Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 33

Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 33
Sunnudagur 12, ágúst 1973. TÍMINN 33 Hér er kvíahellan fræga á Húsafelli. Þar var stanzað drjúga stund. 0 Með sjötugum unglingum d ferðalagi um Borgarfjörð sýndi gestunum staðinn, einkum þó nýbygginguna. Þar eru iveru- herbergi nemenda framúrskar- andi vistleg, enda kunnu það margir vel að meta. Gat skóla- stjóri sérstaklega um einn skóla- pilt, sem siðast liðinn vetur hefði sýnt slika snyrtimennsku i um- gengni, að einstakt mætti kallast. Nú var snæddur hádegisverður að Hvanneyri. Þegar menn voru seztir undir borð, stóð skólastjór- inn upp og bauð gesti velkomna með nokkrum orðum, en bað menn siðan gera svo vel. Eftir hádegið hófst sú athöfn, sem verið hafði einn aðaltilgang- ur þessarar ferðar. Hinir fimmtiu ára nemendur færðu skólanum sinum að gjöf skólafána á stöng, hvort tveggja áletrað, fáninn og stöngin. Er það hinn bezti gripur. Við þetta tækifæri voru margar ræður fluttar, svo og ljóð. Athöfn- in fór fram i einni af kennslustof- um gamla skólans. Nú var degi tekið að halla. Þeg- ar drukkið hafði verið siðdegis- kaffi á Hvanneyri var farið að bú- ast til heimferðar. Þeir, sem þannig voru i sveit settir, að þeir komust fljótar og auðveldlegar heim til sin með þvi að verða eftir i Borgarfirði, en fara ekki til Reykjavikur, kvöddu sina gömlu skólafélaga i hlaðinu á Hvann- eyri. Hinir stigu enn á ný upp i bilinn, sem daginn áður hafði flutt okkur fram og aftur um eitt fegursta hérað á Islandi, en nú lá leiðin þaðan — burt frá slóðum Guðmundar Böðvarssonar og allra hinna stórskáldanna, sem Borgarfjarðarhérað hefur alið. — Nú stóð það til að yfirgefa grænk- andi sveitir og hverfa aftur á vit malbiks og þéttbýlis. Heiðursgestur i þessari ferð var Sören Bögeskov, danskur maður, sem verið hafði fjósmeistari á Hvanneyri, þegar þeir skóla- félagar, sem hér voru saman komnir, voru þar við nám, og hef- ur átt heima á Islandi æ siðan. Reyndar sagði han, að embætti sitt hefði ekki heitið þessu virðu- lega nafni i þann tið. Hann sagðist aðeins hafa verið kallaður fjósa- maður, en fina orðið hefði ekki komið til sögunnar fyrren eftir sinn dag i starfinu. En hvað um það. Bögeskov var hinn skemmti- legasti og naut ferðarinnar ekki siður en aðrir, þótt hann væri aldursforseti leiðangursins, kom- inn á niræðisaldur. Ferðin var þeim til sóma Þessi stutta ferðasaga er nú á enda. Hún á sammerkt við marg- ar aðrar ferðasögur um það, að frá heimförinni verður litið sagt. Hafið þið ekki tekið eftir þvi, les- endur góðir, hve margar ferða- sögur — einkum þó stuttir ferða- pistlar enda á andlausan og leið- inlegan hátt? ,,A leiðinni bar ekk- ert sérstakt til tiðinda....”, „heimferðin gekk slysalaust...” ,,um heimferðina er ekkert sér- stakt að segja....” og svo fram- vegis, endalaust. Ég hef stundum reynt að finna á þessu einhverjar skýringar og helzt komizt að þeirri niðurstöðu, að annað hvort séu þeir sem ferðaþættina skrifa, orðnir svo þreyttir á þvi að fylgja ferðafólkinu eftir i huganum, að andrikið þrjóti, áður en komið er á leiðarenda, eða þá að ferðafólk- iðersjálft orðið svo þreytt þegar heimleiðis erhaldið, að það gerist eins og af sjálfu sér að þá beri ekkert sérstakt til tiðinda. En hvaðsem þvi liður, þá er hitt vist, að það var ekki niðurdreginn hópur, og þvi siður úrvinda, sem hélt úr hlaði á Hvanneyri sunnu- daginn 24. júni siðast liðinn og ók siðan leið sina um Geldinga- draga, fyrir Hvalfjörð, um Kjós og Kjalarnes, og kom til Reykja- vikurum það leyti sem fréttaþul- ur sjónvarpsins var að setja and- litið i stellingar, áður en hann flutti landsiýðnum fréttir utan úr hinum stóra heimi (vonandi sannar). Þetta kvöld fannst mér þó, sem búskapurinn i Borgar- fjarðarhéraði kæmi mér meira við en braml og brölt einhverra stórbokka hinum megin á hnett- inum. Þegar litið er til baka eftir tveggja daga ferðalag, er ekki nema eðlilegt að ýmisiegt komi i hugann, sem gaman hefði verið að gera i leiðinni, en ekki gafst tóm til. Það hefði til dæmis verið ánægjulegt að geta litið við i Fljótstungu, þó ekki hefði verið til annars en að taka i hendina á Ingibjörgu Bergþórsdóttur fyrir það hve ágætlega hún tók málstað islenzkra skólabarna i sambandi við grunnskólafrumvarpið. Það hefði lika verið gaman að geta stanzað á Kirkjubóli og skipt ör- fáum orðum við Guðmund skáld. Af þessu gat ekki orðið, og olli þvi tímaskortur en ekki viljaleysi. Að svo mæltu skal öllum, sem i þessari för voru, fluttar beztu þakkir fyrir samfylgdina. Allur undirbúningur og framkvæmd ferðarinnar var þeim til hins mesta sóma. -VS. Það er hollt að stfga út úr bilnum um stund, ekki sízt þegar menn hafa annað eins umhverfi út í að ganga og hér. Vélaverkstæðið Véltak hfl Dugguvogur21 - Sími 86605 - Reykjavik PIK>QPI9P<1P<9 P<IP9 P'JPIPOPIPQPfl POPOPOPO POPOPO POPO POPO POP^J bJbdbdbdbdbdbdbdbdbdbObObObObObObObObObObObObObObObO Trúlofunarhringar íi : 3 E3 Fjölbreytt úrval af gjafavörum úr 23 gulli, silfri, pletti, tini o.fl. önnumst 23 viðgeröir á skartgripum. Sendum gegn póstkröfu. Gulismíðaverkstæði ólafs G. Jósefssonar öðinsgötu 7 (Rafhahúsinu) ( Simi 20032 *3 bO p^pqpq'í^rtpip'ipop'ipqp'ipgpqpqpqp'ip^pip^pap^pqpqp^p^ps bObObObObObObObObObObObObObObObObObObObObObObObObObO P*1 bO P1 bO P1 bO P1 bO P1 bO Bjarnarylur með VARMAPLAST plasteinangrun Verksmiðjan Armúla 16 bb Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Suðurlandsbraut 6 sími 38640 raut Bell /|\ Skozk hafragrjón ▼ Framleidd hjá fremstu hafragrjónamillu Evrópu. R.F Bell & Son Limited Edington Berwickshire Hittumst í Kaupfélaginu þa. Bel! grjonin fast.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.