Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 48
Höfundar Litlu stúlkunnar með eldspýturnar mættu á frumsýninguna. Þeir segja sviðsetningu söngleiksins hafa verið æði misjafna í gegnum tíðina. Söngleikurinn „Litla stúlkanmeð eldspýturnar“ var frum- sýndur um síðustu helgi í Íslensku óperunni. Söngleikurinn, sem er eftir þá Keith Strachen, Jeremy Paul og Leslie Stewart, var fyrst sýndur í London árið 1975 og hefur verið sýndur mjög víða síð- an, meira að segja í Rússlandi, en yfirleitt í litlum leikhúsum, segja höfundarnir sem komu sérstak- lega til Íslands til þess að vera viðstaddir frumsýninguna á þessu yndislega fallega ævintýri. „Sýningin hér er sú besta sem við höfum séð,“ segja þeir. „Okk- ur finnst að loksins hafi verkið hitt listamenn sem skilja það, því sviðsetningarnar á þessu fallega ævintýri hafa verið æði misjafn- ar.“ Heilu hóparnir gengu út „Uppfærsla í Manchester fyrir nokkrum árum er sérlega eftir- minnileg,“ segir Leslie. „Áherslan var á allt það myrka og vonda og sýningin var eiginlega alveg svakaleg. Enda gekk fólk út – og ekki bara einn og einn. Á sýning- una höfðu nokkrir kennarar kom- ið með bekkina sína og þeir stóðu upp í miðri sýningu og sögðu hátt og snjallt „Komið börnin mín, við erum að fara!“ og hersingin mars- eraði út í miðju kafi. Næsta morg- un vakti ég strákana snemma og sagði að við skyldum drífa okkur sem fyrst burtu af hótelinu og burtu úr bænum, það væri komin gagnrýni. Hún var auðvitað alveg hroðaleg. Mönnum fannst þetta nú ekki bjartur jólaboðskapur.“ Það verður nú að teljast nokk- urt afrek að gera verk þremenn- inganna að myrkri og grimmri sýningu, því tónlistin er falleg og grípandi, minnir á fegurstu meló- díur Bítlanna og inn í þessa litlu sögu eftir H.C.Andersen hafa höf- undarnir fléttað skemmtilegum atriðum og kómískum persónum, svo úr verður mjög skýrt teiknað samfélag. „Upphaflega sáum við þetta fyrir okkur sem jólasýningu, því það er löng hefð fyrir því í Bret- landi að sýna ævintýri á jólum, sem við köllum „pantomime,“ en Litla stúlkan með eldspýturnar virtist ekki falla inn í þá skilgrein- ingu. Okkur var sagt að fólk vildi ekki sjá leikrit um svanga, litla stúlku sem deyr úr kulda á jól- unum. Hefðbundnu verkin eru Öskubuska og Gullbrá, eitthvað sem endar vel. Okkur fannst hins vegar skilaboðin í Litlu stúlkunni með eldspýturnar vera þörf áminning á hverjum jólum. H.C. Andersen skrifaði jú verkið til þess að minna okkur á hræsni millistéttarinnar og að vera góð við smælingjana.“ Verkið var frumsýnt í litlu leik- húsi, Orange Tree Theater, í Richmond. Leikhúsið var þá í einu litlu herbergi á 2. hæð og rúmaði um fimmtíu áhorfendur. Síðar meir vænkaðist hagur leikhússins og það reisti sér nýja byggingu á sama stað, hinum megin við göt- una. Þeir Keith og Leislie höfðu starfað í Orange Tree um hríð. Tvö flopp „Það er nú saga að segja frá því,“ segir Keith. „Við vorum nefnilega saman í rokkhljómsveit. Ég samdi tónlistina og Leslie textana. Svo einhvern daginn hittum við einn kunningja okkar sem sagði: „Þið ættuð að skrifa fyrir leikhús. Okkur fannst þetta fín hugmynd og skrifuðum eitt stykki sem var sett upp...,“ segir Keith og lítur sposkur á Leslie. „Það var The Lady or the Tiger, mjög skemmtilegt verk sem var unnið upp úr vinsælu, bandarísku ævintýri,“ segir Leslie. Við sett- um það upp í Orange Tree leikhús- inu og það varð strax ofboðslega vinsælt, sló aðsóknarmet og hvað eina, svo það var ákveðið að flytja það yfir í stærra leikhús, í Fortune Theater í West End. Þar var það sýnt í fimm vikur og var algert flopp. En við vorum ekki af baki dottnir og skrifuðum annað verk sem var alveg jafn vinsælt í Orange Tree og flutt yfir í West End. Þar var það sýnt í tvær vikur áður en það féll. Við vorum vissir um að þar með væri ferli okkar sem leikhússkríbentar lokið. En svo kynntumst við í kjölfarið leik- húsfólki.