Tíminn - 23.12.1973, Qupperneq 5
’Sunnudagur 23. desember 1973.
TÍMINN
5
Nýtt bóluefni
gegn hundaæði
A hverju einasta ári hljóta rúm-
lega milljón manns langvarandi
og oft sársaukafulla læknismeð-
ferð vegna þess að þetta fólk
hefur veriðbitið af óðum hund-
um. Ofan á þetta bætist svo, að
læknismeðferðin gefurekki full-
an bata i nærri öllum tilvikum,
að þvi er segir i nýlegri rann-
sókn, sem framkvæmd var á
vegum Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar, WHO. Nú
hafa hinsvegar vaknað vonir
um, að innan skamms komi
fram nýtt bóluefni, sem leysi
eldri lyf i þessum efnum af
hólmi, en þeim hefur verið beitt
þannig, að sjúklingarnir hafa
þurft að fá sprautur daglega, oft
stóra skammta i einu i allt að
þrjár vikur, eftir að hafa orðið
fyrir þvi óláni að óður hundur
beit þá. Þetta nýja bóluefni, er
nú verið að rannsaka i tilrauna-
stofum i Bandarikjunum og
Frakklandi, og ef það gefur eins
góða raun og menn nú vonast til,
á hver sjúklingur ekki að þurfa
að fá nema eina til þrjár
sprautur eftir að hafa verið bit-
inn af óðum hundi. Það er ekki
aðeins að læknismeðferðin eigi
að taka skemmri tima, heldur á
og að vera meiri trygging fyrir
þvi en áður að sjúklingarnir
ekki fái bráða heilahimnubólgu,
sem næstum ævinlega leiðir til
dauða. I evrópskum borgum eru
það nær alitaf hundar eingöngu,
sem eru smitberar, en þess eru
einnig dæmi að villirefir geti
sýkt menn af þessum sama
sjúkdómi sem svo lengi hefur
verið nefndur hundaæði, og
flestum stendur óneitanlega
mikill stuggur af.
★
Tekjur hækka
Tekjur franskra bænda hækk-
uðu ögn meira en tekjur iön-
verkafólks og skrifstofufólks
gerðu á þessu ári. Hins vegar
hækkuðu tekjur bændanna ekki
eins mikið i ár og þær geröu i
fyrra. Nú hækkuðu þær aðeins
um 6.5% en um 12.8% árið áður.
t þessum tölum er ekki tekið til-
lit til verðbólgu. Þegar notaðar
eru raunverulegar tölur, og tillit
tekið til hækkunar á kostnaði við
búskapinn og hækkunar á vör-
um almennt, hafa tekjur bænd-
anna hækkað um 4.7% undan-
farin fimm ár.
Merkasti viðburður sögunnar síðan
fyrst var stigið fæti d tunglið
heitir kvikmynd, sem verið er
að taka i Frakklandi. Aðalhlut-
verkin eru i höndum Catherine
Deneuve og Marcello
Mastroianni, sem leika talsvert
óvenjuleg hjónakorn.
Sá merki viðburður, sem titill
myndarinnar visar til, er
væntanleg fjölskylduaukning.
Það væri svo sem ekki i frá-
sögur færandi, ef ekki vildi svo
undarlega til, að i þessu ágæta
hjónabandi er það húsbóndinn,
sem verður barnshafandi. Og
þetta veldur vitanlega ýmsum
breytingum i lifi f jölskyldunnar.
★
x Sofnaði í
T miðjum klíðum Hugmyndir mótaða
Natasha Halima Caine var
ellefu vikna, þegar hún var fyrst
kynnt fyrir blaðamönnum og
ljósmyndurum. Hún tók þessu
með jafnaðargeði i fyrstu og
brosti út að eyrum, en þegar
hún sá fram á að þessi ósköp
ætluðu engan enda að taka, varð
hún leið á öllu saman og stein-
sofnaði i örmum foreldra sinna.
Hún er dóttir Shakira og
Michael Caine leikara, sem
flestir kannast vist við.
Þessi mynd var tekin, meðan
ungfrúin var enn vakandi, en
hún er greinilega farin að þreyt-
ast þarna.
Maður heldur á mjóum gler-
stöngli og litlum töngum. Hann
heldur glerinu i bláleitum
gasloga. Glerið roðnar og
byrjar að bráðna. Það myndast
dropar, sem virðast i þann
veginn að falla, en
listamaðurinn kemur alltaf I
veg fyrir það með æfðum
handtökum. Ilann beygir glerið
og teygir það, og þannig heldur
hann áfram þangað til hann
hefur mótað fagurt dádýr úr
glerinu. Þannig býr Vitaly
Ginzburg, glergerðarmaður frá
Lvov til fólk, dýr og fugla.
Vitaly Ginzburg er yfirmaður i
Svo sem sjá má á myndinni,
er Mastroianni þegar farinn að
þykkna undir belti, en hvað
siðar verður, vitum við þvi
miður ekki. Við verðum bara að
biða þolinmóð el'tir að myndin
verði sýnd hór á landi
r í gler
tilraunastofu lladuga-gler-
eerðarfvrirtækisins i Lvov.
Ilann er tækniverkfræðingur i
kisiliðnaði. Hann byrjaði til-
raunir á gleri, þegar hann var
við nám. Nú er þessi ungi
listamaður viðurkenndur gler-
gerðarmaður. Verk hans hafa
verið sýnd á 20 alþjóðasýning-
um. Hann heldur rannsóknum
sinum áfram, og verk hans
verða æ fjölbreyttari, hvað
snertir lögun og lit. Myndir hans
úr lifi Karpata-Guzul-fjallabú-
anna eru mjög eftirtektar-
verðar. Þær eru úr þjóðsögum,
sem nefnast „Guzul-brúðkaup-
ið.”
★
★
★
Svartahaf verður
ekki mengað
*
Verið er að ljúka við byggingu
vatnshreinsunarstöðvar við
höfnina i Odessa við Svartahaf,
og mun stöðin hreinsa 42.000
rúmmetra af vatni á dag. Vatn-
ið. sem hreinsað verður. er
vatn. sem dælt er i tankskip, eft-
ir að þau hafa losað oliu. Aður
losuðu tankskip urgangsvatn i
sjóinn. og orsakaði þaö mengun,
þar sem hver litri af vatni inni-
heldur nokkur grömm af oliu-
afuröum. Skip, sem liggja við
oliuhöfnina i Odessa, munu losa
úrgangsvatnið i sérstaka
geyma. Siðan fer vatnið i
hreinsun og er algerlega hreint,
þegar það er sett i sjóinn aftur.
Olian, sem skilst viö hreinsun-
ina, er hreinsuð lika. Nú þegar
starfa slikar hreinsunarstöðvar
i nokkrum sovézkum höfnum. I
náinni framtið munu verða
reistar fleiri slikar. Myndin er
úr hreinsunarstöð i Odessa, sem
unnið er að að byggja.
TJW 1
\