Tíminn - 17.04.1973, Side 17
Þriðjudagur 17. apríl 1973.
TÍMINN
17
KR-ingar tryggðu
sér aukaúrslitaleik
KR-liðið sýndi nýjan varnarleik gegn ÍR í íslandsmótinu í körfu
knattleik. Brutu niður ÍR liðið í fyrri hólfleik. Aukaúrslitaleikurinn
fer fram d morgun d Nesinu
KK-liðiðtryggði sér aukaúrslita-
leik i Islandsmótinu i körfuknatt-
leik, þegar liðið sigraði 1R 67:66 i
spennandi leik á Nesinu á sunnu-
daginn. KR-liðið kom heldur
betur á óvart i byrjun leiksins,
þegar leikmenn þess léku nýjan
varnarleik og sóknarleik, sem
liðið hefur ekki sýnt áður. IR-
ingar áttu ekkert svar við þessari
leikaðferð til að byrja með og þar
að auki hittu langskyttur þeirra
ekki vel körfuna. KR-ingar náðu
fljótlega forustunni og þegar 14.
min. voru liðnar af fyrri hálfleik,
Erla Sverrisdóttir.
var staðan orðin 26:16 fyrir KR.
Birgir Jakobsson skoraði þá
körfu og voru IR-ingar þá aðeins
búnir aö skora átta stig á 8 min.
Hálfleiknum lauk með yfirburða-
sigri KR 42:25.
Það sýndi greinilega, hvað
IR-ingar hittu illa, að þeir
skoruðu aðeins 25 stig i fyrri hálf-
leik. En það er mjög sjaldgæft, að
eins sterkt lið og 1R er.skoriekki
fleiri stig. Það var greinilegt að
KR-ingar komu tR á óvart með
hinni nýju leikaðferð, sem þeir
hafa æft af kappi i tvo mánuði og
ekki sýnt áður.
Þegar IR-ingar byrjuðu siðari
hálfleikinn, mátti sjá á leik
þeirra, að hinn snjalli þjálfari
ÍR-liðsins, Einar Ólafsson var
búinn að finna svar við leikaðferð
KR. En þannig vill það oft vera i
iþróttum, að það finnist svar
fljótlega við leikaðferðum, sem
hafa kostað erfiðar æfingar. 1R-
ingar skoruðu fyrstu lOstigsiðari
hálfleiksins og breyttu stöðunni i
44:35.'
Og þegar fór að liða á leikinn
fóru hinir snjöllu leikmenn 1R,
Kristinn Jörundsson og Birgir
Jakobsson, sem sýndi stórgóða
spretti, heldur betur i gang. Þeir
voru potturinn og pannan i
sóknarleik 1R og staðan var orðin
55:51 fyrir KR á 11 min. Agnar
Friðriksson, sem náði aldrei að
sýna góðan leik, jafnar 55:55 á 13.
min. og siöan er jafnt 57:57 og
61:61 Þegar þrja’r min. eru til
leiksloka kemur Anton Bjarnason
IR yfir 64:63. Spennan er i
hámarki og voru menn farnir að
halda að KR-liðið mundi brotna
niður. Kolbeinn Pálsson skoraði
þá körfu fyrir KR og staðan var
þá 65:64 fyrir Vesturbæjarliðið.
Þegar rúmlega minúta var til
leiksloka, skorar Agnar fyrir 1R
66:65. Siðustu körfu leiksins,
skoraði svo Hjörtur Hansson og
rétt á eftir mistókst Kolbeini tvö
vitaköst. KR-ingar voru með
knöttinn undir lokin, þegar Einar
Bollason, þjálfari liðsins, kallaði:
,,Rólegir strákar, það eru aðeins
eftir 20 sek”. IR-ingum tókst ekki
að ná knettinum og þar með voru
KR-ingar búnir að tryggja sér
aukaleik annað árið i röð. Auka-
leikurinn fer fram annað kvöld kl.
20.30. i iþróttahúsinu á Seltjarna-
nesi.
