Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 2
2 31. október 2004 SUNNUDAGUR
Áhættumat um eldgos í Mýrdalsjökli:
Flytja þyrfti hluta íbúa í burtu
ELDGOS Gerð áhættumats og
áhættugreiningar vegna eldgosa
og hlaupa til norðurs, vesturs og
suðurs frá Eyjafjallajökli og
vesturhluta Mýrdalsjökuls er
lokið. Í júlí á síðasta ári ákvað
ríkisstjórnin að tillögu Björns
Bjarnasonar, dóms- og kirkju-
málaráðherra, að slíkt áhættu-
mat yrði unnið og var hafist
handa við það sumarið 2003. Í
gær var haldinn fundur með
íbúum Vestur-Skaftafellssýslu
og Rangárvallasýslu þar sem
niðurstöður áhættumatsins voru
kynntar.
„Rannsakað var hvað gæti
gerst ef gysi í Mýrdalsjökli og
h l a u p i ð
rynni niður
Markarfljót
í staðinn
fyrir niður
M ý r d a l s -
sand eins og
gerst hefur í
þau skipti
sem gos hef-
ur átt sér
stað. Þá
myndi vatn
flæða yfir
L a n d e y j a r
og vestur í
Þykkvabæ. Í
k j ö l f a r i ð
voru viðbragðsáætlanir unnar
en í þeim felst að flytja þurfi
hluta íbúa svæðisins í burtu ef
gos verður með þessum hætti,“
segir Víðir Reynisson, deildar-
stjóri almannavarnadeildar rík-
islögreglustjóra.
„Heimamenn taka þessu með
ró og sýna mikinn áhuga á við-
bragðsáætlunum. Við kynntum
fyrir fólki hvernig það ætti að
skilja við heimili sín og hvernig
flutningur frá svæðinu myndi
fara fram,“ segir Víðir en
áhættumatið er aðeins bráða-
birgðarskýrsla og verður full-
unninni skýrslu skilað í árslok.
- lkg
Einbeittur brotavilji
olíuforstjóranna
Samkeppnisráð segir í niðurstöðu sinni að forstjórar olíufélaganna hafi
haldið reglubundna samráðsfundi. Full vitneskja hafi verið um það inn-
an fyrirtækjanna að háttsemin væri ólögleg.
VERÐSAMRÁÐ Æðstu stjórnendur
olíufélaganna áttu í markvissu
og skipulögðu samráði að því er
fram kemur í niðurstöðu sam-
keppnisráðs. Var félögunum gert
að greiða 2,6 milljarða króna í
sektir og telur Samkeppnisstofn-
un að samfélagsskaði af verð-
samráði félaganna nemi rúmum
40 milljörðum króna.
Í niðurstöðu samkeppnisráðs
segir að forstjórarnir hafi haldið
reglubundna fundi þar sem fjall-
að hafi verið um stærri mál í
samráði olíufélaganna. Forstjór-
arnir hafi síðan falið undirmönn-
um sínum að framkvæma það
sem ákveðið var á forstjórafund-
unum og upplýst hvern annan ef
undirmenn þeirra reyndust
ósamvinnuþýðir í samráðinu.
Þeir hafi beitt hvern annan
hótunum til að draga úr sam-
keppni milli félaganna, líkt og
þegar Olís ætlaði að setja upp af-
greiðslu á Bíldudal. Geir Magn-
ússon, forstjóri Essó, sendi
Einari Benediktssyni, forstjóra
Olís tölvupóst þar sem sagði
meðal annars: „Mér finnst að þú
ættir að athuga hvort þetta er
réttur leikur hjá ykkur. Við mun-
um að sjálfsögðu fara inn á staði
hjá ykkur til að jafna leikinn.
Boltinn er því hjá þér.“
Í niðurstöðu samkeppnisráðs
eru nefnd dæmi sem eiga að
sýna að olíufélögin hafi haft um
það fulla vitneskju að háttsemi
þeirra væri ólögleg. Rætt hafi
verið um það innan Skeljungs að
tiltekin markaðsskipting væri
„afar vel varðveitt leyndarmál,
af eðlilegum ástæðum.“ Tekið
hafi verið saman skjal hjá
Skjeljungi um samráð við hin fé-
lögin um gerð tilboða og mark-
aðsskiptingu. Þar hafi komið
fram að slíkt samráð væri litið
hornauga af löggjafanum. Þá
hafi forstjóri Olís talið það „óþol-
andi glannaskap“ að Skeljungur
sendi með símbréfi skjal varð-
andi samráð um gerð tilboða og
sagt að slík gögn yrði að „af-
henda yfir borð“ eða boðsenda.
ghg@frettabladid.is
Sjö handteknir
í Reykjavík:
Fíkniefni og
þjófnaður
FÍKNIEFNI Sjö manns voru hand-
teknir grunaðir um fíkniefna-
neyslu í húsi í austurhluta borg-
arinnar um tíu leytið á föstu-
dagskvöldið.
Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík var lagt hald á fíkni-
efni í húsinu og einnig muni sem
lögreglan telur vera þýfi.
Sjömenningarnir fengu að gista
fangageymslu lögreglunnar á
föstudagsnóttina en voru yfir-
heyrðir í gær.
Lögreglan mun vera að rann-
saka málið. ■
Innbrot í Reykjavík:
Þjófum veitt
eftirför
INNBROT Brotist var inn í raftækja-
verslun í vesturhluta borgarinnar
í kringum miðnætti í fyrrinótt.
Lögreglan í Reykjavík sá tvo
menn koma út úr versluninni og
höfðu þeir stolið átta skjávörpum
þaðan. Mennirnir tveir voru á
stolinni bifreið og veitti lögreglan
þeim eftirför. Að lokum keyrðu
mennirnir inn í garð og lögreglan
handtók þá. Að sögn lögreglu er
málið í rannsókn en mennirnir
voru yfirheyrðir í gær. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
„Ég á alltaf eftir að fara í förðun-
ina, þekki mjög vel til þess geira
fyrirtækisins, frá öðrum endanum.
Hef setið í förðunarstólnum oftar
en ég kæri mig um að muna.“
Páll Magnússon er nýráðinn sjónvarpsstjóri Stöðv-
ar 2. Þetta var í sjötta sinn sem Páll var ráðinn til
nýs starfa hjá Norðurljósum.
SPURNING DAGSINS
Páll, við hvað ætlar þú að starfa næst
á Stöð 2?
Flutningabíll valt í
Grýtubakkahreppi:
Ökumaður
ómeiddur
BÍLVELTA Flutningabíll með tengi-
vagn valt skammt frá bænum
Skarði í Dalsmynni í Grýtubakka-
hreppi á ellefta tímanum í gær.
Flutningabíllinn var á leið austur á
firði með tuttugu tonn af ófrosnum
fiski.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
gaf vegkantur sig með þeim afleið-
ingum að flutningabíllinn fór út af
veginum og valt. Ökumaðurinn var
einn í bílnum og slapp ómeiddur.
Enn var verið að vinna í því um
miðjan daginn í gær að ná flutn-
ingabílnum upp á veginn og hreinsa
upp fiskinn. Eigendur farms og bif-
reiðar fengu hjálp frá Björgunar-
sveitinni í bænum við það. - lkg
Pútín Rússlandsforseti:
Bætur til
Tsjetsjena
RÚSSLAND, AP Pútín rússlandsfor-
seti hvatti ríkisstjórn sína í gær
til að hraða af-
greiðslu bóta-
greiðslna til
Tsjetsjena sem
misst hafa heim-
ili sín vegna
óeirða. Einnig
vildi hann að
lögð yrði enn
frekari áhersla á
að byggja upp
e f n a h a g
Tsjetsjeníu.
Pútín sagði að
ef Rússar reiddu
fram fé til upp-
byggingar í landinu myndi trú
manna á von um frið aukast. Nú
þegar hafa tæplega þrjátíu af fjöru-
tíu þúsund manns fengið bætur
vegna heimila sinna en talið er að
rúmlega sextíu þúsund til viðbótar
eigi rétt á bótum. ■
Pantaðu nýjan
og glæsilegan ferðabækling.
Ítarlegri upplýsingar um verðdæmi á www.kuoni.is
Holtasmára 1 • 201 Kópavogi • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.kuoni.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Bæklingar á völdum
Esso-stöðvum.
Páskaferðir
Vertu tímanlega á ferðinni
Örfá dæmi* úr glæsilegum páskaferðum Kuoni
Tæland - spennandi hringferðir og
óviðjafnanlegt strandfrí.
Verð frá 102.850 kr. í 2 vikur
Bali – draumaeyjan
Verð frá 135.310 kr. í 2 vikur
Egyptaland - Nílarsigling og frábærar
sólarstrendur.
Verð frá 95.800 kr. í viku
Kenía – safaríferðir og gullnar sandstrendur.
