Fréttablaðið - 26.10.2004, Page 11
flugfelag.is
ÍSAFJARÐAR
5.600 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.600kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
27. okt. - 2. nóv.
EGILSSTAÐA
6.400
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
62
79
1
0/
20
04
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.940 kr. aðra leiðina.
ÞRIÐJUDAGUR 26. október 2004
MATVÆLI Kaup SÍF á franska mat-
vælafyrirtækinu Labeyrie fyrir
29 milljarða króna hafa vakið
talsverða athygli. Fyrirtækið
framleiðir kældar matvörur á
borð við reyktan lax, andalifur
og smurrétti, að ógleymdum
rússneskum pönnukökum en
þeim hafa Íslendingar ekki átt
að venjast í gegnum tíðina.
Árni Bergmann rithöfundur
er þaulkunnugur rússneskri
matarmenningu og segir að þar-
lendar pönnukökur séu ekki
sætar eins og hér tíðkist þótt að
þær séu bakaðar á svipaðan
hátt. „Þær eru yfirleitt borðaðar
með sýrðum rjóma en síðan er
alls kyns sjávarfangi bætt ofan
á, til dæmis kavíar, reyktum
laxi, silungi eða síld svo og eggj-
um, sveppum og ýmsu þess hátt-
ar,“ segir Árni en upphaflega
var þessa réttar neytt á föstunni
þannig að fátítt er að setja kjöt á
rússnesku pönnukökurnar.
Rússar drekka vodka við
ýmis tækifæri og það gera þeir
líka þegar pönnukökur, eða blín-
ur eins og þær eru kallaðar á
frummálinu, eru á borðum en
einnig er vinsælt að skola þeim
niður með öli.
Árni segir að blínur séu
reglulega snæddar á heimili
hans og konu sinnar, Lenu, en
hún hefur verið dugleg við að
kenna Íslendingum að elda og
borða þessar forvitnilegu
pönnukökur.
- shg
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÞORLEIFUR G. SIGURÐSSON
Langflestir eru sómakrakkar
„Það hefur verið heldur dauft í verkfall-
inu,“ segir Þorleifur G. Sigurðsson, um-
sjónarmaður í Austurbæjarskóla en þar
hefur hann starfað í
tólf ár.
„Ég þarf að sjá um
að húsið sé í lagi og
að allt sé hreint. Það
er ekki gaman að
starfa við þetta núna.
Það var ágætt fyrstu
vikuna því þá var
hægt að gera ýmis-
legt. Síðan höfum við
dúllað okkur við þrif
en það er ekki enda-
laust hægt að þrífa
gólf sem ekkert er
gengið um.“
Þorleifur sagðist
hafa hitt fáa nemendur í verkfallinu,
nema þau yngstu sem kæmu síðdegis í
gæslu á vegum ÍTR. „Þau eru hins vegar
ekki mörg börnin
sem hafa látið sjá
sig.“
Stærstur hluti
krakkanna er
sómakrakkar. Ég hef
gaman af að vinna
með þeim, annars
væri ég ekki búinn að
vera hérna svona
lengi. Vissulega eru
læti stundum, en
þetta eru nú einu
sinni börn. Við höfum
saknað þeirra í verk-
fallinu.“
- jss
ÞORLEIFUR GARÐAR SIGURÐSSON
Finnst vinnan vera helst til daufleg í
verkfallinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Rússneskar pönnukökur:
Gumsi hlaðið góðgæti
BLÍNUR
Sýrður rjómi og sjávarfang
er jafnan sett á blínurnar.