Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 11

Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 11
Sunnudagur 12. ágúst 1973. TÍMINN n muna, að hér er um ránfugla að ræða, ætlunin er að þeir veiði lif- andi bráö, að drepa er þáttur i lifi þeirra og eðli. Þeir kunna ekki að afla sér fæðu á annan hátt, og ef þeir eru sviptir veiðigleðinni, er ekkert eftir af þessum stoltu fugl- um, þeir eru eyðilagðir... Við mennirnir þurfum ekki að drepa sjálfir til að afla okkur fæðu, en við borðum samt kjöt. Munurinn er sá, að við fáum aðra til að drepa fyrir okkur. En eru venjur okkar þar fyrir nokkru betri eða á siöferðilega hærra stigi en rán- fuglanna? spyr Schmidt... Þaö er raunar ekki ódýrt að ala 75 rán fugla. Schmidt þarf að greiða um 1600 kr. fyrir hvern máv, sem hann notar i sýningum sinum, svo jafnvel ernirnir fá ekki máv i hversdagsmatinn. Samtals ver Schmidt um 1.600.000 kr. á ári til fuglanna sinna, og mikill hluti af þessu fé fer í mat. Þar á meðal 120.000 nýklakta kjúklinga, 6000 fullvaxna kjúklinga, 2000 krákur, sem hann veiðir sjálfur i snörur, 500 ketti, sem Schmidt fær hjá fólki, sem annars hefði látið lóga dýrunum á annan hátt, um 75 kálfa (en þeim er slátrað fyrirfram!) og loks heilmikið af slösuðum og særðum rádýrum úr skógum Bæjara- lands. Þetta virðist kannski vera ógrynni matar, en við verðum að minnast þess, að hver örn inn- byrðir auðveldlega yfir 10 kiló af kjúklingum á dag.... Herbert Schmidt hugsar vel um fuglana sina. Allt er hreint og snyrtilegt á bænum hans, fugl- arnir fá ferskt vatn og reglu- bundnar máltiðir. Til þessa hafa sjúkdómar nær aldrei herjað á ránfuglana. — Þeim liður alltof vel til að þeir veikist, segir Schmidt. Hann visar til heimildar um að ránfuglar, sem búa i slikri einangrun, nái um tvöfalt hærri aldri en ættingjar þeirra úti i náttúrunni. Oll fjölskyldan tekur af áhuga þátt i að hugsa um fuglana. Frú Schmidt annast miðasölu á viku- legum sýningum, og börnin Fálki Þórólfur (fimm ára), Heike Kristin (sjö) og Siw Kersten (átta) hjálpa pabba sinum að fóðra fuglana og taka til hjá þeim. Schmidt segist hafa valið norræn nöfn á börn sin meö vilja — þvi Norðurlandabúar hafi frá fornu haft tilfinningu og samband viö þessa stóru fugla, sem honum eru svo nákomnir. Schmidtfjölskyldan lifir sam- stilltu lifi i stóru veiðihúsi, og ferðir Herberts meö erlendum veiðiflokkum tryggja fjárhaginn langt fram i timann. Liti menn gagnrýnisaugum á fuglahald hans og sýningarnar, fara þeir villir vegar. Hertbert Schmidt neyðist ekki til að skrapa saman peninga með þvi að láta rán- fuglana sýna listir sinar. En hon- um finnst skemmtilegra að láta aðra taka þátt i hinni fornu list fálkatemjarans, honum finnst það vera þáttur i þvi að viðhalda sambandinu við náttúruna. (Þýtt og endursagt SJ) Fuglatemjarinn Herbert Schmidt með örn á hand- leggnum. Hvorki hundurinn hans né börnin óttast þennan stóra ránfugl. Venjulega forðast ernir fólk, segir Schmidt. Starf verzlunarstjóra Kaupfélag Vopnfirðinga vantar verzlun- arstjóra i aðalverzlun sina, sem er nýleg kjörbúð. Góð starfsreynsla eða verzlunarmenntun nauðsynleg. Höfum 3ja herbergja ibúð. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf, sendist til kaupfélagsstjór- ans Halldórs Halldórssonar Vopnafirði. liR OG SKARTGRIPIR KORNELlUS JONSSON SKÖlAVÖRfSJSTlG 8 BANKASTRÆTI6 18586-18600 Ármstrong KORKO GOLF LOFTPLÖTUR Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Suðurlandsbraut 6 HERRADEILD SÍMI 21-400 TERYLENE nrföt í NÝRRI FATA- DEILD Gefjunnrfnt í glæsilegu litnunli

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.