Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 54
Fullt nafn: Kristján Ingi Gunnarsson. Hvernig ertu núna? Þéttur. Hæð: 182 cm. Starf: Dagskrárgerðarmaður og tóm- stundafulltrúi. Stjörnumerki: Tvíburi. Hjúskaparstaða: Ég er í sambúð. Hvaðan ertu? Ég er úr Reykjavík, Raufar- höfn, Aðalvík, Akureyri og vesturbænum í Kópavogi. En þó aðallega vesturbænum í Kópavogi. Helsta afrek: Það að komast í 100 plús. Uppáhaldsútvarpsþáttur: Tvíhöfði. Uppáhaldsmatur: Jólasteikin hjá mömmu og pabba. Uppáhaldsveitingastaður: Vegamót, ég fer alltaf út að borða þar. Uppáhaldsborg: Liverpool. Mestu vonbrigði lífsins: Að komast ekki úr 100 plús. Hobbí: Bara eitthvað skemmtilegt. Viltu vinna milljón? Já já, ég slæ ekki hendinni á móti svoleiðis. Jeppi eða sportbíll: Sportlegur jeppi. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði að verða stærri. Skelfilegasta lífsreynslan: Þegar ég varð skyndilega lofthræddur er ég gekk yfir Heljarkamb í sumar og skreið í gegn- um rassgat djöfulsins. Hver er fyndnastur? Kiddi Flame. Hver er kynþokkafyllst? Það er að sjálf- sögðu hún Sigrún Inga, en verður maður ekki alltaf að taka það líka fram að mamma sé fallegust? Trúir þú á drauga? Já, ég er skíthrædd- ur við þá. Hvaða dýr vildirðu helst vera? Haförn. Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Rotta. Áttu gæludýr? Já ég er svo heppinn að vera búinn að koma mér upp stórglæsi- legu fiskabúri sem tekur um 30 lítra af vatni. Þar eru nokkur pör af mismun- andi tegundum sem eru ákaflega falleg. Ég var reyndar með lítinn há- karl líka en hann dó. Hvar líður þér best? það fer eftir skapinu. Oftast er það nú bara heima í rólegheitunum en líka í góðra vina hópi Næst á dagskrá: Óp vetrarins. ■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Skeljungur. Michael Badnarik. Virðulegir Forsetar. 34 31. október 2004 SUNNUDAGUR Ætli það sé tilviljun að besta fisk- búð bæjarins sé staðsett í Skip- holtinu? Mikið sem götunafnið hæfir fullkomlega búðarborði af þeirri tegund sem Magnús Sig- urðsson fisksali hefur staðið við heil 35 ár af ævi sinni. Innan um glænýja, starandi ýsu í kæliborð- inu og lekker box af hamsatólg í hillum, hangir innrömmuð mynd af sjónvarpskokkinum Jamie Oli- ver standandi með Magnúsi þar sem tíminn stendur í stað á gólfi fiskbúðarinnar Hafrúnar. „La Primavera verslar hér og Jamie vildi fá að sjá ferskan fisk, en ekki fisk í sósum. Hann er al- farið á móti því,“ segir Magnús sem gefur Jamie einkunnina „al- vöru maður í þessu“ þegar kemur að fiski. „Hann ætlaði ekkert að stoppa en var svo í rúman klukkutíma að handleika fiskinn og afgreiddi nokkra viðskiptavini að gamni sínu. Jamie er vanur því heima í Englandi að ferskasti fiskurinn sé fimm daga gamall, en hér er hann beint upp úr sjónum. Þannig vill Jamie hafa það í eldamennskunni og ætlar að koma aftur til að vekja Íslendinga til umhugsunar um dýrmæti þessarar fersku fæðu.“ Magnús er með hafið í augun- um; fæddur og uppalinn á Hell- issandi. Var til sjós á aflamestu bátunum áður en hann kom til Reykjavíkur í fiskbúðarævintýrið. En nú er nóg komið, finnst honum. „Ég fer að hætta bráðlega og mjög sáttur við þá ákvörðun. Það er kominn tími til að gefa yngri mönnum tækifæri á rekstrinum og því fylgir engin eftirsjá hjá mér. Ég er bara búinn að fá nóg,“ segir hann með staðfestu; þeirri sömu og hann hefur beitt þegar kemur að afþökkun debet- og kreditkorta fyrir soðninguna. „Það sparar mér heilan mann í vinnu að vera ekki með kort. Af- greiðslan tekur mun lengri tíma og ekki hægt að standa í þessu með blautar og skítugar hendur. Kort eru óþarfa milliliður sem maður borgar stórfé fyrir. For- stjórar kortanna fá eina og hálfa milljón á mánuði og ég tek ekki þátt í svoleiðis leikaraskap og rugli.“ Hvað tekur við eftir Hafrúnu veit enginn fyrir víst, en Magnús segist allt eins fara aftur til sjós. Breiðafjörðurinn kallar, en alla tíð hefur hann selt nýveiddan fisk úr sjónum milli Snæfellsness og Vestfjarða. „Það er mjög mikill munur á fiski eftir því hvaðan hann er veiddur. Á Breiðafirði er fiskurinn á meira dýpi og straum- arnir þyngri en annars staðar. Breiðfirskur fiskur er því besti fiskurinn og þaðan hef ég keypt hann af línubátum frá því ég byrj- aði þennan rekstur.