Tíminn - 03.06.1973, Blaðsíða 15

Tíminn - 03.06.1973, Blaðsíða 15
Sunnudagur 3. júni 1973 TÍMINN 15 máli um hversu alvarlegt ástand- ið er. A siðasta ári var verðmæti útflutnings landsmanna um 40 milljón dollara, en á sama tima fluttu, þeir inn vörur fyrir 750 milljonir dollara. Mismunurinn var greiddur af bandarisku fé. E n segjum sem svo að kanarnir verði þreyttir og Nixon fái ekki þingið til að samþykkja fram- haldandi fjárveitingar til Viet- nam? Hér fellur skuggi Water- gatemálsins eins og annars stað- ar, og ráðamenn i Saigon hugsa til þess með hryllingi ef sú verður raunin. Þrátt fyrir allt þetta má þó þakka Bandarikjamönnum ýmis- legt, sem breytzt hefur til batn- aðar i Vietnam. Hver hefði trúað þvi að öll sú óreiða og allt það skipulagsleysi, sem var svo ein- kennandi fyrir opinbera stjórn- sýslu ,,i landinu, myndi hverfa á tiltölulega skömmum tima, eftir innreið Bandarikjamann- anna? A ð visu eru stjórnarskrif- stofurnar i Saigon ekki jafn vel skipulagðar og þar sem ástandið er bezt i heiminum, en samt sem áður hefur þó allt stjórnkerfið i landinu batnað stórkostlega. Stjórnin hefur nú tryggari sambönd við landsbyggðina en nokkru sinni áður. Ráðgjafar bandariska hersins hafa i krafti fjármuna sinna kennt lands- mönnum hvernig mynda eigi virkt stjórnkerfi. Með bandar- iskum vopnum hefur stjórnar- hernum tekizt að koma upp eftir- litskerfi, er gerir það að verkum að skæruliðar eru nú ekki lengur óhultir á jafn mörgum svæðum og áður. Þegar ég var hér siðast fyr- ir niu árum, var ekki hægt að ferðast óhultur neins staðar sunn- an Saigon, þvi alls staðar gat maður átt von á árás skærulið- anna. Nú er meginhluti svæðisins sunnan Saigon algjörlega á valdi stjórnarhersins, og þar geta blaðamenn ferðast um óhultir. Thieu forseti er sjálfsagt ekki elskaður af löndum sinum, en óhætt er þó að fullyrða að þeir bera mikla virðingu fyrir honum. Þegar yfirvöldin gátu fengið 50.000 manns til að koma út á göt- ur borgarinnar Can Tho i óshólm- um Mekong árinnar nýlega, til að fagna komu forsetans, sýndu þau að áhrifamáttur þeirra hefur aukizt stórlega miðað við áhrifa- vald stjórna, sem rikt hafa i S. Vietnam á undan núverandi stjórn. Skipulögð gleðilæti i þess- um dúr hefðu verið óhugsandi fyrir nokkrum árum. Á þeim tima voru áhrif skæruliða á héraðs- stjórnirnar svo gifurl., að enginn forseti hefði hætt lifi sinu með þvi að heimsækja þorp, sem heim- sóknin væri að miklu leyti skipu- lögð af héraðsstjórninni. Nú virð- ast margar héraðsstjórnirnar vera ákaflega hollar Saigon- stjórninni, en hvort sem þessi hollusta er afsprengi einhverrar lýðræðisástar, eða hvort héraðs- búar eru bara að reyna að verja vélhjólin sin, er ekki gott að segja. Stjórnarherinn hefur verið endurskipuiagður frá grunni. Sóðalegu og syfjulegu hermenn- irnir, sem ég man svo gjörla virð- ast nú horfnir. Áður virtust þeir illa vopnum búnir, og yfirmenn þeirra virtust algjörlega áhuga- lausir gagnvart öllu nema e.t.v. eigin bankainnistæðum i Sviss. Nú virðist nokkuð gott skipulag vera á hernum og sá óheiðar- leikablær, sem áður var yfir öli- um yfirmönnum er nú horfinn. Ég vil ekki halda þvi fram að það séu eingöngu englar, er fylla raðir yfirmanna Saigonhersins, en þetta eru þó alltént menn, sem taka starf sitt