Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 6
6 31. október 2004 SUNNUDAGUR Staðfesting reglugerðar um Skaftafellsþjóðgarð: Stærsti þjóðgarður Evrópu orðinn til UMHVERFISMÁL Stærsti þjóðgarður í Evrópu er orðinn til eftir að um- hverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, staðfesti í gær nýja reglugerð um stækkun Skafta- fellsþjóðgarðs sem stofnaður var árið 1967. Reglugerðin felur í sér þreföldun á flatarmáli þjóðgarðs- ins, sem var áður 1.600 km2 en er nú er orðinn 4.807 km2. Skafta- fellsþjóðgarður nær nú meðal annars til svæðis sem nemur um 57% af Vatnajökli auk Lakagíga- svæðisins. Haft hefur verið náið samráð við heimamenn vegna stækkunar Skaftafellsþjóðgarðs og gerð reglugerðar um hann. Fyrr í þess- um mánuði voru haldnir þrír opnir fundir á Höfn, í Suðursveit og á Kirkjubæjarklaustri, þar sem ráðherra kynnti drög að reglugerðinni og leitaði eftir at- hugasemdum heimamanna. Jafn- framt var haft samráð við aðra hagsmunaaðila, svo sem ferða- málasamtök og umhverfis- og úti- vistarsamtök. Þessi stækkun Skaftafellsþjóð- garðs er fyrsti hluti Vatnajökuls- þjóðgarðs sem mun ná til jökul- hettunnar og helstu áhrifasvæða jökulsins. Fyrir liggja tillögur um að hluti landsins norðan Vatnajök- uls verði meðal annars hluti Vatnajökulsþjóðgarðs. - jss Innbyggt vantraust á miðstýrðu valdi Bandaríkjamönnum hefur gengið illa að koma sér upp kosningakerfi sem virkar þrátt fyrir að úrbótum hafi verið lofað. Bandarískur prófess- or í stjórnmálafræði segir vantraust á miðstýrðu valdi hluta ástæðunnar. BANDARÍKIN Ein helsta ástæðan fyr- ir því hversu illa Bandaríkjamönn- um hefur gengið að koma upp kosningakerfi sem virkar er sterk viðleitni ríkis- og sveitarstjórna á hverjum stað til að ráða sjálfar sín- um málum, segir Michael T. Corgan, prófessor í flota- fræðum og stjórn- málafræði við há- skólann í Boston í Massachusetts. Ófullnægjandi framkvæmd kosn- inga í Bandaríkjun- um komst í hámæli í Flórída fyrir fjórum árum en nokkur atvik hafa þegar komið upp nú sem gefa til kynna að enn sé langt í land áður en hægt verður að fullyrða að framkvæmd- in sé fullnægjandi. „Þó við eigum að baki langa sögu lýðræðis er saga stjórnar heimamanna á stjórnmálakerfinu jafn löng. Það er ástæðan fyrir því að hvert kjördæmi er með sínar eigin aðferðir til atkvæða- greiðslu,“ segir Corgan og tekur fram að hluti af ástæðunni fyrir því að kerfin virðist oft úrelt eða ófullnægjandi sé kostnaður. Það hafi líka sitt að segja að frá því vél- rænn kosningabúnaður var tekinn upp hafi sjaldan verið jafn mjótt á munum og í forsetakosningunum fyrir fjórum árum. Fram að því hafi kerfið virst nógu gott. „Í bandarískri stjórnmálamenn- ingu er innbyggt vantraust á mið- stýrðu valdi sem veldur því að kosningastjórnir á hverjum stað taka því illa að utanaðkomandi ein- staklingar og stofnanir segi þeim fyrir verkum. Þegar við bætist að undanfarið hafa forsetaframbjóð- endur barið á innanbúðarmönnum í Washington eru margir sterkir þættir sem ráða því að málum er stjórnað á heimavelli, hversu illa sem það gengur,“ segir Corgan. Corgan bendir einnig á að nýrri tækni fylgi vandamál. Þannig geti rafræn kosningakerfi verið við- kvæm fyrir tölvuþrjótum og ekki bætir úr skák að ekki er hægt að endurtelja atkvæði ef mjótt er á munum. „Eins og sumir segja jafn- ast það að prenta gögnin út á nýjan leik ekki á við það að telja á nýjan leik,“ segir Corgan og bætir við. „Að auki var einu fyrirtækjanna sem reyna að selja nýjan, þróaðan rafrænan kosningabúnað, þar til nýlega, stjórnað af manni sem sagði að hans markmið væri að tryggja Bush forseta sigur í Ohio. Þú getur ímyndað þér að demókrat- ar tortryggðu þennan búnað.