Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 14
Á morgun rennur út umsóknar- frestur um Eyrarrósina sem er viðurkenning fyrir afburða menningarverkefni á lands- byggðinni. Listahátíð Reykjavík- ur, ásamt Byggðastofnun og Flugfélagi Reykjavíkur, stendur fyrir viðurkenningunni og munu þrjú verkefni verða tilnefnd og að lokum eitt þeirra verðlaunað. „Aðstandendum verkefnanna þriggja sem verða tilnefnd verð- ur boðið til Bessastaða þar sem tilkynnt verður um verðlaunin og fær það verkefni sem hlýtur Eyrarrósina eina og hálfa milljóna króna,“ segir Þórunn Sigurðardóttir framkvæmda- stjóri Listahátíðar í Reykjavík. „Þetta er hugsað fyrir ýmis kon- ar verkefni sem komin eru af stað, því skilyrði er sett fyrir því að verkefnin hafi sannað sig á einhvern hátt og það má segja að með þessum hætti séum við að vekja athygli á því merka menn- ingarstarfi sem er unnið um allt land,“ segir Þórunn og tekur það fram að verkefnið sem hlýtur Eyrarrósina verður sérstaklega kynnt í tengslum við Listahátíð í Reykjavík, þó svo að það þurfi ekki að koma til Reykjavíkur. Allar upplýsingar um hvernig umsókninni skal háttað er að finna á vefsíðunni listahatid.is. ■ Í dag eru 49 ár síðan þingmaður- inn og Hafnfirðingurinn Guð- mundur Árni Stefánsson dró fyrsta andardráttinn meðal manna. í dag er líka síðasti af- mælisdagurinn sem Guðmundur Árni getur sagst vera fjörutíu og eitthvað. „Það er umhugsunarvert, en það er með mig eins og aðra að þegar maður var ungur fannst manni þetta alveg ógnaraldur. Tíminn hefur svo þau mildandi áhrif á hugann að hjálpa manni að aðlagast öllum kringumstæð- um og gera hlutina jákvæða og skemmtilega, eins og lífið sjálft er. Hvert aldursskeið hefur sinn sjarma og sem betur fer þarf maður ekki að sættast við það, því það gerist af sjálfu sér,“ segir Guðmundur Árni bjartri ánægjuröddu. Bætir við að hann hafi engin plön um ofurhuga- verk, eins og fallhlífastökk, fyrir fimmtugsafmælið. „Ég þarf aldrei að ákveða slíkt fyrirfram. Er yfirleitt óhræddur við að takast á við hlutina og læt hverj- um degi nægja sína þjáningu og gleði.“ Gleðin verður við völd hjá Guðmundi Árna í dag þegar hann býður sínum nánustu í árvisst kaffisamsæti. Og stórafmæli er á döfinni á næsta ári. Segir þó vandamál að nefna óskagjöfina, enda langi hann í alltof dýrar gjafir. „Ætli ég fái ekki haust- hanskana í afmælisgjöf; ég týni þeim jafnharðan. Það er dæmi- gerð og árviss gjöf því afmælið mitt ber upp á þeim árstíma.“ Þegar Guðmundur Árni er spurður hvað hann ætli sér að sitja lengi á þingi segir hann þá ákvörðun ekki í sínum höndum. „Maður er kosinn til fjögurra ára í senn og getur ekki ákveðið ævi sína þar. Ég hef verið í pólitík í tuttugu ár; alltaf fjögur ár í senn. Fyrst í bæjarpólitík, þá bæjar- stjóri í átta ár og þingmaður síð- ustu ellefu árin. Tímabilið er allt í fjögurra ára skömmtum og kjósendur ákveða framhaldið. Ég hef brennandi áhuga á stjórn- málum og hann hefur ekki minnkað með árunum. Svo stytt- ist alltaf tíminn í það að við jafn- aðarmenn tökum við stjórn landsmála og ég er til í þann slag. Get sagt með sanni að lang- ur vegur er frá því að ég sé far- inn að hugsa um eftirlaun þegar ég hugsa til framtíðar.“ Og viðurkennir að langa aftur í ráðherrastól. „Ég væri að plata ef ég segði ekki já við því. Allir sem eru í pólitík vilja koma mál- um þannig fyrir að þeir hafi áhrif. Ráðherrastóllinn er ein leið til þess.“ thordis@frettabladid.is 14 31. október 2004 SUNNUDAGUR PETER JACKSON Leikstjóri er 43 ára í dag. Ekki farinn að hugsa um eftirlaun GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON ÞINGMAÐUR ER 49 ÁRA Í DAG: „Draumurinn er sá að hafa algert frelsi til að gera það sem mig langar til án þess að hafa áhyggjur af fjármagni.