Tíminn - 03.05.1973, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 3. maí 1973
TÍMINN
11
En þótt olnbogarýmið virtist
mikið i Landssimahúsinu, þá kom
fljótt i ljós, að þar var alltof
þröngt um starfsemina — og við
þau óþægindi býr útvarpið enn
þann dag i dag. Ég verð að segja
það, sem gamall starfsmaður
þessarar stofnunar, aö mig
furðar það stórlegá, að ekki skuli
fyrir löngu vera búið að byggja
hús yfir islenzka Rikisútvarpið.
Við vitum það vel, hinir eldri
starfsmenn útvarpsins, að þetta
var vel hægt að gera, af þvi að
Jónas Þorbergsson lagði sig allan
fram við að safna i sjóð til þess að
byggja útvarpshús, Það fékkst
meira að segja leyfi fyrir lóð
undir húsið vestur á Melum, við
norð-vesturhorn gamla iþrótta-
vallarins. Þetta var hinn bezti
staður og ef útvarpshús stæði þar
nú, þú myndi það prýða Reykja-
vik. En ég verða að segja það —
og mér ætti að vera óhætt að
segja það, þar sem ég er viðrini i
pólitikinni — að það var ramm-
pólitiskt, að Jónas skyldi ekki
hafa frjálsar hendur til þess að
byggja útvarpshúsið.
Ég er þar enn
— En svo maður viki aftur að
sjálfri þér: Ertu enn i tónlistar-
deildinni?
— Já,ég er þarenn, og hef verið
þar frá byrjun. Ég tel það ekki
þótt ég hafi hlaupið i skarðið
annars staðar, þegar sérstaklega
hefur staðið á. Framan af árum
var starfsfólkiö svo fátt, að menn
þurftu að gripa hver inn i annars
störf, eftir þvi sem á stóð, til
dæmis i sumarfrium og veikinda-
forföllum. Ég hef þvi unnið á
flestum deildum, öðrum en
fréttastofunni. Þar var ég aldrei,
þvi að það var alltaf nóg af frétta-
mönnum.
— En hvað voruð þið mörg i
tónlistardeildinni, fyrr á árum?
— Við vorum aðallega þrjú. Við
Guðrún Reykholl völdum efnið
sem flutt var, en«Páll Isólfsson
var tónlistarráðunautur útvarps-
ins, en vann þar að visu aðeins
hálfan daginn, þar sem hann var
hlaðinn öðrum störfum. Hann fór
þó auðvitað yfir það, sem við
Guðrún höfðum valið til flutnings,
og gerði þar sinar athugasemdir
til samþykkis eða synjunar.
Oftast held ég að hann hafi lagt
blessun sina yfir verk okkar, enda
var samkomulag okkar þre-
menninganna svo gott, að á betra
varð ekki kosið, og sama gilti
reyndar um starfsfólkið allt. Við
vorum öll eins og litill hópur i
einum báti, og bundumst vináttu-
böndum innbyrðis, flest ef ekki
öll. Jónas Þorbergsson, útvarps-
stjóri, var góður húsbóndi, sem
vildi sinu fólki vel, en auðvitað
var það fjárveitingarvaldið i
landinu, sem réð fjármálum
stofnunarinnar, og ég held. að
Jónas hafi oft liðið fyrir það að
geta ekki greitt starfsfólkinu
hærra kaup en raun var á. Frétta-
menn, þulir og magnaraverðir
unnu á vöktum og voru ráðnir á
allt öðrum forsendum en við,
skrifstofufólkið. Þeir fengu þvi
sina aukatima greidda, en' við
fengum aldrei einn eyri aukalega,
þótt við ynnum lengur en okkur
bar skylda til, bæði fyrir vinnu-
tima á morgnana og eins eftir að
honum átti að vera lokið á
kvöldin.
Skóli lífsins
— Þú sagðir eitthvað i þá átt
áðan, að þig hefði skort skóla-
göngu. Ég mætti kannski spyrj a,
hver menntun þin er?
