Fréttablaðið - 18.10.2004, Page 1
Sv hornið og Akureyri
Me›alnotkun fjölmiðla
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups mars og ágúst '04
Meðallestur dagblaða.
Uppsafnað meðaltal virkra daga í sjónvarpi.
Uppsafnað yfir viku í tímaritum.
● en hafið kallar
Þórunn Hjartardóttir:
▲
SÍÐA 34
Af sjónum í
leikskóla
● setti þrjú íslandsmet á hm
Ragnheiður Ragnarsdóttir:
▲
SÍÐA 24
Stefnir á ólympíu-
gull eftir fjögur ár
● á 10 ára útgáfuafmæli
Maus:
▲
SÍÐA 28
Gefur út tvöfalda
safnplötu í dag
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
MÁNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
KALT OG HVASST Snjókoma eða él við
norður- og austurströndina. Bjart með köflum
syðra. Hiti nálægt frostmarki. Sjá síðu 6
18. október 2004 – 285. tölublað – 4. árgangur
● hús ● fasteignir
Byrjað upp
á nýtt
Ólafur Gunnar Guðlaugsson:
SPÁIR AUKINNI VERÐBÓLGU
Landsbankinn spáir hærri verðbólgu en
fjármálaráðuneytið og telur að hún verði
sex prósent árið 2007. Mikill hagvöxtur kall-
ar á aðhaldssama hagstjórn. Sjá síðu 2
ÞRÝSTINGI LÉTT AF RÍKIS-
STJÓRNINNI Viljayfirlýsing Sambands
íslenskra sveitarfélaga og ríkisins, sem var
undirrituð fyrir mánuði, var ekki borin undir
stjórn sambandsins. Sjá síðu 4
ANNAN GAGNRÝNIR STRÍÐIÐ Í
ÍRAK Stríð Bandaríkjamanna í Írak hefur
ekki gert heiminn að öruggari stað, að
sögn Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sam-
einuðu Þjóðanna. Sjá síðu 4
SKERTUR LÍFEYRIR Tekjutengingar og
aukin skattbyrði hafa skert lífeyri þeirra
sem treysta á almannatryggingakerfið.
Stjórnvöld sögð hlunnfara þá lífeyrisþega
sem minnst hafa. Sjá síðu 12
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
KENNARAVERKFALL Ekki er hægt að
leysa verkfall kennara með því að
ríkið setji fé í jöfnunarsjóð sveit-
arfélaganna svo illa stæð sveitar-
félög gætu mætt launakröfum
kennara, segir Gunnar I. Birgis-
son, formaður bæjarráðs Kópa-
vogs og menntamálanefndar Al-
þingis. Ástæðan sé samkomulag
um fjármál milli sveitarfélaga og
ríkisins.
„Það liggur fyrir yfirlýsing
milli félags-
málaráðuneytis,
fjármálaráðu-
neytis og Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga
um tekjuskipt-
ingu sveitarfé-
laganna og rík-
isins,“ segir
Gunnar. Hann treysti á að menn
fylgi samkomulaginu eftir.
Gunnar vill að verkfall kennara
verði stöðvað með lagasetningu
náist ekki samningur milli þeirra
og sveitarfélaganna. Álitið sé hans
og hafi ekki verið rætt innan Sjálf-
stæðisflokksins.
Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins
í gær kom fram að það hefði ör-
uggar heimildir fyrir því að ríkis-
stjórnin íhugi lagasetningu á verk-
fall kennara öðru hvoru megin við
mánaðamótin. - gag
ÞJÓÐKIRKJAN Ágreiningur er á milli
Þjóðkirkjunnar og ríkisins um
eignarréttarstöðu prestssetra.
Ríkið hefur boðist til að greiða
kirkjunni 150 milljónir króna
vegna prestssetra en kirkjan vill
hins vegar fá þrjá milljarða í sinn
hlut.
Árið 1997 var samið um að
kirkjujarðir yrðu eign ríkisins en
prestssetur voru þar undanskilin.
Fimm árum síðar gerði ríkið
kirkjunni tilboð þess efnis að hún
tæki setrin til eignar og fengi auk
þess 150 milljónir króna. Á þetta
vildu kirkjunnar menn hins vegar
ekki fallast því ríkið skilgreindi
prestssetur of þröngt.