“ Þar með er komin skýringin á hvers vegna Hafrún stendur upp úr og Magnús hefur staðið lengur en aðrir við fiskborð Reykvík- inga. Auðvitað vegna aflans úr Breiðafirði. thordis@frettabladid.is Miðnæturopnun verður í Pennan- um, Austurstræti í nótt, aðfara- nótt 1. nóvember, þegar sala á nýj- ustu bók Arnaldar Indriðasonar, Kleifarvatni, hefst. Bókin er þegar komin úr prent- un en þar sem salan hefst ekki fyrr en á mánudag verður fyrstu eintökunum raðað upp á bretti, það plastað inn og látið standa í anddyri verslunarinnar til að æsa hungrið upp í aðdáendum glæpa- söguhöfundarins. Kleifarvatn er áttunda bók Arnaldar. Síðasta bók hans, Bettý, seldist í um tólf þúsund eintökum fyrir síðustu jól og í nokkur þús- und eintökum í kilju. ■ Arnaldur í miðnætursölu ARNALDUR Á BRETTI Nýjasta bók Arnaldar verður á bretti fram á mánudag. Þá hefst salan. MAGNÚS SIGURÐSSON FISKSALI: HÆTTIR EFTIR 35 ÁR Í HAFRÚNU Breiðfirskur fiskur bestur ...fá þau fimmtán mannúðarfélög og það fólk sem safnaðist saman á Arnarhóli og hvatti til breyttra viðhorfa gegn ofbeldi og misrétti sem beint er gegn konum. HRÓSIÐ LENDIR Í VERSLUNUM BT 04 // 11 // 04 Eigðu myndina Í VINNING ER: SHREK 2 á DVD & VHS SHREK 2 tölvuleikir Aðrar DVD myndir og margt fleira. Sendu SMS skeytið BTL S2F á númerið 1900 og þú gætir unnið. Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi: Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb BT. SMS kostar 199 kr.spilaðu leikinn SMS LEIKUR Landsbanki Íslands hefur greinilegafundið taktinn í netheimum og var sig- ursæll þegar Íslensku vefverðlaunin voru afhent á föstudaginn. Vefur Lands- bankans var valinn besti vefur ársins og hlaut einnig verðlaun sem besti fyrir- tækjavefur ársins og sá vefur sem hefur besta viðmótið og útlitið. Vefverðlaunin hafa hingað til verið afhent samhliða ÍMARK verðlaununum en á þeirri hátíð verðlaunar aug- lýsingabransinn það sem hefur staðið upp úr með svokölluðum „lúðrum“. Vef- verðlaunin eru hins vegar litlar eftirmyndir af fartölv- um. Aðskilnaður vefverðlaunanna frá ÍMARK verðlaununum varð til þess að öllu færra var um fína drætti á föstudag- inn en undanfarin ár, en snjallir tækifær- isræðumenn á borð við Davíð Oddsson utanríkisráðherra, og Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra, hafa farið á kostum sem sérstakir ræðumenn á ÍMARK degin- um. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, heiðraði þó Íslensku vefverðlaunin með nærveru sinni og af- henti þau verðlaun sem ekki voru kostuð af fyrirtækjum úti í bæ. Valgerður ávarpaði samkomuna en fet-aði ekki í fótspor félaga sinna í ríkis- stjórninni og var ekki með neina tilburði til uppistands. Útvarpsmaðurinn gamal- reyndi Hallgrímur Thorsteinsson var kynnir á verðlaunaafhendingunni og þótti býsna skemmtilegur og einhverjir við- taddra töldu óhætt að fullyrða að hann hefði farið á almennum kostum. Léttleik- inn sveif því yfir vötnum og það er til marks um ágætt skopskyn íslensku vefakademíunnar að vefur leikarans og spaugarans Þorsteins Guðmundssonar var valinn besti einstaklingsvefurinn þetta árið. vefurinn thorsteinngudmundsson.is er sneisafullur af glensi og fíflagangi og er óneitanlega eins ólíkur sigurvegara síð- asta árs og hugsast getur en þá hlaut Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, verð- launin fyrir besta einstak- lingsvefinn. HIN HLIÐIN KRISTJÁNI INGA GUNNARSSYNI, EINUM UMSJÓNARMANNA UNGLINGAÞÁTTARINS ÓPS. KRISTJÁN INGI GUNNARSSON 18.06.80 Varð lofthræddur á Heljarkambi MAGNÚS SIGURÐSSON FISKSALI Í HAFRÚNU Hefur staðið í 35 ár við búðarborðið í Hafrúnu og selt afbragðs fisk úr Breiðafirði á diska Reykvíkinga. Á innfelldu myndinni má sjá Magnús ásamt sjónvarpskokkinum Jamie Oliver og fleirum í fiskbúðinni á dögunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.