“ Á þessum tíma var Jeremy Paul virtur og vinsæll höfundur sem starfaði hjá BBC og hafði, meðal annars, gert jólaleikgerð að sögunni um litlu stúlkuna með eldspýturnar fyrir BBC2, sem Keith var mjög hrifinn af. Þegar Keith og Leslie lentu í vandræð- um með samsetninguna á söng- leiknum sínum um litlu stúlkuna, var þeim bent á að Jeremy gæti hugsanlega hjálpað þeim. Hann samþykkti og vinnan fór á fullt skrið. Samið inn á símsvara „Það má þó segja að sú vinna hafi verið dálítið sérkennileg,“ segir Jeremy. „því mig hafði alltaf langað til þess að semja tónlist. Ég sagðist skyldu hjálpa þeim ef ég mætti semja lag. Þeir samþykktu það. Ég fékk hugmynd að nokkrum stefjum sem ég var virkilega ánægður með en hafði auðvitað ekki hugmynd um hvað ætti að gera við, svo ég tók upp símtólið og hringdi í Keith. Á þeim tíma var tækniöldin ekki skollin á í öllu sínu veldi, þannig að hann bað mig að söngla þær inn á símsvarann sinn og það gerði ég. Það leið ekki langur tími þar til hann hringdi og var þá búinn að útsetja það – og hann spilaði lagið inn á minn símsvara. Allt vinnu- ferlið var mjög skemmtilegt og ólíkt því sem ég átti að venjast.“ „Frumsýningin gekk vel og aðrar sýningar sömuleiðis. Við fengum mikið lof fyrir tónlistina sem þótti grípandi og flott,“ segir Keith. Ég vissi að kórinn í upp- hafi væri dæmigerður „hittari“ og reyndi lengi vel að fá aðra tón- listarmenn til þess að hljóðrita það á jólaplötu, en ekkert gekk. Textinn fjallar auðvitað um það hvað millistéttinni er sama um allt og alla og það þótti ekki gott. Svo gerðist það að Cliff Richard tók þetta lag, tempraði eitthvað þennan boðskap, söng um allt það góða í mannfólkinu og gaf út sem jólalag. Það var vinsælasta jóla- lagið það árið – og reyndar var það eitt af þremur vinsælustu jólalögunum í heiminum á 9. ára- tugnum!“ Salt á sviðinu Þeir félagar minnast frumsýning- arinnar 1975 af mikilli gleði. „Við vorum með frábæran leikmynda- hönnuð sem fann upp á því að nota salt til þess að búa til snjó á svið- inu. Leikmyndin var því mjög flott fyrir augað. Hins vegar var eigandi leikhússins ekki eins lukkulegur, því saltið fór illa með sviðið og svo eyðilagði það alla skó. Þar fyrir utan var saltið nokkuð eldfimt og mesta mildi að við skyldum aldrei kveikja í áhorfendum. Enda var slökkvi- liðið í hverfinu stöðugt að senda eftirlitsmenn til okkar til þess að spyrja hvort það væri satt að við værum með salt á leiksviði þar sem við værum alltaf að kveikja á eldspýtum. Við sögðum það af og frá – og þeir sannreyndu það aldrei sjálfir.“ Þegar þremenningarnir eru spurðir hvort þeir hafi unnið eitt- hvað saman síðan, líta þeir hver á annan, hrista höfuðið og segja: „Nei, við höfum ekki einu sinni hist mikið síðan, bara talast við í síma. Enda hefur verið virkilega gaman að koma hingað til Íslands. Við erum yfir okkur hrifnir af uppfærslunni, sem er sú besta sem við höfum séð. Sviðið í Ís- lensku óperunni hentar verkinu mjög vel, því þar er ágætt hreyfi- rými. Allur dansinn og hreyfingin í sýningunni lyftir henni upp – að ekki sé talað um skilninginn á verkinu. Það hefur líka verið óendanlega gaman fyrir okkur að hittast aftur og rifja upp gamla og góða tíma. Það versta er að við erum bara hér í nokkra daga – en við erum allir ákveðnir í að koma aftur.