Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 1
EINBEITTUR BROTAVILJI OLÍU-
FORSTJÓRANNA Æðstu stjórnendur
olíufélaganna áttu í markvissu og skipu-
lögðu samráði, eftir því sem segir í skýrslu
samkeppnisráðs. Eftir samráð fólu forstjórar
undirmönnum að framkvæma það sem
ákveðið var á forstjórafundum. Síða 2
FLYTJA ÞYRFTI ÍBÚA Í BURTU
Fundað var í gær með íbúum Vestur-
Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu um
nýtt áhættu mat um eldgos í Mýrdalsjökli.
Vatn gæti flætt yfir Landeyjar og vestur í
Þykkvabæ. Síða 2
KAUPMÁTTARRÝRNUN KENNARA
Kennari í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur
segir laun sumra kennara muni lækka þegar
launaflokkar í potti verða festir í launatöflu.
Auk þess muni verðbólga éta upp launa-
hækkun miðlunartillögu ríkissáttasemjara.
Síða 4
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Kvikmyndir 30
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
SUNNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
31. október 2004 – 298. tölublað – 4. árgangur
ÞURRT Í FYRSTU Fer síðan að rigna
sunnan til eftir hádegi. Þurrt norðan og
austan. Hægt hlýnandi veður, fyrst sunnan
til. Sjá síðu 4
Fær heiðursverðlaun Eddunnar í ár
SÍÐUR 16 og 17 ▲
GLATT Á HJALLA VIÐ UNDIRSKRIFT Þeir Friðrik Arngrímsson, Ásmundur Stefánsson og Sævar Gunnarsson voru allir mjög ánægðir
með samning sjómanna og útvegsmanna sem skrifað var undir í gær.
SLYSAVARNARFÉLAGIÐ LANDS-
BJÖRG verður með björgunarsýningu á
Hótel Loftleiðum frá kl. eitt. Á sýningunni
verða margir öflugustu jeppar og snjóbílar
björgunarsveitanna ásamt bátum og
vélsleðum sýndir. Þá verður hægt að skoða
stærsta uppblásanlega sjúkrahús landsins
og kynnast hvaða búnað alþjóðabjörgunar-
sveitin tekur með sér í útkall á hamfara-
svæði erlendis.
Haukur Tómasson:
Athyglisverðir punktar
Tekur við tónlistar-
verðlaunum
Norðurlandaráðs
Höfundar söngleiksins um Litlu stúlkuna
með eldspýturnar:
Æði misjafnar
sviðsetningar
SÍÐA 28
▲
SÍÐA 18
▲
Sv hornið og Akureyri
Me›alnotkun fjölmiðla
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups mars og ágúst '04
Meðallestur dagblaða.
Uppsafnað meðaltal virkra daga í sjónvarpi.
Uppsafnað yfir viku í tímaritum.
KJARAMÁL Forysta sjómanna og út-
vegsmanna skrifuðu undir nýjan
kjarasamning í gær milli Sjómanna-
sambands Íslands, Farmanna- og
fiskimannasambandsins, og Alþýðu-
sambanda Austurlands og Vest-
fjarða annars vegar og Landsam-
bandi íslenskra útvegsmanna og
Samtaka atvinnulífsins hins vegar.
Samningurinn mun gilda til 31. maí
2008, ef hann verður samþykktur
meðal aðildarfélaga. Frá gildistöku
samningsins mun kauptrygging og
aðrir launaliðir hækka um 16,5 pró-
sent til 1. janúar 2008. Þá var einnig
samið um aukin lífeyrisréttindi sjó-
manna. Frá 1. janúar 2007 munu
iðgjaldsgreiðslur til lífeyrissjóðs
nema tólf prósentum af öllum laun-
um. Af því munu útvegsmenn
greiða átta prósent. Þá var einnig
samið um mótframlag útvegsmanna
í séreignarsjóð.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands segir
að greiðslur í lífeyrissjóð hafi verið
baráttumál sjómanna í mörg ár og
fagnar því mjög þessu ákvæði
samningsins. Þá segir hann einnig
að uppsagnafrestur sjómanna gjör-
breytist með þessum samningi og
verði nú þrír mánuðir eftir fjögurra
ára starf og einn mánuður eftir
þriggja mánaða starf. Áður hafi
hann verið einn mánuður eftir sex
ár. „Við forystumenn sjómanna náð-
um samningum víðar. Eftir fund
með fjármálaráðherra um sjó-
mannaafsláttinn höfum við loforð
upp á vasann að við honum verði
ekki hreyft á samningstímanum.“
Friðrik Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna segir að litið
sé á þennan samning sem mikil-
vægan hlekk í því að samskipti út-
vegsmanna og sjómanna komist í
eðlilegt horf. Það sé þó ómögulegt
að segja til um hvað hann kostar.
