Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 17
aldrei getað lagt svona mikið und- ir. Ég er farinn að treysta því að ég komi myndunum á erlendan markað. Síðustu árin hef ég haft gríðarlega góða aðstoð. Friðþjóf- ur Helgason hefur verið hjá mér í fimm ár. Hann er aldrei latur, aldrei þreyttur og aldrei í fýlu. Ef við stoppum einhvern tíma þá er hann strax orðinn eirðarlaus. Það er þægilegt að njóta aðstoðar manns sem hefur þessa eigin- leika, og er um leið góður töku- maður.“ Nokkrar myndir eru í vinnslu hjá Páli. Eitt verkefnið heitir Fjórar fuglasögur en það eru fjór- ar sjálfstæðar myndir um spóann, hrafninn, skarfinn og rjúpuna. „Í samfloti við Einar Þorleifsson sem skrifaði handrit um spóann, þennan merkilega fugl, fórum við Friðþjófur til Gambíu og Senegal í Afríku að elta fuglinn. Foreldr- arnir yfirgefa landið á undan ung- unum, en ungarnir rata frá Íslandi til vesturstrandar Afríku allt nið- ur undir miðbaug. Þetta fannst mér skrýtið en ratvísi er víst inn- byggð í dýr, alveg eins og skyn á fjarlægðir og stefnur sem við skynjum ekki.“ Leitin að venslafólki Páll hefur ferðast víða um heim- inn og hefur í leiðöngrum sínum sankað að sér alls kyns munum sem eru einkennandi fyrir við- komandi þjóðir. Hann hefur meðal annars farið til Nepal og Kenýa. „Dóttursonurinn giftist kenískri konu sem kom hingað til lands. Mér fannst ég ekki geta verið þekktur fyrir annað en að heilsa upp á venslafólkið og fór þangað. Móðurfólkið tók á móti mér á flugvellinum í Kenýa en þar sem skilnaður hafði orðið á milli for- eldranna gekk mér verr að hitta föðurfólkið. Ég var í 22 daga með leigubíl að leita að því, enda hafði það ekkert heimilsfang. Þegar ég komst loks á réttan stað, uppi við Viktoríuvatn, kom hluti af ætt- mennunum út úr kofum, að fagna hvítum gestum.“ Páll segir Tonga vera skemmti- legasta stað sem hann hafi komið til. „Fyrir rúmum fimm árum var ég að leika mér með hnattlíkan og reyndi að gera mér grein fyrir hver væri stysta leiðin gegnum kúluna í þurran blett í Suður- Kyrrahafi. Og þá kom Tonga upp tvisvar sinnum. Mig langaði til að vita meira um staðinn. Ég komst á snoðir um að þarna væri líklega síðasti kóngurinn á jörðinni. Það er að segja að hann átti eyjarnar, en leigði þegnum sínum jarðar- skika eða bátalægi gegn vægu verði. Ég hringdi í flugstjóra sem ég þekkti hjá Cargolux. Okkar samtal endaði með því að hann skipulagði ferð á áfangastað og kom sjálfur með.“ Þótt Páll sé mikill náttúruunn- andi kann hann vel við borgar- menningu. „Mér leiðist ekki í fjöl- menni, maður hefur alltaf eitt- hvað að halla sér að,“ segir hann. „Ég hlusta mikið á tónlist og hef yndi af jazz, og ég fer í leikhús og bíó. Ég las á tímabili allar ljóða- bækur sem komu út og öll ný ís- lensk skáldverk. Núna hefur þetta skyndilega breyst, ég les ekkert nema Íslendingasögurnar og Lax- ness. Aðrar bækur ná ekki máli í samanburði. Ég hef ekki of mik- inn tíma en les á hverju kvöldi og þá nægja þessar bækur mér.“ Hamingjan og Rúrí Páll er kvæntur listakonunni Rúrí. Verk hennar Archive - end- angered waters, einskonar gagna- safn um fossa á hálendi Íslands, vakti mikla athygli á Feneyjartví- æringnum í fyrra. Í framhaldi af sýningunni var henni boðið að setja upp tvær sýningar í París og sýning á verkum hennar stendur yfir í Tókíó. „Rúrí er á miklu flugi núna. Hún er hamingjusöm og henni líður mjög vel. Nú berast henni boð um að sýna og gera verk erlendis,“ segir Páll. „Þegar hann er spurður hvort hann hafi aðstoðað konu sína á listabraut- inni segir hann: „Rúrí stofnaði með mér Kvik ehf. og vann með mér að nokkrum verkefnum sem hljóðtökumaður. Ég hef aftur myndað með henni verk sem að hluta byggjast á kvikmynd. Eins hef ég iðulega kvikmyndað það sem hún er að fást við og verkin hennar. Ég hef vitað lengi að Rúrí er afburðalistamaður og þá er sama hvaða viðmið væri tekið.