Tíminn - 03.05.1973, Side 19
Fimmtudagur 3. maf 1973
TÍMINN
19
® Á réttri hillu
og evrópskir sérfræðingar, sem
hingað voru kvaddir, héldu þvi
fram, að það væru hraunin, sem
hér væru i sökinni. Ég held, að æ
fieiri séu nú að komast ú þessa
skoðun, enda er það mála
sannast, að mörg lönd eru með
miklu hærri fjallgarða en Island,
og þó búa menn þar við betri
hlustunarskilyrði en hér.
Þeir horfðu ekki í
gegnum kýrauga.
— Að lokum ein samvizku-
spurning, Sigrún: Gætirðu
hugsað þér að vinna i tónlistar-
deild Rikisútvarpsins i fjörutiu ár
i viðbót?
— Jú, það get ég sagt i fullri
hreinskilni. Ég er stundum að
hugsa um það — af þvi að nú er
komið svo nálægt þvi, að mér
verði sparkað að ég held, að það
muni verka á mig eins og ég missi
annan helminginn af sjálfri mér.
Ég veit, að ég á mikið eftir að
sakna útvarpsins. Þar er gott og
skemmtilegt fólk, og þar koma
ákaflega margir.
Mér verður æ oftar hugsað til
gamalla daga i þrengslunum
niðri i Landssimahúsi, starfs-
fólksins og þá ekki siður útvarps-
ráðsmannanna okkar, gömlu og
góðu. Þeir voru hver öðrum
skemmtilegri.
Vissulega voru þeir háskóla-
gengnir og sérfræðingar, hver á
sinu sviði, en þeir höfðu ekki horft
á veröldina i gegnum kýrauga.
— VS.
VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Haeð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar staerðir. smítSaðar eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220
rÍGNÍSl
FRYSTIKISTUR
RAFT0RG SIMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
Trúlofunar- ^
HRINGIR
Fljót afgreiösla
Sent i póstkröfu
GUDMUNDUR
ÞORSTEINSSON <<g
gullsmiður
^ Bankastræti 12
Bazar og
kaffisala
Föstudaginn 4. mai kl. 2
hefst i sal Hjálpræðishersins
ba/.ar og kaffisaia.
Margir góðir munir!
Komið og styrkið gott mál-
efni!
Hjálpræöisherinn.
Piltur
á fimmtánda ári, vanur allri
sveitavinnu, óskar eftir
kaupavinnu á góðu sveita-
heimili i sumar. Er laus um
21. mai. Upplýsingar I sima
83244 eftir kl. 6.
Bændur
Tveir bræður 11 og 14 ára
óska eftir sveitavinnu i sum-
ar.
Sá eldri hefur verið i sveit i 3
sumur. Upplýsingar i sima
53402 á laugardag og sunnu-
dag.
Vextir við
innlánsstofnanir
Með tilvisun til 13. gr. laga nr. 10 1961 ákveður
bankastjórn Seðlabanka íslands, að höfðu
samráði við bankaráðið, að vextir við innláns-
stofnanir skuli verða sem hér segir frá og með
1. mai 1973.
I. Innlánsvextir:
1) Almennar sparisjóðsbækur 9% á ári
2) Sparisjóðsbækur með 6 mánaða uppsögn 10 1/2% á ári
3) Sparisjóðsbækur með 12 mánaða uppsögn 12% á ári
4) 10 ára sparisjóðsbækur 12% á ári
5) Sparisjóðsávisanabækur 4% á ári
6) Innstæður á hlaupareikningi,
reiknings-og viðskiptalánum 3% á ári
7) Vísitölubækur barna: til 5 ára 8% á ári
Visitölubækur til 10 ára 9% á ári
Innlánsvextir þessir eru fastir, og er innlánsstofnunum óheimilt
að greiða aðra vexti af viðkomandi innlánsformum án samþykk-
is Seðlabankans. Vextir af öðrum innlánsformum eru háðir
ákvörðun Seðlabankans. Innlánsvextirnir eru dagvextir og
miðast við vaxtareikning einu sinni á ári eftir á. Þetta á þó ekki
við um vexti af tékkareikningum, en af þeim reiknast tilgreindir
vextir af lægstu innstæðu á hverjum tiu dögum með útborgun i
einu lagi eftir árið.
II. Útlánsvextir:
1) Vextir af víxlum:
a) vixlar, er eiga að greiðast upp innan 90daga 11% á ári
b) framlengingarvixlar og vixlar, sem samið er um
til lengri tima en 90 daga 113/4% á ári
Heimilt er að taka allt að 3/4% hærri vexti á ári en að framan
greinir, ef lengd umsamins lánstima eða öryggi tryggingar
gefur tilefni til, að dómi viðkomandi stofnunar.
Framanskráðir vextir eiga einnig við um sýningarvixla með
eftir á greiddum vöxtum, i samræmi við raunverulegan láns-
tima.
