Fréttablaðið - 16.11.2004, Blaðsíða 1
● er hrókur alls fagnaðar
Sighvatur Sveinsson:
▲
SÍÐA 30
Rafvirki í stuði
● tónleikar í salnum í kvöld
Diddú og Eyjólfur Eyjólfsson:
▲
SÍÐA 26
Syngja lög Björgvins
Guðmundssonar
● Ísland-Þýskaland á World Cup
Viggó Sigurðsson:
▲
SÍÐA 22
Landsliðsþjálfarinn
fullur bjartsýni
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
ÍVAN GRIMMI Klukkan átta í kvöld
sýnir Kvikmyndasafn Íslands annan hluta
Ívans grimma eftir Sergei M. Eisenstein.
Myndin verður sýnd í Bæjarbíói við
Strandgötu 6 í Hafnarfirði.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
16. nóvember 2004 – 314. tölublað – 4. árgangur
RÁÐHERRAFUNDUR Íslensk stjórn-
völd vonast til að afsögn Colins Powell sem
utanríkisráðherra Bandaríkjanna dragi ekki
úr gildi viðræðna hans við Davíð Oddsson
utanríkisráðherra í Washington í dag.
Sjá síðu 2
HEIMILISOFBELDI Um 140 skýrt skil-
greind heimilisofbeldismál eru greind á ári
hverju á slysa- og bráðasviði Landspítalans.
Yfir stendur tilraun með bráðamóttöku fyrir
þolendur slíks ofbeldis. Tveimur milljónum
var veitt til verkefnisins. Sjá síðu 4
UPPRÆTING VÍGAMANNA Bardag-
ar blossa upp víða í Írak á sama tíma og
herferðin gegn vígamönnum í Falluja er
sögð vera að skila sér í upprætingu þeirra.
Birgðalestum hjálparstofnana hefur verið
snúið frá borginni. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
Kristján Franklín Magnús:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Æfir fótbolta,
dans og lyftingar
● heilsa
SVALT OG VÍÐA ÉL Fremur skýjað á
landinu. Nokkuð samfelld snjókoma aust-
an og norðaustan til. Sjá síðu 4.
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
KENNARAVERKFALL Kennsla á að fara
fram í öllum skólum í Reykjavík í
dag. Fræðsluráð Reykjavíkur sendi
skólastjórum boð um þetta í gær.
Stefán Jón Hafstein, formaður
fræðsluráðs, segir að tíðindi gær-
kvöldsins bendi til þess að ástand í
skólunum verði betra í dag en í gær,
þegar aðeins um fimmtán prósent
kennara mættu til starfa og kennsla
féll víða niður.
„Það verður allra leiða leitað til
að komast hjá því að senda börn
heim úr skólanum,“ segir Stefán.
Hann segist ráðleggja fólki að mæta
í skólann með börnum sínum og at-
huga hvernig staðan er ef engin
skilaboð hafa borist frá skólunum.
Hilmar Ingólfsson, skólastjóri
Hofstaðaskóla í Garðabæ, segir að
kennt verði í skólanum í dag og
börnin eigi að mæta. Stefna skóla-
skrifstofu Garðabæjar sé að
kennsla fari fram í grunnskólum
bæjarins. Hann segir marga for-
eldra tilbúna til að koma og hjálpa.
Auk þess séu skólaliðar og
uppeldisfulltrúar til taks.
Hilmar segir mjög þungt hljóð í
kennurum og ljóst að margir þeirra
treysti sér ekki til að koma til star-
fa. „Þeir fengu slæma útreið hjá
ríkisstjórninni með lögum og nú
dynja á þeim skammir og svívirð-
ingar foreldra sem bæta ekki úr
skák.“
Hanna Hjartardóttir, skólastjóri
Snælandsskóla í Kópavogi, segist
hafa heyrt það á starfsfélögum sín-
um að fleiri kennarar muni mæta til
starfa í dag en í gær. Í Snælands-
skóla verði tekið á móti börnunum
en ekki sé vitað hvort fram fari full
kennsla á öllum sviðum.
Trúnaðarmenn kennara í
Reykjavík hittust á fundi í gær þar
sem farið var yfir stöðuna. Ólafur
Loftsson, formaður Kennarafélags
Reykjavíkur, segist ekki geta svar-
að því hvernig mætingin verði hjá
kennurum í dag en þeir hafi greini-
lega ekki treyst sér til að mæta í
gær við núverandi aðstæður.