“ Maður sem hefur ferðast svo víða, og er í miklu sambandi við náttúruna, trúir hann á Guð? „Ég er alinn upp við heilmikla kirkju- og trúrækni enda var faðir minn stofnandi og formaður KFUM í Vestmannaeyjum. Ég er ekki kirkjurækinn og bið sjaldan bænirnar nú orðið en það eru ákveðnir menn framarlega í þjóð- kirkjunni sem ég hef mætur á, eins og til dæmis biskupinn. Ein- hvern átrúnað hef ég þó og set hann oft í samband við guðdóm- inn. Sköpunin öll er mér ráðgáta. ■ SUNNUDAGUR 31. október 2004 17 Kynnisferðir áskilja sér rétt til að breyta áætlun án fyrirvara ef breytingar verða á flugi. Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur 05:00 05:00 05:00 05:00 05:00 05:00 05:00 05:15 05:15 05:15 05:15 05:15 05:15 05:15 05:30 05:30 05:30 05:30 05:30 05:30 05:30 05:45 05:45 05:45 05:45 05:45 05:45 05:45 06:00 06:00 06:00 06:00 06:00 06:00 06:00 06:30 - - - - - - - - - - - - - - - 06:30 - - - 07:00 07:00 07:00 07:00 07:00 - - - 12:15 12:15 12:15 12:15 12:15 12:15 12:15 12:45 12:45 12:45 12:45 12:45 12:45 12:45 14:00 14:00 14:00 14:00 14:00 14:00 14:00 14:30 14:30 14:30 14:30 14:30 14:30 14:30 15:00 15:00 15:00 15:00 15:00 15:00 15:00 •Verð 1.100 kr.* aðra leiðina •Ókeypis fyrir börn að 11 ára aldri •50% afsláttur fyrir unglinga, 12-15 ára •Aukaferðir fyrir leiguflug sem ekki fellur að áætlun *1.150 kr. frá 1. janúar 2005 flugrútan • flybus Vetraráætlun 2004-2005 Gildir frá 31. október 2004 - 26. mars 2005. www.re.is • sími 562 1011 • textavarp bls. 455 og 456 Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K YN 2 63 30 1 0/ 20 04 Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K YN 2 63 30 1 0/ 20 04 Þú tekur flugið frá Umferðarmiðstöðinni/BSÍ Kóngurinn í Tonga Páll Steingrímsson hefur heimsótt Tonga og segir það skemmtilegasta stað sem hann hefur komið á: „Tonga er gríðarlega löng eyjakeðja, um 170 eyjar og þar býr Tupou IV, síðasti alvörukóngurinn á jörðinni. Svo vildi til að skömmu eftir að við komum til eyjanna , áttu Tongar landsleik við Hvít-Rússa í rúbbí. Í þessum leik eru engar hlífar notaðar og þegar hálftröllum sem stunda íþróttina lýstur saman verður eitthvað undan að láta. Rússarnir voru sumir höfðinu hærri en eyjaliðið og ekki árennileg- ir, en Tongar eru líklega sterkasta mannkyn á jörðinni,“ segir Páll. „Leikurinn var gríðarlega spennandi, mikið um grófar tæklingar og pústra. Aftur og aftur var ambul- ansinn inni á vellinum að hirða upp þá sem tognað höfðu eða lemstrast. Gríðarleg stemning var í áhorf- endastúkunni þar sem kóngur trónaði efst í blóma- stúku, umkringdur vörðum og venslaliði. Eitthvert veður hafði hann af okkur þar sem við öskruðum okkur hása og hvöttum heimaliðið. Við vorum spurðir hvaðan við værum. Þegar við nefndum Ísland, spurði kóngur hvort það væri ekki nálægt Færeyjum. Hann hefur sjálfsagt sett það í samband við Danmörku sem hann þekkti sem konungsríki. Við vorum einnig spurðir hvaða erindi við ættum til Tonga og ég sýndi tökuvélina. Þetta spjall endaði með því að við fengum stúlku til leiðsagnar Hún útvegaði okkur að lokum kajak sem við rerum milli eyja og söfnuðum myndefni. Nú er Tupou IV orðinn 87 ára gamall ef mér reiknast rétt,“ segir Páll. KVIKMYNDAGERÐARMAÐURINN „Ég hef fólk í vinnu og ég held að ég sé fyrsti Íslendingurinn sem lifir eingöngu af heimildarmyndagerð. Það sem ráðið hefur úrslitum er að mynd- irnar hafa farið á markað erlendis. Ef svo væri ekki þá hefði ég aldrei getað lagt svona mikið undir. Ég er farinn að treysta því að ég komi myndunum á erlendan markað.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.