“ sussa@frettabladid.is 28 31. október 2004 SUNNUDAGUR EKKI MISSA AF… Málverkasýningum Margrétar Sigfúsdóttur og Valerie Boyce í Hafnarborg í Hafnarfirði... Flutningi Óperukórsins og Karlakórsins Þrasta á Elía eftir Mendelssohn í Grafarvogskirkju klukkan 16.00... Nýrri endurreisn, tónleikum Caput í Listasafni Íslands, klukk- an 20.00 á mánudagskvöldið þar sem flutt verða verkin Guðrúnar- söngvar eftir Hauk Tómasson og Märchenbildereftir Hans Abra- hamsen... Hjá Háskólaútgáfunni er komin út Jónsbók – Lögbók Íslendinga hver samþykkt var á alþingi árið 1281 og endurnýjuð um miðja 14. öld en var fyrst prentuð árið 1578, í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenning- ar. Már Jónsson sagnfræðingur tók bókina saman. Á alþingi sumarið 1281 var samþykkt ný lögbók fyrir Íslendinga sem unnin var að frumkvæði Magnúsar Há- konarsonar konungs. Bókin var snemma nefnd Jóns- bók og segir til um flesta þætti íslensks samfélags. Lýst er þingsköpum, tekið á manndrápum, þjófnaði og öðrum afbrotum, tilgreindar erfðir karla sem kvenna og fjallað um samskipti leiguliða og jarðeigenda, búfjár- beit og verðlag, ásamt mörgu öðru. Jónsbók var notuð í heild fram á 18. öld og enn er tíundi hluti hennar í gildi. Um miðja 14. öld var bókin endurskoðuð með hliðsjón af nýrri konungsúrskurðum. Í þessari bók birtist sá texti hennar sem eftir það var notaður við dóma og er algengastur í handritum, en birtist jafnframt í prentaðri útgáfu verksins árið 1578. Kl. 20.00 Tíbrártónleikar í Salnum í Kópavogi. Píanóleikarinn Barry Snyder leikur Fantasíu í C-dúr eftir Haydn, Valses nobles et sentimentales eftir Ravel, Etudes tableaux eftir Rachmaninoff, Fantasy-Inventions eftir Carter Pann og Sonata No. 3 í f-moll, Op.5 eftir Brahms. menning@frettabladid.is Jónsbók - Lögbók Íslendinga Besta uppfærslan sem við höfum séð ! Leitum að LEIKURUM 6-18 ÁRA Námskeið að hefjast. Skráning hafin á www.annie.is og í síma 866 2745 Taka skal fram að þátttaka tryggir ekki hlutverk í söngleiknum. Söngleikurinn ANNIE verður settur á svið í AUSTURBÆ eftir áramót. FALLEGT ÆVINTÝRI H.C. Andersen skrifaði jú verkið til þess að minna okkur á hræsni millistéttarinnar og að vera góð við smælingjana. JEREMY PAUL, KEITH STRACHEN OG LESLIE STEWART Upphaflega sáum við þetta fyrir okkur sem jólasýningu, en Litla stúlkan með eldspýturnar virtist ekki falla inn í hefðbundna skilgreiningu. ■ KVIKMYNDIR  20.00 Blústónlistin ræður ríkjum á Hvíldardagskvöldi á Grand Rokk þar sem sýndar verða fjórar heimildar- myndir um blús. ■ TÓNLEIKAR  14.00 Lúðrasveit Æskunnar, sem er blásarasveit skipuð úrvali íslenskra ungblásara, heldur tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur.  16.00 Óperukórinn í Reykjavík og Karlakórinn Þrestir flytja óratoríuna Elijah eftir Felix Mendelssohn í Grafar- vogskirkju. Stjórnandi er Garðar Cortes. Einsöngvarar verða Bergþór Pálsson sem fer með hlutverk Elijah, Snorri Wium, Hulda Björk Garðars- dóttir og Alina Dubik.  17.00 Bára Grímsdóttir og Chris Foster halda útgáfutónleika í Blöndu- óskirkju þar sem þau flytja íslensk og ensk þjóðlög.  20.00 Barry Snyder píanóleikari flytur verk eftir Haydn, Ravel, Rachmaninoff, Brahms og Carter Pann á tónleikum í Salnum, Kópavogi. ■ LEIKLIST  17.00 Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Ávaxtakörfuna eftir Krist- laugu Maríu Sigurðardóttur í leikstjórn Jóns Stefáns Kristjánssonar í Félags- heimilinu Bifröst á Sauðárkróki.  17.00 Möguleikhúsið sýnir Völu- spá eftir Þórarin Eldjárn með Pétri Eggerz leikara og Stefáni Erni Arnar- syni sellóleikara. ■ FYRIRLESTRAR  16.15 Henrik Aanæs lektor flytur fyrirlestur um „þrívíddarályktanir byggðar á tvívíðum myndum“ í VR-2, stofu 158, Verkfræðideild Háskóla Ís- lands. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28 29 30 31 1 2 3 Sunnudagur OKTÓBER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.