Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 24
24
TÍMINN
Hans Fallada:
Hvaðnú,unqi maður?
©
Þýðing Magnúsar Asgeirssonar
og linstrok.......... 3 m 00 pf.
Hreinlætisv.......... 5 m 00 pf.
Sigarettur.......... 3 m 00 pf
Skemmtanir........... 3 m 00 pf.
Nýirbúshl............ 8 m 00 pf.
Blóm ............... 1 m 15 pf
Ófyrirsjáanleg
úgjöld............... 3 m 00 pf.
134 m 00 pf.
134,00
+ 62,00= 196 m 00 pf.
Afgangur 4 m 90 pf.
Við undirrituð skuldbindum
okkur hér með bæði til þess að
eyöa aldrei peningum af neinni á-
stæðu eða undir neinu yfirskini til
annars en hér er til tekið og jafn-
framt til þess að fara aldrei fram
úr áætlun.
Berlin 30. nóvember
Pússer litur einu sinni enn yfir
það, sem hún hefir gert. Ilún sér,
að það er harla gott, en þó er
ánægjan ekki óblandin. Hún er
ekki alveg viss um, hvernig
Hannes litur á málið. En þó setur
hún sitt nafn undir með langri og
skrautlegri sveiflu i enda nafns-
ins.Siðan brýtur hún skjalið sam-
an með nákvæmni og varúð og
leggur það i efstu skúffuna i skrif-
borðsskápnum. Úr miðskúffunni
tekur hún bláan jurtabuðk og
hristir það, sem i honum er, á
borðið. Það eru nokkrir seðlar dá-
litið af silfri og fáeinir kopar-
skildingar. Hún telur allt saman.
Nákvæmlega hundrað mörk! Svo
andvarpar hún I tuttugasta eða
þritugasta sinn, leggur peningana
I efstu skúffuna og setur buðkinn
galtóman á sinn fyrri stað, i mið-'
skúffuna.
Þegar hún er búin að slökkva
liósið, sezt hún niður til að hvila
sig I tágastól við gluggann Og nú
á Pússer hvildina skilið. Hún situr
þarna, hendurnar á maganum og
bil á milli hnjánna. Gegn um
skænið á ofnhurðinni bregður
rauðum bjarma frá eldinum um
loftið i herberginu. Eldskinið
dansar yfir bjálkana, felur sig,
gægist fram og hverfur aftur og
er alveg eins og lifandi vera, sem
vill sýna, hve vel henni liður
þarna þrátt fyrir allt. Ekkert er
eins gott eins og að sitja i rökkr-
inu. Hún á heimili. Hún biður eftir
manninum sinum. Hún finnur
barnið sitt hreyfast með krafti og
fjöri, en þó bliðu og innileik. Hún
er stór og gróandi og það er eins
og hún geti rúmað allt og umlukt
það.----Stundum hugsar hún til
hafsins. Það er lika áþekk lyfting
I þvi. — Hún hefir séð það svo oft.
Pússer sefur. Hún sefur með
hálfopinn munninn og hallar sér á
vangann. Það er léttur og góður,
glaður svefn, sem lyftir henni og
vaggar henni. 1 sama bili og
Hannes kveikir, vaknar hún.
,,Hvað er þetta? Þú sefur hérna
ein i myrkrinu. Hefir Dengsi gert
vart við sig i dag?”
Pússer er stigin á fætur og er á
leiðinni til hans.
„Dálitið, en ekki mjög mikið.
Ég átti annars eftir að bjóða þér
gott kvöid, elskan”.
,,Já, vel á minnst: Gott kvöld
elskan”. Pinnebergshjónin kyss-
ast. siðan breiðir hún dúk á borðið
og ber fram matinn. Hún fer sér
þó hægt að öllu þvi að hún hlakkar
ekkert til að sýna Pinneberg
hvaða réttir eru á boðstólum.
„Það er fiskur i dag”, segir hún,
„soðinn fiskur með mustarðs-
sósu. Þorskurinn var svo ódýr i
dag”. Og Hannes brosir til hennar
viðurkenningarbrosi og lýsir yfir
þvi, aö i eitt skipti eða svo hafi
hann ekkert á móti þvi að borða
fisk, og siðan setjast þau að borð-
um.
„Ég finn að þú ert i góðu
skapi”, segir Pússer. „Hefir eitt-
hvað hlaupið á snærið hjá þér i
dag? Finnið þið nokkuð til þess,
að jólaverzlunin sé farin að
byrja?