“ Draumurinn rættist þegar hann fékk að gera Hringadróttinssögu með nægilegu fjármagni. timamot@frettabladid.is AFMÆLI Pétur Einarsson leikari er 64 ára. Stefán Baxter er 36 ára. ANDLÁT Jóhanna Ásgeirsdóttir Barónsstíg 31, lést föstudaginn 29. október. AFMÆLISDRENGURINN GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNSSON Í dag hafa mælst 49 ár af ævi hans. Hann viðurkennir að langa aftur í ráðherrastól þegar jafnaðarmenn taka við landsmálunum. Harry Houdini, einn frægasti töframaður allra tíma, lést á spít- ala í Detroit á þessum degi árið 1926 þá 52 ára að aldri. Hann hafði, tólf dögum áður, talað við hóp nemenda eftir fyrirlestur sem hann hélt í Montreal og minntist á við þá hversu sterkir magavöðvar hans væru og hvað þeir þyldu ótrúlega föst högg. Skyndilega kýldi einn nemend- anna Houdini tvisvar í magann, sem kom töframanninum mjög að óvörum þannig að höggin sprengdu í honum botnlangann. Eftir atvikið kom hann fram í síð- asta sinn og í lestinni á leiðinni til Detroit veiktist hann mjög og var farið með hann beint á spít- ala. Þar fór hann beint í aðgerð sem bar lítinn árangur þar sem botnlanginn hafði náð að eitra út frá sér. Houdini var frægur fyrir að sleppa úr ómögulegum að- stæðum og í einu atriðinu var hann bundinn og læstur inni í járnkistu sem var sökkt ofan í vatnstank og hent út úr báti. Hann hafði mikinn áhuga á yfir- náttúrulegum málum og var sannfærður um að hægt væri að ná sambandi við hina dauðu og samdi við vini sína og konu að sá sem væri fyrstur til að deyja myndi reyna að hafa samband að handan. Konan hans beið eftir skilaboðum frá honum eftir dauða hans, en tilkynnti að það hefði ekki gengið eftir skömmu áður en hún sjálf dó. 31. OKTÓBER 1926 Houdini töframaðurinn frægi deyr eftir áverka frá ungum nemenda. ÞETTA GERÐIST [ BLAÐBERI VIKUNNAR ] BENEDIKT ODDSSON MERKISATBURÐIR 1922 Benito Mussolini verður forseti Ítalíu. 1931 Strætisvagnar Reykjavíkur hófu akstur. Fyrsta leiðin var Lækjartorg – Kleppur. 1936 Útgáfa Þjóviljans hófst. Hann studdi Kommúnista- flokkinn og síðar Sósíalista- flokkinn og Alþýðubanda- lagið. 1952 Bandaríkin sprengja fyrstu vetnissprengjuna. 1959 Lee Harvey Oswald tilkynn- ir að hann muni aldrei aftur snúa til Bandaríkj- anna. Hann var þá staddur í Moskvu í Rússlandi. 1961 Í Sovétríkjunum var lík Jósefs Stalíns fjarlægt úr gröf Leníns. 1984 Forseti Indlands, Indira Gandhi, var myrt á þessum degi skammt frá heimili sín. Sonur hennar Rajiv tók við völdum. Töframaðurinn Houdini deyr Rúnar Geirmundsson Sigur›ur Rúnarsson Elís Rúnarsson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Símar 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Þegar andlát ber að ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR Eyrarrósin er viðurkenning ætluð afburða menningarverk- efnum á landsbyggðinni. Menningarstyrkur á landsbyggðinni Mistök voru gerð í dánar- og jarðarfarartilkynningu Stefáns H.Ingólfssonar auk þess sem rangur tími var tilgreindur á jarðarförinni. Við biðjum fjöl- skyldu Stefáns og alla aðstand- endur innilegrar velvirðingar á þessum leiðu mistökum. ■ LEIÐRÉTTING Tilkynningar um andlát og jarðarfarir eru velkomnar á síður Fréttablaðsins. Sími: 550 5000 BENEDIKT ODDSSON er blaðberi vik- unnar. Hann þykir vera til fyrirmyndar í starfi. Hvað heitir blaðberinn ? Benedikt Oddsson. Hvað ertu búinn að bera út lengi? Ca. 1.ár. Hvað ertu með í vasan- um? MP3-spilara, síma, lykla og tyggjó. Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? Vera með vinum. Hvert er þitt mottó? Stay cool ;)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.