Fréttablaðið - 10.11.2004, Qupperneq 8
8 10. nóvember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Bílaleigur:
Avis leigir bíl frá Danmörku
VIÐSKIPTI Bílaleigan Avis fékk í
gær bílaleigubíl sem fyrirtækið
leigir frá Avis í Danmörku. Bíll-
inn er fluttur með Norrænu til
Seyðisfjarðar og verður keyrður
suður þegar búið er að afgreiða
hann í tollinum. Hann verður síð-
an til útleigu í bílaflota Avis í
vetur. Ef vel tekst til má búast við
að allt að 200 danskir bílaleigu-
bílar verði til útleigu hjá Avis yfir
veturinn. Með þessu er fyrirtækið
að þrýsta á að reglum um trygg-
ingar bílaleigubíla verði breytt.
„Bíllinn er á dönskum númera-
plötum og tryggður í Danmörku.
Þessi bíll á að vera okkur ódýrari
og hagkvæmari en íslenskir bílar
því að tryggingariðgjöld á bíla-
leigubílum eru mjög há á Íslandi.
Við ætlum að fara með bílinn í
gegnum kerfið og sjá hvort við
rekumst á einhverja þröskulda á
leiðinni. Ef þetta gengur vand-
ræðalaust eins og við höfum trú á
þá gerum við ráð fyrir að stór
hluti af okkar flota verði bara tek-
inn rétt fyrir sumarið og keyrður
svo út með Norrænu að hausti,“
segir Ingi Arason, fjármálastjóri
Avis.
- ghs
Höfðu ekkert fram
að færa á Alþingi
Menntamálaráðherra gagnrýndi stjórnarandstöðuna fyrir að óska eftir ut-
andagskrárumræðum en hafa ekkert fram að færa. Stjórnarandstaðan kall-
aði eftir stefnu ríkisstjórnarinnar í kennaradeilunni en fékk ekki skýr svör.
ALÞINGI „Ég hélt að stjórnarand-
staðan hefði efnt til utandag-
skrárumræðu til að koma með
raunhæfar lausnir
til að leysa verk-
fall kennara. Hver
er síðan lausnin?
Jú, hún er að dæla
meiri peningum
inn í deiluna,“
sagði Þorgerður
Katrín Gunnars-
dóttir mennta-
málaráðherra eft-
ir að hafa hlýtt á
álit og tillögur
stjórnarandstöð-
unnar í kennara-
deilunni í gær.
Pétur Bjarna-
son, varaþing-
maður Frjálslynda
flokksins og málshefjandi, spurði
menntamálaráðherra hvort tími
hjásetu ríkisstjórnarinnar væri
ekki löngu liðinn, hvað hann teldi
að ríkisstjórnin geti gert til að
höggva á þennan hnút og þá
hvenær.
Þorgerður svaraði því til að
menntamálaráðuneytið stefndi á
að bæta börnunum upp það tjón
sem rof í kennslu þeirra hefði
valdið. Það yrði erfiðara með
hverjum deginum sem liði. Hún
sagði einnig að lagasetning í kjara-
deilu hlyti að vera neyðarúrræði.
„Við höfum reynslu af lagasetn-
ingu og hún er slæm. Hún leysir
lítinn vanda, heldur líkt og báðir
deiluaðilar hafa þegar bent á, skýt-
ur honum einungis á frest. Laga-
setning er því að mínu mati
þrautalending,“ sagði Þorgerður.
Hvenær leysa ætti vandann lét
hún ósagt.
Gunnar I. Birgisson, formaður
menntamálanefndar Alþingis, var
fjarverandi þegar umræðan fór
fram. Hann hefur sagt að deilend-
ur fái tæplega tvær vikur til að ná
samkomulagi áður en lög verði
sett á verkfallið. Dagný Jónsdóttir,
varaformaður menntamálanefnd-
ar, sagði lagasetningu ekki hafa
komið til umræðu í nefndinni.
