Tíminn - 03.05.1973, Qupperneq 14
14
TÍMINN
Fimmtudagur 3. mai 1973
meiningarlaust þvaöur, Katrin.
— Láttu ekki eins og flón, þú
gerir bara illt verra meö þessu,
Mabel, sagöi Lea — Enginn meö
fullu viti lætur sér detta þaö i hug,
aö þú hafir verið að dylgja um
þaö, að Katrin muni einn góðan
veðurdag slá Maitlands hjónin i
höfuðið og kasta þeim svo fram af
klettum. Ef þú heföir ekki hegðað
þér svona bjánalega hefði enginn
munað eftir þvi, að hún er ekki
dóttir Maitlands hjónanna. Réttu
mér kaffibollann þinn, Katrin, og
segöu i guðanna bænum viö
Mabel að þetta sé allt i lagi, svo
hún hlaupi ekki á milli okkar i allt
kvöld til þess að afsaka sig.
— Þetta tekur maður ekki
hátiölega, frú Brastock, sagði
Katrin stillilega. — Nei takk, ég
nota ekki sykur.
Hún tók kaffibollann og gekk út
aö giugganum þar sem Sherida
sat. Hendurnar titruðu ekkert,
hún hafði ekki einu sinni fölnað,
en Sherida vissi að hún hafði
löngun og þörf fyrir að ganga út
að glugganum, enda þótt þykku
gluggatjöldin væru fyrir honum.
Gegnum tjöldin heyröist niöur
brimsins, og þytur i trjákrónum.
Það voru vingjarnleg hljóö, mikiu
vingjarnlegri en hin mjúka, bliða
rödd Leu, eða hið veika hvislhljóö
sem heyröist þegar hjólastólnum
var ýtt eftir gljábónuöu gólfinu.
Herrarnir urðu fljótt leiðir á að
ræöa loftvarnir, og komu inn i
salinn til kvennanna. 1 einu
horninu var slegiö upp bridge-
boröi, og Mallory sótti spil. Logan
gekk út aö glugganum til
Katrinar og tók laust um hand-
legginn á henni. — Komdu með
mér inn i bókaherbergiö sem
snöggvast, hvislaöi hann aö
henni. — Viö skulum hafa okkur
burt úr þessu þvaöri.
Hún gekk með honum inn i
bókaherbergiö án þess aö segja
orö. Þetta var viðkunnanlegt her-
bergi meö sterkum þef af skinn-
stólum og tóbaki. Logan kveikti á
litlum lampa viö arininn og lokaöi
huröinni. Svo tók hann hana i
faðminn og þrýsti henni þétt aö
sér, svo þétt að hann gat heyrt
hjartaslög hennar gegnum silkiö.
— Þú tekur vonandi ekki nærri
þér kjaftæöi kerlingarinnar, þú
sem ert svo vitur, Katrin min?
Hún greip um handlegg hans, —
hún var svo litil og varnarlaus
þegar hún var i faömi hans,- og
lagði höfuöiö aö brjósti hans og
andvarpaöi þreytulega.
— Eg veit ekki....Ó, Logan,
bara aö ég gæti fengiö aö vita
hver ég er og hvaðan ég kem.
Hún fann aö hann kipptizt viö,
og vissi aö hann var mjög reiður,
og þurlti á óllu sinu aö halda til
þess að tala stillilega.
— Hvers vegna geturöu ekki til
dæmis, gert þér I hugarlund, aö
forefdrarþinir hafi farizt i
bifreiöaslysi þegar þú varst fárra
mánaða gömul. Látum okkur
kalla þau Jackson. Setjum svo, aö
þú heföir veriö alin upp hjá
Maitlands sem Katrin Jackson,
og leiði foreldra þinna væru i
kirkjugarðinum Mundir þú vita
öllu meira um þessa foreldra, en
þú veizt nú um þina? Eöa um
sjálfa þig? Þetta eru bara gamlir
fordómar. Þú mundir ekkert vita
frekar um þinar erfða-
tilhneigingar.
— Ég held að pabbi og mamma
viti eitthvað, sagöi hún lágt.
— Þau hljóta aö hafa grennslazt
um uppruna minn áöur en þau
tóku mig til fósturs. Logan, getur
þú ekki fengiö þau til aö segja þér
það sem þau vita, hvaö sem það
kann aö vera. Logan sleppti henni
úr iaðminum og gekk að
arninum.
— Ég held þetta ekki út, Katrin.
