Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.10.2004, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 31.10.2004, Qupperneq 46
31. október 2004 SUNNUDAGUR ■ PONDUS ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Frode Överli Samkvæmt gömlu slumpaðferðinni sem ég lærði í grunnskóla eyða foreldar um tveimur tímum á dag með börnum sínum. Þetta á við um virka daga og þann tíma dags- ins sem ekkert annað skyggir á. Fjölskyldan vaknar vissulega saman á morgnana en það er ekki hægt að segja að um alvöru stund sé að ræða því þá eru allir að hafa sig til fyrir daginn með tilheyrandi stressi. Foreldrarnir sjá síðan börnin ekki aftur fyrr en seint um kvöld. Oftast þegar komið er fram að kvöldmat. Þá fer mest allur tíminn í að hafa til matinn, hlusta á fréttir og koma börnunum í háttinn. Samkvæmt þessari slumpaðferð eiga foreldrar því aðeins tíu tíma með börnum sínum á virkum dögum. En þá eru helgarnar eftir. Um helgar eru flestir foreldrar að jafna sig eftir hina erfiðu vinnu- viku, sem stundum telur hátt í fimmtíu tíma. Laugardagurinn fer að mestu leyti í hvíld svo sunnudag- urinn er einn eftir. Þá er reynt að bæta upp fyrir alla aðra daga vik- unnar með uppákomum og herleg- heitum – allt til að gleðja börnin og friða samviskuna. Þó þurfa allir að hvílast á milli enda erfið vinnuvika framundan. Með áðurnefndri slumpaðferð má gera ráð fyrir að foreldrar og börn eigi um fimmtán tíma saman um helgar. Fimmtán tímar um helgar plús tíu tímar á virkum dögum. Það gerir um 25 tíma á viku. Flest íslensk börn eru í sex tíma í skólanum á dag. Stærstum hluta eyða þau með umsjónarkennara en svo hitta þau einnig fyrir aðra kenn- ara. Það má því slumpa á að börnin eyði þrjátíu tímum hið minnsta með kennurum í hverri viku. Þá eru ótaldir þeir tímar sem fara í tóm- stundir; jafnvel nokkrir klukkutímar í hverri viku. Með títt nefndri slumpaðferð er ljóst að kennarar eiga mun meiri tíma með börnunum en foreldrarnir sjálfir. Það má því með slumpaðferð- inni segja að kennarar séu foreldrar þessa lands og þeir hljóta að eiga fá laun eftir því. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA KRISTJÁN HJÁLMARSSON SLUMPAR Á KENNARA Foreldrar þessa lands M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Á FIMMTUDÖGUM Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is Hann mun örugglega hætta með henni....Það kemur sem reiðarslag fyrir hana..... Það er komið að kveðju- stund Sally! Nei. Danni! Nei! Nú brestur hún í grát... Það verður skelfilegt... Ertu grátandi Sally! Hvað kom fyrir! Og nú kemur að því að hún opnar sig... Og étur ís með... Hvorutveggja! Ohh, hikst.k.. Affhveeerrrju Afffhverrjju? Ég er að fá nóg! Er hann byrjaður með annarri konu? Hvað sagði é.... Gasp! HARRH ! Nei...hann hitti annan MANN! Skósalann Boris.... oooohhhhh Guð minn góður! Vanillu eða krókant? Danni! Hann hefur yfirgefið mig... gníst... grátur... Gaurinn var ábyggilega hommi! Það segir sig nú eiginlega sjálft, þetta er fyrirséð!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.