„Þetta er tækifæri fyrir framtíðina.
Það sem við sjáum í honum eru
möguleikar á að auka tekjur bæði
sjómanna og útgerðarmanna.“ Þar
vísar hann til þess að tekjur sjó-
manna munu aukast ef fækkað er í
áhöfn. Þetta er þáttur sem útvegs-
menn hafa lagt áherslu á þegar auk-
in tækniþróun krefst færri sjó-
manna. Friðrik bendir þó á að víða
sé ekki hægt að fækka í áhöfnum.
Atkvæðagreiðslu um samning-
inn verður lokið 21. desember og
segjast bæði forysta sjómanna og
útvegsmanna ætla að mæla með því
að hann verði samþykktur.
Þetta er fyrsti samningur sjó-
manna frá 1995, þegar samningur
fékkst að undangengnu verkfalli.
Sjómenn og útvegsmenn hafa ekki
samið án verkfalls síðan árið 1992.
svanborg@frettabladid.is
SKEIÐARÁRJÖKULL
Vatnið í Skeiðará við brú á þjóðvegi 1 jókst
jafnt og þétt í gærdag.
Hlaup í Grímsvötnum:
Ekki mikið
eignartjón
FLÓÐ „Þetta er talsvert stærra
hlaup en hefur verið. Það er meira
vatn í Grímsvötnum nú en árið
2002. Við vitum ekki hvort mikið
eignatjón verður vegna hlaupsins
en ég býst ekki við að það eigi
eftir að valda miklum skaða. Þó
það geti auðvitað verið að ein-
hverjar skemmdir verði á brúnni
við Skeiðará,“ segir Sverrir Elef-
sen, vatnamælingamaður hjá
Orkustofnun.
„Þeir á Veðurstofunni voru að
rannsaka jarðskjálfta í Vatnajökli
á fimmtudag og föstudag og gáfu
þær rannsakanir vísbendingar
um að hlaup væri að fara af stað.
Við hjá Orkustofnun urðum vör
við það í fyrrinótt að vatn var
farið að aukast.“ - lkg
Buttiglione úr embætti:
Nýr dóms-
málaráðherra
RÓM, AP Rocco Buttiglione, sem til-
nefndur var sem dómsmálaráð-
herra Evrópusambandsins, hefur
ákveðið að segja sig úr embættinu
eftir að ummæli hans um samkyn-
hneigð og konur ollu uppnámi.
Þessi tilkynning kom talsvert
eftir að Silvo Berlusconi, forsæt-
isráðherra Ítalíu, hafði gefið í
skyn að hann myndi draga
Buttiglione úr embættinu.
Buttiglione telur þetta greiða
fyrir Jose Manuel Barroso, for-
manni framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, sem getur nú
valið næsta dómsmálaráðherra. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
LAUNAHÆKKANIR
Við gildistöku 4,25%
1. janúar 2005 3,00%
1. janúar 2006 3,50%
1. janúar 2007 2,25%
1. janúar 2008 3,50%
Samskiptin komin
í eðlilegt horf
Ekki hefur verið samið án verkfalls síðan 1992. Fjármálaráðherra lofar
að ekki verði hreyft við sjómannaafslætti á samningstímanum.
Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður er 74 ára gamall. Hann hóf kvikmyndanám
43 ára og hefur gert 32 heimildarmyndir á 15 árum. Hann er eini Íslendingurinn
sem lifir á því að gera heimildarmyndir