Tíminn - 20.11.1973, Síða 13
Þriðjudagur 20. nóvember 1973.
TÍMINN
13
Eitt sinn réðst reið kona á Caro-
line litlu, þegar hún var að koma
úr kirkju frá Allraheilagramessu
og hrópaði: — Mamma þín er
vond kona! Hún hefur myrt þrjá
menn og pabbi þinn lifir enn!
Félagár Johns eltu hann heim
úr skólanum æpandi i kór: —
Pabbi þinn er dauður! Pabbi þinn
er dauður! Börn eru oft grimm.
Verkfallsmaður hjá Olympic
Airways sagði orð, sem undan
sveið: — Þau nota tólf milljónir
dala árlega til framfæris! Hvers
vegna fæ ég ekki kauphækkun?
Svo ótrúlega rikur...
Hvernig er Onassis? Það veit
enginn með vissu. Menn vita að-
eins, að hann er forrikur. Hann
hefur allt frá upphafi metið það
mest að vernda Jackie. Nú er það
ekki leynilögreglan, sem sér um
að verja lif hennar — henn hefur
fengið gáfaða, sterka og þögla
menn til þess. Þeir fylgja henni
hvarvetna, en Onassis þarf ekki
að hugsa um börnin, þvi að leyni-
lögreglan fylgist með þeim til
sextán ára aldurs. Gæzlan er sér-
staklega styrk umhverfis heimili
Jackies i New York, enda kosta
lifverðirnir, sem fylgjast með
öryggi hennar þar allan sólar-
hringinn Onassis 1200 dali á viku!
Það er nefnilega fólk, sem vill
: myrða Jackie!
Hingað til hefur verið ljóstrað
upp um þrjá tilraunir. 3. janúar
1969 var tilkynnt um sprengju i
flugvél, sem Jackie ætlaði að taka
frá New York til Aþenu. Seinna
beið maður vopnaður byssu eftir
henni i Washington og eitt sinn
var reynt að brjótast inn i ibúð
hennar i New York.
Það er þvi ekki undarlegt, þótt
Jackie sé taugaóstyrk og óróleg.
Onassis styrkir hana og treyst-
ir. Hann verndar hana og þvi
segja margir vinir Jackies, að
þau séu hamingjusöm.
Hjónaband þeirra er óvenju
frjálslegt, þvi að þau eru frjáls
innan vissra takmarka.
„0, pabbi” orðaði það svona
• sjálfur: — Jackie er litill fugl,
sem þarfnast bæði verndar og
frelsis. Ég veitti henni hvort
tveggja.
Heimurinn er litill
Bæði Jackie og Onassis finnst
heimurinn litill. Onassis hringir
frá New York og segist fara til
Istanbul eftir klukkustund. Ætlar
hún að hringja, þegar hann er
kominn þangað?
Um þetta er ekki rætt og Jackie
reynir ekki að biðja Onassis um
að sitja heima né spyr, hvort hún
megi koma með honum. Hún spyr
heldur ekki, hvenær hann komi
aftur heim. Hún hefur loksins
lært, að hann hatar allt, sem
bindur hann. Hann verður alltaf
að fá að ráða.
Jackie getur haldið Onassis
með þvi að láta hann finna, að
hann sé frjáls. Það kunni Maria
Callas ekki. Hún var afbrýðisöm
og drottnunargjörn. Meðan
Jackie var gift John F. Kennedy
lærði hún að halda slfkum tilfinn-
ingum i hömlum. Forseti Banda-
rikjanna er ekki spurður, hvað
hann hafi verið að gera og við
hvern hann hafi talað fyrir mat-
inn. Ekki einu sinni af eiginkon-
unni!
Maria Callas
ber sig vel!
Jackie sagði ekki einu sinni orð,
þegar Onassis ?agðist ætla að
hitta Mariu Callas. Hann tilkynnti
henni I eitt skipti fyrir öll, að hann
ætlaði hvorki að breyta venjum
né siðum eftir giftinguna.
Onassis var vanur að hitta Call-
as hjá vonkonu sinni „Maggie”
barónessu van Zuylen, sem hét
Rotschild, áður en hún gifti sig,og
er forrik. Hjá henni getur Onassis
notið af lffsins lyst draumspils
sins: bridge!
1 nóvemberlok 1968, tæpum
mánuði eftir að Ari gekk að eiga
Jackie, kom hann til Parisar. Þá
bauð hann Mariu Callas til mið-
degisverðar, sennilega til að út-
skýra eitt og annað fyrir henni.
Samræðurnar voru vinsamlegar i
byrjun, en seinna hófust vein og
læti. Klukkan fjögur um morgun-
inn barði Ari á dyrnar hjá Callas,
sennilega til að skýra sitt mál
betur(og hún opnaði, en lætin hóf-
ust á hótelinu. Næsta dag snæddu
skötuhjúin i stórhýsi barónessu
van Zuylen við Avenue Foch i
Paris og þar hegðaði heimsfræg
listakonan sér óvenju illa og las
grfska skipaeigandanum ræðu
um almenna hegðan. Nú er sam-
band Onassis og Mariu Callas
sagt gott, en svo er sagt, að það sé
vegna þess,að hann sér um viss
fjármál hennar.
t janúar 1969 sagði Callas
skyndilega við Onassis, að hún
vildi ekki hitta hann oftar. Hún
óttaðist að listaferill hennar biði
hnekk af þvi, ef hún sæist með
honum. Svo er lika piskrað um
það, að Maria Callas sé ekki jafn
forrfk og talið hafði verið — að
hún þurfi blátt áfram að vinna
fyrir sér.
