Fréttablaðið - 16.11.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.11.2004, Blaðsíða 20
16. nóvember 2004 ÞRIÐJUDAGUR Sjónarhóll á sínum stað Hrefna Haraldsdóttir hlakkar til að takast á við verkefnin á Sjónarhóli. Sjónarhóll, ráðgjafarmiðstöð fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir, var opnaður á laugardaginn og fyrsti starfsdagurinn var í gær. Þar var strax mikið að gera, töluvert verið að panta viðtöl og fólk virðist almennt hafa áttað sig á starfsem- inni, að sögn Hrefnu Haraldsdóttur fjölskylduráðgjafa. „Samtökin hafa verið starfandi um nokkurn tíma svo það er komin nokkur reynsla. Hópurinn sem leitar til okkar breikkar, áður fyrr voru þetta for- eldrar barna með skilgreindar fatl- anir en nú koma foreldrar barna með ýmis frávik, t.d. langveik börn, börn með athyglisbrest og þesshátt- ar. Við vonum að fólk leiti til okkar um stuðning og það er sama hvers eðlis málið er, þau eru öll jafn mik- ilvæg. Svo má líka koma því að að Sjónarhóll er ekki bara fyrir for- eldra sem eiga börn og unglinga heldur líka þá sem eiga fullorðin börn sem eiga við heilbrigðisvanda- mál að stríða.“ Hvernig þjónusta er veitt á Sjónarhóli? „Við veitum foreldr- um upplýsingar um sinn rétt og barnanna, gefum góð ráð og stuðning. Það er enginn í kerfinu sem segir foreldrum hver réttur barnsins er, kerfið er flókinn frumskógur og þeir sem finnst þeir ekki fá þjónustu við hæfi leita hingað. Okkar starf er allt á forsendum foreldranna, við ger- um ekkert nema foreldrarnir sjái tilgang í því.“ Hrefna hefur orðið vör við að þörfin er mikil: „Við ætlum heldur ekki að gleyma því að við erum til vegna þess að landsmenn allir söfnuðu fé og erum að fara út á land að kynna okkar starf. Vonandi getum við í framtíðinni boðið upp á fasta við- veru á stærri stöðum úti á landi því þar er stuðningsins ekki síður þörf. Við á Sjónarhóli viljum vera á staðnum og fólk á ekki alltaf að þurfa að koma til Reykjavíkur.“ Hvernig er svo starfseminni háttað? „Sjónarhóll er samsettur úr hagsmunasamtökum og óháður öllum rekstraraðilum sem skiptir mjög miklu því við getum þá veitt ákveðið aðhald. Við störfum hér þrjár eins og stendur: Þorgerður Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri sem er hjúkrunarfræðingur að mennt, Guðbjörg Andrésdóttir móttökuritari sem er foreldri fatl- aðs barns en hennar reynsla hér innanhúss er mjög dýrmæt, eink- um vegna þess að hún er sú fyrsta sem foreldrarnir heyra í og svo ég sem er eini ráðgjafinn sem stend- ur en vonandi koma inn fleiri.“ Það ríkir bjartsýni á Sjónar- hóli. „Margir hafa beðið með mik- illi eftirvæntingu eftir ráðgjafar- stöð af þessum toga og ég vona að við stöndum undir þeim vænting- um. Þetta er spennandi og ábyrgð- armikið starf og við hlökkum til að takast á við það,“ segir Hrefna Haraldsdóttir að lokum. brynhildurb@frettabladid.is Sjónarhóll var opnaður formlega á laugardaginn og miklar vonir eru bundnar við starfsemina þar. Ljúffeng máltíð með lágmarks fyrirhöfn Balti • Korma • Sweet & Sour • Tikka Masala FRÍ HEIMSENDING Nánari uppl‡singar á somi.is FJÖLVÍTAMÍN MEÐ GINSENG FÆST Í APÓTEKUM, HAGKAUP, NETTÓ, SAMKAUP, SPARKAUP, NÓATÚNI, ÚRVALI OG STRAX. Aukin líkamleg orka og andleg vellíðan Guðrún Arnalds verður með námskeið, helgina 19.-21. nóvember Endurnærandi helgarnámskeið fyrir þá sem þurfa að hlaða batteríin. Tækifæri til að losa um gamlar og nýjar tilfinningar og finna svörin innra með sér. Líföndun og jóga Til að lifa til fulls þarftu að anda til fulls Uppl. gefur: Guðrún Arnalds,s: 561 0151 / 896 2396 • gudrun@andartak.is; www.andartak.is Umbo›s- og sölua›ili sími: 551 9239 Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.