Henni hugnist ekki lagasetning og
stjórnvöld hefðu ekki tekið afstöðu
til hennar.
Ólafur Loftsson, formaður Kenn-
arafélags Reykjavíkur, sat ásamt
fleiri kennurum á áheyrendapöllun-
um og fylgdist með umræðunni.
Hann sagði þær engu breyta fyrir
stöðu kennara í landinu hefði ríkis-
stjórnin ekki í hyggju að grípa inn í
deiluna. Hann hefði ekki orðið fyrir
vonbrigðum með utandagskrárum-
ræðuna en hefði vonast eftir að
þingmenn hefðu meira fram að
færa: „Það vissu allir að staðan
væri alvarleg.“ gag@frettabladid.is
Farsímabylting á Indlandi:
Heimasímar
gefa eftir
INDLAND, AP Indverjar eiga nú orð-
ið fleiri farsíma en heimasíma.
Þrátt fyrir það kvarta símafyrir-
tækin undan bágri afkomu og
segja að farsímagjöldin séu lág og
álögur stjórnvalda miklar.
Í lok síðasta mánaðar voru 44,5
milljónir farsíma í notkun í Ind-
landi en 44 milljónir heimasíma.
Forsvarsmenn símafyrirtækj-
anna eru hins vegar ósáttir við
það hversu mikið tekjur þeirra af
hverjum símnotanda hafa lækkað,
þær eru nú aðeins rétt rúmlega
fimmtungur þess sem var fyrir
fimm árum síðan. ■
,,Dagný
Jónsdóttir,
varafor-
maður
mennta-
málanefnd-
ar, sagði
lagasetn-
ingu ekki
hafa komið
til umræðu
í nefndinni.
SVONA ERUM VIÐ
SÍMTÖL INNANLANDS:
– hefur þú séð DV í dag?
Sjálfstæð-
ismenn
telja að
Þórólfur
fái 20
milljónir
100%
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Íbúðalán
Kynntu þér kostina við íbúðalán
Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá
sérfræðingum okkar og veldu
leiðina sem hentar þér best. Hafðu
samband í síma 410 4000 eða á
fasteignathjonusta@landsbanki.is
BANDARÍKIN, AP „Forsetinn mun
hvorki draga saman seglin né
gefa eftir,“ sagði Colin Powell, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, í
viðtali við The Financial Times.
Þar lýsti hann utanríkisstefnu
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta á næsta kjörtímabili. „Stefn-
an er framhald á grundvallarfor-
sendum hans, stefnu og sannfær-
ingu,“ bætti Powell við.
Powell sagði að friður fyrir
botni Miðjarðarhafs væri eitt af
meginviðfangsefnum Bandaríkja-
stjórnar. Hugsanleg valdhafa-
skipti hjá Palestínumönnum
vegna veikinda Arafats væru
tækifæri sem Bandaríkjastjórn
hygðist nýta til að koma friðar-
ferlinu í gang. ■
Utanríkisstefna Bush:
Mun ekkert gefa eftir
COLIN POWELL
BÍLALEIGUBÍLL FRÁ DANMÖRKU
Ingi Arason, fjármálastjóri Avis. Fyrirtækið
verður með bílaleigubíl frá Danmörku í út-
leigu í vetur.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
DRENGUR HORFIR ÁLENGDAR Á UMRÆÐU UM VERKFALL
Menntamálaráðherra gagnrýndi stjórnarandstöðuna og sagði hana ala á falsvonum hjá kennurum, foreldrum og fjölskyldum í landinu.
Stjórnarandstaðan sagði stjórnina eiga sök á falli miðlunartillögunnar. Verðbólgan væri of mikil.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á MIÐVIKUDÖGUM
2001 1.850.760
2002 1.588.741
2003 1.210.377
Fjöldi mínútna sem við tölum í símann.
Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun.
08-09 9.11.2004 21:56 Page 2