Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 21
Café-17
Starfskraftur óskast á kaffihúsið
Café 17, Laugavegi 91
Vinnutími er 12-18. Viðkomandi þarf að geta
byrjað strax og vera eldri en 30 ára.
Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu
af þjónustustörfum.
Nánari upplýsingar veitir Helga í síma 512 1783 milli kl. 9 og 12.
Umsóknum skal skilað á helga@ntc.is eða á
skrifstofu NTC á Laugavegi 91.
Umsóknarfrestur er til 3. nóvember.
Smiðir - Selfoss
Vantar smiði til starfa strax.
Hafið samband við Baldvin í síma 822-4431.
Mosfellsbær
Leikskólinn Reykjakot
Starfsfólk óskast
Leikskólinn Reykjakot auglýsir eftir leikskóla-
kennurum og öðru starfsfólki til starfa við skól-
ann sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Um er að ræða stöðu deildarstjóra og annars
starfsfólks. Einnig auglýsum við eftir þroska-
þjálfa eða starfsmanni með þekkingu á atferlis-
þjálfun til að sjá um atferlisþjálfun.
Kjör eru skv. samningum Félags leikskólakenn-
ara og Stamos.
Nánari upplýsingar gefa Gyða Vigfúsdóttir leik-
skólastjóri eða Herdís Kjartansdóttir aðstoðar-
leikskólastjóri í símum 5668606 og 8916609
Leikskólastjóri
Þjónustustarf
Ef þú ert einstaklingur sem hefur áhuga á að
starfa með samhentum hóp starfsmanna við
sölu- og þjónustustörf viljum við gjarnan fá þig
til starfa með okkur við Shellstöðina á Lauga-
vegi. Við erum að leita að glaðværum og dug-
miklum einstaklingum til að sinna þjónustu við
bílinn, þrifum á plani, vörumóttöku og almennri
þjónustu við viðskiptavini.
Starfið er unnið á vöktum og veitir Viðar Vé-
steinsson stöðvarstjóri nánari upplýsingar
í síma 561-9927.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálg-
ast á heimasíðu skeljungs, www.skelj-
ungur.is og í móttöku Skeljungs að
Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík.
Ráðgjafi óskast
Tryggingafélagið Allianz óskar eftir að ráða kraft-
mikla ráðgjarfa til starfa. Allianz er rótgróið trygg-
ingafélag, yfir 100 ára gamallt og er eitt stærsta
og umsvifamesta tryggingafélag sem starfandi er í
heiminum í dag.
Um er að ræða eina til tvær stöður þar sem réttur
einstaklingur getur stjórnað vinnutíma sínum
sjálfur og sniðið tekjur eftir vexti.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu og ánægju af
sölumennsku, hafa góða samstarfs- og samskipta-
hæfileika, og reynslu í samningatækni.
Umsóknir um starfið skal skila á skrifstofu Allianz,
Skaftahlíð 24 Reykjavík eða á tölvupósti á
netfangið agust@allianz.is
Starfsmaður í tölvudeild (vélbúnaðarþjónusta)
Verksvið
• Dagleg notendaþjónusta við starfsmenn, tengd vél- og hugbúnaði
• Rekstur á MS & Iseries netþjónum
• Rekstur á MS Exchange netþjóni, vírusvarnir og þjónusta við eldvegg
Hæfniskröfur
• Góð reynsla (lágmark 3 ár) og þekking á tölvukerfum fjármálafyrirtækja
• Menntun á sviði tölvumála
• Góð tök á íslensku eða öðru Norðurlandamáli auk ensku eru skilyrði.
Þekking á frönsku eða þýsku er kostur
• Þjónustulund
• Sjálfstæð og markviss vinnubrögð
Lögfræðingur
Verksvið
• Almenn lögfræðileg ráðgjöf við öll svið bankans, sérstaklega þó sérbanka-
þjónustu og lánadeild
• Umsjón með upplýsingagjöf til fjármálaeftirlits og ráðgjöf tengd lögum og
reglum um fjármálafyrirtæki í Lúxemborg
• Ábyrgð á samskiptum við utanaðkomandi lögfræðiráðgjafa
• Regluvörður
• Ýmis verkefni tengd þjónustu bankans og vöruþróun
Hæfniskröfur
• 3–5 ára reynsla á sviði laga um fjármálafyrirtæki
• Háskólapróf í lögfræði (íslenskt eða erlent). Framhaldsmenntun frá
erlendum háskóla er æskileg
• Góð tök á íslensku eða öðru norðurlandamáli auk ensku er skilyrði.
Þekking á frönsku eða þýsku er kostur
• Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Þjónustufulltrúi í sérbankaþjónustu
Verksvið
• Tengsl við viðskiptavini
• Tilfallandi verkefni og aðstoð við starfsmenn í sérbankaþjónustu
• Sala og markaðssetning á þjónustu bankans
• Eignastýring
Hæfniskröfur
• 3-5 ára reynsla í þjónustu og/eða sölu í bankastarfsemi
• Sjálfstæði, öguð vinnubrögð og skapandi hugsun
• Góð tök á íslensku eða öðru norðurlandamáli auk ensku er skilyrði.
Þekking á frönsku eða þýsku er kostur
Landsbanki Luxembourg S.A. er dótturfélag
Landsbankans. Markmið Landsbankans er að
vera alhliða fjármálafyrirtæki sem veitir
framúrskarandi fjármálaþjónustu í alþjóðlegu
umhverfi. Í gegnum Landsbanka Luxembourg
S.A. býður bankinn efnuðum einstaklingum
og fyrirtækjum alhliða sérbankaþjónustu.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
63
33
10
/2
00
4
Landsbanki Luxembourg S.A.
Vegna vaxandi umsvifa í sérbankaþjónustu og lánastarfsemi
leitar Landsbanki Luxembourg S.A. nú eftir því að ráða
starfsmenn í eftirtalin störf.
Vinsamlega sendið umsókn ásamt
ferilskrá til atlia@landsbanki.is
fyrir 10. nóvember nk.
Allar nánari upplýsingar má finna á
vefnum www.landsbanki.lu og hjá
Gunnari Thoroddsen, bankastjóra
Landsbanka Luxembourg S.A.,
í tölvupósti: gunnar@landsbanki.lu
og Atla Atlasyni, framkvæmdastjóra
Starfsmannasviðs Landsbankans,
í tölvupósti: atlia@landsbanki.is
eða í síma 410 7904.
Kvikmyndamiðstöð Íslands
auglýsir störf kvikmyndaráðgjafa
laus til umsóknar.
Um er að ræða ráðgjafa fyrir stutt-og heimildar-
myndir.
Kvikmyndaráðgjafar skulu hafa þekkingu eða
reynslu á sviði kvikmynda og mega ekki hafa hags-
muna að gæta varðandi úthlutun eða gegna störf-
um utan Kvikmyndamiðstöðvar sem tengjast ís-
lenskri kvikmyndagerð meðan á ráðningartíma
stendur. Kvikmyndaráðgjafar meta þær umsóknir
sem berast til Kvikmyndamiðstöðvar auk þess að
fylgjast með framvindu verkefna.
Ráðningartími er allt að tveimur árum í senn.
Um hlutastarf getur verið að ræða.
Launakjör eru samkvæmt launakjörum opinberra
starfsmanna. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Skriflegum umsóknum óskast skilað til Kvikmynda-
miðstöðvar Íslands, Túngötu 14, 101 Reykjavík eigi
síðar en 26. nóvember 2004.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Laufey Guð-
jónsdóttir forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar í
síma 562 3580.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
3
ATVINNA