Tíminn - 03.06.1973, Qupperneq 10

Tíminn - 03.06.1973, Qupperneq 10
10 TÍMINN Sunnudagur 3. júnl 1973. GJALDSKRAR POSTS OG SÍAAA HÆKKA Póst- og simamálastjórnin hef- ur fengiö heimild til aö hækka gjaldskrána fyrir símaþjónustu frá 1. júni nk. og póstþjónustu frá 1. júll nk. Umrædd gjaldskrár- hækkun er viö það miðuð að stofn- unin nái að auka tekjur þessa árs um 14.5%, til þess að mæta' auk- um tilkostnaði I rekstri. Hinir ýmsu liðir hækka nokkuð mismunandi, sem orsakast m.a. af þvi að hækkun launa og verð- lags hefur breytileg áhrif á hina einstöku þjónustuþætti svo og hin öra þróun, sem er i starfsemi pósts og sima, þ.e. ný þjónusta lyður sér til rúms en önnur tekur miklum breytingum. Afnotagjald sima hækkar úr 1100 kr. á ársfjórðungi i 1280 kr. 1 afnotagjaldinu felast 525 teljara- skref á ársfjórðungi, nema þar sem notendafjöldi er yfir 20 þús- und á sama stöðvargjaldsvæði, þar verða 400 skref innifalin i af- notagjaldi á ársfjórðungi, eins og áður var. Gjald fyrir umfram- simtöl hækka úr krónum 2,10 i krónur 3,10 fyrir hvert teljara- skref. Gjöld fyrir simskeyti innanlands hækka úr krónum 3,30 i krónur 4,40 fyrir orðið, minnsta gjald er fyrir 10 orð. Samsvarandi hækkun verður á handvirkum simtölum. Stofngjald af sina, sem tengdur er við sjálfvirka kerfið hækkar úr krónum 8000 i krónur 8500. Þá er timabil næturtaxta, sem er helmingur af dagtaxta fyrir langlinusamtöl, sem valin eru sjálfvirkt, lengdur um 3 klukku- stundir á sólarhring. Nú gildir hann frá klukkan 20 i stað klukk- an 22 að kvöldi til kl. 8.00 næsta morgun i stað kl. 7.00 og gildir þetta frá mánudegi til föstudags, og frá kl. 15 á laugardögum til kl. 8.00 næsta mánudagsmorgun. Simskeyti til útlanda, sem bundin eru gengi gullfrankans, lækka um 6%. Póst- og simamálastjórn lætur þess getið að þróunin hafi verið sú sl. áratug, að simaþjónustan hafi stöðugt orðið ódýrari i hlutfalli við launaþróunina i landinu. FRAMSÓKNARFLOKKURINN MEÐ SUMARHAPPDRÆTTI Skagfirzka söng- sveitin a Blonduosi Gr. G., Blönduósi, 1. júni. — Skagfirzka söngsveitin, en það er blandaður kór Skagfirðinga i Reykjavik, söng i félagsheimili á Blönduósi miðvikudagskvöldið 30. mal, við mjög góðar undir- tektir og hrifningu áheyrenda. I söngsveitinni eru 50 manns. Stjórnandi er frú Snæbjörg Snæ- bjarnardóttir, en undirleikari Ólafur Vignir Albertsson. Ein- söngvarar með söngsveitinni eru þau Friðbjörn G. Jónsson, Guð- rún Tómasdóttir og Þórunn ólafsdóttir. A söngskránni voru aðallega lög eftir skagfirzk tónskáld, þá Eyþór Stefánsson, Jón Björnsson og Pétur Sigurðsson. Stjórnun og túlkun söngsveitarinnar var með ágætum, og bárust einsöngvur- um, stjórnanda og undirleikra blómvendir i lok söngskrárinnar. Söngsveitin þáöi veitingar i boði hreppsnefndar Blönduóss- hrepps. Héðan frá Blönduósi hélt skagfirzka söngsveitin norður til Skagafjarðar, og fylgdu henni góðar óskir þeirra Húnvetninga, er á hana hlýddu. A aöalfundi miðstjórnar Fram- sóknarflokksins 27.-29. april s.l. var m.a. samþykkt að efnt yröi til sumarhappdrættis til tekju- öflunar fyrir flokksstarfiö. Þeirri áskorun var jafnframt beint til flokksmanna að vinna ötullega aö útbreiöslu þess og eflingu. 1 happdrættinu eru 50 vinningar. 1 dreifibréfi framkvæmdastjórnar flokksins segir svo: „Eins og vinningaskráin ber glöggt vitni, er margt eigulegra muna I boði að þessu sinni. Þeir verða þvi margir, sem munu gleöjast yfir góðum vinningi, þegar dregið veröur. Otdráttur fer fram 23. júni n.k., það er að segja á Jónsmessunótt, og veröur ekki frestaö. Einnig viljum við benda á þá staðreynd, að stuðningur við happdrættið, sem er fjárhagslegur burðarás I Kynntu sér nýjungar í bygg- Hópurinn sem fór til Danmerkur, Noregs og Svlþjóðar á vegum SIS til að kynna sér nýjungar I byggingariðnaöi og byggingavörum. Myndin er tekin,er hópurinn var að leggja af stað. ingariðnaði á vegum SÍS Fyrir skömmu fór 25 manna hópur byggingavöruinnkaupa manna frá kaupfélögum og öðr- um á vegum Sanbandsins i heim- sókn til verksmiðja i Noregi, Sviþjóð og Danmörku. Var áætlað að hópurinn yrði i vikutima I ferðinni og kynnti sér ýmsar nýjungar sem snerta byggingariðnaðinn. Samband islenzkra samvinnu- félaga hefur löngum búið við þröngan húsakost og aðstöðu með slna byggingavöruverzlun, en Ur þvi rættist fyrir u.