Tíminn - 29.11.1973, Qupperneq 13
Fimmtudagur 29. nóvember 1973.
TÍMINN
13
SJÚKRAHÚSI SKAGFIRÐ-
INGA GEFIN TÆKI
i SUMAR afhenti Sigurbjörn
Tryggvason frá Grófargili
sjúkrahúsi Skagfiröinga á Sauð-
árkróki vcrömæta gjöf til minn-
ingar um konu sina, Jóhönnu
Jónsdóttur. Gjöfin var svæfingar-
og deyfingartæki, sem valið var i
samráöi við yfirlækni sjúkra-
hússins, Ólaf Sveinsson, og hefur
stjórn sjúkrahússins beöiö blaðiö
aö flytja gefandanum kærar
þakkir sinar.
Á myndinni hér að ofan eru
taldir frá vinstri: Jóhann
Salberg, formaöur sjúkrahúss
stjórnar, Ásta, dóttir gefandans,
Sigurbjörn Tryggvason, Friðrik
J. Friöriksson héraðslæknir og
Hulda, dóttir gefandans.
GISTING
Hótcl Loftleiðir er stærsta hótel landsins. Þar eru herbergi og
fbúðir. Meðal margvfslegrar þjónustu sem miðast við ströng-
ustu kröfur bjóðum véryður afnot af sundlaug og gufubaðstofu,
auk snyrti-, hárgreiðslu- og rakarastofu. Ifvert sem ferðinni er
heitið, getið þér fengið leigðan bfl hjá bflaleigu Loftleiða (sfmi
21190 og 21188).
Hótel Loftleiðir er eina hótelið f Reykjavfk með veitingabúð
sem er opin frá kl. 05, til kl. 20., alla daga.
Vsáið er vandalaust, þvf vfsum vér yður að Hótel Loftleiðum,
sfminn er 22322.
HOTEL LOFTLEIÐIR
Lítilsháttar galli í 82 Viðlagasjóðshúsum
SAGT var frá þvi i einu dagblaö-
anna um daginn, að innfluttu við-
lagasjóöshúsin lækju meö glugg-
um, án þess aö nánar væri frá þvi
greint, hvaða hús er um að ræða.
Mátti skilja þetta svo, aö öll húsin
væru þcssum annmarka háö. En
um er að ræöa 82 hús, innflutt frá
Sviþjóö, sem að öðru leyti eru hin
vönduðustu, aö sögn Guömundar
G. Þórarinssonar, sem hefur haft
yfirumsjón meö innflutningi hús-
anna.
Guömundur sagöi i viötali viö
blaðiö, að af 550 húsum, sem flutt
voru inn af Viðlagasjóði, hafi
komið fram umræddir gallar i 82
húsum, sem öll væru frá sama
fyrirtækinu, sem er sænskt, en að
öðru leyti væri þessi hús mjög
vönduð. Þegar hefur verið hafizt
handa um að lagfæra þennan
galla, sem var sá, að tappar undir
gluggum hafa verið eitthvað
skakkt skornir, með þeim af -
leiðingum að lak með þeim.
t framhaldi af þessu sagði Guð-
mundur aðspurður, að Vest-
mannaeyingar væru nú fluttir i
um 300 hús, af þessum 550, sem
keypt voru, og hann áleit, að
Vestmannaeyingar myndu koma
til með að nota húsin að öllu leyti
sjálfir. Ef eitthvað yrði afgangs,
myndu þau hús verða scld á
almennum markaði, að öllum lik-
indum.
Sextiu af húsunum eru lil
bráðabirgða, en öll hin eru varan-
legir bústaðir. Guðmundur itrek-
aði það að lokum, að það væri
mikill misskilningur, ef menn
héldu að öll Viðlagasjóðshúsin
væru meira og minna gölluð. — hs
-■ i
SkEIFM'
•“ SKE/FAM tS
MIKLABRAU7
HÚSGAGNAVERZLUN
GUÐMUNDAR
Skeifan 15 Sími 82898
0Húsfrcyjustóll
Hægindastóllinn vinsæli frá Módelhúsgögnum.
Hlýlegur stóll, sem sæmir sér vel hvar sem er.
£)HGlsingi
Frábært sófasett fyrir vandláta. íslenzk eða
erlend áklæði eftir eigin vali. 2,3, eða 4 sæta sófi.
Velja má um stál eða tréfætur.
Húsbóndastólinn rhá kaupa sérstaklega.
®6ommoda
Sófasettið, sem endist helmingi lengur.
Formfagurt og sérlega þægilegt. Nýtízkulegt
í hönnun: tveir púðar í baki; allir slitfletir
viðsnúanlegir.
3)omino
Sófasettiff er komiS ;
Sófasettið vinsæla er komið aftur. Eldri
pantanir óskast endurnýjaðar. Takmarkaðar
birgðir.
GUÐMUNDSSONAR