Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 31

Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 31
Sunnudagur 12. ágúst 1973. TÍMINN 31 Kýrnar fá aldrei að koma út und ir bert loft ÞAR ER komið þróuninni i dönskum landbúnaði, að margar danskar kýr fá aldrei að koma út undir bert loft, heldur eru þær látnar dúsa á básum sinum alla ævi og þess eru dæmi, að kýrnar séu hlekkjaðar á sama básnum svo árum skiptir. Danskir bændur þykjast nefni- lega hafa komizt að raun um, að kýrnar mjólki betur sé þessi háttur á hafður, en hins vegar virðist sem ekki sé tekið tillit til þess hvernig þessum vesalings skepnum hlýtur að liða. Danskir dýraverndunarmenn hafa ritað dómsmálaráðherra bréf, þar sem þess er farið á leit að breytt verði löggjöf i þessu efni, svo að hægt sé að koma i veg fyrir þetta, þvi að þarna sé verið að niðast á varnarlausum skepnum. Hætt er þó við, að þungur róður biði þeirra dýra- verndunarmanna, eins og oft er, þegar fjármunir eru annars vegar, þvi að einsætt virðist að mestur gróði sé að þvi að hleypa kúnum aldrei út. Dýralæknafélagið danska er á sömu skoðun og dýraverndunar- menn, en ýmsir dýralæknar eru þó annars sinnis og telja að ekkert ami að þeim kúm, sem aldrei koma út fyrir fjósdyrnar. Þessir læknar segja, að kýrnar séu hvort sem er innan húss ungann úr árinu og þær geri ekki annað en að eyða orku, þegar þær eru á rölti utan húss. Sé þeim hins vegar haldið innan dyra allt árið sparist orka og komi fram i meiri mjólk. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að dýrin fá ekki nógsamlega hreyfingu, svo að þeim hættir til að fá legusár og annan óhroða af svipuðu tagi vegna hreyfingar- leysis, en það er verðið, sem við þurfum að borga fyrir aukna mjólkurframleiðslu, segja þeir dýralæknar, sem þessu eru fylgj- andi. Dýraverndunarmenn hafa þá svarað þvi til, að nær væri að segja, að það væri kýrnar sem borguðu brúsann. Einn þeirra bænda, sem tekið hefur upp þessa búskaparaðferð, segir að hann hafi áður haft 30 kýr en hafi nú 80 i fjósi og hirði þær einn að öllu leyti. Hann segir, að þær mjólki þó ekki betur en fyrr, en hins vegar þurfi hann ekki að kosta jafn miklu til læknishjálpar og áður, þvi að dýralæknis- reikningarnir séu nú orðið aðeins Þannig er að þeim kúm búið, sem aldrei fó að koma út undir bert loft. Án efa er hér snyrtilegt um að litast, en ætli þetta sé ekki fremur nöturlegt líf engu að síður? þriðjungur af þvi, sem þeir voru áður, enda sé allt hreinlæti mun meira i hinum nýtizku fjósum. Allt um það virðist sem lif þeirra nautgripa, sem aldrei fá að sjá grænt gras á velli, hljóti að vera fremur nöturlegt — eða hvað segja islenzkir bændur um þetta? (HHJ þýddi) Gólftex Athugið hvað hægt er að ná langt með efnum frá Bayer. Létt að leggja varir lengi. Eruð þér að hugsa um efni á gólfið? Lausnin er Gólftex,byggt á Desmodur/Desmophen. Stöðugt eru gerðar meiri og meiri kröfur tii endingar gólfefna i verksmiðjur og vöru- afgreiðslur, sömuleiðis heima i þvotttahús- inu, ganginum eða bilskúrnum. Það er ekki einungis áníðsla- farartækja, sem gólfin þurfa að þola, heldur alls-konar kemisk efni, sem eyðileggja gólfin á örs- kömmum tíma ef ekkert er að gert. Venju- teg óvarin steingólf þola litla áníðslu og venjuleg málning er skammgóður vermir. Oft verða framleiðslutafir og óþægindi i sambandi við viðhald á gólfum. Það er þess vegna peningana virði að gan- ga vel frá gólfunum í upphafi. Efnaverksmiðjan Sjöfn, á Akureyri, hefir nú tekið þetta vandamál fyrir, og hefir eftir ótal tilraunir komið fram með efni sem uppfyllir þær kröfur sem gera verður til slíkra gólfa í dag. Þetta efni nefnist GÖLFTEX, og er að mestu byggt á Polyurethan- efninu DESMODUR/DESMOPHEN, sem er frábært að slitþoli og þolir flest upplaus- narmeðul, lút og sýrur. Ur efunum DESMODUR og DESMOPHEN, frá BAVER, hefir Efnaverksmiðjan Sjöfn nú í tæp 3 ár frsmleitt gólflagningarefnið GÓLFTEX, sem hefir verið notað i verks- miðjum noeð mjög góðum árangri, en auk þess i heimahúsum og viðar þar sem GÓLFTEX skreytt með plastflögum í ótal litum prýðir gólf í baðherbergjum, þvotta- húsum, göngum, bilskúrum, já jafnval á skurðslofum sjúkrahúsanna. Ef þið þurfið slitsterkt efni á gólf í verk- smiðju, vörulager eða heima hjá yður, þá hafið samband við okkur. Athugið að GÓLFTEX-lagningtma er hægt að framkvæma yfir eina helgi. GÓLFTEX þolir: Þrýsting 1000kp/cm5 - Beygju 350 kp/cm5 Fjöðrunarstöðull 85000 kp/cm5 Efnaverksmiðjan Sjöfn, Akureyri, sími (96)21400, Vörulager i Reykjavik, Hringbraul 119, sími (91)17045. poly unefhan

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.