þ.b. tveimur árum, þegar Sambandið festi kaup á húseignum og lóðum, sem liggja að Suðurlandsbraut 32 og Armúla 29. Það er smátt og smátt verið að skapa aðstöðu til að veita viöskiptavinum þá full- komnustu þjónustu, sem völ er á i þessum vöruflokki, en það er i samræmi við þjónustuaukningu i öðrum deildum Innflutnings- deildar Sambandsins, sem mjög hefur aukið umsvif sin undir stjórn Hjalta Pálssonar, fram- kvæmdastjóra. Verzlunarstjóri Byggingar- vörudeildar Sambandsins hér i Reykjavík er Markús Stefáns- son, en deildarstjóri innkaupa- deildar er Haukur Jósefsson. Fararstjórar i ferðinni eru þeir Gisli Theódórsson, aðst. framkv. stjóri Innflutnings- deildar og Ómar Kristjánsson, deildarfulltrúi. Timinn mun væntanlega birta myndir og segja nánar frá þess- ari ferð eftir heimkomu ferðlang- anna. skipulagsstarfi flokksins, getur haft úrslitaáhrif á það hvernig tekst til að fylgja sameiginlegum stefnumálum fram til fulls sigurs. öflugt flokksstarf byggist fyrst og siöast á þróttmiklum og áhuga- sömum flokksmönnum, þess vegna treystum við á góðar undirtektir.” Vinningar i happdrættinu eru þessi: 1. Hjólhýsi, Sprite Alpine 2. Hraðbátur, Chrysler með 50 ha. vél 3. Vatnabátur, Rana 4. Sunnuferð til Mallorca 5. Kvikmyndavé- Heildarverðmæti vinninganna er þvi ein milljón krónur. Miðar eru seldir hjá trúnaðar- mönnum happdrættisins um allt land,á afgreiðsiu Timans, Aðal- stræti 7, Reykjavik og á skrifstofu happdrættisins Hringbraut 30, simi 24483. Á sömu stööum geta menn gert skil fyrir heimsenda miöa, auk þess sem senda má greiöslur á Giróreikning happdrættisins nr. 34444 i Samvinnubanka Islands. Tekið er á móti slikum greiðslúm i peningastofnunum og pósthús- um um land allt. Framsóknarfólk er eindregiö hvatt til þátttöku i miðakaupum til styrktar starfsemi flokksins og trúnaðarmenn sér i lagi til að vinna rösklega að sölu miðanna. Þetta er skyndihappdrætti, sem ekki veröur frestað. Sigluf jörður: Almennur borgarafundur mótmælir harðlega brezkri herskipaíhlutun JÞ, Siglufirði 25. mai — Verka- lýösfélagiö Vaka og bæjarstjórn Siglufjaröar boöuöu til aimenns borgarafundar I Alþýöuhúsinu I gær, fimmtudag. Frummælendur á fundinum voru óskar Garfbaldason, formaöur Vöku, og Stefán Friðbjarnarson, bæjar- stjóri. t fundarlok var samþykkt einróma eftirfarandi tiliaga: „Almennur borgarafundur haidinn i Alþýöuhúsinu, Siglu- firði, fimmtudaginn 24. mai 1973, mótmælir harölega, brezkri her- skipaihlutun, i islenzkri fiskveiöi- lögsögu. Fundurinn lýsir yfir ein- dregnum stuöningi sinum viö eftirtaldar mótaögeröir isienzkra stjórnvalda: 1. — Engar samn- ingaviöræður verði teknar upp viö Breta um landhelgismálið, nema brezk herskip og veiðiþjóf- ar viki úr islenzkri landhelgi. 2. — Að brezk herskipaihlutun i land- helginni verði kærð fyrir öryggis- ráði Sameinuöu þjóðanna og ráð- herrafundi Atlanzhafsbandalags- ins. 3. — Að rikisstjórnin loki sendiráði tslands i Lundúnum, meðan á brezkri herskipaihlutun stendur, og óski þess, að brezka rikisstjórnin kalli heim sendi- herra sinn I Reykjavik. 4. — Að rikisstjórnin athugi, hvort ekki sé rétt að kalla saman ráðstefnu allra þeirra þjóða, sem fært hafa lögsögu sina út fyrir 12 milur eða hafa þaö i undirbúningi.” í almennum fréttum er þaö aö segja, að hér hefur að undanförnu verið ágætis veður, — sólskin og bliða á daginn, en fremur kalt um nætur. Gróður fer þar af leiðandi mjög hægt af staö, og er litið fariö að grænka. Sauðburöi er löngu lokið hér i kaupstaðnum og var margt tvilembt eins og oftast endranær. Sumir fjáreigendur eru jafnvel þegar búnir að sleppa fé sinu, en flestir biða enn eftir þvi, að gróður nái sér á strik. Nú eru allflestir hættir grá- sleppuveiðum. Allir smærri bátar fara á handfæraveiðar, og eru fá- einir þegar byrjaðir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.