Tíminn - 12.08.1973, Blaðsíða 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 12. ágúst 1973.
Einhver hvalbátanna hefur komið með langreyði að iandi I hvalstöðinni
undir Þyriiskiifi, og jafnskjótt er brugðið við að koma festum á hvaiinn
til þess að draga hann upp. Ljósmyndir: Hermann Stefánsson.
Að örfáum minútum liðnum hefur henni verið flett sundur á skurðarpallinum.
Þannig er þeim flett
sundur í hvalstöðinni
Allar málningarvörur
einnig Tóna- og Óska-litir
6002 litir
UTAVER
Eins og kunnugt er var það eitt hið mesta óhugamál Jóhannesar
Kjarvals, að hvalir yrðu friðaðir, og um það skrifaði hann
margsinnis. Enn hefur hvalafriðun ekki komizt á.
i næstu andrá eru spilin tekin að snúast,
upp dráttarbrautina.
MIKLAR UMRÆÐUR hafa átt
sér stað i heiminum að undan-
förnu um hvort ekki væri rétt að
banna hvalveiðar með öllu a.m.k.
um sinn. Menn hafa bent á að
hvalastofnarnir I úthöfunum hafa
verið ofnýttir svo árum skiptir
og er hvalastofninn á mörgum
stöðum í bráðri hættu, ef ekki
kemur til friðun að öllu eða
nokkru leyti. Sumir náttúru-
verndarmenn hafa hvatt til hval-
veiðibanns um allan heim, en til-
laga um það var felld á hvalveið-
iráðstefnunni i London ekki alls
fyrir löngu.
tslendingar voru á þeirri ráð-
stefnu á móti skilyrðislausu hval-
veiöibanni og bentu á að hval-
veiöarnar við tsland væru skyn-
samlega reknar, stofninn væri
fullnýttur, en ekki ofveiddur.
Bentu þeir á að aflinn frá ári til
árs er nokkuð stöðugur, og út-
haldið einnig, þannig að stofninn
viröist vera I jafnvægi.
Timinn hafði samband við
hvalstöðina i Hvalfirði og leitaði
frétta af þvi, hvernig veiðin hef ði
gengið I ár. Fyrir svörum varð
Pétur Þ. Pétursson og sagði hann
að veiðarnar hefðu gengið ágæt-
lega, fjöldi hvalanna væri aðeins
minni en á siðasta ári, en á móti
kæmi, að hvalirnir eru stærri en
áöur og nýtast betur i vinnslu.
Fjórir bátar stunda veiðarnar
eins og verið hefur siðustu árin.
Um tvöhundruð manns hafa at-
vinnu við hvalvertlðina. Skiptist
fjöldinn þannig að um 100 manns
vinna I landi i hvalstöðinni i Hval-
firði og er þá allt starfslið talið.
Ahafnir bátanna telja 60 manns
og 40 vinna i fyrstihúsinu i
Hafnarfirði.
255 hvalir voru komnir á land á
fimmtudaginn. Skiptist aflinn
þannig að langmest hefði veiðzt
af langreyðum eða 214, þá eru
búrhvalirnir orðnir 22 og sand-
reyðarnar 19. Langreyðarnar eru
enn stærri hluti af aflanum eins
og þær voru i fyrra, og er það til
bóta, þvi þær eru beztar i vinnslu.
Venjan er, að siðari hluta vertið-
arinnar fari hlutfall þeirra i
heildaraflanum minnkandi og má
reikna meö að svo verði einnig að
þessu sinni.
og þessi mikla skepna rennur
Langmestur hluti afurðanna er
fluttur úr landi og var út-
flutningsverðmætið á siðasta ári
189 milljónir samkvæmt upp-
lýsingum hagstofunnar.
Myndirnar hér á siðunni eru frá
hvalskurði i hvalstööinni. -gj-
SMwSBmi
. .
.
t 'W-