Tíminn - 03.05.1973, Qupperneq 5
Fimmtudagur 3. mal 1973
TÍMINN
5
Siðasti þorskurinn grafinn I Stokkhólmi.
Fimmtudaginn 26. april var
farin ganga í Stokkhólmi til
stuðnings tslendingum i land-
helgismálinu og útifundur var
haldinn á Sergelstorgi. Ræðu-
menn þar voru rithöfundurinn og
þingmaðurinn Per Olof Sundman.
C.H. llerm annsson, formaður
Kommúnistaflokksins og Rune
Langestrand, ritari Norrænu
félaganna I Sviþjóð. Um 150
manns tóku þátt i göngunni, en
siæmt veður var i Stokkhólmi
þegar hún var farin og er talið aö
það hafi dregið nokkuð úr fjöl-
menni. Fyrir göngunni var borið
likan af steindauðum þorski og
spjald sem á var letrað „sfðasti
þorskurinn jarðaður”. Auk þess
voru borin mörg kröfuspjöld sem
á voru vígorð og áskoranir til Svia
að styðja við bakið á tslendingum
i landbelgisdeilunni.
Sama dag og gangan var farin
birtist grein um landhelgis-
deiluna i Dagens Nyheter eftir
blaðamanninn Mats Lundegárd,
en hann er staddur hér á landi
þessa dagana. t grein sinni bendir
hann á.hve þessi deila sé i raun-
inni alvarleg i augum Islendinga.
Þeir séu að berjast fyrir tilveru
sinni, sem byggist á fiskimið-
unum umhverfis landið og verði
ekki gripið i taumana og miðin
friðuð fyrir ágangi útlendinga
sem hirða um helming þess afla,
sem veiðist við Island, verði
gengið svo á fiskistofnana að
efnahagslegri tilveru Islendinga
stendur ógn af.
Lundegárd rekur i grein sinni
aðdraganda þess að fiskveiðilög-
sagan var stækkuð og um fyrri
útfærslur landhelginnar, og getur
þess að tslendingar álita að
Haagdómstóllinn hafi ekki
lögsögu i málinu. Hann segir, að
þótt utanaðkomandi aðilar eins
og Sviar, láti sér fátt um þetta
smástrið finnast sé það aivarlegt
mál fyrir Islendinga og hafi þeir
engu að tapa i þessu striði ef
þorskurinn verður þurrkaður upp
á tslandsmiðum.
Per Olof Sundman lauk ræðu
sinni á Sergelstrogi með þessum
orðum: tsland stendur ennþá eitt
i baráttunni fyrir tilveru sinni.
Það væri undarlegt ef íslendingar
væru ekki vonsviknir sem aðilar
að norrænni samvinnu, þrátt fyrir
veitta hjálp vegna eldgossins,
sem lagði Vestmannaeyjar,
stærstu verstöðvar landsins, i
eyði.
tsland er fátækt af náttúru-
gæðum. Það verður að flytja inn
nær allar vörur og nauðsynjar
sem nauðsynlegar eru i nútima
þjóðfélagi. Miðað við fólksfjölda
verða landsmenn að treysta mjög
mikið á utanrikisverzlun. Inn-
flutningurinn verður að greiðast
með útflutningi. An fisksins mun
Island farast.
Fiskveiðin hefur ávallt haft
afgerandi þýðingu. Það kemur
m.a. fram i gömu ættarsögunum.
Auðæfi hafsins voru grundvöllur
landnáms og búsetu á Islandi
Næsta ár- 1974- verða ellefu
hundruð ár siðan fyrsti land-
námsmaöurinn sté á land á
Suðurströnd tslands og tók sér
siðan búsetu þar sem Reykjavik
stendur nú. Það væru norski
bændahöfðinginn Ingólfur Arnar-
son. Afmælisins verður minnzt
með mikilli hátið. Norrænu
nágrannarnir munu taka þátt i
hátiðahöldunum á ýmsan hátt.
Rikisstjórnir norrænu landanna
ættu nú þegar að gefa sina beztu
afmælisgjöf, að lýsa yfir
eindregnum stuðningi við kröfu
tslendinga um 50 mina fiskveiði-
lögsögu. Það hefur enginn rétt á
gegndarlausri rányrkju á
miðunum og ræna tslendinga
þeirri undirstöðu sem þeir byggja
þjóðfélag sitt á.
VIÐ
SMÍDUM
HRINGANA
SIIVII 54910
GJÖFIN ssm
gleður
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TP 21190 21188
Itankiiin it liaklijai'l
BÚNAÐARBANKINN
allir kaupa
hringana hjá
Skólavörðustíg 2
Sænsk krafa:
Lýsum yfir
opinberum stuðningi
við íslendinga
5 o:
Merki til stuðnings tslendingum i
landhelgisdeilunni.
jl SÍBS
ENDURNVMUN
Dregið verður mánudaginn
7. maí ■ Artunið að endurnýja
Ný reglugerð um greiðslur orlofsfjér gildir
fré 1. maí 1973. LaunagreiSandi é nú að
greiða 81/a% af launum á næstu póststöS
innan 3ja virkra daga frá því að hann borgar
laun. Um leið hætta allar greiðslur á orlofs-
fé með orlofsmerkjum.
Greiðslunni skal fylgja skilagrein á sérstöku
eyðublaði eða afrit launaseðils, sem Póstur
og sími gefur út. Gætið þess sérstaklega að
nafnnúmer séu rétt.
Um leið og laun eru greidd, á launþegi að
fá launaseðil sem sýnir upphæð launa og
orlofsfjár.
Launþegar fá reikningsyfirlit á 3ja mánaða
fresti frá Pósti og síma. Það sýnir hve mikið
orlofsfé hefur verið móttekið þeirra vegna.
Geyma þarf launaseðlana til að geta séð
hvort rétt upphæð hefur verið greidd inn á
orlofsreikninginn. Við lok orlofsárs fær laun-
þegi senda ávísun á orlofsfé sitt.
Eyðublöð fást á póststöðvum og eru þar
veittar nánari upplýsingar.
PÓSTUR OG SÍMI
Póstgíróstofan