Tíminn - 17.04.1973, Side 5
Þriöjudagur 17. aprll 1973.
TÍMINN
5
Viðræður við sendimann
Brandts í gær
O Skólahættan
gömlu fólki getur skapað hinar
réttu kringumstæður til menn-
ingar-tengsla milli kynslóðanna.
Kringumstæður, sem aldrei getur
heppnazt að búa til innan veggja
nokkurs skóla, Tilbúin gervi-
aðstaða er aldrei jafn góð og
sjálfur raunveruleikinn.
— En er ekki mögulegt að
skapa slik menningartengsl innan
skólanna með breyttum starfs-
háttum?
— Nei, það eru algeng rök fyrir
þvi, að óhætt sé að hafa menn
lengi i skóla, að skólastarfinu sé
hægt að breyta. Það á sem sé að
fara með hin margbreytilegu lifs-
störf, jafnvel sjálft atvinnulifið,
inn i skólann. Þetta eru hin mestu
falsrök. Þetta hefur aldrei tekizt
Hvernig væri hægt að fara með 1
landbúnaðinn, sjávarútveginn,
iðnaðinn, verzlunina o.s.frv. inn i
skólastofuna?Kjarni þessa þáttar
málsins er sá, að langskólakerfið
rangmetur þá hömlun nemand-
ans, sem reynsluleysið veldur
honum. Skólanámið nýtist ekki
nemandanum, vegna þess að
vixláhrifin milli skólastarfs og
eðlilegrar lifsreynslu fá ekki notið
sin með núverandi langskólasetu-
þvingun. Hvað gæti læknir,
hjúkrunarkona, iðnaðarmaður,
bóndi o.s.frv., sem aðeins hefði
lesið fræði sin á bók?
— Hvers vegna,aðþinuáliti,er
ekki allt þá farið norður og niður
hjá þeim þjóðum, sem hafa lengi
búið við langskólasetur unglinga?
— Það eru feykileg vandkvæði
þegar komin i ljós og eru að koma
i ljós i vaxandi mæli eins og ég
sagði áðan, Vandkvæðin bi'rtast
m.a. i múgmennsku, skólaupp-
reisnum, eiturlyfjafikn, leti,
glæpum og margs konar and-
félagslegum fyrirbrigðum. Ein
ástæðan fyrir þvi, að ekki er enn
verr farið en raun ber vitni, mun
sú, að enn er til fjöldi manna, sem
tóku út þroska sinn áður en lang-
skólakerfin náðu sinum þræla-
tökum. Og það eru einmitt þessir
menn, sem hafa haldið uppi þvi
framfaraskeiði, sem orðið hefur
t.d. hér á landi og i ýmsum öðrum
löndum undanfarna áratugi.
Aldrei á Islandi hefur orðið meiri
nýsköpun og framfarir, bæði á
andlegu sviði og verklegu, og
siðustu 70 árin. Þessar framfarir
hafa ekki verið bornar uppi af
langskólabandingjum, heldur
einmitt fólki, sem naut takmark-
aðrar hóflegrar skólagöngu, en
þeim mun meiri skólunar i
sjálfum llfsskólanum. Litum i
kringum okkur. Hverjir bera og
hafa borið uppi megin þætti
menningarframstreymisins? Er
það fólk, sem hefur setið 9 sinnum
9 mánuði æskuskeiðs sins við
skólapúlt?
— Þegar þú talar um 9 mánaða
skólaskyldu i 9 ár, þá erut i raun-
inni farinn að talá um tillög-
urnar, sem felast i grunnskóla-
frumvarpinu?
— Já. Grunnskólafrumvarpið
er i aðalatriðum aðeins framhaldi
eða viðbót við núverandi kerfi. Að
minu mati breytir 9 mánaða
skólaskylda i niu ár, skólanum úr
þvi að geta verið hamingjugjafi
fyrir ungmennin i það að verða að
eins konar fengelsi vegna þess
hvað hann er langur og hve>hann
er einangrandi. Væntanlega
þyrftu svo skólabörnin að fá eins
mánaðar orlof árlega eins og
aðrir borgarar. En þá eru aðeins
eftir tveir mánuðir til að vera
með i atvinnulifinu og svo stuttan
tima verður erfitt að fá vinnu eða
dvalarstaði fyrir unglingana —
ekki sizt þegar allir landsins ung-
lingar þurfa á þessu sama að
halda samimis. Einhverákonar
gerviskóli eða gervivinna verður
þvi það fangaráð sem gripið
verður til — og þá er hringnum
lokað. Kinamúr kynslóðabilsins
yrði þá fullbyggður af hálfu
skólayfirvaldoanna.