Dýr föt og skartgripir
Mikið hefur verið rætt um fata-
kostnað Jackies. Upphæðin er að
vfsu ótrúleg, en það verður einnig
að reikna með þvi, að Onassis
græðir mikið — hundruð milljónir
árlega. Jackie eyddi árlega 30
þúsund dölum i föt, þegar hún var
forsetafrú Bandaríkjanna. Nú
eyðir hún tffalt þeirri upphæð, en
það er eins og dropi I hafið fyrir
Onassis. Þjónarnir fá t.d.
1.030,992 I laun árlega og hér er
um bandariska dali að ræða, svo
að við getum margfaldað þá upp-
hæð með þó nokkrum islenzkum
krónum. Jackie fékk skartgripi
fyrir 5 milljónir dala til að lýsti af
henni i húsunum i Aþenu, Monte
Carlo, Suður-Ameriku, Paris og
New York. Onassis hefur enn-
fremur hótelfbúðir i London og
New York, sem hann greiðir fyrir
allt árið, auk leikfangsins Christ-
ina, sem kostar hann hvorki
meira né minna en 1 milljón og 4
hundruð þúsund dali árlega. Svo
greiðir hann á að gizka tvær
milljónir dala i tryggingar
árlega...
— Þetta er sómasamleg upp-
hæð, þegar ég tel allt til, segir
Onassis, ef einhver talar um
eyðslu hans.
Gjafir og aðstoð
Onassis gaf aldrei neitt til
styrktarfélaga, fyrr en hann gekk
að eiga Jackie, en hún virðist
hafa fengið hann til að líta öðrum
augum á málin. Ari reisti sjúkra-
hæli fyrir börn i útborg Aþenu,
Psyhiko, og vitanlega var hælið
skýrt Onassion. Brezkir blaða-
menn segja, að hann hafi látið
væna upphæð af hendi til styrktar
flugmanna, og þegar hann gerði
góð kaup I Belfast i fyrra gaf hann
riflega til velgerðarstofnana i Ir-
landi, en hann lét jafnframt
byggja þar skipasmiðastöð til
þess að hann gæti látið smiða skip
sin þar.
Jackie girnist eitthvað og
Onassis kaupir það. Skömmu eft-
ir giftinguna gaf hann henni hús
við Genfarvatn i Sviss og seinna
borgaði hann óðal Barclay Dougl-
as við Hammersmith Road i
Newport út i hönd. Hann festi
einnig kaup á öðru stórhýsi:
Lagonisi við Eyjahaf.
Aðallega lambakjöt
Jackie og Onassis eru ekki jafn-
oft á veitingahúsum og myndir i
dagbl. og timaritum gefa til
kynna. Þau vilja helzt ekki láta
sjá sig. Þau borða oftast heima og
eftirlætisréttur þeirra er lamba-
kjöt (helzt ófædd lömb!) en verð-
ið á þeim er um 6 þúsund krónur
kilóið! Þeim þykir lambakjöt svo
gott, að verzlun ein við Madison
Avenue á að útvega þeim þrjú
lömb mánaðarlega. Þau borða
ekkiaðeins lambakjöt iNew York,'
heldur hvarvetna i veröldinni.
Þegar þau fóru til húss sins i
Montevideo,fengu þau lambakjöt-
ið flugleiðis i frysti! En kjötið átti
þó ekki að vera hraðfryst!
Þá sjaldan, sem hjónakornin
fara út að borða, fær Ari sér hrúg-
ur af lauk og skolar honum niður
með vodka. Jackie er háttvisari
við borðið.
Jackie dansar á sinni gullnu
braut um lifið og sumir likja
henni við fuglinn, sem Shakespe-
are skrifaði eitt sinn um:
....„Glitrandi fjaðrirnar styðja
hann á fluginu — en séu þær rifn-
ar af honum, fellur fuglinn til
jarðar og deyr...”
(Þýtt og endursagti.j.)
Leikfangiö CHRISTINA (mynd tii vinstri) kostar Onassis um það bil I
1,4 milljón dali árlega og einkafiugvél hans er sjálfsagt ekki ódýrari í |
rekstri. En hún flytur Ari vlðsvegar um heiminn — og Jackie ferðast af
og til með henni. Þau ferðast ekki oftsaman, hjónakornin...
Jackie hvarf frá töfraprinsinum
þegar þau gengu I hjónaband.
til Kalíbans var sagt illgirnislega,
martröð?
John viðurkennir stjúpföður sinn (til vinstri).Það gerði Caroline ekki, en hvaö gerir Jackie? (til hægri)
Hún er fámál og notar sólgleraugu.