Beztu menn KR-liðsins, voru
þeir Kolbeinn Pálsson, sem er
stundum of eigingjarn á knöttinn
og Hjörtur Hansson. Varnar-
leikur KR var góöur i fyrri hálf-
leik, þegar tR-ingar voru ekki
búnirað átta sig á honum. Stiga-
hæstir hjá KR voru: Kolbeinn 33
stig og Hjörtur 16 stig.
Einar Sigfússon var beztur hjá
tR, hann sýndi frábæran varnar-
leik og var drjúgur i sókninni. Þá
áttu þeir Kristinn, Birgir og
Agnar góða spretti, sérstaklega i
siðari hálfleik. Stigahæstir hjá
tR voru: Einar 20, Birgir og
Agnar, 16 stig hvor .
Erlendur Eysteinsson og
Hörður Tuliulius dæmdu leikinn
vel.
Ótímabært skot hjá
Fram bjargaði Val
Dómarahneyksli, þegar Fram og Valur gerðu jafntefli 10:10 í
úrslitaleik íslandsmótsins í 1. deild kvenna í handknattleik
LOKA-
STAÐAN
Erla varð
markahæst í
1. deild kvenna
EINS og kemur fram
annars staðar á siðunni,
þá þarf aukaleik á milli
Vals og Fram, um það
hvort liðið hljóti íslands-
meistaratitilinn i 1. deild
kvenna i handknattleik.
Lokastaðan i mótinu
varð þessi:
Valur 10 6 2 2 131:106 14
Fram 10 6 2 2 125:103 14
Vikingur 10 3 3 4 77:82 9
Armann 10 3 2 5 113:116 8
KR 10 3 2 5 110:130 8
Breiðabl. 10 2 3 5 109:128 7
Erla Sverrisdóttir hin snjalla
handknattleikskona úr Ármanni,
varð markhæst i mótinu. Hún
skoraði alls 55 mörk og er það vel
að sér vikið, þvi að hún var tekin
úr umferð, nær alla leiki sina i
mótinu. Listinn yfir markhæstu
stúlkurnar litur þannig út:
Erla Sverrisd. Ármann 55
Alda Helgad. Breiðabl. 54
Arnþrúður Karlsd. Fram 45
Svala Sigtryggsd. Val 44
Hjördis Sigurjónsd. KR 43
Björg Guðmundsd. Val 31
Guðrún Sigurþórsd. Árm. 27
Halldóra Guðmundsd. Fram 25
Kristin Jónsd. Breiðabl. 24
Agnes Bragad. Viking 23
Björg Jónsd. Val 20
Oddný Sigsteinsd. Fram 20
Sigþrúður Helga, KR 20
Emilia Sigurðard. KR 17
Guðrún Hauksd. Viking 14
Jónina Jónsd. Viking 14
Elin Kristinsd. Val, 12
Helga Magnúasd. Fram, 11
Katrin Axelsd. Ármann 11
Sigriður Rafnsd. Ármann 11
Guðrún Helgad. Viking, 10
Guðrún Sverrisd. Fram 10
Jóna Kóra Karlsd. Val 10
ÓTÍMABÆRT SKOT, kostaöi
Framstú1kurnar tslands-
meistaratitilinn i handknattleik
kvenna. Þegar aðeins 50 sek.
voru til leiksloka i leik Fram og
Vals, var staðan 10:9 fyrir Fram
— þá skaut ein Framstúlkan
ótimabæru skoti. Valsstúlkurnar
ná knettinum og bruna upp völl-
inn og jafna 10:10. Jafnteflið
sýðir það að nú þarf aukaúrslita
leik til að skera úr um það,hvort
Fram eða Valur hljóti íslands-
meistaratitilinn i ár.
Framliðið var betra liðið i
leiknum og þaö hefði unnið, ef það
hafi ekki haft dómarana á móti
sér. Dómararnir Björn
Kristjánsson og Óli Ólsen, dæmdu
leikinn mjög illa og stundum
virtist sem þeir væru á móti
Framliðinu. Þeir visuðu Fram-
stúlkunum af leikvelli i samtals
11. min.
Valur náði forustu i leiknum
3:1. Fram jafnaði fyrir leikshlé
4:4, en rétt áður en hálfleiknum
lauk, náði Valur aftur forustu 5:4.
