Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 16
16 31. október 2004 SUNNUDAGUR P áll Steingrímsson kvikmynda-gerðarmaður fær heiðurs- verðlaun íslensku kvikmyndaaka- demíunnar í ár og er fyrsti starf- andi kvikmyndagerðarmaðurinn sem hlýtur heiðursverðlaunin. Hann segist vera þakklátur og stoltur vegna þessa heiðurs sem sér falli í skaut. Magnús Magnús- son fékk verðlaunin í fyrra en þeir Páll unnu saman að myndinni Örlagakyrrð (World of Solitude) sem tilnefnd er til Eddu-verð- launa í ár sem besta heimildar- myndin og Magnús fær sömuleið- is tilnefningu fyrir handritagerð myndarinnar. Páll ber mikið lof á samstarfsmann sinn. „Magnús Magnússon er magnaður persónu- leiki með mikla útgeislun, um leið og hann er gríðarlega fjölhæfur. Ég hef séð örfáa menn sem hrífa áheyrendur eins og hann gerir, menn sem vilja upplýsa aðra og fræða og gera það svona listavel. David Attenborough er til dæmis einn af þessum mönnum,“ segir Páll. Hættuleg stefna í stóriðjumálum Öræfakyrrð hlaut á dögunum verðlaun á kvikmyndahátíð í Pét- ursborg en Páll segir að þrátt fyrir það hafi myndin átt nokkuð erfitt uppdráttar: „Ég kynnti hana í Svíþjóð við litlar undir- tektir og sýndi hana síðan á Panaroma hér um daginn en sjónvarpsstöðvarnar hafa ekki enn staðfest kaup á henni. Fram- boð til sjónvarpsstöðvanna hér heima er orðið gríðarlega mikið og þar hafa menn ekkert meiri peninga en áður, nema síður sé. Útlendu stöðvarnar bera því við að þetta sé ekki náttúrulífsmynd, heldur fjallar hún um náttúru- vernd en einhvers staðar hlýtur að vera pláss fyrir þannig mynd. Ég veit að við erum að gera reg- invitleysu í virkjanamálum. Allt of miklu er til kostað og of miklu raskað fyrir hæpinn ágóða. Við erum bölvaðir glannar. Það hefði verið hægt að blása lífi í atvinnu- vegina án þess að kosta svo miklu til og án þess að spilla svo miklu. Magnús heldur því stíft fram í myndinni að hægt væri að gera þjóðgarð á heimsmæli- kvarða fyrir norðan jökul, fyrir tiltölulega lágar upphæðir miðað við þær fúlgur sem fara til virkj- anaframkvæmda og því sem þeim fylgir. Slíkur þjóðgarður gæti orðið tiltölulega jafn vel sóttur og þekktustu þjóðgarðar í Bandaríkjunum.“ Yndi af myndlist. Páll er 74 ára gamall og hóf ekki kvikmyndanám fyrr en hann var 43 ára. Hann lauk á sínum tíma námi í Kennaraskólanum og var einn vetur við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn og samtímis við nám í dönsku Listaakademíunni. „Ég hef ætíð haft yndi af myndlist og öllu sem höfðar til myndskyns. Kvikmyndagerðin kom sem beint framhald af málaralist og ljós- myndun. Ég var í Vestmannaeyj- um og þangað kom svissneskur kvikmyndagerðarmaður sem ég aðstoðaði við að komast á torsótta staði. Þegar hann kvaddi keypti ég af honum kvikmyndavélina. Árið eftir fór ég í New York Uni- versity til að læra kvikmynda- gerð. Það var mikill vandi á þeim tíma því ekki var hægt að fá nein námslán. Ég tók talsverða áhættu þegar ég fór vestur, fékk launa- laust leyfi frá kennslu en tók bankalán til að standa undir náms- dvölinni og setti þar með fjöl- skylduna í töluverða klemmu. En allt gekk þó upp vegna þess að ég fór mun hraðar í gegnum skólann en eðlilegt var. Þegar nemendur þóttust tilbúnir í áfangapróf létu þeir prófessorinn vita. Þetta nýtti ég mér nokkrum sinnum.“ Eftir rúmt ár sneri Páll heim til Íslands og fór að vinna fyrir Rík- issjónvarpið í hjáverkum. Stuttu seinna hófst eldgos í Heimaey. „Sem heimamaður fékk ég sér- stakt leyfi, ásamt félaga mínum Ernst Kettler til að mynda nær ótruflaður meðan gosið stóð. Mig minnir að ég hafi haft einhvern titil á bæjarskrifstofunni, líklega sem fréttafulltrúi til að afsaka dvöl mína í Eyjum. Við unnum á tímabili fyrir breska fréttastofu UPITN og höfðum eitthvert kaup fyrir, en fengum um leið ómetan- legt myndefni, til eigin nota, allt sem ekki fór í fréttaútsendingar. Inn í okkar samflot kom snemma Ásgeir Long og við gerðum mynd- ina Eldeyjan eða „Days of Destruction“ sem skilaði okkur gullverðlaunum á stórri kvik- myndahátíð í Atlanta í Bandaríkj- unum um svipað leyti og yfirlýst voru goslok, hálfu ári eftir að jörðin rifnaði í Heimaey.“ Páll stofnaði ásamt Ernst og Ásgeiri KVIK kvikmyndagerð sem gerði fyrstu sjónvarpsaug- lýsingarnar hér á landi. „Við höfð- um góða afkomu á þessum tíma en svo fékk ég nóg af auglýsinga- gerðinni, hún var hreinlega ekki spennandi lengur og ég sneri mér nær alfarið að gerð heimildar- mynda.“ Eltu spóann til Gambíu Páll hefur gert 32 heimildarmynd- ir á 15 árum. „Ég hef fólk í vinnu og ég held að ég sé fyrsti Íslend- ingurinn sem lifir eingöngu af heimildarmyndagerð. Það sem ráðið hefur úrslitum er að mynd- irnar hafa farið á markað erlend- is. Ef svo væri ekki þá hefði ég Sköpunin öll er mér ráðgáta Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður fær heiðursverðlaun Eddunnar í ár. Kolbrún Bergþórsdóttir ræddi við Pál um heimildarmyndagerð, ferðalög og stóriðjumál. PÁLL STEINGRÍMSSON „Ég veit að við erum að gera reginvitleysu í virkjanamálum. Allt of miklu er til kostað og of miklu raskað fyrir hæpinn ágóða. Við erum bölvaðir glannar. Það hefði verið hægt að blása lífi í atvinnuvegina án þess að kosta svo miklu til og án þess að spilla svo miklu.“ Sem heimamaður fékk ég sérstakt leyfi ásamt félaga mínum Ernst Kettler til að mynda nær ótruflaður meðan gosið stóð. Mig minnir að ég hafi haft einhvern titil á bæjar- skrifstofunni, líklega sem fréttafulltrúi til að afsaka dvöl mína í Eyjum. ,,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.