Tíminn - 03.05.1973, Blaðsíða 20

Tíminn - 03.05.1973, Blaðsíða 20
Fimmtudagur 3. mai 1973 8111 MERKIÐ, SEM GLEÐUR HHtumst i kmtpfélaginu Gistió á góóum kjörum ‘&HOTEL# □ n SGOÐI ^Afyrir ffódnn nitti ^ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS Pentagonskjölin komin inn í Watergatemálið verjandi Ellsberg vill að ákæran verði felld niður NTB-Washington — Þeir ilaldeinan og Ehriehman, sem uröu aö yfirgefa embætti sin i llvíta húsinu vegna Watergate- málsins, eiga I dag aö koma fyrir alrfkisdómstól og skýra frá öllu, sem þeir vita um máliö. Siöar munu þeir einnig koina fyrir þá nefnd öldungadeildarinnar, sem rannsakar hneyksliö. t gær hélt New York Times þvi fram, að rannsóknarmenn hefðu staðfest, að þeir félagar, ásamt m.a. fyrrverandi dómsmálaráð- herra og John Mithcell, formanni endurkjörsnefndar Nixons, bæru ábyrgð á viðtækum áætlunum til að breiða yfir ástæðuna fyrir inn- brotinu i aöalstöðvar demókrata i Watergatebyggingunni, þannig aö yfirvöldum tækist ekki að komast aö sannleikanum. I blaðinu sagöi aö falizt heföi m.a. i áætluninni, að þeir sem við máliö væru riðnir, myndu þver- neita, aö þeir fimm, sem hand- teknir vori^fengju borgun fyrir að þegja og forsetinn myndi lofa þeim náðun, ef þeir yrðu dæmdir. Gordon Liddy, sem i janúar vær dæmdur, sem einn af for- sprökkum njósnaranna, var látinn vera „syndaselur” þar sem hann var þekktur fyrir hæfileika sinn til að þegja á réttum augna- blikum. Liddy var dæmdur i sex ára fangelsi fyrir þátttöku sina i Daniel Ellsberg. innbrotinu og fékk átta mánaða viöbótardóm fyrir aö neita að segja réttinum þaö sem hann vissi i málinu. Fleiri ákærðir? Bæði Ehrlichman og Haldeman neita að hafa gert nokkuð af sér og Mitchell segir frétt New York Times „argasta slúður”. Blaðið hafði þó fréttina eftir rann- sóknarmanni, án þess að gefa upp nafn hans. Enn er ekki vitað, hvort Nixon vissi, að þeir félagar áttu hlut að málinu og rannsóknamaðurinn segir i blaðinu, að engu sé likara en Nixon haldi, að þeir séu sak- lausir. Þá segir blaðið, að fleiri með- limir endurkjörsnefndar Nixons og starfsliðs Hvita hússins muni verða ákæröir, þegar dómstóllinn hefur lokið starfi sinu. Sagt er að Dean hafi krafizt þess að sleppa viö ákæru, ef hann skýröi frá vitneskju sinni. Blaðið segir hann hafa flækt hina tvo i málið. Meðal þeirra, sem eiga að vita um vitneskju sina um málið, er Martha Mitchell, hin málglaða kona Johns Mitchell, en hún hefur áður svarið, aö hún ætli ekki að láta ákæra mann sinn. Connally söðlar um NTB, Washington — John Connally, fyrrverandi fjár- málaráöherra og rikisstjóri i Texas, gekk i gær úr demó- krataflokknum og' I rcpú- hlikanaflokkinn Hann lýsti þvi yfir aö hér eftir ætlaöi hann aö vera repúblikani af öllu hjarta. Connally, sem er 56 ára, hefur lengi verið tilnefndur sem mögulegur kandidat repúblikana til forsetafram- boðs 1976, sagðist skipta um flokk vegna þess að hann óski að hjálpa repúblikönum til að „uppfylla allar þarfir og vonir bandarisku þjóöar- innar”. Rólegur 1. maí um allan heim NTB—Moskvu — Fyrsti mai var haldinn hátiölegur á heföbundinn liátt viöa um heim og hafa cngar fréttir um alvarlega atburði bor- izt. i Bretlandi var allsherjar- verkfall i mótmælaskyni viö stefnu stjórnarinnar i launamál- um. Brésnef flokksleiðtogi hélt ræöu á Rauðatorginu i Moskvu og sagði að stefna Sovétrikjanna væri fyrst og fremst friðarstefna og staöa landsins i heiminum væri nú sterkari en nokkru sinni. Til- kynnt var að Bréfsnef og Allende, forseta Chile hefðu verið veitt friðarverðlaun Lenins. 