Fréttablaðið - 16.09.2004, Qupperneq 49
36 16. september 2004 FIMMTUDAGUR
Hljómsveitirnar Vínyll og Ampop
verða með tónleika á Grand Rokk
í kvöld þar sem þær hita upp fyrir
Englandsferð sína um helgina.
Einnig kemur Lára Rúnarsdóttir
fram og flytur eigin lög.
„Við ætlum að spila á tónlistar-
ráðstefnunni In The City
Unsigned sem er haldin í
Manchester. Þetta er ein stærsta
tónlistarráðstefna Bretlandseyja
og þar spila 54 heitustu bönd Evr-
ópu fyrir plötuútgefendur og aðra
úr iðnaðinum,“ segir Birgir í
Ampop.
Um tvö þúsund ungar hljóm-
sveitir sóttu um að komast að á
ráðstefnunni í ár. Hún hefur skipt
sköpum fyrir margar sveitir, og
þar stigu hljómsveitir á borð við
Oasis og Coldplay sín fyrstu skref
í áttina til heimsfrægðar.
Víst er að bæði Ampop og Vín-
yll hugsa sér gott til glóðarinnar.
Ampop hefur gefið út tvær
plötur hér á landi og eina smá-
skífu í Bretlandi. Þeir eru í þann
veginn að klára sína þriðju breið-
skífu.
„Við erum búnir að vera stúd-
íórottur í eitt og hálft ár,“ segir
Birgir.
Á nýju plötunni kveður heldur
betur við nýjan tón því Ampop,
sem hingað til hefur einbeitt sér
að rafrænni popptónlist, hefur að
miklu leyti lagt rafhljóðfærin á
hilluna og snúið sér að gömlu góðu
órafrænu hljóðfærunum, píanó-
um, orgelum og öðrum akústísk-
um hljóðfærum.
„Við verðum áfram með
melódísku pælingarnar, en nú er
þetta orðin framsækin popptón-
list með einhvers konar folk-
ívafi.“
Þeir sem vilja heyra hvað er í
gangi hjá Ampop ættu að mæta á
Grand Rokk. ■
Hitað upp fyrir
Englandsferð
■ TÓNLEIKAR
Fimmtudagur 16/9
PARIS AT NIGHT Kabarett með
söngvum
e. Jacques Prévert kl. 20
Föstudagur 17/9
PARIS AT NIGHT Kabarett með
söngvum
e. Jacques Prévert kl. 20
Laugardagur 18/9
CHICAGO
e Kander, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun
kl 20
Sunnudagur 19/9
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
kl 14
ÁSKRIFTARKORT
Á 6 SÝNINGAR
KR 10.700
(þú sparar 5.500)
TÍU MIÐA
AFSLÁTTAKORT
KR 18.300
(Þú sparar 8.700)
BESTI KOSTURINN FYRIR
LEIKHÚSROTTUR
Miðasala á net inu:
www. borgar le ikhus. is
Miðasala, sími 568 8000
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Jón Nordal ::: Gríma
John Adams ::: Fiðlukonsert
Robert Schumann ::: Sinfónía nr. 1 í B-dúr,
op. 38 „Vorsinfónían“
HÁSKÓLABÍÓI Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30Gul áskriftaröð #1
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Leila Josefowicz
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Í flokki fremstu
einleikara heims
Þrátt fyrir að Leila Josefowicz sé aðeins 26 ára gömul er hún á góðri
leið með að leggja heiminn að fótum sér í krafti glæsilegrar spila-
mennsku og spennandi verkefnavals. Hún er æ oftar nefnd í sömu
andrá og fremstu fiðluleikarar heims og hefur leikið með þekktustu
hljómsveitum heims. Nú er komið að Sinfóníuhljómsveit Íslands.
FÖSTUDAGUR 17. SEPT. KL. 20.30
BAMAN' - Tónlist og dans frumbyggja
Ástralíu og ísl. tónlistarmenn;
Hilmar Örn, Steindór Andersen,
Diddi fiðla, Eþos o.fl. Tónleikarnir verða
hjóðritaðir og kvikmyndaðir.
SUNNUD. 19. SEPT. KL. 16 OG KL. 20.30
REYKJAVÍK 5
ásamt 4 manna hljómsveit; útsetningar
Manhattan Transfer, New York Voices o.fl.