— Menntun min er margvisleg,
þvi að skóli minn hefur verið lifið
sjálft, og sú harða barátta, sem
ég hef orðið að heyja. Faðir minn
var prestur, en hann varð að láta
af prestskap, sökum vanheilsu,
og svo féll hann frá á meðan við,
börnin, vorum ung. Þá stóð
móðir okkar uppi, sem
fyrirvinnulaus ekkja, og þá var
auðvitað ekki um neitt annað að
ræða en að hver ynni eins og hann
gat, eins og þá var altitt, nema
hjá einstaka embættismönnum.
En það verð ég að segja, að ég er
ákaflega þakklát fyrir það að
hafa þurft aö berjast áfram. Ég
held, að eina leiðin til þess að
verða maður, sé hið gamalkunna
ráð. að neyta brauðs sins i sveita
sins aldlitis — og meira að segja
berjast fyrir þvi.
— Hugur þinn, sem barns og
unglings, hefur allur staðið til
mennta?
— Já, svo sannarl. Þó harma
ég það ekki nú, að svo skyldi
ekki verða. Ég öfunda meira að
segja ekki tónlistarmenn, jafnvel
þótt þeir hafi náð heimsfrægð. Ég
held, að það hljóti að vera erfitt lif
og leiðigjarnt, þegar til lengdar
lætur að þurfa að vera á þeytingi
um heiminn þveran og endi-
langan, kynnast fjölmörgu fólki,
en engum þó til hlitar. En þetta
er, eins og menn vita, hlutskipti
flestra mikilla listamanna.
En hvað hinn algenga lang-
skólaveg snertir, þá sakna ég
hans ekki lengur. Það liggur við
að ég vorkenni þessu blessaða
unga fólki, sem er verið að troða i
og hlaða undir. Þeir, sem alltaf
sitja á skólabekkjum, alla sina
æsku, þeir komast aldrei i eins
nána snertingu við tilveruna og
við, sem þurftum að berjast fyrir
henni. Og það sem verra er: Löng
sérmenntun þrengir að sálar-
lifinu, bæði tilfinningalega og
vitsmunalega. Ef hugsunin á aö
haldast vakandi, verður maður
að horfa allt i kringum sig. Það
dugir ekki að glápa alltaf beint
fram fyrir sig, ef maður ætlar að
njóta viðs útsýnis á ferðalagi. Og
nákvæmlega sama máli gegnir
um þaö mikla ferðalag, sem við.
köllum mannlif.
Eflir þvi sem árin færast yfir
mig, verður það algengara, að
sérfræðingar verki á mig eins og
þeir hafi alla sina ævi verið niðri i
lest á skipi og ekki haft annan
sjóndeildarhring en þann, sem
séður varð útum kýraugað á
skipssúðinni. Það var eins og
þeir hefðu aldrei sé viðerni nátt-
úrunnar i kringum sig og þaðan af
siður upp i himininn. Auðvitað á
þetta ekki við alla jafnt, þvi að
sérgreinar eru misjafnlega
slæmar með að gera úr mönnum
steingerfinga, og þvi siður eiga
hér allir einstaklingar óskilið
mál. I öllum stéttum og starfs-
greinum eru til einstaklingar,
sem gæddir eru svo mikilli fjöl-
hæfni, að þeir staðna ekki á
þröngu sviði þeirra fræða, sem
þeir lærðu i skóla. Hinir eru þó,
þvi miður, miklu fleiri, og þaö eru
þeir, sem ég kenni i brjósti um.
Margt af þvi er aur.
— Nú hefur þú unnið i tónlistar-
deild útvarpsins i hartnær fjöru-
tiu ár. Hvernig finnst þér hún
hafa þróazt?
— t upphafi byggðum við
deildina þannig upp, að við
reyndum að hafa efnið sem allra
mest blandað. Með öðrum
orðum. að það væri eitthvað
fyrir alla, og með það sjónarmið i
huga völdum við lika dagskrána
frá degi til dags.