1 Kina voru hátiðahöldin þau rólegustu um árabil. Chou En-Lai tók þátt i þeim ásamt hundruöum þúsunda verkamanna, en hvorki Mao né Tung-Wu létu sjá sig. Talið hafði verið, að Mao kæmi fram i dagsljósið i fyrsta sinn i Borgarráð samþykkir stofn- framlag til Sædýrasafnsins en setur viss skilyrði fyrir því A FUNDI sinum 10. april s.l. fjall- aði borgarráð um málefni Sæ- dýrasafnsins i Hafnarfirði. Var þar tekin til umræðu áætlun framkvæmdaráðs Fram- kvæmdastofnunar rikisins frá 23. mai 1972 um viðbótarstofnfé til handa safninu að upphæð 20 milljónir króna. Af þeirri upphæð gerir áætlunin ráð fyrir, að 8 millj. greiðist frá rikissjóði, sama upphæð frá borgarsjóði og af- gangurinn, 4 millj. frá sveitarfé- lögum i Reykjanesumdæmi. Borgarráð tók einnig til um- ræðu drög menntamálaráðu- neytisins frá nóvember 1972 að reglugerð fyrir safnið og drög ráðuneytisins að samningi milli ofangreindra aðila, þar sem gert er ráð fyrir, að framlögin greiðist á 6 árum frá 1974 að telja. Sam- þykkti borgarráð fyrir sitt leyti að veita stofnframlag úr borgar- sjóði að upphæð 8 millj. króna til Sædýrasafnsins, sem yrði þá greitt með jöfnum framlögum á árunum 1974-1979. 1 ályktun sinni tók borgarráð þó fram, að það teldi eðlilegra, að framlag rikissjóðs verði jafnhátt samanlögðu framlagi sveitar- félaganna. Jafnframt óskar borgarráð ekki eftir þvi, að Reykjavikurborg fái aðild að stjórn safnsins, en fyrir því hafði verið gert ráð i drögum að reglu- gerð. Hins vegar setti borgarráð það skilyrði fyrir framlagi borgarsjóðs, að stofnun á vegum rikisins hafi eftirlit með þvi, að stofnfjárframlögin verði notuð i samræmi við áætlun Fram- kvæmdastofnunarinnar. Það var einnig sett fram sem skilyrði af hálfu borgarráðs, að skólabörn- um yrði veittur afsláttur frá inn- gangseyri, er þau skoðuðu safnið á vegum skóla borgarinnar i fylgd með skólastjóra eða kenn- ara. —Stp Ellsbergmáliö líka 1 Los Angeles fóru verjendur Daniels Ellsberg fram á að ákæran gegn honum og Anthony Russoyrði felld niður, vegna þess að i ljós hafi komið að Nixon hafi persónulega gefið fyrirskipun um rannsókn á högum Ellsbergs fyrir tveimur árum. Það kom fram við réttarhöldin i fyrradag, að Nixon fól Ehrlichman rannsóknina. Ells- berg er sem kunnugt er ákærður fyrirað hafa afhent blöðum leyni- skjölin um Pentagon, sem fjölluðu um striöið i Vietnam. Ehrlichman hafði siðan faliö þeim Liddy og Hunt, sem báöir hata verið dæmdir fyrir innbrotið i Watergate, að brjótast inn á skrifstofu sálfræðings Ellsbergs og gera skýrslu um sálrænt ástand Ellbergs. Hlutlaus rannsókn öldungadeildin skoraði i fyrra- kvöld á Nixon að skipa hlut- lausan mann til að rannsaka Watergate-málið, en hópur stuðn- ingsmanna Nixons reyndi siðan að fá áskorunartillögu þessa fellda og sögðu hana jafngilda vantrauststiliögu á forsetann. Fundinum ideildinni lauk án þess að samkomulag næðist. 1 gær stóðu alrikislögreglu- menn vörö á skrifstofum þeirra Haldemans, Ehrlichmans og fleiri i Hvita húsinu, að sögn til að Framhald á 7. siöu. tvö ár. Palme og Wickman i Sviþjóð ásökuðu i 1. mai-ræðum sinum Nixon fyrir brot á friðarsáttmál- anum með þvi að varpa sprengj- um á saklausa flóttamenn i Kambódiu. Sadat Egyptalandsforseti endurtók i ræðu sinni, að Egyptar væru ákveðnir i að vinna aftur þau landssvæði, sem töpuðust i 6 daga striðinu og hann varaði Sovétrikin við að láta Bandarikin narra sig með friðaráæltun sinni i Mið-Austurlöndum. 1 tsrael sagði Golda Meir, að hún vonaði, að Sadat væri ekki alvara með þess- um striðshótunum. Eina Varsjárbandalagslandið, sem hélt hersýningu var A-Þýzkaland og var þvi mótmælt i Bandarikjunum, Frakklandi og Bretlandi, sem broti á fjórvelda- sáttmálanum um Berlin. BEKAERT túngirðingarnet vafhnýtt Litrík girðing sem eykurbæði prýði ogþægindi á heimili yðar. Fæst bæði í grænum og gulum lit. Þetta vafhnýtta net er ódýrt og hentar vel til varnar gegn sauðfénaði og stórgripum. Allar venjulegar stærðir og gerðir fást alltaf á íslandi. En vér ráðleggjum yður sérstaklega að nota þá gerð, sem hér er skilgreind, með tvöfaldri zinkhúðun og tilsvarandi endingu, og þó ódýrt. Rauði Bekaert Ursus merkimiðinn tryggir yður góða vöru. | Samband isl. samvinnufélaga INNFLUTNINGSDEILD

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.