Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 4
4 31. október 2004 SUNNUDAGUR
UMHVERFISMÁL Ekki náðist sam-
komulag meðal fulltrúa aðildar-
sveitarfélaga Sorpstöðvar Suður-
lands um lausn á ágreiningi varð-
andi starfsemi stöðvarinnar. Þar
var kynnt samkomulag sem náðst
hafði milli stjórnar sorpstöðvar-
innar og sveitarstjórnar Ölfuss í
yfirstandandi deilu.
„Þær hugmyndir sem við
kynntum fóru ekki í gegn og við
þurfum að ræða frekar við þá,“
sagði Einar Njálsson bæjarstjóri í
Árborg og stjórnarformaður
Sorpstöðvar Suðurlands. „Þetta
var samráðsfundur, en það var
nokkuð samhljóða niðurstaða á
honum.“
Styr hefur staðið um hæð sorp-
haugsins í Kirkjuferjuhjáleigu,
sem sorpstöðin hefur sett þar í
urðunarreinar, en hann er 3 - 7
metra yfir leyfilegri hæð sam-
kvæmt deiliskipulagi. Einar sagði
ekki hægt að lækka hann sam-
kvæmt mati Umhverfisstofnunar.
Hins vegar væri verið að gera
nýja urðunarrein og möguleiki
væri á að þar yrði ekki urðað yfir
leyfilegri hæð.
„Við verðum að klára þetta mál
um miðja næstu viku,“ sagði
Einar. „Það verður að gerast innan
þess frests sem þeir veittu. Ann-
ars náum við þessu ekki saman.“
- jss
Kaupmáttarrýrnun
hjá helmingi kennara
Kennari í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur segir að laun sumra kennara
muni lækka þegar launaflokkar í potti verða festir í launatöflu. Eiríkur
Jónsson segir breytinguna eina af forgangskröfum grunnskólakennara.
KJARAMÁL Jón Pétur Zimsen,
kennari sem á sæti í stjórn
Kennarafélags Reykjavíkur seg-
ir marga kennara lækka í laun-
um ef miðlunartillaga sáttasemj-
ara, sem hljóðar upp á 16,5 pró-
senta launahækkun, verði sam-
þykkt. Þetta kom fram í fréttum
Ríkisútvarpsins í gær. Hann seg-
ir kaupmáttaraukningu grunn-
skólakennara nánast enga á
samningstímanum og að kaup-
máttarrýrnun verði hjá helmingi
grunnskólakennara, ef miðað sé
við verðbólguspár. Þá munu laun
þeirra kennara sem fá þrjá
launaflokka eða meira úr launa-
potti lækka, þar sem tveir og
hálfur launaflokkur verður
festur í launatöflu. Þá verða 0,3
launaflokkar eftir í potti, sem
skólastjórar hafa til ráðstöfunar.
Eingreiðsla til kennara í lok
verkfalls á að hækka um 30.000
krónur ef miðað er við tilboð rík-
issáttasemjara frá síðustu viku
og verður 130.000. Jón segir að
breytingar á pottflokkum komi
til lækkunar á þeirri upphæð.
Við það að flytja launaflokka úr
potti í launatöflu munu laun
þeirra kennara hækka sem fá nú
færri en tvo og hálfan launa-
flokk úr potti.
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambandsins segir laun
ekki lækka við það að hækka, þó
ekki sé alltaf hægt að reikna með
áhrifum verðbólgu á kaupmátt.
Hvað varðar breytingar á laun-
um við það að launaflokkar úr
potti séu festir í launatöflu segir
hann það hafa verið kröfu grunn-
skólakennara. „Það var ein af
forgangskröfum grunnskólakenn-
ara að færa launapottana inn í
grunna. Við vildum koma pott-
flokkunum öllum inn í grunnlaun
og það tekst ekki. Þeir sem eru
með fjóra flokka í dag, geta verið
með tvo flokka á næsta ári, og því
er ekki hægt að svara því hvort
laun lækka með þessum breyting-
um, því launaflokkar úr potti eru
ekki fastir. Það er aðalmálið. Það
verður til annar pottur, sem er
minni, en úr honum fá menn eitt-
hvað. Þessi breyting á pottflokk-
um mun ekki hafa áhrif á meðal-
tal heildarlauna yfir stéttina. En
það er aldrei hægt að vita hver er
að fá hvað á milli ára.“
Kauphækkun grunnskólakenn-
ara, samkvæmt miðlunartillög-
unni yrði mjög svipuð og hækkun
kauptryggingar og annarra launa-
liða sjómanna sem samið var um
í gær. svanborg@frettabladid.is
Akureyri:
Fartölvu
stolið
LÖGREGLA Fartölvu var stolið úr bíl
sem stóð við sundlaugina við
Glerárskóla á Akureyri.
