Tíminn - 23.12.1973, Síða 4

Tíminn - 23.12.1973, Síða 4
4 TÍMINN ■SunnudaKur 2:i. desember 197H. I*J1fill BllBi Nýflutt og dnægð með lífið Ekki alls fyrir löngu flutti her- toginn af Kent ásamt fjölskyldu sinni i nýtt hús, og við það tæki- færi var þessi skemmtilega mynd tekin. Það er yngsti sonur þeirra hjóna, Nicholas lávarður af Windsor, sem brosir breitt og lætur fara vel um sig i blóma- kerinu. Þetta UDDátæki stráksa kom auðvitað öllum til að skella upp úr, jafnt ljósmyndaranum sem hinum fjölskyldumeð- limunum, og þess vegna hefur myndin sjálfsagt orðið svona óhátiðleg og gleðilega ólik flestum öðrum kóngafólks- myndum, sem sifellt birtast i blöðunum. Allt er öðruvísi en dður Það má með sanni segja, að allt er öðru visi en það var áöur, segir vesalings Ingrid Bergman sem varð fyrir þvi ekki alls fyrir löngu, að þjófar róðust inn i ibúð hennar á Maylair-hótelinu i London. Þjófarnir tóku með sér skartgripi, pelsa og ýmislegt annað, fyrir hátt i tvær milljónir króna. Það leit helzt út fyrir, að fellibylur hef ði gengið yfir, sagði Ingrid á eftir. Allar hurðir stóðu upp á gátt, og allar skúff- ur og allir skápar höfðu verið opnaðir. Allt verðmæti var horf- ið úr Ibúðinni. Það sem Ingrid scgist sjá mest eftir, eru minja- gripir, sem hún hafði fengið frá börnum sínum. Þessir hlutir höfðu mikið gildi fyrir hana per- sónulega, þótt þeir hefðu ekki allir mikið gildi fyrir aðra, og væru ekki mjög verðmælir. o Ingrid Bergman varð sjálf vör við innbrotið, þegar hún kom heim til sin úr leikhúsinu kvöld eitt. Hún var með eitt af kvöld- blöðunum undir handleggnum, og þar hafði hún einmiit verið að lesa um innbrot hjá kunn- ingja sinum. Þjófarnir hölöu llklega brotist inn aðeins tiu mlnútum eftir að leiksýning hófst I Alberty-leikhúsinu, þar sem Ingrid fer með aðalhlut- verkið. I ljós kom við rannsókn, að eitthvert sambýlisfólk henn- ar hafði hleypt inn ókunnugum mönnum fyrir mistök, en ann- ars eru útidyr hússins alltaf læstar, og þangað kemur enginn inn óboðinn. Ingrid Bergman er þriðja leikkonan sem á skömm- um tlma hefur verið rænt frá I London. ★ Vöxtur dn mengunar Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNIDO, hefur nú haf- ið herferð fyrir því að bæta mannlegt umhverfi og nýtur stofnunin til þess fjárstuðnings frá hinni nýju Umhverfismála- stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem hefur höfuðstöðvar sinar i Nairobi i Kenya. Iðnþróunar- stofnunin á nú að vinna kerfis- bundið að þvi að rannsaka hvernig unnt sé að minnka mengunina frá ýmsum stóriðju- greinum, sem nú valda mikilli mengun á mannlegu umhverfi. Þær greinar, sem hér helzt um ræöir eru til dæmis járn og stál- iðnaður, gúmmiiðnaðar og leðuriðnaður. Iðnþróunarstofn- unin hefur meðal annars haft það hlutverk siðan henni var kor.iið á fót árið 1966 að vinna að þvi að hraða iðnvæðingu i þró- unarlöndunum, og i frétt frá stofnuninni segir, að kappkost- að verði að koma i veg fyrir mengun i sambandi við allar nýjar iðngreinar og stóriðju, sem sett verði á fót i þróunar- löndunum, þannig að hagvöxtur þurfi ekki ævinlega að hafa i för með sér einhverskonar mengun mannlegs umhverfis. ★ Vakna við vondan draum Nýlega var haldið þing i Frakk- landi, þar sem komu saman um 400 fæðingarlæknar og ljós- mæður og var þar fjallað um marga hluti i sambandi við barnsfæðingar. Læknarnir Philip Fargier og Marie-Jose Callamel, skýrðu frá rannsókn- um sinum á börnum i fæðingu. Komið var fyrir heila linuriti á höfðum barnanna um leið og legvatnið var komið og var þetta aðeins gert þegar fæðingin gekk eðlilega að öllu. A heila- linuritinu kom i ljós að heila- bylgjurnar sýndu djúpan svefn, i sumum tilvikum var um klukkustund að ræða frá þvi að linuritinu var komið fyrir og þar til barnið var fætt og sýndi það svefn allan timann, og fyrstu daga barnsins er þessi fæðingarsvefn rikjandi. Eins og flestir vita þá er það oft, að börnin eru nýfædd tekin upp á fótunum og slegið i bossann á þeim til þess að fá þau til að gráta og þenja lungun lofti. Má með sanni segja að þau vakni við vondan draum! rwi /Z-2? Hami er kominn, hann er kominn. Hver heldurðu að það liafi verið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.