Tíminn - 03.06.1973, Blaðsíða 5
Sunnudagur 3. júni 1973.
TÍMINN
5
Mark Philips
verðurtengdasonu
ÞÁ er Anna Bretaprinsessa
gengin út, eins og tilkynnt hef-
ur verið. Sá hamingjusami
heitir Mark Philips og er liðs-
foringi i riddaraliði hennar
hátignar. Hann er 24 ára,
hávaxinn og myndarlegur,
ljóshærður og bláeygur.
Bretar hafa lengi reiknað
með, að hin hestaglaða
prinsessa myndi einhvern
daginn velja sér riddara, og
lengi var talið, að það yrði
Richard Meade, sem hún var
mikið með eitt sinn — en svo
sást hún allt i einu yfirgefa
hlaupabrautina leiðandi Mark
Philips, bezta vin Richards.
Siðan hefur enginn efazt um;
að hún kysi fremur félagsskap
Marks, bæði i útreiðarferðum
og annars staðar. Það var ekki
lengi að fréttast, að Anna bauð
Mark heim til Buckingham-
hallar á gamlárskvöld, eftir
að hún hafði skroppið heim til
hans um jólin. 1 sjónvarpinu
gátu lika allir séð myndir af
þeim hlið við hlið á refaveið-
um og vakti þaðgremju — ekki
vegna sambandsins, heldur
iðju þeirra, þvi dýraverndar-
samband Bretlands hefur haft
uppi mikinn áróður gegn refa-
veiðum, með hundum, sem
það segir að sé ómanneskju-
legt.
Um miðjan janúar fór Mark
til V-Þýzkalands, þar sem
hann á að vera i þjónustu i tvö
ár, i brezka hernum. Anna
fylgdi honum til skips og þrátt
fyrir sæg öryggisvarða, létu
þau sig hafa það að kyssast, og
þar með var áreiðanlegt, aö
þetta var:
Ástarævintýri
aldarinnar
Fljótlega kom i ljós, að
Mark Philips var væntanlegur
heim eftir nokkra mánuði, i
leyfi, og að Anna ætlaði á
meðan að skreppa til Afriku.
— Þá kemur i ljós, hvort
þau geta verið án hvors ann-
ars, sögðu Bretar strax —
þannig var það lika með Elisa-
Englands
betu og Philip, Margréti og
Armstrong Jones.
En listanum yfir mögulega
eiginmenn handa önnu var
fleygt. A honum höfðu m.a.
verið þeir Karl Gústaf, Svia-
prins, Richard Meade, David
nokkur Penn og ungur aðals-
maður að nafni Guy Neville,
sem annars var sagður vera
eftirlæti Elisabetar sem
mögulegur tengdasonur.
Ef mánuðirnir skyldu verða
önnu of langir, gat hún þó
alltaf skroppið yfir til Þýzka-
lands, i heimsókn til einhvers
þeirra ættingja, sem hún á
þar. En hún gerði það ekki, þvi
hún vill að allar reglur séu
virtar.
Hver er
Mark Philips?
Jú, hann er mikill hesta-
maður og liðsforingi i riddara-
liði drottningar, hefur blá
augu og roðnar reins og skóla-
strákur. Meira að segja áður
en hann kynntist önnu.
Foreldrar hans eru auðugir
og eiga heima úti i sveit, i höll
frá 16. öld. Mark hefur gengið
á beztu skóla Englands og
siðan i herskólann i Sand-
hurst, þar sem prinsar
margra þjóða hafa hlotið
hernaðarmenntun sina.
Faðir hans, Peter Philips,
var eitt sinn majór i
riddaraliðinu, svo að eplið féll
ekki langt frá eikinni.
En það var sameiginleg ást
þeirra önnu á hestum, sem
varð til þess að þau kynntust,
og siðar var það skriðdreka-
deildin, sem hefur aðsetur i
Yorkshire. Þangað vildi
drottningin eitt sinn fara til að
lita yfir liðið og Anna fór með.
A dansleiknum á eftir dönsuðu
þau Mark næstum óslitið sam-
an.
Fólk, sem þekkt hefur Mark
Philips siðan hann fæddist,
þann 22. september 1948, segir
að hann sé fyrst og fremst,
„góður strákur” en dálitið
feiminn. Hann hefur áiltáf lát-
ið litið á sér bera, nema i reið-
mótum, þar sigrar hann
iðulega. Enginn man eftir að
hafa séð hann halda i stúlku-
hönd — nema hönd prins-
essunnar. Þegar honum var
óskað til hamingju með
árangur á hlaupabrautinni,
þakkaði hann fyrir, roðnaði og
fór að tala um eitthvað annað.
• •
Forréttindi Onnu
Þegar allt þetta er tekið með
i reikninginn, er hægt að
imynda sér, að hægt sé að
njóta góðs af brúðkaupsregl-
um frá 1772. Þar segir, að ensk
prinsessa megi sjálf biðja sér
manns, ef hún spyrji móður
sina fyrst leyfis og siðan kon-
unginn, ef hann þá er til.
Þessar reglur setti Georg
konungur II, þar sem börn
hans áttu það til að gifta sig án
samþykkis foreldranna. En þó
lögin hafi ekki komið Georg að
haldi, naut Elisabet II góðs af
þeim, fyrir 26 árum, og
Victoria drottning hagnýtti
sér þetta lika, þegar hún 1839
bað þess frænda sins, sem hún
vildi helzt eiga. Og nú virðist
Anna hafa notað sér þetta
einnig.
Hann heitir Mark Philips
ennþá, en verið getur að hann
fái annað nafn i nóvember,
þegar brúðkaupið verður
haldið, með pompi og pragt.
Þegar tekið er tillit til titla,
er Mark ekki endilega bezta
mannsefni, sem Anna hefði
getað valiðsér, en þó er aðall i
fjölskyldu hans, þar sem
frændi hans er kvæntur lafði
Katherine, systur hertogans
af Norfolk, sem er finasti
maður rikisins, næst á eftir
konungsfjölskyldunni. — SB.