Fréttablaðið - 26.10.2004, Page 1
● hefst í dag
Íslenska óperan:
▲
SÍÐA 26
Hádegis-
tónleikaröð
● hættur í útvarpinu
Kalli Lú:
▲
SÍÐA 32
Veiðir með
vinum
● skrifuðu undir eins árs samning
Landsbankadeildin:
▲
SÍÐA 19
Arnar og Bjarki
áfram hjá KR
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
MÁLÞING UM JAFNRÉTTI Jafnrétt-
isráð gengst fyrir málþingi um gerð jafn-
réttisáætlana klukkan tvö í dag. Málþing-
ið er haldið á Grand Hótel Reykjavík við
Sigtún.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
26. október 2004 – 293. tölublað – 4. árgangur
FRIÐARGÆSLULIÐAR HEIM Ís-
lensku friðargæsluliðarnir sem slösuðust í
sjálfsmorðssprengjuárás í Kabúl koma
heim á föstudag. Sjá síðu 2
DÆMDUR Í FANGELSI Maður var
dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa
haft samfarir og önnur kynferðismök við
fósturdóttur sína. Móðir stúlkunnar bað
dótturina ítrekað að láta málið niður falla.
Sjá síðu 6
BROTTHVARF RÆTT Þúsundir lög-
reglumanna gættu öryggis nærri þinghús-
inu þegar Ariel Sharon hvatti ísraelska þing-
menn til að samþykkja brotthvarf frá Gaza.
Nokkrum stundum áður voru fjórtán
Palestínumenn drepnir í árás Ísraelshers á
Gaza. Sjá síðu 8
TANNLÆKNAR HÁTT YFIR TAXTA
Hæsta álagning sem vitað er til að tann-
læknir noti er um 100% umfram gjaldskrá
heilbrigðisráðherra. Meðaltalshækkun er 15
til 20%. Tryggingayfirtannlæknir segir að
hækkanir hjá tannlæknum hafi ef til vill
dregið úr heimsóknum fólks. Sjá síðu 10
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 18
Sjónvarp 28
Samfylkingarkonur:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Stafganga í
hádeginu
● heilsa
VIÐSKIPTI Úrvalsvísitalan lækkaði í
gær um 113 stig og hefur fallið
aldrei verið hærra í stigum talið.
Það er hins vegar úr háum söðli að
falla því Úrvalsvísitalan er nú ná-
lægt sögulegu hámarki. Hlutfalls-
lækkunin í gær er sú ellefta mesta
síðan Úrvalsvísitalan var fyrst
reiknuð i ársbyrjun 1993.
Undanfarna daga hefur verið
nokkur þrýstingur á hlutabréfa-
verð eftir gríðarlega hækkun það
sem af er ári. Sérfræðingar benda
á að áform fyrirtækja um að setja
enn fleiri hlutabréf á markað
kunni að ráða nokkru um lækkun-
ina í gær.
Þórður Pálsson, forstöðumaður
greiningardeildar KB banka, seg-
ir lækkunina í gær ekki koma á
óvart. Hann nefnir aukið framboð
auk þess sem hlutabréfaverð á Ís-
landi sé mjög hátt um þessar
mundir.
Samanlagt markaðsverðmæti
fyrirtækjanna fimmtán sem
mynda Úrvalsvísitöluna lækkaði
um 29 milljarða króna í gær.
- þk
Sjá síðu 14
„VIÐ VILJUM SKÓLA“ hrópuðu nemendur úr Vesturbæjarskóla fyrir utan stjórnarráðið í gær þegar deilendur í kennaradeilunni ræddu
við þrjá ráðherra ríkisstjórnarinnar. „Við erum að mótmæla verkfalli, við viljum fara aftur í skólann, við verðum bara heimskari af því að
sitja heima!“ sögðu börnin við Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Hann svaraði að bragði: „Það er alveg rétt hjá ykkur að koma að
mótmæla, þið hafið fullan rétt á því.“
ÉL NORÐAN OG AUSTAN Bjart með
köflum sunnan og suðvestan til. Hiti frá
frostmarki að 5 stigum, hlýjast syðst. Sjá
síðu 4.