Ertu virkilega svo hrædd viö lifiö,
aö þú þorir ekki að hætta
nokkrum sköpuöum hlut?
Treystirðu þvi ekki að ég geti
verndað þig fyrir öllu, sem þú ert
hrædd við — hvaö sem þaö er?
— Jú, en þaö er einn hlutur enn,
Logan. öll hennar hugarskynjun
geröi uppreisn gegn þvi sem hún
ætlaöi aö segja, en varð aö segja :
— Já, þaö er einn hlutur enn, og
þaö er Lea. Þegar hún fór að tala
um Bassett-máliö i kvöld, vissi
hún mæta vei hvaö Mabel
Brastock mundi segja.
Logan sneri sér hægt frá
arninum, tók pipuna út úr sér, og
staröi á hana. Bakviö hann léku
bláir og grænir logar, það var
saltiö, sem brann i gamla reka-
viðnum.
— Þú ert gengin af vitinu,
Katrin, hvislaöi hann. —
Helduröu þvi virkilega fram að
Lea hafi meö köldu blóöi ráögert
eitthvaö, sem er svona andstyggi-
legt?
— Ég er ekki aö halda þvi fram,
aö hún hafi ráögert þetta fyrir-
fram. Ég meina heldur ekki aö
hún hafi beðiö frú Brastock aö
tala um Mariu Bassett, en hún
vissi aö hún mundi gera það.
Vertu ekki reiður viö mig, Logan,
ég veit, aö þér þykir vænt um Leu
og aö hún dýrkar þig. Ég skil
þetta allt vel.
Lætur þú þér virkilega detta
þaö i hug, að Lea vilji fá okkur til
aö lita svo á að þú sért sambæri-
leg viö þessa Mariu Bassett, og aö
þú munir, einn góðan veðurdag
birtast okkur sem tvöfaldur
moröingi? Seröu ekki hvað þetta
er fráleitt, Katrin? Jafnvel þó aö
Lea hafi ef til vill farið nær um
það aö Mabel Brastock mundi
bulla eitthvað um þetta mál, þá
sýnir þaö aðeins það, aö þú komst
alls ekki i hug hennar i þessu
sambandi. Komdu til min. Hann
dró hana aö áér og horföi djúpt i
augu hennar. — Við skulum bæöi
slást við þessa Grýlu þina, þó aö
þú sért vist engin striöshetja.
Eigum viö ekki að ganga nú inn
aftur og gleyma þessu öllu
saman?
— Jú, viö skulum gera þaö,
hvislaöi hún. — Ég hýt aö kvelja
þig alveg óskaplega meö þessu,
Logan.
Þetta er tilgangslaust, hugsaði
hún, döpur I huga. Hún varð aö
brjótast I gegnum þetta alein.
Þau vöfðu hvort annað að sér i
rökkrinu og þögöu. Út i forsalnum
heyrðu þau hælaskelli Cicely, hún
var vist á leiðinni upp með Jönu,
til þess að púöra sig. Munnur
hennar gekk sífellt eins og kvörn.
Mallory hafði eitt sinn sagt, að
málrómur hennar skæri sig gegn
um merg og bein.
— Þaö skilur náttúrlega enginn
lifandi maður, aö ég skuli nenna
þvi að fara hingaö I friinu minu.
Vegna þess að ég er ekki stór
vexti, klæði mig nýtizkuiega og er
kannski dálitið tungumjúk,
halda allir, að ég sé eins og
fiskur á þurru landi þegar ég kém
hingað, en sannleikurinn er sá, að
ég hata Lundúni og allan gaura-
ganginn, sem þar er. Ekki þannig
að skilja að ég hafi nokkuð á móti
rólegu kvöldi á Dorchester eða
Quaglinos, en ef það verður of
mikið af þess háttar, fer mér að
finnast ég — og lita út — einsog ég
væri hundrað ára. Hins vegar
finnst mér það synd, hvað Mabel
hefur farið hræðilega aftur. Ég
veit vel, aö ég með vaxtarlagi
minu og húð hef viss grundvallar-
skilyrði til þess að vera eftir-
sóknarverð, en aumingja Mabel,
hún getur eins gefizt upp. Ég
held.... Það sem eftir var ræð-
unnar dó út, þegar hún hvarf fyrir
horniö á ganginum. Logan hló og
strauk Katrinu um há'riö.