Báðir tónleikarnir verða hljóðritaðir.
Föstudagur 17. sept. kl. 20.
Fimmtudagur 23. sept. kl. 20.
Föstudagur 1. okt. kl. 20.
Miðasala í í síma 562 9700
www.idno.is
Aftur á fjalirnar !
Marta Guðrún Halldórsdóttir
söngkona og Örn Magnússon pí-
anóleikari koma fram á þriðju há-
degistónleikunum sem haldnir
eru í tilefni af 40 ára afmæli Tón-
listarskóla Garðabæjar.
Þau ætla að flytja ljóð eftir
Mendelssohn og Atla Heimi
Sveinsson. Einnig flytja þau Þrjú
númer í íslenskum búningi eftir
Gunnar Reynir Sveinsson.
Í þessari tónleikaröð koma ein-
göngu fram tónlistarmenn sem
stundað hafa nám við Tónlistar-
skólann í Garðabæ. Marta Guðrún
lærði þar á píanó hjá Gísla Magn-
ússyni og lauk burtfararprófi í pí-
anóleik árið 1987. Samhliða píanó-
náminu lærði hún söng hjá
Sieglinde Kahmann í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Síðar hélt
hún í framhaldsnám í söng í
München og hefur starfað sem
söngkona frá árinu 1990.
Tónleikarnir verða haldnir í sal
tónlistarskólans að Kirkjulundi 11
og hefjast klukkan 12.15. ■
„Rokklist“ nefnist fjórða sýning
myndlistarmannsins Örvars Árdal,
sem hann opnar í Vesturporti, Vest-
urgötu 18, klukkan átta í kvöld.
Þótt þetta sé fjórða sýning
hans er þetta samt sú fyrsta sem
haldin er í Reykjavík. Hinar þrjár
voru allar haldnar á heimaslóðum
hans í Hveragerði.
Hann segir snillinga á borð við
Gil Bruvel og Boris Vallejo hafa
haft mikil áhrif á myndlist hans,
auk þess sem hann hefur sótt inn-
blástur í myrkrahöfðingja rokks-
ins á borð við Lou Reed, Jim
Morrison og Nick Cave.
Afmælið heldur áfram
■ TÓNLEIKAR
■ LISTSÝNING
ÖRN AÐ BAKI MÖRTU Marta Guðrún
Halldórsdóttir syngur og Örn Magnússon
leikur á píanó í hádeginu í Tónlistarskóla
Garðabæjar.
Rokklist Örvars
ÖRVAR ÁSAMT EINU VERKA SINNA
Örvar Árdal opnar sýningu á verkum sín-
um í Vesturporti í kvöld.
AMPOP Hitar upp á Grand Rokk fyrir Englandsferð ásamt Vínyl og Láru Rúnarsdóttur.
■ ■ TÓNLEIKAR
12.15 Tónlistarskóli Garðabæjar
býður til hádegistónleika alla
fimmtudaga í september í tilefni
af 40 ára afmæli skólans. Marta
Guðrún Halldórsdóttir söngkona
og Örn Magnússon píanó koma
fram á þriðju hádegistónleikunum
sem haldnir eru fimmtudaginn
16. september í sal tónlistarskól-
ans að Kirkjulundi 11.
19.30 Leila Josefowicz fiðluleikari
leikur með Sinfóníuhljómsveit
Íslands í Háskólabíói. flutt verða
verk eftir Jón Nordal, John Adams
og Robert Schumann. Stjórnandi
er Rumon Gamba.
21.00 Tónleikar með Jóni Ólafs-
syni í Pakkhúsinu á Selfossi.
Hljómsveitin Veðurguðirnir stígur
á stokk klukkan 23.
21.00 Tríó Jóns Páls Bjarnasonar
gítarleikara kemur fram á öðrum
tónleikum Múlans í gyllta salnum
á Hótel Borg. Ásamt Jóni Páli
leika þeir Gunnar Hrafnsson á
bassa og Alfreð Alfreðsson á
trommur.
22.00 Vínyll, Lára og Ampop spila
á Grand Rokk.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
13 14 15 16 17 18 19
Fimmtudagur
SEPTEMBER
48-49 (36-37) Slanga 15.9.2004 21:14 Page 2