Tíminn - 20.11.1973, Page 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur 20. nóvember 1973.
ELLEN
DUURLOO:
Geymt
en
ekki
gleymt
29
Peningarnir streymdu inn. Oftast
voru það eiginmennirnir, sem
keyptu til baka skartgripi eigin-
kvenna sinna fyrir margfalt verð.
Herbert v. Lutten keypti perlu-
festina hennar og stakk henni i
vasann.
Að uppboðinu loknu, settist
Bella i gluggaskot á útskorinn
bekk, sem var yfirdekktur með
dökkrauðu silki. Hingaö kom
Herbert og festi perlufestina um
háls hennar, og sagði:
— Leyíist mér þetta, frú, kærar
þakkir fyrir lánið, hún hefur nú
gert sitt gagn i þessum fallega
leik.
— En barón, það var alls ekki
ætlunin... óg ...sagði Bella og
augu hennar ljómuðu. Bragðið
hafði heppnazt, hún hafði verið
ákaflega örlát, en tapaði engu á
þvi.
— Mér er það fullkomlega Ijóst,
að þetta var ekki ætlun yðar frú,
en óg stóðst ekki freistinguna.
Þessar perlur tilheyra yður.
— Mér er lika ákaflega annt um
þessar perlur, það var einmitt
þess vegna, sem ég gaf þær. Til -
gangur þessarar veizlu er svo
i'allegur .... Vesalings bændurnir,
sem hal'a orðið svona illa úti i
flóðunum, og börnin þeirra... ég
má ekki til þess hugsa. Ég hef
mikið dálætiá börnum, barón.
— Já, þetta er alveg hræðilegt,
fjölmargir fórust, og enn fleiri
misttu heimili sin. En i þessari
góðgerðarveizlu hefur tekizt að
safna saman álitlegri peninga-
upphæð, svo að við skulum vona,
að vesalings bændurnir geti
komiö sér upp heimilum á nýjan
leik.
— Blessuð börnin, þau eru vist
mörg,sem eru munaðarlaus.
Bella hélt áfram að tala um
munaðarlausu börnin.
— Þér eruð sannarlega
góðhjörtuð, fröken Bella.
— öo, ég hef einungis kven-
mannshjarta, eða eigum við
kannski að kalla það móður-
hjarta?
— Hvernig getur kenmanns-
hjarta eins og yðar lifað eingöngu
fyrir listina, ég skil það ekki.
— Ég lifi heldur ekki einungis
fyrir hana, hún þagnaði skyndi-
lega eins,og hún hefði þegar sagt
of mikiö.
Hann tók i hönd hennar:
— Fröken Bella, yður hlýtur að
hafa skilizt að ég... hvers vegna
visið þér mér einatt á bug? Þér
vitið... Stundum hefur mér
fundizt sem yöur væri ekki alveg
sama um mig. En i hvert skipti,
sem vonir minar hafa vaknað,
hafið þér lokað yður inni i skel
yðar. Núna viðurkennið þér, að
þér lifið ekki eingöngu fyrir list
yðar. Segið mér, ég veit vissulega,
að ég hef engan rétt á að krefja
yður sagna, en er það einhver
annar, sem er yður hjartfólginn?
Hún leit á hann tárvotum aug-
um:
— Já, það er annar, en ekki á
þann hátt, sem þér haldið.
— Er það Goldmann?
Bella brosti angurvært og hristi
höfuðið.
— Barón, þér hafið sýnt mér svo
mikla athygli og verið mér svo
góður vinur, að mér finnst.að þér
eigið rétt á að fá að vlta um
þetta. Ég tala annars mjög litið
um einkalif mitt og íortið.
Þegar hún sagði orðið fortið,
kipptist baróninn við. Bella tók
cftir þvi og brosti við. Þessi ágæti
barón var þá, þrátt fyrir allan
fagurgalann, jafnbundinn
siðvenjum og hver annar. Ef hún
ætti svokallaða „fortið,” myndi
hann neyta allra bragða til þess
að gera hana að ástkonu sinni, en
eiginkonu, nei, aldrei. Bella hafði
visvitandi sagt þetta, þvi meir
myndi honum létta, þegar hann
heyrði hvers kyns var.
Hún þagði andartak, tárin
hrundu niður vanga hannar. Hún
strauk þau gætilega burt með
knipplingavasaklút.
— Ég verð að vinna fyrir mér, og
barni minu.
Enn kipptist baróninn við.
Bella lét sem hún sæti það ekki
og hélt áfram.
— Já, ég á litinn,indælan dreng,
hann er i heimavistarskóla i Eng-
landi. Ég er ekkja, maðurinn
minn dó eftir hálfs árs hjóna
band.Hann var kapteinn i enska
hernum. Ég hef aldrei heimsótt
fjölskyldu hans, þau vilja
einungis ná drengnum frá mér.