Hefur þú nokkur „grundvallar-
skilyrði til aö veröa hamingju-
söm” min kæra? Það hlýtur að
vera gott að hafa þann eiginieika i
bakhöndinni, en Cicely er svo
hátt hafin yfir aðrar dauðlegar
manneskjur, að enginn hefur séð
þá skarta á henni. Við skulum
fara inn og spila bridge. Ertu búin
að ná þér eftir þunglyndiskastið?
— Allt i lagi með það, sagði hún
brosandi. Þau hröðuðu sér inn i
salinn.
Sherida hafði höfuðverk, og af
þvi að nógir spilamenn voru til
staöar, gekk hún upp til að leggja
sig. Hún hvíslaði skýringunni að
Jönu, og bað hana að afsaka sig
við Leu. Hún komst óséð fram i
skálann, en varð allt i einu gagn-
tekin af ómótstæðilegri löngun til
þess að sleppa frá þvaðrinu og
öllum fjölskyldumyndunum, sem
störðu niður á hana dauðum
augum. Smá göngutúr I garðinum
mundi áreiðanlega gera henni
gott, og með þvi braut hún ekki
loforðið, sem hún gaf Mallory um
að fara ekki ein út á Höfðann eftir
að dimmt væri orðið. Hún opnaði
dyrnar og læddist út.
Það var hætt að rigna, og þótt
enn væri stormur á, var loftið
milt og ilmaöi þægilega af söltu
þangi. Tungls*kiniö var dauft, svo
dauft að varla sáát fram á
Höfðann né upp i fjallahliðina
uppi I dalnum. bt við sjóndeildar-
hringinn var glampi á himninum
likastur maurildi, og flugvél
stakk sér bakvið skýjaþykknið
Skyldi virkilega verða striö?
Skyldi ill og almáttug ófreskja
gripa þau öll og kasta þeim til og
frá eins og viljalausum tusku-
brúðum i brúðuleikhúsi?
— Ert það þú, Sherida? Ég sé,
að þú stendur við orð þin að fara
ekki ein út á Höfðann. Mallory
kom svo óvænt utan úr myrkrinu
að hún fékk hjartslátt.
— Það hef ég gert, og einnig má
þakka það hugleysi minu. Þar er
allt svo hrikalegt, en jafnframt
aðlaðandi.
— Finnst þér það? sagði hann
eins og út i hött. — Segðu mér eitt-
hvað af þér sjálfri, Sherida.
Hvernig likar þér starfið? Það
nlýtur að vera dauðans leiðinlegt
fyrir þig.
— Stundum og stundum ekki, en
það hefur verið allt annað en
leiðinlegt hér á Bastions.
— Já, i raun og veru hlýtur það
að vera áhugavert að koma i hóp
ókunnuga fólks og fá tækifæri til
að vega það og meta. Það mun
vera sem einskonar lifandi —
leiksýning.
— Ég meinti ekki þetta, sagði
hún rólega. Hann horfði á hana og
draup höfði.
— Ég veit það, Sherida.
Fyrirgefðu mér. Þú kemur svo
eðlilega inn i myndina, að við
skoðum þig ekki sem ókunnuga
manneskju, heldur eina af okkur.
Hvernig likar þér við Katrinu?
Hann er eitthvað skritinn I
kvöld, hugsaði Sherida, hoppar úr
einu efninu i annað. Hún gat bara
ekki skilið hinn bitra undirtón,
sem lá bakvið orðin.
— Mér geðjast sérlega vel að
henni, og það sama get ég sagt
um ykkur öll. Hvernig likar þér
við hana?
— Vel. Hann starði þreytulega
út yfir sjóinn.
— Mér þykir álika vænt um
hana og Jönu og Kristinu.
Sherida, hefur Lea sagt þér að
Katrin er óskilabarn?
— Nei, en ég hef það frá frú
Brastock, svaraði hún. Mallory
bandaði frá sér með hendinni.
— Sú gamla kjaftatifa! Ég ber
hina mestu virðingu fyrir
dómgreind Leu, en vináttu
hennar og Mabel hef ég aldrei
skilið. Aö visu var hún sérlega
hjálpsöm eftir slysið, en samt
sem áður....Fannst þér Mabel
drótta aö Katrinu, þegar hún fór
að tala um Bassett-morðið I
kvöld?
Sherida vildi ekki minna hann
á, að það hefði verið Lea, sem hóf
máls á Bassettmorðinu, og hún
var raunar þeirrar skoöunar að
þess væri ekki þörf.