„Já, hún er að byrja, en annars
vill fólk helzt biða þangað til sið-
ustu dagana fyrir jólin”.
„Hefir þú selt vel?” — og þegar
hún heyrir að hann hafi selt fyrir
hvorki meira né minna en fimm
hundruð mörk, ljómar Pússer öll
af aðdáun, og segir að hann hljóti
að vera bezti seljandinn i verzlun-
inni. En Pinneberg hristir höfuðið
og segir með hógværð og auð-
mýkt:
„Nei, Heilbutt ber af öllum og
Wendt er að minnsta kosti eins
góður seljari og ég. En nú er
nokkuð nýtt á seyði. Nú á að fá
einhvern náunga til að skipu-
leggja allt i búðinni. Aiit a að
endurskipuleggjast, segja þeir.
Það á að draga úr öllum útgjöld-
um”. Hannes getur ekki leynt þvi,
að hann litur með ugg og ótta til
þess sem i vændum er.
„Það er þó ekki hægt að spara á
þvi, að draga úr laununum ykkar,
svo mikið veit ég”.
„Hver veit nú það?? Lasch hef-
ir sjálfur heyrt að þessi skipu-
leggingarmaður eigi að fá þrjú
hundruð mörk á mánuði. Það
kallar Mandel að spara! En hann
sér svei mér um að ná þeim pen-
ingum inn aftur og meiru til. Þeg-
ar svona þefarar fara að hafa nef-
ið ofan I öllu, þá er ekki gott að
vita, hverju þeir taka upp á. Þeir
eru lika farnir að stinga nefjum
saman um það i búðinni, að nú
eigi að taka upp sams konar reglu
og sums staðar i stórverzlunum.
Það er ákveðið fyrir hvaða upp-
hæð maður verði að seija mán-
aðariega, og nái maður ekki
þeirri upphæð, þá er honum sagt
upp stöðunni samstundis”.
Pússer gripur andann á lofti,
svo tryllt og æst verður hún.
„Þetta er þó eitthvað það svi-
virðilegasta, sem ég hefi nokkurn
tima heyrt! Og svo skyldi enginn
viðskiptamaður koma, eða þá að
þá vantar peninga eða vilja ekki
vörurnar. Þetta átti hreint og
beint að banna með lögum!”
„Þetta er nú samt sem áöur
leyft, og forstjórarnir eru harð-
ánægðir með þessa aðferð, þvi
með henni geta þeir bolað fólki úr
atvinnunni og haft fyllsta hagnað
af hverjum, sem fær að hanga.
Þetta kalla þeir hagnýtar rekstr-
araðferðir. En annars er þetta
bölvað ólán.----Hugsaðu þér nú
til dæmis Lasch, hann er allt af
með lifið i lúkunum af hræðslu við
yfirmennina, en annars er hann I
raun og veru einhver bezti seljar-
inn. Hann sagði við mig i dag, að
það væri úti um mig, ef þeir tækju
upp þetta nýja kerfiJfræðslan við
það að ná ekki hinu ákveðna
marki myndi alveg eyðileggja
seljarahæfileikana”.
Rödd hennar titrar af geðs-
hræringu, þegar hún segir: „Og
jafnvel þótt hann væri ekki eins
duglegur og þið hinir, þá hafa þeir
samt ekkert leyfi til að útiloka
manninn frá allri vinnu og öllu
kaupi og öllu lifinu i raun og veru.
Þá væri hægt með alveg sama
rétti að stytta öllu þvi fólki aldur,
sem ekki uppfyliir allra hæstu
kröfur. Alveg eins og það fólk eigi
ekki rétt á þvi að vera til. Ef það á
að reikna út manngildið eftir þvi
Kaupmaðurinn
mælir með Jurta!
smjöHiki
I
1472
I) Froskmenn.- 6) Húðfletta.-
7) Röð.- 9) Röð.- 10) Olnbogi.-
II) Greinir,- 12) 51.- 13)
Kvæðir.- 15) Góður drykkur.-
Lárétt
Lóðrétt
1) Kona.- 2) Eins. - 3)
Útdauður. - 4) Tré,- 5)
Gorgeirinn.- 8) Bandvefur,- 9)
Fótavist,- 13) Brjáluð.- 14)
Samhljóðar.
Ráðning á gátu No. 1471.
