Tíminn - 12.08.1973, Síða 30

Tíminn - 12.08.1973, Síða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 12. ágúst 1973. HNÍFSDALUR er litið þorp i þröngu dalverpi. Þar er stórviðrasamt i meira lagi, og allt fram á fjórða tug aídarinnar, er bryggjustúfur var gerður i Skeljavik, inn- an vert við þorpið, voru þar varir einar, þar sem lent var á svipaðan hátt og gert hafði verið frá upphafi byggðar og sjósóknar við ísafjarðardjúp. Eigi að siður hefur þetta fámenna byggð- arlag fært þjóðinni margt hinna fræknustu sjómanna, Meðan róið var ára- bátum voru fleyturnar settar upp að gömlum sið, en fljótlega eftir aldamótin fengu Hnifs- dælir vélar i bátana, og eftir það voru þeir látn- ir liggja á vikinni, meðan vært var, en þegar i harðbakkann sló, varð að brjótast á þeim inn á ísafjörð. Ileimabæjarbræður voru meðal hinna nafn- kunnu sjósóknara, og einn þeirra, Páll Páls- son, varð niræður i sumar. Ilann á enn bát, og svo hittist á, að lokið var að gera við vélina i honum að morgni af- mælisdagsins. Hann gat ekki skotið þvi á Irest að prófa, hvernig vélin væri eftir við- gerðina, og brá sér þess vegna fram á Djúp um morguninn, þegar hann var að heija tiunda áratuginn, og hafði með sér nokkra unga niðja sina. Við birtum hér mynd af þessari gömlu kempu, sem er svo dæmigerður fulltrúi sægarpanna úr Ilnifs- dai, ásamt báti hans og húsi, og flygja með nokkrar visur, sem fornkunningi hans hef- ur ort. Greiðsla upp í qamla skuld Heim i Hnifsdal hug ég renni, hetju marga þar ég kenni. Vaskra drengja lit ég lið, þvi að Páls á ungdómsárum oft var siglt á kröppum bárum, enn er sótt á yztu mið. Aldamóta ungir piltar ekki hræddust bárur trylltar, — ýttu úr vör á úfinn sæ. Bátnum, þó að borðlár væri, beitt var við hvert tækifæri jafnt i stormi og bliðum blæ. Menn til verka glaðir gengu, góða hluti stundum fengu, þegar afla skips var skipt. Uku þorpsins efnahaginn aldrei mældu vinnudaginn. Grettistaki gátu lyft. Oft var kátt i „Bræðrabúðum”, beitt og látið vaða á súðum, gert af mörgu gamanmál. Ort og kveðið, sagðar sögur, sérstaklega gerðar bögur, andinn kom þá yfir Pál. Ungum kennir áralagið, ef að hvessir herðir stagið, svo að keipum sjóði á. Afkomendur allir hafa einmitt byrjað sjó með afa, lært til verka honum hjá. Heill og þökk þér heiðursmaður, hress i bragði jafnan glaður, aldur þótt sé orðinn hár. Borið eflaust Elli getur öðrum mönnum miklu betur á herðum þinum hundrað ár. Rennt var færum, lagðar lóðir, leitað vitt um fiskislóðir: Kögur, björg og Kviarmið. Færð að landi björg i búið, bátum hlöðnum heim að snúið. Sjálfsagt talið sjóvolkið. Árin liðu, útgerð breyttist, aldrei Páll i starfi þreyttist sækir fast á sjóinn enn. Hann á Djúpið heldur breiða, hrognkelsi og þorsk að veiða, lifað timamótin tvenn. Guðjón Bj. Guðlaugsson Efstasundi30 'rsvam

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.