Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 26

Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 26
 TÍMINN Sunnudacrur 12. áeúst.1973___ Leik’ menn 1. deildar kynntir ÞORBERGUR KOMINN I SVIÐSLJÓSIÐ Á NÝJAN LEIK Hann kemur alltaf aftur... Það er engum vafa undirorpið, að helzta skýring þess, hve illa Fram hefur gengið i 1. deildar keppninni i ár, að aðalmarkvörður liðs- ins, Þorbergur Atlason hefur verið frá keppni mest allt sumarið sök- um meiðsla. ólánið hef- ur elt hann á siðustu ár- um. Högg á nýrun, rif- beinsbrot og brjósklos i báðum hnjám hefur orð- ið þess valdandi, að hann hefur dvalist i sjúkrahúsum og verið frá keppni svo mánuð- um skiptir. En alltaf kemur hann aftur, markvörðurinn, sem átt hefur svo mikinn þátt i velgengni Fram á undanförnum árum, og varið landsliðsmarkið betur en flestir aðrir. Yfirstandandi sumar hefur ver- i6 dökkt fyrir Fram, sem á siö- asta ári fagnaði sigri i tslands- mótinu, en er nú i næstneðsta sæti Klaufa- mörkunum fækkaði fljótlega eftir að hann gerðist aðalmark- vörður 1. deildar. borbergur meiddist i byrjun mótsins, siðan hefur Fram hlotiöaðeins 1 stig, en það lifnaði heldurbetur yfir liðinu s.l. þriðju- dag, þegar það lék minningar- leikinn um Rúnar Vilhjálmsson við Keflvikinga. öllum á óvart birtist Þorbergur i markmanns- peysunni, þessi sami leikmaður og haföi verið afskrifaður sem knattspyrnumaður til lifstiðar. Væntanlegum tslandsmeisturum Keflvikinga gekk ekki of vel i leiknum, og blaðamenn voru i engum vafa um, hver skyringin væri. M.a. sagði Steinar J. Lúð- viksons i Mbl.: „Skýringin á betri frammistöðu Fram i þessum leik er án alls vafa sú, að nú lék Þorbergur Atlason i marki eftir nokkuð langt hlc. Þorbergur hefur átt við þrá- lát meiðsli að striða, og var raun- ar langt frá þvi að vera heill heilsu, þótt hann Iéki með i fyrra- kvöld." Og siöar sagði: „Það er ekki nóg með það, aö Þorbergur sé i hópi okkar beztu markvarða. Hann er enn meira virði fyrir Fram-liðið, þar sem hann stjórnar vörn þess af ákveðni og drifur félaga sina áfram. Köll Þorbergs i leiknum i fyrrakvöld virtust gefa varnarmönnum Fram það öryggi, sem þá hefur skort til þessa, og árangurinn varð svo til muna árangursrikara spil liðsins, allt frá öftustu vörn til framlinu". Tvisvar á skurðarborð- inu á þessu ári Afturkoma Þorbergs er enn þá athyglis.verðari fyrir þá sök, að hanii er tvisvar á þessu ári búinn að gangast undir aðgerð vegna brjóskloss. I fyrra skiptið var um að ræða brjósklos i vinstra hné, en hann kenndi þessa meins á landsliðsæfingu i Belgiu i mai i fyrra. En þrátt fyrir það, lék hann I allt fyrrasumar með Fram, eins og ekkert hefði i skorizt, og gekkst ekki undir uppskurð fyrr en i byrjun þessa árs. Hann byrj- aði svo að æfa og keppa i april og varð Reykjavikurmeistari með Fram. En svo dundi ógæfan aftur yfir i júni, skömmu eftir að ts- landsmótiö hófst, þvi að nú varð vart við brjósklos i hinu hnénu. Og það var ekki um annað að ræða en að gangast aftur undir uppskurð. Þorbergur þakkar lækni sinum, Jóhanni Guðmundssyni, beina- sérfræðingi við Landspitalann, hve bati hans hefur orðið skjótur. En það er auðvitað ekki að læknisráöi, að Þorbergur er byrj- aður að leika nú. Hann átti að taka sér algera hvild frá knatt- spyrnu á þessu ári. „En hvað skal gera”, segir Þorbergur, „piltur- inn, sem tók stöðu mina i liðinu handleggsbrotnaði, og ekki getur liöið verið markmannslaust.” Óheppnin elti islenzka landsliðið Þorbergur, sem er 25 ára gamall og bróðir Jóhannesar Atlasonar, þjálfara Akureyrar- liðsins, hefur 13 landsleiki að baki, þ.á.m. sigurleikinn við Noreg á Laugardalsvellinum 2:0 og jafnteflisleik við Dani sama ár. En þó að þessir leikir séu hon- um eftirminnilegir þá telur hann að landsleikur Islands við Frakka I Paris árið eftir, sé eftirminni- legasti landsleikur sinn, ekki vegna þess, að sá leikur tapaðist 0:1, heldur vegna þess, hvernig samfelld röð óhappaatvika varð þess valdandi, aö Island missti af sigri i þessum leik, sem það átti sannarlega skilið að vinna. Og heföi þessi leikur unnizt, hefði Is- land komizt áfram i Olympiu- keppninni, en leikirnir við Frakka voru einmitt liöur i þeirri keppni, og hafði fyrri landsleiknum, sem háður var á Laugardalsvelli, lyktað með jafntefli, 0:0. 1 leiknum i Paris gerðist það, að eina markið, sem Frakkar skor- uðu, var ólöglegt. Jóhannes, bróðir Þorbergs, hugðist senda knöttinn til Þorbergs, en einn af frönsku leikmönnunum geröi sér litið fyrir og hrinti Jóhannesi, náði knettinum og skoraði. Dóm- Þarna skall hurð nærri hælum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.