— En hver er þá lausnin út úr
öllum þessum vanda?
— Þvi vil ég gjarnan svara i
framhaldsviðtali, það yrði viðtal
um tvenndarskólann, sem er nýtt
skólafyrirkomulag, sem ég tel að
leysi flest þau vandamál, sem aö
framan greinir — auk margra
kosta, sem það hefur i för meö
sér, sem við e.t.v. þá gætum
drepið á. Kj
Itmmner
peningar
0 Alþingi
senda mann til Haag. Ein af
ástæðunum fyrir þvi væri einmitt,
að við ættum að gera þar fulla
grein fyrir siðasta þorskastriði og
aðdragandanum að samningnum
1961. Við ættum að sanna með
gögnum, að þessi samningur hafi
verið gerður fyrir framan byssu-
kjafta Breta og væri þvi
nauðungarsamningur eins og
stjórnarandstaðan 1961 hélt fram.
Þetta væri réttur okkar og
skylda. Siðan ættu Islendingar að
gera það að varakröfu, að málinu
yrði frestað fram yfir hafréttar-
ráðstefnuna, þvi að hún myndi
setja skýrari lagaákvæði um lög-
sögumálin en nú væru fyrir hendi.
Hann taldi, að Islendingar
myndu ekkert gefa eftir af
málstað sinum, þótt þeir sendu
mann til Haag. Við yrðum að
afhjúpa samninginn frá 1961 með
gögnum, sem fyrir lægju. Við
hefðum ekki rétt til þess að láta
það undir höfuð leggjast. Það
væri að svikja málstað Islands.
Hann lagði að lokum áherzlu á
nauðsyn þess, að menn hefðu
sinar skoðanir á hlutunum. Nota
ætti timann þar til ákvörðun þarf
að taka i málinu til að ræða það og
reyna að komast að einingu um
afstöðu i þvi.
Um varnarmálin sagði hann
m.a., að lofað hefði verið tvennu I
þvi máli — endurskoðun og
uppsögn. Endurskoðunin færi nú
að hefjast, þegar niðurstöður
hennar lægju fyrir alþingi, yrði
tekin ákvörðun um siðari þátt
málsins, uppsögnina. Þar yrðu
allir að lúta meirihlutanum, jafnt
i þessu máli sem öðrum málum.
Geir Hallgrimsson (S) tók
næstur til máls og fjallaði um
marga þætti málsins, en siðan
Einar Ágústsson, utanrikisráð-
herra, sem m.a benti á, að is-
lenzkir talsmenn hefðu ávallt
látið það i ljós erlendis, að útfærs-
an nú væri aðeins áfangi, en land-
grunnið allt markmið okkar.
Um Haag-dómstólinn sagðist
ráðherrann hafa lýst skoðun
sinni. Hins vegar væri auðvitaö
sjálfsagt að ræða málið i land-
helgisnefnd áður en ákvörðun
væri tekin.
Hannibal ætti að segja
af sér, segir Bjarni!
Bjarni Guðnason tók aftur til
máls og gerði ræðu félagsmála-
ráðherra að umtalsefni. Taldi
hann, að málflutningur og máls-
meðferð ráðherrans væri óverj-
andi. Væri eina lausn málsins sú,
að ráðherrann segði af sér.
AÐ BEIÐNI Willy Brandt,
kanzlara Vestur-Þýzkalands,
kom Koschnik, efrideildar-
þingmaður og borgarstjóri I
llannibal Valdimarsson sagði,
að þingmaðurinn ætti þá að bera
fram vantrauststillögu á sig.
Hann hefði skoðun i þessu máli og
gæti vel lagt ráðherrastól við, ef
þingmaðurinn vildi fylgja orða-
fleipri sinu eftir.
Um málið sagði han einnig, að
hann væri reiðubúinn til þess að
lúta þeim meirihluta, sem upp
yrði kveðinn hjá réttum aðilum.
Geir Hallgrimsson tók aftur til
máls, og siðar Jónas Árnason
(AB)sem spurði félagsmálaráð-
herra, hvort hann vildi hlýta úr-
skurði Alþjóðadómstólsins. Hann
kvaðst lita það alvarlegum aug-
um, þegar einn ráðherra gengi
fram fyrir skjöldu að túlka
sjónarmið stjórnarandstöðu.