Björn Bjarnason kirkjumála-
ráðherra gerði þennan ágreining
að umtalsefni á kirkjuþingi í gær.
Hann sagðist undrast þá gjá sem
myndast hefði á milli ríkis og
kirkju og benti á að 1997 hefði sátt
verið um hvaða prestssetur flytt-
ust til Prestssetrasjóðs.
Karl Sigurbjörnsson biskup
segir að kirkjan hafi lengi leitað
eftir viðræðum. „Frá því að okkur
var tjáð að forsætisráðherra hefði
tekið við málinu höfum við engin
skilaboð fengið nema að þessi
ræða frá kirkjumálaráðherra sé
vísbending um að það sé komið á
hans borð,“ segir Karl og bætir
því við að landbúnaðarráðuneytið
hafi selt jarðir sem ágreiningur
var um hvort tilheyrðu ríki eða
kirkju. Hann leggur áherslu á að
sjálf fjárhæðin sé ekki aðalatriðið
í málinu heldur að þeir sem beri
ábyrgð á málefnum kirkjunnar
geti ekki látið slík verðmæti af
hendi nema að löglega sé að því
staðið. Karl segir jafnframt at-
hyglisvert að þegar ríkið bauð
kirkjunni 150 milljónir fyrir
prestssetrin árið 2002 þá hafi
sóknargjöld til trúfélaga verið
lækkuð um 150 milljónir um svip-
að leyti.
Biskup segir að ráðherrar hafi
gefið í skyn að vilji sé til að semja.
„En það er mikið að gera á stóru
heimili og kannski erum við ekki
nógu hávær í þessu. Hins vegar er
ekki hægt að útiloka málsókn ef
allt um þrýtur,“ segir Karl Sigur-
björnsson biskup.
sveinng@frettabladid.is
Kirkjan krefst þriggja
milljarða af ríkinu
Þjóðkirkjuna og ríkið greinir á um eignarréttarstöðu prestssetra. Kirkjumálaráðherra undrast að
deilur séu um málið en biskup segist ekki útiloka málsókn ef í harðbakkann slær.
HERMAÐUR LEITAR Í BÍL Bandarískur hermaður leitar að vopnum í bíl nærri Ramadi í Írak. Konunni virðist lítið gefið um að hermað-
urinn sé að hnýsast í hanskahólfið. Það er daglegt brauð margra íraskra borgara að hermenn stöðvi bíla þeirra til að leita að vopnum
eða eftirlýstum uppreisnarmönnum.
Formaður menntamálanefndar Alþingis vill lög á verkfall kennara:
Samningur hindrar að
sveitarfélögin fái fé frá ríkinu
Bandaríkjaher sækir fram:
Falluja-borg
umkringd
ÍRAK, AP Bandarískir hersveitir eru
búnar að umkringja borgina Fallu-
ja og bandarískar herflugvélar
gerðu loftárásir á svæði uppreisn-
armanna um helgina. Staðfest hef-
ur verið að þrír borgarar hafi látist
í átökunum í gær en óttast er að
þeir hafi verið mun fleiri.
Bandaríski herinn hefur gengið
hart fram í Falluja síðan það slitn-
aði upp úr friðarviðræðum íraskra
stjórnvalda við uppreisnarmenn á
fimmtudaginn. Leiðtogar uppreisn-
armanna neituðu þá að framselja
útlenda hryðjuverkamenn til ír-
askra stjórnvalda þar á meðal
Jórdanann Abu Musab al-Zarqawi.
Írösk Stjórnvöld telja að al-
Zarqawi sé í Falluja en leiðtogar
uppreisnarmanna þverneita því.
Barist er víða í Írak og í gær lét-
ust níu íraskir lögreglumenn sem
voru nýkomnir úr æfingabúðum í
Jórdaníu. ■
OLÍUAUÐLINDIR Í ATLANTSHAFI
Málstofa um olíurétt og nýtingu olíuauð-
linda í Norðaustur-Atlantshafi verður hald-
in í Lögbergi í Háskóla Íslands og hefst
klukkan 11. Ernst Nordtveit, prófessor í
olíurétti við Háskólann í Björgvin, flytur
meðal annars erindi.
GUNNAR I.
BIRGISSON
M
YN
D
A
P