alvarlega og axla þá ábyrgð, sem þeim ber.'Yfir- mennirnir koma i reglulegar kynnisferðir til undirmanna sinna, nokkuð, sem mjög hefur skort a til þess a og hernaðar- sérfræðingar hafa tjáð mér, að nú sé farið að bera á skipulögðum hernaðaráætlunum hjá Saigon- hernum. É g sá með eigin augum kort, þar sem teiknuð var inn á staða óvinaherjanna, eða að minnsta kosti áætluð staða þeirra. Bandariski herinn skildi eftir hernaðartæki, sem metin eru á meira en einn milljarð banda- riskra dollara, þegar hersveitirn- ar héldu heim eftir vopnahléið. Þetta þýðir aö stjórnarherinn ræður yfir einhverjum bezta vopnabúnaði sem nokkur her i þróunarlöndunum.hefur. Það má i rauninni fullyrða, að ef það væru eingöngu vopn, er réðu framtið Vietnam, væri stjórn Thieus örugg i sæti sinu. Samt sem áður er hann það ekki. Styrkur skæruliða hefur að visu minnkað, en fjarri er að þeir hafi gefist upp. Sigurvilji þeirra er óbrotinn og ennþá er skattinn- heimta þeirra virk og þeir ráða a.m.k. þremur héruðum til jafns við stjórnina á daginn, og mun stærra svæði að nóttu til. A meðan yfirráðasvæði skæru- liða hafa minnkað, vegna betri skipulagningar stjórnarhersins, hefur hlutverk fastahers N.VIet- nam farið vaxandi i landinu. Talið er, að þrjár herdeildir skæruliða hafist nú við á ós- hólmasvæðunum, en tólf her- deildir hers N.Vietnam. Fasta- herinn hefur aðallega það hlut- verk aö halda opnum aðflutnings- leiðum til Cambodiu. Þrjár herdeildir stjórnarhers- ins halda nú svæðinu umhverfis Hue, og virðast yfirráð þeirra fljótt álitið nokkuð örugg. En þegar nánar er að gáð kemur i ljós að her Norður Vietnama hef- ur tekið sér bólfestu þar ei all fjarri, og er fjöldi þeirra áætlaður heimingi meiri en stjórnar- hermannanna. Ennfremur hafa norðanmennirnir nú nægar vistir og hergögn þvi auðvelt er um alla aðdrætti siðan vopnahléð tók gildi og loftárásumbandariskahersins lauk. Ef upp úr syði er afar hæpið að stjórnarhernum tækist að verjast, sérstaklega ef tekið er tillit til þess, að nú verður hann að verjast án hins mikilvæga stuð- nings bandariska flughersins. Það má þvi segja, að það sem einu sinni var minni háttar en árangursrik uppreisnartilraun, Framhald á bls. 39. Nú geta íslendingar veitt sér dvöl á sjálfri Flonda Auk þess að vera unaðslegur sólskinsstaður með suðræn- um gróðri, tærum sjó og heilnæmu loftslagi, er margt að sjá á Floridaskaga: Þar er hinn glæsti skemmtigarður Disney World, sem tekur fram öllum öðrum skemmtigörðum sem hafaver- ið byggðir, þar á meðal hinum fræga danska Tivoli. Cape Kennedy, þaðan sem tunglför- um og geimstöðvum er skotið á loft og stjórnað. Miami Seaquarium, lagardýrasafnið heimsfræga með hinum stóru mann- ætuhvölum og hákörlum, og einnig hinum afburðaskemmtilegu höfrung- um, sem leika listir sínar frammi fyrir áhorfendum, sjálfum sér til ánægju. Miami Beach. Engin strönd í víðri ver- öld hefur náð slíkri frægð sem Miami Beach, hin allt að því endalausa bað- strönd sem hefurorðið fyrirmynd um skipulag flestra þeirra sólbaðstranda, sem náð hafa mestu vinsældum. Leitið upplýsinga um sólskinsferðirnar til „sólarfylkisins" Florida. Ferðaþjónusta Loftleiða og umboðsmenn um land allt selja farseðla I Floridaferðina. LOFTLEIOIfí

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.