Væri vel athugandi, að þetta mál
yrði borið undir þjóðina með þvi
að þing yrði rofið og efnt til kosn-
inga.
Bremen, ásamt dr.
Fleischauer, þjóðréttarráðu-
naut utanrikisráðuneytisins i
Bonn, og dr. VVittig, fulltrúa i
matvæiaráðuneytinu, til við-
ræðna við ólaf Jóhannesson
forsætisráðherra i morgun.
Viðræðurnar fóru fram i
skrifstofu forsætisráðherra og
tók Einar Agústsson utan-
rikisráðherra einnig þátt i
þeim af íslands hálfu, ásamt
Guðmundi Benediktssyni
ráðuneytisstjóra.
Koschnik,borgarstjóri,færði
forsætisráðherra kveðju
kanzlarans og gerði grein
fyrir sjónarmiðum hans og
þýzku rikjanna, sem liggja að
sjó, varðandi fiskveiðideiluna.
Forsætisráðherra og utan-
rikisráðherra gerðu grein
fyrir sjónarmiðum íslendinga
i landhelgismálinu.
Viðræðurnar stóðu yfir i
tæpar tvær klukkustundir og
fóru vinsamlega fram. Einnig
var rætt um hugsanlegt fram-
hald þeirra siðar.
Rjómaís
milli steikar og
kaffis
Isréttur er frískandi ábætir, sem fljótlegt er að útbúa. Vinsæld-
ir hans við matborðið eru öruggar. Skemmtilegt er að fram-
reiða hann á mismunandi hátt og fylgja hér á eftir nokkrar
uppskriftir:
ÍSSÚKKULAÐI. Fyllið glas að % með kakó eða kakómalti.
Setjið nokkrar sneiðar af vanilluís í, skreytið með þeyttum
rjóma og sultuðum appelsínuberki eða möndlum.
JARÐARBERJAÍS MEÐ HNETUM. Ristið hasselhnetur þurrar
á pönnu. Fjarlægið hýðið og saxið hneturnar gróft. Stráið þeim
yfir ísinn og hellið 1 msk. af víni yfir (t. d. líkjör eða sherry).
BANANAÍS, 1 skammtur. 1 banani / 3 msk. súkkulaðiís / 1 msk.
sólberja- eða jarðarberjasulta / Vi dl þeyttur rjómi / 1 msk.
hnetukjarnar.
Kljúfið banana að endilöngu og leggið á disk. Setjið ísinn yfir,
skreytið með rjóma, sultu og söxuðum hnetum.
ÍS í PÖNNUKÖKUM er sérlega ódýr og Ijúffengur eftirréttur.
Skerið vanillu- eða súkkulaðiís í lengjur, vefjið pönnuköku
utanum, hellið súkkulaðisirópi, bræddu súkkulaði eða rifnu yfir.
NOUGATÍS MEÐ APRIKÓSUM. Setjið til skiptis í glas nougat-
ís, niðursoðnar aprikósur og möndlur. Blandið dálitlum sítrónu-
safa saman við aprikósumauk og skreytið með þvi.
HEIT ÍSTERTA. 1 sykurbrauðsbotn / 3 msk. sherry / V* ds.
niðursoðnir ávextir / 2 msk. saxað súkkúlaði / 2 msk. saxaðar
möndlur / 1 litri vanilluís.
Marengs: 4 eggjahvítur / 3 dl (250 g) sykur.
Hellið sherryi yfir kökubotninn, setjið ávextina yfir og súkkulaði
og möndlur þar yfir. Spænið ísinn upp og setjið hann yfir
ávextina. Þeytið hvíturnar með 1 dl af sykri mjög vel, góða
stund eftir að þær eru stífar. Blandið því sem eftir er af sykr-
inum gætilega saman við. Smyrjið eggjahvítunum utan um ís-
inn og bakið við mikinn yfirhita (300° C) í örfáar mínútur, eða
þar til marengsinn er gulbrúnn. Berið ísréttinn fram strax.
ÍSKAFFI. Fyllið hátt glas til hálfs með sterku, köldu kaffi.
Leggið nokkrar skeiðar af vanilluís I kaffið, skreytið með þeytt-
um rjóma og rifnu súkkulaði.