Tíminn - 03.06.1973, Blaðsíða 6
t.# t r f t r i'T'
VIRKIR HF
stórfyrlrtæki í
róðgefandi verkfræði
hanna Sigölduvirkjun. íslenzkir
verkfræðingar hanna hóspennulínu í Alsír
og hasla sér völl á alþjóðamarkaði.
Verður verkfræði- og lækniþjónusta útflutningsvara á
íslandi í vaxandi mæli?
Verkfræðistörfum er
skipt í tvo megin flokka
verktakaframkvæmdir og
ráðgefandi verkfræði.
Verkfræðingar, sem starfa
aö hinu fyrrnefnda eru
heilinn bak við umfangs-
mikil verktakafyrirtæki og
framleiðslustöðvar, en hin-
irvinna á faglegum grund-
velli að hönnun og frum-
gerð mannvirkja, áætlana
um þau og rannsóknastörf-
um. Þessu tvennu má ekki
blanda saman. Hinir síðar-
nefndu mega t.d. ekki eiga
viðskiptalega hagsmuni í
verktakafyrirtækjum. Þess
vegna er verkfræðingum
skipt í tvo flokka, rækilega
aðskilda.
Fá stórverk
hér á landi
Við hönnun stærri mannvirkja,
svo sem stórvirkjana þarf hundr-
uð ráðgefandi verkfræðinga til að
annast undirbúning, sem gjarnan
hefst með rannsóknum, jarð-
fræðilegum og verkfræðilegum á
byggingastað, siðan með skýrsl-
um og frumdrögum, og loks með
fullnaðarhönnun og verkfræði-
legu eftirliti með framkvæmdum
og úttekt mannvirkja og búnaðar,
þegar framkvæmdum er lokið.
Þessi verkfræðistörf eru svo yfir-
gripsmikil, að engin innlend
verkfræðistofa hefur haft bol-
magn til að leysa slik stórverk-
efni, og er það i sjálfu sér ekki
undarlegt, þvi stórverk eru hér
tiltölulega fá, þar eð þjóðin er fá-
menn. Nú hefur hins vegar tekizt
að skipuleggja slika verkfræði-
heild á tslandi og hefur hún fengið
ýmis: verkefni við sitt hæfi, eins
og til dæmis Sigölduvirkjun, sem
nú er unnið að fyrir Landsvirkjun
hf, en það er i Tungná. Ivið minni
en Búrfellsvirkjunin, en þó naum-
ast sem verkfræðilegt viðfangs-
efni, að þvi er menn telja. Þetta
fyrirtæki er Virkir hf., sem er
fyrsti raunverulegi tækniherinn,
sem kemur fram á sjónarsviðið á
íslandi.
Að visu vinnur Virkir hf, að Sig-
ölduvirkjun i samvinnu við er-
lenda aðila, en þar að baki liggja
ástæður, sem að verður komið
siðar.
Verkfræðingar
stofna Virki hf.
Timinn átti á dögunum viðtal
við Benedikt Gunnarsson, tækni-
fræðing, sem er framkvæmda-
stjóri Virkis hf. og sagðist honum
frá á þessa leið:
Hlutafélagið Virkir var stofnað
15. júli 1969, og voru stofnaðilar
eigendur 13 þekktra verkfræði-
fyrirtækja, en þau voru þessi:
Agnar Norland, verkfræðingur
Jón B. Hafsteinsson, skipa-
verkfr.
Verkfræðistofa Baldurs Lindal
Benedikt Gunnarsson, tækni-
fræðingur
Verkfr.stofa Guðmundar &
Kristjáns
Hönnun s/f
Jóhann Indriðason, verk-
fræðingur
Július Sólnes, verkfræðistofa
Hafagnat?ekni sef.
Sig. V. Hallsson& Sig. R. Guð-
mundsson, verkfræðingar
Verkfræðistofa Stefáns Ólafs-
sonar
Vermir h/f
Tilgangur félagsins var að ann-
ast tæknilega ráðgjafar- og rann-
sóknarþjónustu i þágu hvers kon-
ar mannvirkjagerðar, atvinnu-
framkvæmda og visinda, og að
hafa milligöngu um útvegun
slikrar þjónustu. t þvi sambandi
er félaginu ætlað, meðal annars:
1) að mynda samtök, öflug að
mannafla, þekkingu og reynslu
Texti Jónas Guðmundsson
Ljósmyndir: Tíminn Róbert og fl