Þér skiljið, þau vildu, að John
kvæntist enskri stúlku, en hann
kvæntist mér gegn vilja þeirra.
Ég mun aldrei leita á náðir þeirra
og láta þau taka drenginn af mér.
Aldrei. Ég hef barizt i bökkum.en
þraukað þetta af. Sjálf hef ég ekki
átt að borða, en drenginn minn
hel'ur aldri skort neitt. Hann er
allt, sem ég á i þessum heimi, og
ég get ekki svikið hann.
Já, en ástkæra Bella, Herbert
tók i hönd hennar. Þér svikið
hann ekki þó svo að þér giftist
mér. Þvert á móti munið þér
hjálpa honum. Ég mun ættleiða
hann. F'rásögn yðar hefur fengið
mjög á mig. Dapurleg örlög yðar,
list yðar, kjarkur yðar og festa.
Fröken Bella, ég elska yður, viljið
þér veita mér þann heiður að
verða konan min?
— Barón, þetta kemur mér svo
á óvart, þetta er dásamleg til-
hugsun, en þér verðið að gefa mér
smá frest, svo að ég geti hugsað
málið i ró og næði. Þér vitið hve
mikils ég met yður, þér sögðuð
áðan að það hefði ekki farið
framhjá yður að ég . að ég..nú
jæja, hjarta mitt er ekki stein-
runnið ennþá. En við verðum að
hugsa þetta allt af skynsemi og
ekki flana að neinu. Við verðum
sömuleiðis að gera okkur grein
fyrir afleiðingunum. Ég hef einu
sinni orðið fyrir þvi að evrópsk
fjölskylda vildi ekki viðurkenna
mig sem eiginkonu sonar sins.
Það langar mig ekki til að ganga i
gegnum einu sinni til. Þér eruð af
aðalsættum, barón, en hvað er ég.
Ung kona, frá hálfsiðlausu landi
langt i burtu, á enga fjöl-
skyldu...ég er ekkja með ungan
son. Ég giftist barn að aldri, ég er
söngkona. Myndi dönsk hefðar-
fjölskylda nokkurn tima viður-
kenna slika konu sem eina af
þeim.
— Astkæra Bella, fjölskylda
min eru nokkrar gamlar frænkur
og frændur. Ég er sjálfs mins
húsbóndi. Enginn getur sagt mér
fyrir verkum.
— Herbert, þetta var i fyrsta
sinn sem Bella kallaði hann svo,
við skulum hugsa þetta til
morguns og ræða þá saman
aftur.
— Bella,ég tek þetta sem loforð,
má ég koma og sækja yður i vagni
minum eftir hádegisverð. A þann
hátt getum við verið út af fyrir
okkur og talað um hinar ýmsu
hliðar á þesu máli.
— Mjög gjarnan, en nú skulum
við fara til hinna gestanna, það er
of áberandi, ef við sitjum hérna
mikið lengur. Sjáið, hers-
höfðinginn er á leið hingað, ég tók
eftir að hershöfðingjafrúin hefur
verið að gefa okkur augnagotur
siðasta kortérið.
— Bella vissi vei, að hún hafði
haldið vel á spilunum.
Þessa nótt lá hún lengi andvaka
og velti fyrir sér glæsilegum
framtiðarhorfum sinum.
Næsta morgun gaf hún Madelon
gullhring með fallegri perlu.
— Ég er svo hamingjusöm,
hafði hún sagt.
— Siðan gekk allt eins og af
sjálfu sér. Goldmann hafði yppt
öxlum og brosað sinu allra háðu-
legasta brosi. Bellu hafði ekki
geðjast að þessu brosi hans, en
hratt siðan öllum hugsunum, um
það hvað hann kynni að gera, frá
sér.
Hann hafði ekki aðhafzt
nokkurn skapaðan hlut
Samningur þeirra rann út eftir
mánuð, og þennan mánuð var hún
bundin, en eftir það myndi hún
ekki hafa meira saman að sælda
við Goldmann. Herbert hafði
farið með þeim til Vinarborgar og
Parisar. Bella hafði krafizt þess
að mennirnir tveir gistu á öðru
hóteli en hún og Madelon.
Siðvenjur þeirra tima leyfðu ekki
lö þau hefðu öll verið á sama
nóteli, og Bella fylgdi
siðvenjunum stranglega. Að öðru
leyti hafði Herbert fylgt henni
hvert sem hún fór. Að þessum
mánuði liðnum giftu þau sig i
danska sendiráðinu i Paris.
Henm haiöi vissulega gramizt
það, að ekkert varð úr glæsilegu
brúðkaupi i Kaupmannahöfn,
eins og hana hafði dreymt um i
mörg ár, en annars var hún bara
ánægð með hvernig allt hafði at-
vikast. Þar að auki var hún ekkja
og átti son, og gat þvi ekki krafizt
þess að fá að bera tákn hinnar
saklausu brúðar.
