðs fyrir hennar frumkvæöi að hjálparstarfsemi. Og siðast en ekki sizt þakka ég höfðinglega framboðna og veitta aðstoð af hálfu rikisstjórnanna, sem er okkur ómetanlegur styrkur i baráttu okkar viö þann vanda, sem hinar ógnvekjandi náttúru- hamfarir hafa skapað okkar fá- mennu þjóð. Náttúruhamfarirnar i Vestmannaeyjum eru einn þeirra atburða, sem gera öll orð og tölur vanmegna. Ég ætla þvi ekki að gera neina tilraun til að lýsa þeim ósköpum né heldur hverjar afleiðingar þeirra eru, ekki aðeins fyrir Vestmannaey- inga, heldur einnig fyrir þjóðarbúið i heild, enda sér eng- inn enn fyrir endann á þvi. En öll orð eru einnig vanmegna til aö túlka þær þakkir, sem okkur ts- lendingum eru i hug til Noröur- landaþjóðanna fyrir hin skjótu og drengilegu viðbrögð þeirra. En þau viðbrögð hafa fært okkur Is- lendingum heim sanninn um, að talið um norrænar bræðraþjóðir er ekki aðeins innantóm orð. Þau hafa sýnt okkur, hvað norrænt samstarf getur þýtt i verki. Ég get aðeins endurtekið hjart- ans þakkir islenzku þjóðarinnar til ykkar allra — jafnt einstakl- inga og opinberra aðila — fyrir bróðurhug og aðstoð i verki. II. Það má segja, að þessi Norður- landaráðsfundur sé með vissum hætti timamótafundur. Þetta er fyrsti fundur eftir að leiðir hafa að fullu skilið varðandi afstöðuna til Efnahagsbandalagsins. Dan- mörk hefur gerzt fullgildur aðili. Hin löndin hafa leitað eftir öðrum og lausari tengslum. Það hefur e.t.v. verið draumur sumra, að hér gætu allir fylgzt að. En menn verða að horfast i augu við raun- veruleikann. Vitaskuld varð hver þjóö að velja sina leið út frá sin- um forsendum og hagsmunum, og þýðir ekki i þessu efni fremur en öðrum að loka augunum fyrir mismunandi aðstæðum. Sumir hafa sagt, að samstarfið i Norð- urlandaráði verði á eftir vissum erfiðleikum bundið. Ég held, að reynslan verði að skera úr þvi, hvort svo verður eða ekki. Ég hefi ekki trú á þvi að sú verði raunin. Ég held, að þörfin á starfsemi Norðurlandaráðs sé einmitt enn rikari fyrir vikið. Og ég held, að viljinn til samstarfs þar sé stað- fastari en nokkru sinni fyrr. Það er augljóst, að það getur verið mikilvægt fyrir Norðurlöndin öll, að þau eigi rödd innan sjálfs bandalagsins, þar sem Danmörk er. Hún getur einmitt veriö þýöingarmikill tengiliður á milli hins mikla efnahagslega stór- veldis — Efnahagsbandalagsins — og hinna Norðurlandaanna. Ég held þvi, að um þá stefnu hljóti að rikja einhugur, aö starfsemi Norðurlandaráðs skuli ekki á neinn hátt raskast, þrátt fyrir mismunandi afstöðu til Efna- hagsbandalagsins. Þaö eru sannarlega ekki heldur nein sam- dráttareinkenni á norrænni sam- vinnu, heldur öruggur fram- sóknarvottur. III. Hér hafa verið lagðar fram og eru til umræðu skýrslur ráð- herranefndarinnar og forseta- nefndarinnar. Um þær ætla ég ekki að fara að ræða i einstökum atriðum, þó að þar sé vissulega um ýmis athyglisverð málefni að ræða. En mér sýnast þær skýrsl- ur bera öruggt vitni um talsverða grósku i starfi Norðurlandaráðs og að ýmislegt sé þar i undirbún- ingi. Ég held, að þessar skýrslur, sýni, að starfshættir ráðsins eru að færast I fastara horf, að starf- semin beinist meir en áður aö fyr- irfram ákveðnum verkefnum, eða með öðrum orðum að starfið er að veröa markvissara. Það er að minum dómi veruleg framför. Norðurlandaráð hefur nú fengið sinar föstu framkvæmdastofnan- ir — skrifstofu forsetanefndarinn- ar i Stokkhólmi, menningar- málaskrifstofuna i Kaupmanna- höfn og nú siðast skrifstofu ráð- herraráðsins hér i Osló. Með starfsemi þeirra og föstu starfs- liði er Norðurlandaráð smám saman aö fá fastari grundvöll og verða færara um að hrinda ýms- um samvinnuhugmyndum i framkvæmd. Ég er ekki í neinum vafa um, að hér er stefnt i rétta átt. Hitt getur alltaf veriö álita- mál, hversu hratt á að fara i upp- byggingu þessara og annarra stofnana á vegum ráðsins. Það heyrast stundum raddir um, að seint sækist. Ég get ekki tekið undir þær raddir. Það verða að vera fyrir hendi ákveðnar þarfir, sem kalla á ákveðnar