Þjófurinn braut rúðu til að
komast inn í bílinn og hélt á brott
með tösku merkta Dell sem í voru
tölvan og ýmsir pappírar. Eigandi
tölvunnar er verktaki og saknar
sárt mikilvægra pappíra sem í
töskunni voru. Lögregluvarðstjóri
á Akureyri segir slíka þjófnaði lítt
þekkta á Akureyri en biður fólk að
skilja ekkert sjáanlegt eftir í bíl-
um sínum. Eins eru allir þeir sem
veitt geta upplýsingar um málið
beðnir að hafa samband við lög-
regluna. ■
Skothríð á Gaza:
Skutu átta
ára stúlku
GAZA, AP Átta ára palestínsk stúlka
var skotin til bana þegar hún gekk
framhjá varðstöð Ísraelshers á
leið sinni í skólann. Stúlkan varð
fyrir skotum
í s r a e l s k r a
hermanna ,
talið er að
þeir hafi
verið að
skjóta í átt
að palest-
ínskum víga-
m ö n n u m
sem skutu
eldflaugum
að land-
nemabyggð
Ísraelsmanna. Sex særðust í
þeirri árás.
Atvikið átti sér stað við flótta-
mannabúðirnar Khan Younis. Stutt
er síðan Ísraelsher lauk tveggja
daga aðgerðum gegn palestínskum
vígamönnum þar, þá létu sautján
Palestínumenn lífið. ■ ■ EVRÓPA
■ ÞORLÁKSHÖFN
Er verkfalli kennara lokið?
Spurning dagsins í dag:
Mun sekt Samkeppnisstofnunar
stöðva samráð Olíufélaganna?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
75,35%
24,65%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Bílvelta í Breiðadal:
Sluppu vel
UMFERÐARSLYS Bílslys varð aðfara-
nótt laugardags í Breiðadal í Ön-
undarfirði. Tvennt var í bílnum
og kom það á lögreglustöðina á
Ísafirði klukkan korter fyrir eitt
aðfaranótt laugardags og til-
kynnti um slysið.
Bíllinn fór út af veginum í
Breiðadal og valt nokkrar veltur.
Bíllinn er talsvert mikið
skemmdur, ef ekki eyðilagður að
sögn lögreglunnar á Ísafirði.
Lögreglan veit ekki um orsök
slyssins en telja hálkuna hafa
spilað þar inn í.
Ökumaður og farþegi bifreið-
arinnar sluppu með skrámur og
skurði og var farþeginn lagður
inn á fjórðungssjúkrahúsið á Ísa-
firði í skoðun. Samkvæmt vakt-
hafandi lækni á slysadeild þurfti
aðeins að sauma nokkur spor í
augabrún farþega og var hann
sendur heim að því loknu.
- lkg
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
26
25
5
1
0/
20
03
Netsmellur
Ódýrastir til Evrópu
Verð frá 14.490 kr.*
*N
et
sm
el
lu
r
til
G
la
sg
ow
-
T
ak
m
ar
ka
ð
sæ
ta
fr
am
bo
ð
Alltaf ód‡rast á netinu
SKOTIÐ Á LÖGREGLUSTÖÐ Með-
limir Írska lýðveldishersins
hnepptu fjölskyldu í gíslingu og
stálu bíl hennar til að nota við
skotárás á lögreglustöð á Norð-
ur-Írlandi, að sögn lögreglu.
Nokkrar kúlur hæfðu veggi lög-
reglustöðvarinnar en enginn
lögreglumannanna innandyra
særðist.
NÝ BÚÐ OPNAR Krónan opnar
verslun í Þorlákshöfn 12. nóvem-
ber næstkomandi. Verslunin
kemur í staðinn fyrir verslun
11-11 sem starfrækt hefur verið
á sama stað. „Eitt af því sem
skiptir höfuðmáli í dag þegar fólk
velur sér búsetu er aðgangur að
lágvöruverslun,“ segir Ólafur Áki
Ragnarsson bæjarstjóri og fagn-
ar versluninni.
Stakk af frá reikningi:
Borgaði 24
ára skuld
NOREGUR, AP Það er aldrei of seint
að iðrast og gera yfirbót. Það
segir í það minnsta Kay Johnsen,
hótelstjóri á Clarion Hotel Ernst í
Kristiansand í Noregi. Á dögunum
barst nafnlaust bréf frá hótelgesti
sem stakk af frá reikningi sínum
fyrir 24 árum, sá baðst afsökunar
og lét fylgja 500 krónur norskar,
andvirði um fimm þúsund
íslenskra króna, til að greiða
skuldina.
„Ég hef aldrei séð nokkuð
þessu líkt,“ sagði Johnsen sem
hefur unnið á hótelum í meira en
tvo áratugi, hann ákvað að láta
greiðsluna frá gestinum renna til
Hjálpræðishersins. ■
GRÁTIÐ VIÐ
JARÐARFÖR
Sahar, systir Raniu Aram
sem skotin var til bana
við Khan Younis.
EINAR NJÁLSSON
Hugmyndirnar sem kynntar voru fulltrúum
sveitarfélaga á Suðurlandi hlutu ekki
brautargengi.
Sorpstöð Suðurlands:
Samkomulag náðist ekki
ÓSÆTTI MEÐ MIÐLUNARTILLÖGU
Óánægja virðist krauma meðal kennara um miðlunartillögu sáttasemjara. Meðal þess
sem óánægja er með eru áhrif þess að festa launaflokka í potti í launatöflu kennara.