Verð frá 191.360 kr. í 12 daga
Kína – Beijing, Shanghai og fjölbreyttar
hringferðir. Verð frá 106.800 kr. í viku
Indland – Goa og litríkt Suður-Indland.
Verð frá 183.700 kr. í 2 vikur
Kúba – Verð frá 145.950 kr. í 2 vikur
*Verdæmi m.v. 2 í herb., gengi 21.
okt. og sérfargjald Langfer›a til
Danmerkur (takmarka›
sætaframbo›).
VÍÐIR REYNISSON
Deildarstjóri almanna-
varnadeildar
ríkislögreglustjóra.
VLADIMIR PÚTÍN
Um hundrað
þúsund Tsjetsjena
gætu fengið bætur
frá Rússum.
Frístundaheimili Reykjavíkurborgar:
Vetrarfrí afturkallað
SKÓLAR Fyrirhuguðu vetrarfríi
starfsfólks frístundaheimila
Reykjavíkurborgar sem átti að
vera í næstu viku verður að öllum
líkindum frestað og skóladag-
heimilin verða opin, að sögn Önnu
Kristjánsdóttur, borgarfulltrúa R-
listans. Á föstudag var send út til-
kynning til foreldra um að frí-
stundaheimilin yrðu lokuð vegna
starfsdaga á miðvikudag til föstu-
dags í næstu viku, en þá átti að
vera vetrarfrí í grunnskólum
borgarinnar. Því hefur hins vegar
verið aflýst.
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, verk-
efnisstjóri á æskulýðssviði ÍTR
og umsjónarmaður frístunda-
heimilanna, segir að fundur verði
haldinn um málið á mánudaginn
þar sem rætt verður um hvort frí-
ið verði afturkallað. „Vilji er fyrir
því hjá borginni að frístunda-
heimilin verði opin og býst ég við
að það verði niðurstaðan. Við
munum samt sem áður gera það
sem hægt er til að koma á móts
við þá starfsmenn sem hafa ráð-
stafað þessum frídögum í annað,“
segir Sigrún.
Anna segir að ekki sé víst að
starfsemi frístundaheimilanna
verði með hefðbundnu sniði en
allt kapp verði lagt á að halda úti
starfsemi. „Við erum að reyna að
leysa þetta í samstarfi við skóla-
stjórnendur og hugsanlega munu
skólarnir koma til móts við okkur
með því að bjóða aðstoð skóla-
liða,“ segir Anna.
- sda
BÖRN Á LEIÐ TIL SKÓLA
Hætt verður við vetrarfrí hjá skóladagheimilum Reykjavíkurborgar sem átti að vera í næstu viku.
EINAR BENEDIKTSSON
Forstjóri Olís: „...standa saman um að láta
viðskiptavini ekki komast upp með að
ljúga viðskiptatilboðum upp á okkur.“
GEIR MAGNÚSSON
Fyrrverandi forstjóri Essó: „Við munum að
sjálfsögðu fara inn á staði hjá ykkur til að
jafna leikinn. Boltinn er því hjá þér.“
KRISTINN BJÖRNSSON
Fyrrverandi forstjóri Skeljungs tók saman
minnisblaðið „Viðræður olíufélaganna“ og
lýsti tillögum um viðræðugrundvöll.
Falin sprengiefni í Írak:
Öryggi ekki
tryggt
ÍRAK, AP Peter Bouckaert, Starfs-
maður mannréttindasamtakanna
Human Rights Watch sagði í gær að
hann hafi tilkynnt bandarískum
hermönnum um falinn geymslustað
í borginni Baqouba, 55 kílómetrum
norðaustur af Bagdad, í maí á síð-
asta ári. Geymslustaðurinn innihélt
hundrað kjarnaodda. Hermennirnir
gerðu ekkert til að tryggja öryggi
staðarins í þá tíu daga sem Boucka-
ert dvaldist þar. Bouckaert ljós-
myndaði kjarnaoddana en banda-
rískir embættismenn í Bagdad
sýndu þeim engan áhuga. ■
ELDUR Í RUSLAGÁM Tilkynnt var
um eld í ruslagám við Kleppsveg
um miðjan dag í gær. Málið er í
rannsókn lögreglunnar en ekki er
vitað hvað olli eldinum. Engar
aðrar skemmdir urðu á eignum.
INNBROT Í BIFREIÐAR Tilkynnt
var um sex innbrot í bíla í
Reykjavík í gærdag og verðmæt-
um stolið. Lögreglan vill brýna
fyrir fólki að geyma ekki verð-
mæti í bílum.