Fréttablaðið - 10.11.2004, Blaðsíða 22
Þegar þú gerir verkefni heima, farðu þá yfir það með penna og
lagaðu allt sem betur mætti fara áður en þú skilar því inn. Það
er mjög mikilvægt að fara yfir allt sem unnið er í skólanum og
skiptir miklu máli.
Kennaraverkfallið raskar ekki
aðeins námi grunnskólanem-
enda heldur líka útskriftarnem-
enda Kennaraháskóla Íslands
sem undir venjulegum kringum-
stæðum ættu að vera að búa sig
undir framtíðarstarfið með æf-
ingakennslu í skólunum. Einn
þeirra er Ingimar Bjarnason.
„Við áttum að byrja í starfs-
þjálfun fyrir þremur vikum en
það færist allt til og við fáum
enga kennslu í staðinn,“ segir
hann en kveðst nota tímann í
verkefnavinnu eins og margir
aðrir. Aðspurður hefur hann
engar sérstakar áhyggjur af því
að ganga inn í stétt sem stöðugt
þarf að sækja bætt kjör með
verkföllum. Hann fór í kennara-
námið af áhuga fyrir starfinu en
því hafði hann kynnst er hann
sinnti afleysingastarfi við Set-
bergsskóla í Hafnarfirði í tvo
vetur og að sjálfsögðu styður
hann kennara í baráttunni. „Ég
hef hærri laun í malbikinu á
sumrin. Kennarastarfið er hins
vegar skemmtilegt, fjölbreytt
og krefjandi. Maður er alltaf að
takast á við eitthvað nýtt á
hverjum degi. En ég kem ekkert
síður þreyttur heim eftir dag í
kennslu en dag í malbiki.“ ■
Ingimar fær ekki starfsþjálfun í kennslunni meðan á verkfallinu stendur.
Kennaranemi:
Hærri laun í malbikinu
Svanborg Sigurðardóttir, aðstoð-
arverslunarstjóri í Pennanum
Eymundssyni, selur málaskóla á
bók og bandi á öllum heimsins
málum: „Við erum með öll heims-
ins mál, allt frá ensku upp í zulu.
Enn fremur erum við með ágætis
úrval af málaskólum á tölvutæku
formi, og svo þrjár gerðir á dvd,
ensku, frönsku og spænsku, en
það er nýtt hjá okkur. Svo má ekki
gleyma „Teach yourself“ bókun-
um með kassettu eða geisladiski
en þar er mjög breitt úrval af
tungumálum. Einnig erum við
með íslenskunámskeið fyrir út-
lendinga sem rjúka út eins og
heitar lummur.“ Svanborg segir
sölu málanámskeiða á bók alltaf
að aukast. „Mér finnst salan vera
jöfn yfir árið og fólk er ekkert
endilega að kaupa þetta bara
fyrir sumarfríin. Það selst alltaf
mest af spænskunámskeiðum en
svo hef ég á tilfinningunni að
enskan komi næst, þá franskan,
þýskan og ítalskan og svo bara
ótrúlegustu tungumál. Svo erum
við með fjöldann allan af frasa-
bókum sem fólk kaupir mikið fyr-
ir stuttar ferðir,“ segir Svanborg.
Íslendingum finnst greinilega
ekkert mál að læra ný mál – allt
árið. ■
Íslendingar vilja ólmir læra erlend mál af bókum og öðrum hjálpartækjum.
Málakennsla með bók og hljóði:
Ekkert mál að læra tungumál
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Hringsjá er nafn á menntastofnun
sem hljótt er um. Þó er hún ekki á
hjara veraldar heldur í stórborg-
inni sjálfri, nánar tiltekið í Hátúni
10d. Hringsjá er rekin sem sjálf-
stæð stofnun en undir merkjum
Öryrkjabandalagsins og hlutverk
hennar er að endurhæfa þá sem af
einhverjum ástæðum hafa heltst
úr lestinni af völdum slysa, sjúk-
dóma eða einhverrar fötlunar. Þar
stunda nemendur yfir 18 ára aldri
reglubundið þriggja anna nám og
nemendafjöldi er um 45 en fer
upp í 100 yfir árið þegar nemend-
ur á sérstökum tölvunámskeiðum
eru taldir með. „Þetta er stökk-
pallur hjá mörgum út í frekara
nám eða starf og stór þáttur í að
byggja upp sjálfstraust,“ segir
Guðrún Hannesdóttir skólastjóri.
Upphafið að starfseminni rekur
hún til ársins 1983 þegar farið var
af stað með tölvunámskeið enda
tölvurnar þá að ryðja sér til rúms.
„Þegar skólinn var settur á stofn
árið 1987 höfðu margar náms-
greinar bæst við,“ segir hún bros-
andi og bætir við að tölvukennsl-
an sé þó enn vinsælasta námsefn-
ið á staðnum og auk þess séu tölv-
urnar notaðar sem sjálfsögð verk-
færi í öðrum greinum.
Húsakynni Hringsjár eru
hringlaga og því mæta manni
mjúkar línur þegar inn er komið
og mýktin endurspeglast í viðmóti
fólksins. Greinilegt er að virðing
og hlýja eru aðalsmerki þess.
Nokkrir nemendur sitja við hring-
laga borð á ganginum og læra
undir félagsfræðitíma. Stærð-
fræði, íslenska, enska og tjáning
eru líka á stundatöflunni. Einn
þeirra segir ótrúlegt hversu langt
þeim hafi miðað á stuttum tíma og
hinir taka undir það. „Þegar við
komum hingað fyrir ári vorum við
hokin og hrædd. Nú höfum við
rétt úr okkur og komist að því að
við getum meira en við héldum.
Það eru forréttindi að fá að vera
hér. Ég vildi að námstímabilið
væri þrjú ár en ekki þrjár annir.“
Áhöfnin á Hringsjá er 10-13
manna hópur. Þar er náms- og
starfsráðgjafi og sálfræðingur
auk kennara. Nemendurnir bera
mikið lof á þetta fólk. „Það ætti að
fá orður. Án gríns,“ segir einn.
„Það er eins og englar sem hafa
dottið af himnum ofan bara til að
kenna okkur,“ segir annar og það
verða lokaorðin frá Hringsjánni
að þessu sinni.
gun@frettabladid.is
Nemendur í Hringsjá:
Getum meira en við héldum
Guðlaug Erlendsdóttir einn nemendanna og Guðrún skólastjóri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
22-23 (02-03) Allt nám 9.11.2004 21:27 Page 2