“ brynjolfur@frettabladid.is Forsetakosningar: Vísitalan gegn Bush BANDARÍKIN George W. Bush Bandaríkjaforseti nær ekki end- urkjöri ef marka má kenningu Jeffrey Hirsch, útgefanda Stock Trader’s Almanac. Hann segir að þegar Dow Jones vísitalan lækkar um hálft prósent eða meira frá lokum september til kjördags nái forsetinn ekki endurkjöri, nú hef- ur hún lækkað um 0,75 prósent. Þetta hefur gengið eftir frá ár- inu 1904 ef undan eru skilin árin 1956 þegar Rússar réðust inn í Ungverjaland í október og 1984 þegar vísitalan lækkaði um 0,6 prósent eftir miklar hækkanir næstu misseri á undan, þá vann Ronald Reagan með yfirburðum. ■ Forsetakosningar í Bandaríkjunum: Mjótt á munum í könnunum BANDARÍKIN, AP Nýj- ustu skoðanakann- anir í Bandaríkjun- um sýna að mjótt er á munum á milli Georges W. Bush og Johns Kerrys í for- setakosningunum sem fara fram 2. nóvember. Síðustu kannanir verða framkvæmdar rétt fyrir kosninga- dag og engin leið að vita hver ber sigur úr býtum. Kann- anir sem framkvæmdar hafa verið rétt fyrir kosningar síðustu 25 árin hafa yfirleitt spáð fyrir um sigur- vegarann. Hvorugur frambjóðand- inn í ár hefur gott forskot en al- menningur lítur á Bush sem forseta með galla og treystir ekki Kerry. ■ VEISTU SVARIÐ? 1Hvaða olíufélag þarf að greiða sektsamkeppnisráðs að fullu? 2Hver er forsetaefni Frjálshyggjuflokks-ins í Bandaríkjunum? 3Hvað heitir ný plata Jóhanns Jóhannssonar? Svörin eru á bls. 34 Forsetakosningar: Hvort treystir þú Bush eða Kerry betur? Jóna Hrönn Bolladóttir, miðborgarprestur. „Kerry virkar á mig sem meiri frið- arsinni en það get- ur svo sem verið að það breytist ef hann verður kos- inn. Það er oft sem innri maður kemur í ljós þegar ein- hverjum hlotnast völd. Mér finnst Bush ekki traustsins verður og ég óttast hann. Ég óttast ákvarðanir hans og þær lífsskoðanir sem hann hefur. Kerry getur ekki verið mikið verri en hann.“ Hvorn myndir þú kjósa? „Ef ég væri Bandaríkjamaður þá myndi ég skoða málið betur en ég geri sem íslenskur prestur. Það er ekki ólíklegt að ég myndi kjósa Bush en ég myndi skoða feril hans betur og hlusta á það sem hann hef- ur fram að færa.“ Auður Eir Vilhjálmsdóttir, prestur í Kvennakirkjunni. „Ég treysti Kerry betur og bind mikl- ar vonir við hann. Ég vona að önnur stefna komist á í al- þjóðamálum ef hann kemst til valda. Mér finnst Bush ekki hafa staðið sig vel en hann á samúð mína alla. Ég myndi ekki vilja vera í hans sporum. Það þarf að breyta um stjórnarfar í Bandaríkjunum og ég treysti Kerry til að gera það.“ Hvorn myndir þú kjósa? „Ég veit ekki hvorn ég myndi kjósa ef ég væri Bandaríkjamaður en frá íslenskum bæjardyrum séð myndi ég velja Kerry.“ MYNDBAND Sérfræðingar víða um heim hafa lýst því yfir að mynd- bandsupptakan af Osama bin Laden sem send var út á Al Jazeera sjón- varpsstöðinni á föstudagskvöld væri til þess ætluð að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjun- um. Því hefur verið líkt við póli- tíska handsprengju. Í myndbandinu lýsir bin Laden því í fyrsta sinn yfir að hann beri ábyrgð á hryðjuverkunum í Banda- ríkjunum 11. september og hótar jafnframt frekari hryðjuverkum. Hann sakaði jafnframt Bush um að hafa brugðist of seint við hryðju- verkunum 11. september. Bush og mótframbjóðandi hans, John Kerry, hafa báðir brugðist op- inberlega við myndbandinu með yfirlýsingum um hvernig best megi haga baráttunni gegn hryðju- verkum. Bush fyrirskipaði örygg- isráðgjöfum sínum að grípa til við- eigandi ráðstafana við myndband- inu. Kerry hét því að gerast leið- andi í baráttunni gegn hryðjuverk- um með nýjum og áhrifameiri að- ferðum. Ekki hefur verið lýst yfir auk- inni hættu á hryðjuverkum í Bandaríkjunum í kjölfar mynd- bandsins en óttast sumir að upp- takan hafi verið dulkóðuð orðsend- ing til al-Kaída félaga um að hefja nýja árás hryðjuverka. - sda UPPTAKA AF ÁVARPI BIN LADENS TIL BANDARÍSKU ÞJÓÐARINNAR Í myndbandinu lýsir bin Laden því í fyrsta sinn yfir að hann beri ábyrgð á hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september og hótar jafnframt frekari hryðjuverkum. STÆRRI ÞJÓÐGARÐUR Kortið sýnir stærð Skaftafellsþjóðgarðs eftir stækkunina. KOSIÐ Í FLÓRÍDA Þrátt fyrir að mikið hafi verið rætt um að bæta úr þeim vanköntum sem komu í ljós í Flórída og fleiri ríkjum Bandaríkjanna fyrir fjórum árum hefur ekki tekist að tryggja full- nægjandi framkvæmd kosninganna. MICHAEL CORGAN Vantraust á miðstýrðu valdi og fjárskortur hamla úrbótum. JOHN KERRY Kannanir sýna að mjótt er á munum á milli Kerrys og Bush. NÝJUSTU KANNANIR Miðill Bush Kerry Birt FOX News 47% 45% 30. október Newsweek 50% 44% 30. október Reuters/Zogby 46% 47% 30. október TIPP 46% 44% 30. október ABC/Wash Post 50% 47% 30. október Myndbandsupptaka bin Ladens: Óttast um nýja árás
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.