En þú varst að spyrja um
þróunina. Ég er hrædd um, að ég
lendi út á hálan is, ef ég fer að
svara þeirri spurningu, og segja
mina skoðun. Kannski er ég orðin
of gömul, og gömlu fólki hættir til
að verða of fast i sömu skorðum,
þótt ég hafi reynt að forðast þá
hættu að staðna. Ég hef reynt að
lesa allt, sem ég kemst yfir og
hlusta á flest, sem flutt er. Ég hef
alltaf lagt þann skilning i list, að
hún ætti að hafa göfgandi áhrif á
mann. Það gerðu að minnsta
kosti hinir gömlu listamenn
veraldarsögunnar og gera enn.
Hins er ekki að dyljast, að öðru
máli gegnir um margt af þvi
nýmeti, sem á borð er borið, þá
flýtir maður sér að loka fyrir.
Stundum finnst mér næstum eins
og allt sé að ganga af göflunum.
Fólk hefur ekki lengur jörð til
þess að ganga á, og þó er það svo
jarðbundið, að það er eins og and-
inn geti aldrei komið yfir það. En
þetta er ekki neitt frekar á tón-
listarsviðinu en á mörgum öðrum
sviðum. Það var sú tið, að ekki fór
nokkur einasta málverkasýning
framhjá mér, og ég fór alltaf
rikari þaðan en ég hafði komið.
Nú finnst mér timi minn of
dýrmætur til þess að eyða honum
i þetta, nema rétt við og við.
En hvað tónlistardeild Rikisút-
varpsins snertir, þá er þar ausið
yfir mann þvilikum firnum af
efni, að maður verður blátt áfram
alltaf að vera á verði. Margt af
þvi, sem þar er borið á borð er
hreinn aur — já, það er þvl Imiður
ekki hægt að hafa neitt annað orö
yfir það, þótt ekki sé það fallegt.
Það er bókstaflega allt gefið út á
plötum, og siðan er heimtað að
útvarpið sendi allt úr, hvernig svo
sem það er. Þetta er blátt áfram
að gera mann sturlaðan, enda er
mikið af þvi,sem flutt er þannig,
að það er hvorki fyrir heilbrigða
skynsemi né heilbrigðar til-
finningar að njóta þess. Ég segi
það satt, að ég vorkenni þvi fólki,
sem ekki hefur vit á þvi að skrúfa
fyrir. þegar annað eins er borið á
borð fyrir það.
Sinfóníurnar og
hlustunarskilyröin.
— Hafið þið nú samt ekki mest
verið skömmuð fyrir hina sigildu
tónlist, sinfóniur og annað slikt?
— Jú, blessaður vertu. Það var
rifizt þrotlaust og þindarlaust yfir
þessu „fjandans sinfóniu- og
óperudrasli”, eins og komizt var
að orði. Auövitað var þessi
skammaaustur i raun og veru
engra svara verður, þvi að við
vissum það bezt, sem aö þessu
unnum, að við reyndum að hafa
dagskrána eins blandaða og
nokkur kostur var.
En svo fór ég að ferðast um
landið og að hlusta á útvarpið
þar. Þá brá mér i brún. Það var
ekki einu sinni hægt að hlusta á
talað orð i tækjunum, hvað þá
tónlist. Ég sagði þá: Nú skil ég,
hvers vegna þið voruð svona vond
út I okkur, blessuð lagið þið tækin
ykkar. En þetta var ekki allt
tækjunum að kenna. önnur
hlustunarskilyrði voru oft svo
gersamlega fyrir neðan allar
hellur, að i rauninni var engin leið
að njóta neins útvarpsefnis.
Sumir héldu, að þetta væri
fjöllunum að kenna, að þau tækju
bylgjurnar, en bæði bandariskir
Framhald á bls. 19
"***WN3i
- Al.l''‘r .-J*^
I
Laugavegi 178 * Sími 86-700
NU ER RETTI TIMINN
til að skipta frá Bridgestone-snjódekkjum
yfir á Bridgestone-sumardekk
Bridgestone í fararbroddi ár eftir ár
Þú getur treyst Bridgestone
MM
Umboðsmenn um allt land