1557
Lárétt
1) Fugl. — 6) Tungumál. — 10)
Nes. — 11 Timi. — 12)
Anganin. — 15) Dugnaður. —
Lóðrétt
2) Gruna. —3) Svei. — 4) Smá.
— 5) Krakka. — 7) Svik. — 8)
Fugl. — 9) Bókstafi. — 13)
Samfarir. — 14) Rani. —
Ráning á gátu No. 1556
Lárétt
1) Sviss. — 6) Astkona. — 10)
Te. — 11) El. — 12) Afbrots. —
15) Gráti. —
Lóðrétt
2) Vot. —3) Svo. —4) Bátar. —
5) Kalsa. —7) Sef. —8) Kór. —
9) Net. — 13) Ber. — 14) Ort. —
IV
\n
/4 o ?y
J
HE POES THIS FOR HIS PEOPLE
NOW THE PROPHECy OF OUR
POOM MAy NEVER COME
TO BE/ ____. .
THE MOUNTAIN MUST BE
/ LEVELEP/ THE TOMB
OF OUR PRINCE TUKMEKA
MUST NEVER BE FOUNP/ NOR
THE TREASURE WHICH HE PIES
. TO PROTECT/ _____
WHILE CENTURIES AHEAP IN OUR
OWN TIME
yup, flash/anp
r THOSE' TWO BULLIES,
CACTUS ANP BROCK,
KEPT HIM COMPANV /
BUT IT PIPN'T SAVE THfe
MARTIAN RACE /
HE PIP BURy
HIMSELF, WILLIE/
-u*
lilf lllil
■
Þriðjudagur
20. nóvember
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Jafnrétti — misréttiVII.
þáttur. Umsjón: Þórunn
Friðriksdóttir, Steinunn
Harðardóttir, Valgerður
Jónsdóttir, Guðrún H.
Agnarsdóttir og Stefán Már
Halldórsson.
15.00 Miðdegistónieikar:
Frönsk tónlist
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Popphornið
17.10 Tónlistartimi barnanna
Egill Friðleifsson söng-
kennari sér um timann.
17.30 Framburðarkennsla I
frönsku
17.40 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.30 Fréttir. 18.45. Veður-
fregnir. Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. Fréttaspegill.
19.20 Úr tónlistarlifinu
Umsjónarmaður: Þorsteinn
Hannesson.
19.40 Kona i starfi Sigríöur
Ásgeirsdóttir lögfræðingur
flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
21.10 Landsleikur i hand-
knattleik Ísland-Sviþjóð.
Jón Asgeirsson lýsir i
Laugardalshöll.
21.45 Pianóieikur Július
Katchen leikur lög eftir
Mendelssohn, Debussy og
de Falla.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: Minningar
Guðrúnar Borgfjörð Jón
Aðils leikari les (7).
22.35 Harmónikulög Trió
Egils Hauges leikur.
23.00 A hijóðbergi Enska
þjóðkvæðið um Hróa hött. —
Anthony Quayle les og
syngur: Desmond Dupré
leikur undir á lútu.
23.45 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Þriðjudagur
20. nóvember
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og augiýsingar.
20.35 Bræðurnir. Nýr breskur
framhaldsmyndaflokkur.
Leikstjóri: Ronald Wilson.
Aðalhlutverk: Jean Ander-
son, Julia Goodman, Glyn
Owen, Richard Easton,
Robin Chadwick og Jennifer
Wilson. 1. þáttur. Endir
upphafsins.Þýðandi Jón O.
Edwald. Myndin hefst við
jarðarför Roberts
Hammond, sem á langri og
starfsamri ævi hefur byggt
upp stórt flutningafyrirtæki.
Að athöfninni lokinni biður
lögfræðingur f jölskyldunnar
ekkjuna og synina þrjá að
hlýða á lestur erfðaskrár-
innar, og þangað er einnig
boðuð Jennifer Hammond,
einkaritari hins látna.
21.25 Heimshorn. Frétta-
skýringaþáttur um erlend
málefni. Umsjónarmaður
Sonja Diego.
22.00 Skák. Stuttur, banda-
riskur skákþáttur. Þýðandi
og þulur Jón Thor Haralds-
son.
22.05 Heimsböl. Mynd frá
Sameinuðu þjóðunum um
hið sivaxandi vandamál,
sem stafar af neyslu eitur-
lyfja. Þessi mynd er sú
fyrsta af þremur samstæð-
um myndum um þetta efni,
og er i henni fjallað um
ópiumræktun i Asiulöndum.
Þýðandi og þulur Ellert
Sigurbjörnsson.
22.35 Dagskrárlok.