Siðari hálfleikurinn var nokkuö
jafn og það mátti sjá tölur eins og
6;6, 7:7, 8:8 og 9:9. Þá skorar
Fram 10:9 og voru þá 3 min. til
leiksloka. Valsstúlkunum tókst
siðan að jafna eins og fyrr segir.
Kristin Orradóttir og Guðrún
Sverrisdóttir, báru af i Fram-
liðinu. Þessar stúlkur eru
aðalmanneskjurnar á bak við spil
liðsins. Þá átti mark-
vörðurinn Guðrún Magnús-
dóttir góðan leik. Hjá Val var
Björg Guðmundsdóttir, lang
bezt. Mörkin i leiknum skoruðu:
Fram: Arnþrúður 3, Oddný 2
Halldóra 2, Guðrún, Helga og
Kristin, eitt hver. Valur: Björg 5,
Svala 2, Jóna Dóra 2 og Elin 1.
Eins og fyrr segir, dæmdu dóm-
ararnir mjög illa. Það vakti
mikla athygli, þegar þeir ráku
eina Framstúlkuna af leikvelli
fyrir brot, sem leikmenn i
meistaraflokki karla fá AÐEINS
áminningu fyrir. Það var ekki
nóg, að þeir ráku hana út af,
heldur létu þeir hana yfirgefa
völlinn i fimm minútur.
FURÐULEGT. Þess má geta, að
enginn leikmaður i 1. deild karla
hefur fengið að yfirgefa völlinn i
fimm min. i vetur og hefur þó
mátt sjá ljót brot i nær hverjum
leik i 1. deild karla. —SOS.
rf** I* j*' ,*
Arnþrúöur Karlsdóttir, sést hér skora mark f leiknum gegn Val.
(Timamynd Róbert)
stiga-
hæstur
ÞÓRIR MAGNOSSON, hinn
snjalli körfuknattleiksmaöur úr
Val, var heldur betur I sviðs-
Ijósinu um helgina. Þórir, sem er
mesta skytta, sem tsland á i
körfuknattleik, skoraði 80 stig i
tvcim leikjum incð Val og varð
þar meö stigahæstu i islands-
mótiuu i körfuknattleik. Þórir
skoraöi 42 stig gegn ÍS og siðan
skoraði hann 38 stig gegn Þór.
Samtals skoraöi hann 306 stig i
mótinu og er það vel af sér vikið,
þar sem Þórir lék ekki alla
leikina með Val vegna meiðsla.
Þrir stigahæstu menn mótsins
urðu þessir:
ÞórirMagnússon, Val 306
David Devany, UMFN 280
Agnar Friðriksson, IR 275
Þór frá Akureyri er fallið niður
i 2 deild. Liðið lék tvo leiki um
helgina og tapaði báðurri. Þór á
aðeins einn leik eftir, gegn HSK
og eru miklar likur á þvi, að Þór
gefi leikinn.
Leikirnir i 1. deild fóru þannig
um helgina:
Armann —Þór 102:44
Valur — Þór 111:66
Valur — 1S 103:84
KR — IR 67:66
Staðan er nú þessi i 1. deild:
1R 14 13 1 1255:937 26
KR 14 13 1 1184: 968 26
Armann 14 9 5 1054:961 18
Valur 14 6 8 1209:1116 12
IS 14 5 9 1113:1159 10
UMFN 14 5 9 1014:1221 10
HSK 13 3 10 894:1017 16
ÞÓR 13 1 12 687:1032 2
*
Keflavík
tapaði
Breiöablik stöðvaði sigurgöngu
Keflavikurliðsins i knattspyrnu á
laugardaginn, þegar liöin
mættust i Litlu-bikarkeppninni.
Leikurinn fór fram i Keflavík og
lauk með sigri Breiðabliks 2:1.
Steinar Jóhannsson, hinn snjalli
miðherji, skoraði mark heima-
manna og var inarkið niunda
mark hans á keppnistimabilinu.
Steinar skoraði annað löglegt
mark i leiknum, sem var dæmt
af.