- ghg
SAMGÖNGUR Eignarhaldsfélagið
Fasteign hf. hefur áhuga á að
fjármagna jarðgöng á milli
lands og Vestmannaeyja, segir
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður
og oddviti Vestmannaeyjalist-
ans, en hann var í lok síðustu
viku kosinn í stjórn félagsins.
Áætlaður kostnaður vegna
ganganna nemur um 27 millj-
örðum króna. Fasteign hf. er í
eigu nokkurra sveitarfélaga auk
fjármálafyrirtækja og var
stofnað um rekstur húseigna
bæjarfélaganna.
Lúðvík segir þrennt þurfa að
koma til svo af fjármögnun geti
orðið. Niðurstaða rannsókna á
jarðlögum þarf að leiða í ljós að
göngin séu möguleg. „Fyrstu yfir-
borðsrannsóknir sýna að það lag
hefur ekki hreyfst í 11 þúsund ár
og það er nú ágætisafskriftartími á
göngum,“ segir Lúðvík, en niður-
staða rannsóknar á að liggja fyrir
næsta haust. Hin skilyrðin eru að
ríkið láti árlega af hendi rakna
sömu eða ívið hærri fjárhæð og
greidd er vegna reksturs Herjólfs
í einhver ár og að virðisaukaskatt-
ur verði felldur niður líkt og gert
var við gerð Hvalfjarðarganganna.
„Með þessum hætti yrði ekki rask-
að framkvæmdum hjá ríkinu,“
segir Lúðvík og bendir á að á 30 til
40 árum þyrfti ríkið hvort eð er að
endurnýja skipakost til Eyja eða
jafnvel byggja höfn í Bakkafjöru.
- óká
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.:
Vill fjármagna göng til Eyja
Landvernd:
Ráðuneyti
kannar pallbíla
UMHVERFISMÁL Fjármálaráðuneyt-
ið ætlar að skoða til hvaða ráð-
stafana megi grípa til að tryggja
að ökutæki sem bera þrettán
prósenta vörugjald verði ein-
ungis notuð í atvinnuskyni.
Þetta kom fram í svari fjármála-
ráðuneytisins við bréfi sem
Landvernd sendi í september.
Stjórn Landverndar telur að
fjölmargir þeirra palljeppa sem
fluttir eru til landsins sem
vinnutæki og beri gjöld sem slík
séu fyrst og fremst notaðir sem
einkabílar.
Þessi bílar noti mikið elds-
neyti og því telur stjórnin að
þessi þróun sé ekki í takt við
áætlun ríkisstjórnarinnar um að
draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda.
- ghgÍ RÉTTARHOLTSSKÓLA Gerða, Sandra, Bergþóra, Halla, Helga, Auður og Sigga voru á heimleið í gærmorgun eftir að ljóst varð að kenn-
arar kæmu ekki til starfa. Stúlkurnar eru að ljúka grunnskólanámi í vor og höfðu nokkrar áhyggjur af samræmdu prófunum.
Fatah-hreyfingin:
Vilja Abbas
sem forseta
GAZA, AP Mahmoud Abbas, fyrrum
forsætisráðherra Palestínu, verð-
ur forsetaefni Fatah í forseta-
kosningunum í Palestínu. Þetta
sagði Nabil Sha-
ath, utanríkis-
ráðherra palest-
ínsku heima-
stjórnarinnar.
Hann sagði sam-
hug um þetta
innan hreyfing-
arinnar og í raun
ætti aðeins eftir
að staðfesta það
með formlegum
hætti.
Abbas var
valinn leiðtogi
Frelsissamtaka
Palestínu, PLO, eftir fráfall Jass-
ers Arafat og hefur verið talinn
einn líklegasti eftirmaður
Arafats á forsetastóli. Abbas var
fyrsti forsætisráðherra Palestínu
en sagði af sér eftir deilur við
Arafat. ■
MAHMOUD
ABBAS
Verður forsetaefni
Fatah-hreyfingar-
innar.
Kennt með öllum
tiltækum ráðum
Kennsla í grunnskólum virðist vera að færast í eðlilegt horf. Skólastjórar
búast við fleirum til starfa í dag en í gær. Þeir ætla að leita allra leiða til
að komast hjá því að senda börn heim. Þungt hljóð er í kennurum.