stofnanir og starfslið. Ég held að mestu skipti, að stöðugt sé áfram haldið i rétta átt, án þess að um nokkra aftur- kippi sé að ræða. Það verður að hafa hugfast, að Noröurlandaráð, er aðeins samstarfsstofnun, en ekki nein yfirþjóðleg stofnun. Eöli málsins samkv. hlýtur það þvi að taka nokkurn tima að niður stöður fáist og árangur sjáist i verki. En auðvitað verður að vera á verði gegn skriffinnskunni og ónauðsynlegum töfum eftir þvi sem kostur er. Aðalatriðiö er að finna þau svið, sem þörf er á sam- starfi, og þar sem það er raun- hæft. Og þá má e.t.v. gá að sér, að teygja sig ekki út yfir allt of mik- ið. Það er alltaf auðvelt að gagn- rýna, og sjálfsagt má enn sitt- hvað betur fara hjá Norður- landaráði. Og sjálfsagt skortir nú nokkuð á, að norræn samvinna hafi náð i þær hæðir, sem stund- um ber á góma i hástemmdum hátiðarræðum. En þegar á allt er litið og haldi maður sig við jörð- ina, get ég ekki annað en verið sæmilega ánægður með þann árangur, sem náðzt hefur, en kannski er það af þvi að vonir minar hafa verið fremur hófsam- legar. Það hefur þokazt i rétta átt. Þetta vildi ég segja sem mina skoðun, þó mér sé það vel ljóst, að það er ekki á minu færi að gefa hér miklar almennar leiðbeining- ar. Þátttaka Islands verður hér aldrei fyrirferðarmikil boriö saman við aðra, bæði vegna fá- mennis og fjarlægðar. En vissu- lega vantar okkur ekki viljann til aö vera með. IV. Ég get ekki látið hjá liða að lýsa ánægju minni yfir þvi, að á þessu ári mun taka til starfa norræn eldfjallarannsóknarstöð i tengsl- um við Háskóla tslands. Kemur þar með til framkvæmda ályktun ráðsins frá 1968, en það mál fékk óvenjulega skjótan framgang I ráðinu, þó að það hafi eðlilega tekið nokkurn tima að koma stofnuninni á laggirnar. En nú mun hún sem sagt taka til starfa og ætti hana ekki að skorta verk- efni. Eldsumbrot eru engin ný- lunda á Islandi. Má auk goss- ins á Heimaey, sem nú stendur yfir, nefna gosið i Heklu 1947, sem stóð i 13 mánuöi. öskjugos 1961, sem stóð i einn og hálfan mánuð, Surtseyjargosið 1963, sem stóð i þrjú og hálft ár, og Heklugosið aftur 1970, sem stóð i tvo mánuði. Það er þvi áreiðanlegt, að á þessu sviði biða visindamanna mikil rannsóknarefni á Islandi. Það er þvi okkur Islendingum fagnaðar- efni, að þessi samnorræna rannsóknarstöð tekur tii starfa á Islandi. V. Ég væri ekki hreinskilinn, ef ég lyki máli minu hér, án þess aö láta i ljós vonbrigði Islendinga yf- ir þeirri afstöðu, sem Norður- löndin tóku á nýafstöðnu alls- herjarþingi til tillögu Perú og Is- lands og fleiri rikja, varöandi rétt strandrikja til náttúruauðlinda I hafinu. En þar kusu Norðurlöndin að sitja hjá, enda þótt ályktunin hlyti samþykki 102 rikja. Við Is- lendingar teljum þá samþykkt mikilvægt skref til styrktar mái- stað okkar i landhelgismálinu. Við töldum, að við hefðum gert Norðurlandaþjóðunum rækilega grein fyrir þvi, hvilikt lífshags- munamál landhelgisútfærslan er okkur og hver forsenda hún er fyrir framtiðartilveru okkar sem sjálfstæörar þjóðar. Það má nærri geta, að þær ástæður eiga ekki siður við eftir hið mikla áfall af völdum eldgossins i Vest- mannaeyjum. Ég skil, að það þjónar ekki neinum tilgangi að fara að rekja það mál hér. Ég mun þvi ekki þreyta háttvirta þingfulltrúa með þvi að fjölyrða hér um það frekar. En ég vildi við þetta tækifæri ekki láta hjá liða aö minna á þessa ályktunartil- lögu frá nýafstöðnu allsherjar- þingi, þar sem Norðurlandaþjóð- irnar hafa annars yfirleitt átt svo gott samstarf. Fyrirlestur um Kópernikus SJ-Reykjavík Prófessor Þorsteinn Sæ- mundsson stjörnufræðingur flytur fyrirlestur um Kópernikus, ævi hans og starf, i fyrstu kennslustofu Háskólans mánudaginn 19. febrúar kl. 17, en þann dag eru 500 ár liðin frá fæðingu þessa fræga stjörnufræðings. 1 einu þessara húsa i gamla borgarhverfinu i Gdansk var rit Retyks nemanda Kópernikusar prentað, en sá atburður markaði upphaf þess að sólmiðjukenningin náði viðurkenningu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.