Lárétt
1) Jólamat.- 6) Ami.- 7) Tá,-
9) Ær,- 10) Lafmóða,- 11) Ar.-
12) ID,- 13) Ani,- 15) Daunill,-
Lóðrétt
1) Jótland,- 2) La.- 3)
Amtmann.- 4) MI,- 5) Tára-
dal.- 8) Aar.- 9) Æði,- 13) AU.-
14) II,-
i x. ■1 r
Ö m, f'i tei-.l
ff 3 L " 4 9
te
Ti M i’i.
m BSi Hj
ur □
:i
Þorp Mirabus er ^
beint fyrir neðan Við
verðum að vona að
lögreglan hafi ekki
jkomið á undan okkur.
Hvort sem er verð ^
mrðuað hitta Mirabu
k Kenoma.
::
8
S
am
mm
::
::
::
8
8
Sunnudagur 12. ágúst 1973.
liif fffiSS
■
SUNNUDAGUR
12. ágúst
8.00 Morgunandakt Séra Sig-
urður Pálsson vigslubiskup
flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög Tékk-
neskir listamenn syngja og
leika lög frá Mæri.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a, Tónverk
eftir Louis Marchand.
Henriette Puig-Roget leikur
á orgel. (Hljóðritun frá
franska útvarpinu). b.
Konsert fyrir fiðlu og
kammersveit eftir Eugéne
Ysaye. Maurice Raskin og
Kammersveit belgiska út-
varpsins leika: Fernand
Terby stjórnar. c. Kvartett i
F-dúr eftir Rossini og Þrjú
smálög eftir Jacques Ibert.
Dorian blásarakvintettinn
leikur. d. Konsertfantasia i
G-dúr eftir Pjotr Tsjaikov-
ský. Peter Katin og Fil-
harmóniusveitin i London
ieika: Sir. Adrian Boult stj.
11.00 Messa i Langholts-
kirkju.Prestur: Séra Árelí-
us Nieisson. Organleikari:
Jón Stefánsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Mér datt það I hug. Jón
Hjartarson rabbar við
hlustendur.
13.35 islenzkt einsöngslög.
Svala Nielsen syngur. Guð-
rún Kristinsdóttir leikur á
pianó.
14.00 Um Pentagon-skjölin og
fleira. Páll Heiðar Jónsson
ræðir við Lennard Wein-
glass, bandariskan lögfræð-
ing, sem var verjandi eins
hinna ákærðu i’ Pentagon-
málinu. — Athugasemdir
gera: Björn Bjarnason
lögfr., Gunnar Eyþórsson
fréttam. og Tómas Karlsson
ritstj.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tóniistarhátíð i Schwetzing-
en í mai s.l. (Hljóðritun frá
útvarpinu i Stuttgart). a.
Sinfónia i A-dúr nr. 87 eftir
Haydn. Hljómsveitin
Collegium Aureum leikur.
b. „Kreisleriana” op. 16 eft-
ir Schumann. Georges
Pludermacher leikur á
pianó.
16.10 Þjóðlagaþáttur. Kristin
ólafsdóttir sér um þáttinn.
16.55 Veðurfregnir. Fréttir.
17.00 Barnatimi: Eirikur
Stefánsson stjórnar. a.
Hvað sagði vestanvindur-
inn? Frásagnir, sögur og
söngvar. Flytjendur með
Eiriki: Þórný Þórarinsdótt-
ir og þrjú börn. b. útvarps-
saga barnanna: „Þrir
drengir i vegavinnu”. Höf-
undurinn, Loftur Guð-
mundsson, les (10).
18.00 Stundarkorn með Zoitán
Kodály-kvennakórnum,
sem syngur lög eftir Béla
Bartók: Ilona Andor stjórn-
ar.
18.30 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Frá Norðuriandameist-
aramótinu i sundi. Jón Ás-
geirsson lýsir frá Osló.
19.45 Kort frá Spáni. Send-
andi: Jónas Jónasson.
20.05 Sönglög eftir Hugo Wolf.
Evelyn Lear syngur. Erik
Werba leikur á pianó.
20.30 Betri borg: Fótgangend-
ur, hvað er nú það? Um-
i sjónarmenn: Sigurður
! Harðarson, Friðrik Guðni
í Þorleifsson, Ingibjörg Möll-
er og'Þröstur Haraldsson.
Auk þeirra koma fram Pét-
ur Sveinbjarnarson fram-
kvæmdastjóri og Eirikur
Ásgeirsson forstjóri.
21.15 Strengjakvintett i Es-
dúr eftir Dvorák. Josef
Kodousek vióluleikari og
Dvorák-kvartettinn leika.
21.45 Bleik rós og hnifur”.Vil-