HVELL
Geiri og Ken
oma, viti sinu
fjær af eitur
lyfjum,
ráðast að hvor
öðrum aö
ástæðulausu.
6 -2é
Ihliodvarp
FIMMTUDAGUR
3. maí
Íiili-ií 7.00 Morgunútvarp Veður-
íi.iiÍiÍI; fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
íiiÍíiÍi Fréttir kl. 7.30, 8.15 og
?! forustugreinar dagbl.
Sig 9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
i;$iS 7.45. Morgunleikfimi kl.
íiiiÍiÍi 7.50. Morgunstund barn-
|!:!:!ji:i anna kl. 8.45: Guðni Kol-
:!|!ii:;:i beinsson endar lestur sög-
:.:?!$!: unnar ,,Valli og Viggi i úti-
legu” eftir Ingólf Jónsson
iíi$í frá Prestbakka. Tilkynning-
;!;!;!;!; ar kl. 9.30. Létt lög á milli
;!;!;!;!: liða. Morgunpopp kl. 10.25:
;;$$: Hljómsveitin Jethro Tull
!;!;!;!;!; syngur og leikur og Paul
;$;!;;; Simon syngur eigin lög.
;!;!;!;!;! Fréttirkl. 11.00 Hljómplötu-
!;!;!;!;!; safniðiendurt. þáttur G.G.)
;!$& 12.00 Dagskráin. Tónleikar.
;!;!;!;!;! Tilkynningar.
:;!;!;$; 12.25 Fréttir og veðurfregnir.
i;!;!;!;!; Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni Margrét
;;!;!;!;! Guðmundsdóttir kynnir
;;!;!;$ óskalög sjómanna.
14.30 Siðdegissagan: „Sól
dauðans” eftir Pandelis
Prevelakis Þýðandinn,
Sigurður A. Magnússon,
byrjar lestur sögunnar.
15.00 Miðdegistónleikar:
Gömul tóniist Barokkhljóm-
sveitin i Vin leikur Sónötu
nr. 1 i D-dúr fyrir Strengja-
sveit eftir Georg Muffat:
Guschlbauer- stj. Jean
Leduc leikur Svitu fyrir or-
gel eftir Frohberger. Karl
Stumpf og strengjasveitin i
Prag leika Konsert fyrir
viólu d’amore og strengja-
sveit eftir Karl Stamic:
Jindrich Rohan stj. Hans
Bottler og Concentus
Musicus i Vin flytja Konsert
i Es-dúr fyrir básúnu og
hljómsveit eftir Georg
Christoph Wagenseil:
Nicolaus Harnoncourt stj.
St. Martin in the Fields
hljómsveitin leikur Sinfóniu
nr. 10 i D-dúr eftir Giovanni
Battista Bononcini: Neville
Marriner stj.
16.00 Fréttir,
16.15 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
16.25 Popphornið
17.10 Barnatimi: Agústa
Björnsdóttir stjórnar a.
Sögur og kvæði úr Sam-
lestrarbók Steingrims Ara-
sonar, flutt af börnum. b.
Börnin skrifa Skeggi As-
bjarnarson tekur til flutn-
ings nokkur bréf úr ólesna
staflanum frá liðnum vetri.
18.00 Eyjapistill. Bænarorð.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson cand. mag.
flytur þáttinn.
19.25 „Grjót — meira grjót”
Úr skrifum Jóhannesar
Sveinssonar Kjarvals. Rit-
höfundarnir Einar Bragi og
Thor Vilhjálmsson völdu
efnið Lesarar: Sigurgeir
Hilmar, Sigrún Benedikts-
dóttir og Vilberg Lárusson.
Tónakórinn flytur lagiö
„Kjarval” eftir Sigvalda
Kaldalóns við ljóð Þorsteins
Gislasonar. (Hljóðritað á
menningarvöku Héraðsbúa
7. f.m.)
20.05 Gestir i útvarpssalLista-
fólk frá Skozku óperunni
flytur skozka tónlist frá 18.
öld.
20.35 Leikrit: „A nýjan leik”
eftir Par Lagerkvist Þýð-
andi: Sigurjón Guðjónsson.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Persónur og leikendur:
m.a. Daniel: Gunnar
Eyjólfsson. Anna: Helga
Bachmann. Karlsson:
Valdimar Helgason.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir t sjón-
hending Sveinn Sæmunds-
son sér um viðtalsþátt.
22.45 Manstueftir þessu?Tón-
listarþáttur i umsjá Guð-
mundar Jónssonar píanó-
leikara.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.