Fréttablaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 12
12 31. október 2004 SUNNUDAGUR
SÍF er rótgróið fyrirtæki í
íslensku atvinnulífi.
Framundan eru spennandi
tímar þar sem fyrirtækið
ætlar sér leiðandi stöðu á
matvælamarkaði í Evrópu
undir forystu forstjórans
Jakobs Sigurðssonar.
Stóru sölusamtökin SíF og SH
hafa til margra ára verið þau
fyrirtæki íslensk sem velt hafa
mestum fjármunum. Gamalreynd
flaggskip íslenskrar útrásar. Mik-
ið vatn hefur runnið til sjávar frá
því að þessi fyrirtæki voru ásamt
Flugleiðum einu fyrirtækin sem
ráku umfangsmikla erlenda starf-
semi. SÍF stendur nú á tímamót-
um. Umfang rekstrarins hefur
verið mikið en afraksturinn vald-
ið vonbrigðum. Breytt umhverfi
kallar á breyttar áherslur og SÍF
hefur markað sér þá stefnu undir
forystu nýs forstjóra Jakobs Sig-
urðssonar að verða leiðandi fyrir-
tæki í Evrópu í framleiðslu kæl-
dra matvæla. Jakob tók við stjórn
fyrirtækisins fyrir fjórum mán-
uðum. „Þessi tími hefur verið eins
og fjórir dagar og fjögur ár í
senn,“ segir Jakob. „Fjórir dagar í
þeim skilningi að tíminn líður
hratt þegar í mörgu er að snúast
og eins og fjögur ár þegar maður
lítur til alls þess sem hefur gerst á
tímabilinu. Þetta hefur verið erf-
iður en mjög skemmtilegur tími.“
Horfst í augu við vandannn
Verkefnin voru ærin. Erfiðleikar
voru í rekstrinum í Frakklandi.
„Frumforsenda þess að geta tek-
ist á við vandann er að hafa rétta
mynd fyrir framan sig. Ég tel að
með aðgerðum sem við gripum til
í sumar hafi tekist að skilgreina
vandann og fá skarpa mynd af
stöðunni. Í framhaldi af því var
hægt að grípa til aðgerða sem
munu rétta skútuna af í framtíð-
inni.“ Jakob er ófeiminn við að
viðurkenna að á ýmsu hafi þurft
að taka og segir farsælast að
horfast í augu við hlutina eins og
þeir eru. SÍF fékk utanaðkomandi
endurskoðendur til þess að fara
yfir reksturinn í Frakklandi og
niðurstaðan var afskrift sem nam
á annan milljarð króna. Jakob og
samstarfsfólk hans tókust á við
fleiri verkefni samhliða því að
greina vandamál SÍF og móta nýja
stefnu.
Fyrir viku var gengið frá
grundvallarbreytingu á fyrirtæk-
inu. Tilkynnt var um sölu á
Iceland Seafood Corporation í
Bandaríkjunum og sölu hlutar SÍF
í keppinautnum SH. „Það var ekki
auðveld ákvörðun að selja Iceland
Seafood; sérstaklega í ljósi þeirr-
ar löngu sögu sem er á bak við
fyrirtækið. Málið var einfaldlega
að starfsemin þar átti lítið skylt
við það sem við erum að gera og
langar til að gera í Evrópu.“ Jakob
segir afar gott starf hafa verið
unnið í Ameríku og salan þýði
ekki að SÍF sé hætt að miðla fryst-
um sjávarafurðum á Bandaríkja-
markað. „Við munum halda því
áfram.“ Einnig seldi SÍF hlut sinn
í SH og má líta svo á að þar með sé
lokið í bili vangaveltum um sam-
einingu þessara fyrirtækja.
Stjórnendur með sömu sýn
Samhliða var gengið frá kaupum á
frönsku fyrirtæki, Labeyrie
Group, sem er um fjórum sinnum
verðmætara fyrirtæki en SÍF.
Framundan er hlutafjárútboð til
að fjármagna kaupin. „Labeyrie
var góður fjárfestingarkostur eitt
og sér og var ekki keypt sem með-
al á vandamálið í Frakklandi. Þó
svo að við fáum góðan félaga með
kaupum á Labeyrie þá ætlum við
ekki að spilla þeim fókus sem er
þar til staðar. Forstjóri sameinaðs
félags í Frakklandi mun koma frá
þeim og við væntum þess að
Antwerpen
124 km
Brussels
100 km
Liege
Lille
224 km
Paris
387 km
London
420 km
Düsseldorf
135 km
Eindhoven
128 km
Dortmund
232 km
Hannover
Bremen
Köln
123 km
Bonn
123 km Frankfurt
320 km
Luxembourg
142 km
Strassbourg
406 km
Stuttgart
Rotterdam
224 km
Amsterdam
250 km
Eins
og
skot
Liège
-beint fraktflug 11 sinnum í viku
Frá 15. október eykur Icelandair Cargo vikulegt fraktflug til og frá Liége úr 6 ferðum í 9 á viku.
Við bætum svo um betur frá 1. nóvember og fljúgum 11 sinnum í viku á þessari leið. Icelandair
Cargo í Liege er í innan við 400 km fjarlægð frá mörgum af stærstu borgum Evrópu.
Á skyggða svæðinu hér að ofan á 75% af allri flugfrakt frá Evrópu sér uppruna. Icelandair
Cargo býður þér landflutninganet hvaðan sem er í Evrópu.
Nýttu þér hraðvirkasta flutningsmátann innan Evrópumarkaðar.
Hafðu strax samband við Icelandair Cargo við Flugvallarveg í Reykjavík.
Sími 5050 400, fax 5050 630, veffang icelandaircargo.is.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
FR
2
57
01
09
/2
00
4
Geymdu það ekki til morguns sem við getum gert í dag.
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
„Mat okkar á stjórnendum Labeyrie réð miklu um þessi kaup. Fyrir-
tækið er vel rekið og við fundum fljótt að sýn okkar á framtíðina og
hvernig við vildum nýta okkur hana var sameiginleg.”
Rótgróinn risi fetar nýja braut
STEFNIR HÁTT
Markmið Jakobs Sig-
urðssonar, forstjóra
SÍF, eru skýr. SÍF er
ætlað að verða leið-
andi fyrirtæki á sviði
matvælaframleiðslu
í Evrópu. Þar verður
byggt á ferskleika,
hollustu og háum
gæðum sjávarfangs.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
KUNNA SITT FAG Jakob segir stjórnendur
Labeyrie deila framtíðarsýn með stjórnend-
um SÍF. Þeir séu sterkir og kunni sitt fag.