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Sv hornið og Akureyri
Me›alnotkun fjölmiðla
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups mars og ágúst '04
Meðallestur dagblaða.
Uppsafnað meðaltal virkra daga í sjónvarpi.
Uppsafnað yfir viku í tímaritum.
Reykjavíkurborg:
Fötluð börn
fá gæslu
VERKFALL Rúmlega 60 fötluðum
börnum í Reykjavík hefur verið
boðið að nýta frístundaheimili
Íþrótta- og tómstundaráðs í verk-
falli kennara.
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
hafði veg að skipulagningunni, að
sögn Stefáns Jóns Hafstein, for-
manns fræðsluráðs Reykjavíkur:
„Stuðningsfulltrúi verður með
börnunum. Þau fá gæslu og þeim
mun vonandi líða vel,“ segir Stef-
án. Börnin eigi við misjafna fötlun
að stríða en hún sé alvarleg hjá
mörgum þeirra.
- gag
Aftur í Karphúsið
án nokkurra lausna
Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir kennara og sveitar-
félaga í Karphúsið eftir fund með forsætisráðherra. Nefndirnar mæta
með opnum huga en án lausnar.
VERKFALL „Menn koma fullkomlega
óbundnir til fundarins,“ segir
Ásmundur Stefánsson ríkissátta-
semjari sem boðað hefur samn-
inganefndir kennara og sveitarfé-
laganna í Karphúsið eftir fund
með forsætisráðherra.
Ekki stóð til að funda fyrr en 4.
nóvember nema annar hvor
deilenda hefði eitthvað fram að
bjóða. Hvorugur þeirra segir svo
vera. Þeir mæti að beiðni ríkis-
sáttasemjara sem hyggst hvorki
leggja miðlunartillögu á borð
deilenda né drög að tillögu eins og
á fimmtudag. Hann segir forsætis-
ráðherra ekki hafa boðað að lög
verði sett á verkfallið heldur snú-
ist fundurinn um stöðuna í kjara-
viðræðunum.
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands, segir
ekki ljóst hvort eitthvað nýtt sé í
stöðunni eða hvort fundurinn með
forsætisráðherra hafi verið settur
til að friða þjóðina: „Ég varaði við
því eftir fundinn í stjórnarráðinu í
gærmorgun að ekki væri gott ef
menn sætu inni í Karphúsinu án
þess að eitthvað væri á borðinu
sem gæti leitt eitthvað jákvætt af
sér.“
Birgir Björn Sigurjónsson, for-
maður launanefndar sveitarfé-
laganna, segir nefndina ganga með
opnum huga til fundarins. Sveitar-
félögin geti þó ekki teygt sig
lengra en ríkissáttasemjari mælti
með í samningsdrögum sínum.
- gag
Sjá síðu 4
Úrvalsvísitalan:
Metlækkun á markaði
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Íslensk framleiðsla
skipar mikilvægan
sess í þjóðlífinu og
mun í vaxandi mæli
standa undir velferð
þjóðarinnar
Á SAMNINGAFUNDI
Samningafundur á „hálfsmánaðarafmæli“
verkfallsins. Verkfallið hefur nú staðið í
rúmar fimm vikur.
KERRY OG CLINTON
Frambjóðandinn og forsetinn fyrrverandi
komu saman fram á kosningafundi.
Clinton í slaginn:
Reyna að
hræða fólk
BANDARÍKIN, AP Repúblikanar
reyna að hræða óákveðna kjós-
endur frá John Kerry og reyna að
hræða stuðningsmenn hans frá
því að kjósa, sagði Bill Clinton,
fyrrum Bandaríkjaforseti, þegar
hann kom fram á kosningafundi
með Kerry í gær. Clinton hóf þar
þátttöku sína í kosningabarátt-
unni eftir langa sjúkralegu.
Kerry var jafnvel harðorðari í
garð repúblikana. „Ótrúlegur van-
máttur þessa forseta og þessarar
ríkisstjórnar hefur skapað hættu
fyrir hermenn okkar og kallað
meiri hættu yfir þjóðina en
ástæða er til,“ sagði hann um
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta og stjórn hans. ■