2) Illaupareikningsvextir:
Af skuldum á hlaupareikningum, reiknings- og við-
skiptalánum reiknist fast viðskiptagjald (þóknun)
af upphæð lánsheimildar. 3% á ári
Gjaldið skal tekið fyrirfram fyrir hvern almanaks-
mánuð meðan heimild er i gildi. Af skuldarheimild-
um til takmarkaðs tima, þ.e.a.s. allt að sex mánuð-
um, má þó taka allt gjaldið fyrirfram.
Auk viðskiptagjaldsins skal reikna dagvexti
mánaðarlega eftir á 9% á ári
3) Afuröalánavextir:
a) lán endurseljanleg Seðlabankanum með veði i
útflutningsafurðum 7% á ári
b) önnur endurseljanleg lán 9% á ári
c) lán með 2. veðrétti i útflutningsafurðum, er nemi
hæst 30% af endurseljanlegu láni, svo og lán veitt
með veði i væntanlegum afla (útgerðarlán) 9 1/2% á ári
Ofangreindir afurðalánavextir eru miðaðir við forvexti. Séu lán-
in i reikningsformi með eftiráteknum vöxtum er heimilt að taka
1/2% hærri vexti á ári.
Seðlabankinn endurkaupir vixla skv. a. og b. lið með 3/4% lægri
vöxtum á ári en viðskiptabankarnir taka.
4) Vextir af öörum lánum, þar meö talin afborgunarlán og
skuldabréfalán:
a) lán með fyrsta flokks fasteignaveðstryggingu að
mati lánsstofnunar eða sjálfskuldarábyrgð rikis-
sjóðs 11 1/2% á ári
b) öll önnur lán, þar með talin fasteignaveðslán,
handveðslán og lán tryggð með ábyrgð 12% á ári
Heimilt er í nýjum lánssamningum að taka allt að 1% hærri vexti
á ári en að framan greinir, þegar samið er við lántöku um lengri
lánstima en tvö ár og eftirátekna vexti.
5) Vanskilavextir (dráttarvextir):
a) af vixlum og tékkum 1 1/2% á mánuði eða fyrir brot úr
mánuði, en aðrir vextir falla niður frá gjalddaga.
b) af öðrum lánum 1 1/2% á mánuði eða fyrir brot úr mánuði af
gjaldfallinni upphæð (en samningsvextir falla niður frá gjald-
daga).
Gildir þessi regla um öll lán i vanskilum, þar með taldar skuldir,
er myndast á hlaupareikningi eða öðrum viðskiptareikningi
umfram skuldarheimild.
Með mánuði i sambandi við vanskilavexti er átt við hvert 30
daga timabil.
Ofanskráðir útlánsvextir eru hámarksvextir. Óheimilt er að
taka aðra þóknun eða vexti en um getur hér að ofan fyrir utan
þóknanir og gjöld, sem heimiluð eru i gjaldskrá við innlánsstofn-
anir, dags. 10. júli 1972, sem birt var i Lögbirtingablaði 19. juli
sama ár.
Framangreindar ákvarðanir um vexti af lánum og vanskilavexti
gilda einnig i lánsviðskiptum utan innlánsstofnana, sbr. lög nr.
58/1960.
Vaxtaákvörðun Seðlabankans um vexti við innlánsstofnanir frá
30. desember 1965 fellur jafnframt úr gildi.
Seðlabanki íslands.
Röskur
strákur
hefur áhuga á að komast i
sveit I sumar. Upplýsingar i
sima 7-13-62, eftir kl. 7 dag-
lega.
r&bida
1 bekkir %
til sölu. — Hagstætt verö.
Sendi I kröfu, ef óskaö er.
Upplýsingar aö öldugötu 33
^ simi 1-94-07. ^
Síöustu
ástir
Strindbergs
Strindberg var 59 ára, en
leikkonan Fanny Falkn-
er 18 ára, þegar þau
kynntust. Hann var enn
glæsilegur og hélt sig vel
í klæðaburði. Fanny seg-
ir, að hann hafi verið
einsaðlaðandi og nokkur
stúlka geti krafizt af
karlmanni. Það segir frá
ástum þeirra í nýjustu
Viku.
Ekki lengur
talinn
hégómi
„Þetta er ekki lengur
talinn hégómi," segir
Hanna Frímannsdóttir
tízkusýningarstúlka um
starf sitt. Hún er stjórn-
andi samtakanna Karon
og hefur lært starfið
bæði hér á landi og á
námskeiði hjá Lucy
Clayton í London. Það er
viðtal við hana í nýjustu
Viku.
Varö
ástfanginn
af Rúnu
„Ég varð ástfanginn af
Rúnu,"segir Birgir Sig-
urðsson, sem samdi
verðlaunaleikrit Leik-
félags Reykjavíkur,
„Pétur og Rúna." Leik-
ritið hlaut yf irleitt ágæta
dóma gagnrýnenda. í
viðtali við Vikuna segir
Birgir frá viðhorfi sínu
til lífsins og listarinnar.
Vikan
l